Morgunblaðið - 03.01.1963, Page 15

Morgunblaðið - 03.01.1963, Page 15
Jj'immtuciagur 3. janúar 1963 MORGVNBLAÐIh 15 Bifreiöin, sem A-Þjóðverjarnir flúðu i annan jóladag. 1.5g- reglumenn athuga verksummerki eftir skothríðina. Alls fund- ust 8 kúlnagöt. Til frelsisins um jólin SóguSeguf fftótfi, og gat sprengt á Berlínarmúrinn £INS OG skýrt var frá í frétt um milli jóla og nýárs, þá voru gerðar margar, djarflegar flóttatilraunir við Berlínar- múrinn alræmda. Flestar tók- ust þær vél, og alls munu um tæpir tveir tugir manna, kvenna og bama hafa komizt vestur yfir, til frelsisins. Fáar tilraunir, sem gerðar hafa verið til þessa, voru þó eins sögulegar og sú, sem gerð var að morgni annars jóla- dags. Þá flúðu tvenn hjón með 4 börn til V-Berlínar, í stórum fólksflutningabíl, sem brynvarinn hafði verið sér- staklega, vegna fararinnar. Fólkið átti heima í Neuger- sdorf, nærri landamærum A- Þýzkalands, Póllands og Tékkó slóvakíu, en þaðan er um 200 km akstur að mörkum V- Berlínar. Flóttinn hafði verið undirbúinn x nokkrar vikur, en lagt var af stað á aðfanga- dagskvöld. Farið var eftir ýmsum krókaleiðum og fáförnum göt um til að forða því, að bifreið in yrði rannsökuð af a-þýzkum lögreglumönnum. Ekki kom til átaka við þá, fyrr en bifreið- in nálgaðist V-Berlín. Þá, rétt áður en hún kom að borgar- mörkunum, hófu lögreglu- mennirnir skothríð úr vél- byssum. Athugun leiddi síðar í ljós a.m.k. 8 vélbyssukúlur hittu bifreiðina. Aðeins einn særðist, en það var ekki vegna vélbyssuárás- arinnar, heldur gerðist það, er bifreiðin ók á fullri ferð gegn um þrefalda landamæragirð- ingu. Þá brotnaði framrúðan, og ökumaðurinn fékk glerbrot í andlitið. Ekki var það þó mikið sár. Vafalítið hefur það orðið flóttafólkinu til lífs, að bif- reiðin var klædd með stálplöt um, sem vörnuðu því, að kúl urnar næðu til flóksins. Maðurinn, sem átti bifreið- ina, var áður eigandi flutninga fyrirtækis, en það hafði nú nýlega verið gert að ríkiseign. Mun það hafa verið eitt af síð ustu fyrirtækjum í A-Þýzka- landi, sem enn voru í einka- eign. Auk hans voru með í för inni, ökumaðurinn, sem hafði áður starfað við fyrirtækið, konur mannanna beggja, og börn þeirra, alls fjögur. Þótt allmargir hafi komizt vestur yfir, til frelsis, nú um hátíðarnar, þá . ber frásögn- um flóttamanna að undan- förnu saman um, að margar þúsundir manna bíði þess að komast brott úr A-Þýzkalandi, sem nú er, og hefur verið, fangelsi líkast, umlukið marg- földum gaddavírsgirðingum. Hvergi getur þó berari merki að líta um ófrelsið, en sjálfan Beriínarmúrinn. 28. desember gerðu nokkrir V-Berlínarbúar tilraun til þess að rjúfa hann, er þeir komu fyrir sprengju við múr- inn, í Jerusalemer götu, um kílómeter frá varðstöð Banda ríkjamanna, Checkpoint Charlie. Sprengjan rauf um meters breitt bil í múrinn. Samstund is dreif að 6 a-þýzka lögreglu menn, alvopnaða, til að gæta þess, að enginn notaði tækifær ið til að flýja. Sjást þeir á ann arri myndinni, sem hér fylgir, en hin sýnir v-þýzka lögreglu- mernx athuga bílinn, sem not- aður var við flóttann sögulega að morgni annars jóladags. Tveir af a-þýzku lögreglumðnnunum sex, sem dreif að, er sprengja hafði rofið gat á Berlínarmúrinn, 28. desember. Svo öflug var sprengjan, að hún braut um 600 rúður í nærliggj- andi húsum. — Annar lögreglumannanna heldur á táragas- sprengju. LeikféSag Hafnarfjarðar: Belinda LEIKFÉLAG Hafnarfjarðar hóf Btarfsemi á þessu leikári með frumsýningu föstudaginn 28. des- ember á sjónleiknum „Belinda“ eftir Elmer Harris. Leikurinn gerist á Prins Ed- wardseyju suður af Nýfundna- iandi á heimili McDonalds í myllunni, skammt frá smáþorp- inu Souris. John McDonald býr þarna ásamt Belindu dóttur sinni, sem er daufdumb, enda jafnan kölluð Dumba, og systur sinni Maggie McDonald. Belinda er látin vinna hörðum höndum og ekkert sinnt um að reyna að kenna henni neitt, enda er Maggie föðursystir hennar ströng og vinnuhörð og telur tilgangs- iaust að eyða tíma í að kenna Belindu. — í byrjun leiksins ber þarna að garði Jack Davidson, ungan lækni, sem nýkominn er í plássið. Þegar hann verður þess áskynja að Belinda er dauf- dumb, vaknar áhugi hans á að kenna henni að skilja menn og gera sig skiljanlega. Hefst hann þegar handa um kennsluna, sem ber fljótlega mikinn árangur því að Belinda er greind stúlka. Fer svo að læknirinn og Belinda verða ástfangin hvort af öðru. En þarna kemur einnig mjög við sögu mannhrak eitt, Locky áð nafni, sem veldur mikilli ágæfu. En eigi er vert að rekja efni leiksins frekar, þess skal þó getið að efni þess er mjög athyglis- vert og í því mikil dramatisk átök. Leikstjórinn, Raymond Witch «• Englendingur, þjálfaður leik- húsmaður og leikari, enda ber leikurinn það með sér að um hann hefur verið farið höndum góðs kunnáttumanns. Er leikstjórnin öll örugg og heildarsvipur sýn- ingarinnar prýðisgóður. Aðalhlutverk leiksins, Belindu, leikur Svandís Jónsdóttir. Er hlut verkið allvandasamt, enda þótt Belinda mæli ekki orð af munni, eða máske fremur vegna þess, því að það verður eingöngu að leika með svipbrigðum og lát- bragði. Svandís leysir hlutverkið ágætlega af hendi og leynir sér .ekki að leiklistarnám hennar hér og í London hefur borið góðan árangur. Þá er og mjög öruggur og áferðargóður leikur Bjarna Stein- grímssonar í hlutverki Davidsons læknis, en hann hefur stundað leiklistarnám í leikskóla Þjóð- leikhússins og einnig í Svíþjóð. Leikur Valgeirs Óla Gíslasonar í hlutverki McDonalds föður Belindu, er nokkuð misjafn, — stundum prýðilegur og þá fram- sögn hans einkar eðlileg, en stund um bregst honum bogalistin og framsögnin verður þunglamaleg og blæbrigðalítil. Einna beztur þótti mér leikur Jóhönnu Norðfjörð í hlutverki Maggie McDonald. Framsókn hennar er skýr og eðlileg og hún aðsópsmikil og hressileg í fasi og framkomu eins og hlutverkinu hæfir. Hefur Jóhanna sýnt það áður að hún býr yfir athyglis- verðri leikgáfu. — Þá er og eink- ar góður leikur Ragnars Magn- ússonar í hlutverki Locky’s og gerfi hans ágætt. — Ýmsir aðrir leikendur fara þarna með hlut- verk og gera þeim yfirleitt góð skil. Leiktjöldin hefur Bjarni Jóns- son málað. Falla þau mjög vel við leikinn sem og allur sviðs- búnaðurinn. Er ljóst að Bjarni er prýðilegur kunnáttumaður á sínu sviði. Svandís Jónsdóttir hefur þýtt leikinn. Virtist mér þýðingin vel af hendi leyst. Leildiúsgestir tóku leiknum af- bragðsvel og bárust leikstjóra og leikendum fjöldi blóma að leiks- lokum. Sigurður Grímsson. BINGÓ - BINGÖ B reiBfirðingabúð í KVÖLD KL. 9. Meðal vinninga: 12 manna matarstell — 12 manna kaffistell Spjöld seld á lækkuðu verði. Borðapantanir í síma 17985. BREIÐFIRÐIN G ABÚÐ. VIKAi stitkbr um 8 síshir án þess að hækka verður framvegis. 52 síður Vikan í dag: • OKTÓBERDAGAR í AÞENU. — Ferðaþættir úr Jórsalaför eftir Gísla Sigurðsson, ritstjóra. • VILLTA ORKÍDEAN. — Skemmtileg smásaga eftir Stuart Cloete. • EINBÝLISHÚSAHVERFI í KÓPAVOGI. — Myndir og lýsingar af húsum Byggingarsamvinnufélags Sam- manna. • MAGNÓLÍUTRÉÐ. — SPennadi smásaga eftir Lynn Bretton. • SÍÐUSTU DAGAR POMPEJI. — Myndir af upp- greftri hinnar horfnu borgar og lýsing á síðustu augna- blikum íbúanna þar. © MARÍULÍKNESKIÐ. — Smásaga úr verðlaunakeppn- inni, eftir Kristján Jónsson, Xögfræðing. 9 DAUÐS MANNS SPEGILL. — Þriðji hluti. • TVÆR NYJAR FRAMHALDSStfGUR: 9 KONUNGUR KVENNABURSINS. — Sönn saga um ófyrirleitinn glæpamann, sem skapaði sér auð, völd og munað undir yfirskyni trúar. Gerðist í Bandarikjun- um fyrir nokkrum áratugum síðan. • ÖRVITA ÞRENNING. Óvenjulega spennanda ástar- saga, sem gerist í Berlín og París. Eftir Vicki Baum. • HVERS Á ÍSLENZK ÚTGÁFA AÐ GJALDA? — Stutt grein um þá aðstöðu, sem innlendri útgáfu er búin til móts við innflutninginn á bókum og blöðum. VIKA1H

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.