Morgunblaðið - 03.01.1963, Qupperneq 16
16
MORCV N BL4Ð1Ð
Fimmtudagur 3. Janúar 1963
— Hannibal
Framhald af bls. 2.
aðild. Ástæðurnar til þessara
sinnaskipta eru augljósar. Al-
menningsálitið á Islandi er
sterklega á móti því aC bind-
ast Efnahagsbandalaginu, og það
eru kosningar í vor“. Síðar segir:
Alþýðusambandið er „undirstöðu
aflið í andstöðunni gegn Efna-
hagsbandalaginu" (á norskunni:
„grunnklippen i motstanden“)
„og hið sósíalistiska Alþýðu-
bandalag og Framsóknarflokkur-
inn hafa lýst yfir þvi, að hvorki
aðild né aukaaðild komi til
greina fyrir land vort“. — I>áð
er ekki ófróðlegt fyrir útlend-
inga að kynnast þessari djúp-
sæju skilgreiningu á afstöðu
stjómmálaflokkanna til EBE, og
ekki sízt, að það skuli vera
Hannibal sjálfum að þakka (að
því er virðist með smávegis að-
stoð kommúnista og Framsókn-
ar), að ísland er ekki þegar orð-
ið aðili að EBE. Svo virðist, að
Hannibal Valdimarsson geri sér
ekk ljóst, að ísland er í Vestur-
Evrópu, því að hann telur höfuð-
hættuna af tengslum við EBE
vera þá, að ísland verði „lagt
undir“ Vestur-Evrópu, en .,það
viljum við alls ekki“. Hverjir
þessir „við“ eru, sem vilja breyta
landafræðinni, er ekki ljóst, en
af samhenginu virðast það vera
Framsóknarmenn, Hannibal og
aðrir kommúnistar.
Fröken Skard spyr nú um bak-
grunninn fyrir deilunum um sein
asta Alþýðusambandsþing. „For-
seti“ ASÍ svarar: „Það, sem
gerzt hefur, er að barátta ríkis-
stjórnarinnar fyrir því að tryggja
sér yfirráð í efnahagspólitíkinni
hefur færzt beint inn í ASl“. Síð-
an hneykslast hann á því, að ASÍ
hafi verið neytt til þess að með
dómi að taka við stéttarfélagi
verzlunar- og skrifstofufólks, en
heykist á því að rekja aðdrag-
anda þess máls og segir: „Til
þess að gera langa sögu stutta,
þá höfnuðum við umsókninni um
sinn á fyrra þingi okkar, þar
sem „Handel og Kontor“ hafa
allt öðru vísi skipulag en hin
félögin í ASÍ, þar sem margir
vinnuveitendur eru á félaga-
skrám þess, og þar sem við skild-
um ekki hina „faglegu ástæðu til
þess, að samtökin vildu gerast
meðlimir“(!).
,.Forseti“ ASÍ segir á öðrum
stað: „Það er greinileg stjórn-
málaleg barátta milli ríkisstjórn-
arflokkanna og andstöðunnar í
ASÍ, en fram að þessu hafa and-
spyrnuflokkarnir, Alþýðubanda-
lagið og Framsóknarflokkurinn
haft meirihluta (í ASÍ). Það var
samt sem áður athugavert, að
fulltrúar LÍV hefðu e. t. v. getað
ráðið úrslitum í þessu þrátefli,
þar eð þau (þ.e. félögin í LÍV)
‘hafa tilhneigingu til þess að
styðja stjórnarflokkanna. Á ASÍ-
þinginu 19.-20. nóv. (!) voru um-
boð þeirra hins vegar ekki sam-
þykkt. þar eð rannsaka varð lög
þeirra og félagaskrár, og at-
kvæðatölur við kjör forseta þings
ins sýndu greinilega, að stjórnar
flokkarnir ásamt LÍV myndu
lenda i minnihluta, þveröfugt við
útreikninga stjórnarflokkanna“.
Það er ekki ónýtt fyrir Norð-
menn að lesa þessa hreinskilnis-
legu játningu Hannibals Valdi-
marssonar, þar sem hann viður-
kennir, að öll baráttan gegn
aðild LÍV hafi stafað af ein-
hverjum útreikningum valda-
klíkunnar í ASÍ á hlutföllum
deiluaðila á þinginu. Réttæti,
sanngimi og stéttvísi var hins
vegar utangarðs og málinu óvið-
komandi.
Um ástandið á fslandi í dag í
launamálum hefur Hannibal ekk
ert nema illt að segja. Verður
ekki annað ráðið af ummælum
hans, en hér sé allt í kaldakoli
og fátækt meðal landsmanna.
Hér verða tilfærðar örfáar glefs-
ur úr rógburðinum, til þess að
landsmenn átti sig á því, hvernig
i Hannibal ber okkur söguna við
erlenda fréttamenn:
„Sósíaldemókratar og Sjálf-
stæðisflokkurinn hafa komið
á bráðabirgðalögum, sem banna
lögleg verkföll (!), þeir hafa
með lögum lækkað öll laun ..
og þeir hafa breytt skattalögun-
um þannig .. að byrðarnar á
launþegum eru meiri“. Þá full-
yrðir Hannibal, að lífskjörin séu
nú verri en árið 1958. „Efna-
hagsástandið hefur versnað svo
mjög, að venjulegur launþegi nú
á dögum getur ekki lifað með
fjölskyldu sinni fyrir það, sem
hann vinnur sér inn á átta tím-
um á dag“. Húsaleigan, segir
Hannibal, að sé allt að 60% af
launum manna. Að lokum klykk
ir hann út með því, að vonazt sé
til, að ASÍ geti haldið áfram bar-
áttunni gegn efnahagsstefnu rík-
isstjórnarinnar og gegn Efna-
hagsbandalaginu.
Sæmdir
Fálkaorðunni
FORSETI fslands sæmdi á
nýjársdag, að tillögu orðunefnd-
ar eftirfarandi menn riddara-
krossi hinnar íslenzku fálkaorðu.
Árna J. Johnsen, Vestmanna-
eyjum, fyrir björgunarstörf og
brautryðjandastarf í garðrækt.
Friðrik A. Friðriksson, fyrrv.
prófast, Húsavík, fyrir embættis-
og félagsstörf.
Hafstein Bergþórsson, fram-
kvæmdastjóra, Reykjavík, fyrir
störf að sjávarútvegsmálum.
Hermann Jónsson, hreppstjóra
Yzta-Mói, Fljótum í Skagafjarð-
arsýslu, fyrir búnaðar- og félags-
störf.
Jóhann Hafstein, bankastjóra,
Reykjavík, fyrir embættisstörf.
Sigurð Þórðarson, óðalsbónda,
Laugabóli, Nauteyrarhreppi, N.-
ísafjarðarsýslu, fyrir búnaðar-
störf.
Frá orðuritara
Á forslðu Mbl. 30. des. sl. var
teifcning eftir Halldiór Pétursson.
Efst á myndinni slíta Kennedy
og Krúsjeff Castro á milli sín,
en á fslandi ríkir .mikill fögn-
uður“ oig fara hér á eftir nöfn
þeirra, sem taka þátt í honum:
1. Ólafur Thors.
2. Einar Olgeirsson.
3. Gunnar Dal.
4. Hannes Pétursson.
5. Þórbergur Þórðarson.
6. Vailtýr Pétursson.
7. Ásgeir Bjarnþórsson.
8. Eiríkur Kristófersson.
9. Anderson, skipherra.
10. Jón Leifs.
11. Beethoven.
12. Hermann Jónasson.
13. Guðmundur í. Guðmundsson
14. Sverrir Kristjánsson.
15. Kristmann Guðmundsson.
16. Axel Kristjánsson.
17. Lúðvík Jósepsson.
18. Guðmundur G. Hagalín.
19. Halldiór Kiljan Laxness.
20. Níels Dungal.
21. Sveinn Víkingur.
22. Helgi Sæmundsson.
23. Stefán Jónsson.
24. Eysteinn Jónsson.
25. Jónas Jónsson.
26. Þórarinn Þórarinsson.
LandsmáEafélaglð Vörður
JÓLATRÉSSK EIUIUTANIR
Landsmálafélagsins Varðar verða að Hótel Borg. fimmtudaginn 3. janúar og föstudaginn 4. janúar kl.
15:00 til kl. 19:00. — Verð aðgöngumiða kr. 60:00. — Aðgöngumiðar afhentir á skrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins í Sjálfstæðishúsinu á venjulegum skrifstofutíma.
Landsmálafélagið Vörður.
Vörður — Hvöt — HeimdaEður — Óðinn
ÁRAIUÖTASPILAKVÖLD
Áramótaspilakvöld Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík verður fimmtudaginn 3. janúar kl. 20,30
í Sjálfstæðishúsinu og Hótel Borg.
Skemmliatriði:
S JÁLFSTÆÐISHÚSIÐ:
1. Spiluð félagsvist.
2. Ávarp: Formaður Sjálfstæðisflokksins,
Bjarni Benediktsson, dómsmálaráðherra.
3. Spilaverðlaun afhent.
4. Dregið í happdrætti.
5. Spánska danstríóið „Queta Barcelo“
dansar spánska dansa.
6. Dans.
Húsið opnað kl. 20.00. — Lokað kl. 21.30.
HÓTEL BORG:
1. Spiluð félagsvist.
2. Ávarp: Varaformaður Sjálfstæðisflokksins,
Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra.
3. Spilaverðlaun afhent.
4. Dregið í happdrætti.
5. Spánska danstríóið „Queta Barcelo“
dansar spánska dansa.
6. Dans.
Húsið opnað kl. 20.30. — Lokað kl. 21.30.
Sætamiðar afhentir í Sjálfstæðishúsinu á venjulegum skrifstofutíma.
Skemmtinefndin.