Morgunblaðið - 03.01.1963, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.01.1963, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 3. janúar 1963 MORGVNBLAÐIÐ 17 Hróbjarfsminni (I tilefni af fimmtugsafmæli Hróbjarts Bjarnasonar stórkaup- manns 1. janúar 1963). I. Ár var austur, er ungan leiddi móðir mög mildum sjónum, fögnuðu hjón fríðum lauki stórrar ættar á Stokkseyri. Hétu svein Hróbjarts nafni, móðurföður minnum göfugs, þess er góðfrægur á Grafarbakka hálfa öld húsum stýrði. Áður bar nafnið Erlends kundur Hróbjartur frá Hæringsstöðum, sá er öldum tveim orpið hefir sorgalaus í sinn frama. IL Stóð vagga þar er stórir rísa sjóir af sæ suðurpólskir, grenja skerjálur og skoltum sleikja Langarif, land bæði og sand. Hitt var oftar, er hvíld og ró andaði bára ■inn að ströndu, svæfði, hvíslaði, sveip friði svein og mey, son og dóttur. Upp nam að vaa og vel dafna bur og bróðir í Bjarnarhúsi glaður og frækn, sá er gleðja kunni föður, móður og frænda lið. Leikið var á túni og á Löngudæl, farið í fjöru, fengizt að skeljum, skotizt fimlega skerja milli, þá er úfnar öldur oss vildu ná. Var til fjalla fagurt að líta, horfðu barnsaugu við Bláfelli, Hekla við austur hvítfaldaði og Eyjafjalla aldinn skalli. III. Unz hylting, brotsjór tíðar, kvaddi brautfarar af bernsku slóðum, landnáms önn lofðunga kyns heiðsynninga hvarvetna beið. Varð Reykjavík, rísandi á legg, annað ættból austansveini, Ingólfsfjall Esja gerðist og Guðnasteinn Snæfellsþúfur. Dagur af degi bauð dreng frama, óx með aldri athöfn og mennt, var sporléttur á spyrjanda leið, sigldi byrleiði beggja skauta. Kaus lífsstarf í kaupmanns stétt, fús að greiða götu öðrum og vanda hvers vinar leysa og þjóðar hag þrátt að bæta. Lét velgengni sér vel líka, gleymdi þó eigi því er gengið var, efldist að trausti og að ástvinum, unz Hróbjartur hróðbjartur varð. Heim þá reikaði hugur tíðum á brimslóðir bernskudrauma, varð hið mæra minningaland, Árnesþing, íslands fulltrúi. ♦ — Meðan dáfríðar dætur Ránar stikla létt á Stjörnusteinum, verði nýár nýárs syni heilum heilt. Hvað er ár nema það? Guðni Jónsson. Stúlka óskast til afgreiðslustarfa. Uppl. í verzluninni. Hafnarstræti 7. Sendisveinn óskast nú þegar. Sölumiðstöb Hrabfrystihúsanna Aðalstræti 6, IV. hæð. Bezt ú auglýsa í IVIorgunblaðinu Þorsteinn Ólafsson stór- kaupmaður — Minning „EkTcert er, sem menn vita, í senn eins víst og óvíst og dauöinn. Hver fœöing varöar dauöarefsingu. Vér erum all- ir dauöadœmdir. En vér vit- um ekki, hvenær dómnum veröur fullnœgt.“ í>ESSI snjöllu orð Sigurðar heit- ins Guðmundssonar skólameist- ara komu mér strax í hug þegar ég frétti að vinur minn Þorsteinn Ólafsson stórkaupmaður væri dá inn. Fráfall hans gerðist með svo óvæntum og skyndilegum hætti, að þrátt fyrir vissunna um það, að milli vor og dauðans „er að- eins eitt fótmál“ — og vér meg- um alltaf vera við því búnir, að „dómnum verði fullnægt“ — kom þessi helfregn eins og reið- arslag yfir vini Þorsteins og kunningja. Sjálfur minnist ég þess ekki, að önnur andlátsfregn hafi komið mér meira á óvart. Þorsteinn Ólafsson var fæddur 19. september 1916, sonur hjón- anna Ágústu Þorsteinsdóttur og Ólafs Gíslasonar stórkaupmanns hér í bænum. Hann lauk gagn- fræðaprófi og stundaði síðan framhaldsnám í verzlunarskóla í Englandi. Að námi loknu starf- aði hann hjá fyrirtæki föður síns, Ólafur Gíslason & Co. h.f., í 24 ár, unz hann stofnsetti heild- sölufirmað Ólafsson & Lorange, í félagi við Kaj Lorange, fyrir fjórum árum. Allir, sem nokkur kynni höfðu af Þorsteini Ólafssyni, munu vera á einu máli um það, að hann hafi verið einstaklega prúður og hugþekkur maður. Það var gott að vera í návist hans og eiga við hann samstarf, enda rækti hann öll störf, sem hann tók að sér, með einstakri ár- vekni og trúmennsku. Sá sem þetta ritar, hafði um skeið við hann allnáið samstarf í félags- skap, þar sem við vildum báðir verða að einhverju liði. Um þá samvinnu á ég minningar, sem ekki gleymast. Þannig mun og vera um aðra, sem eitthvað höfðu saman við Þorstein að sælda, að þeir minnast hans sem sérstaks prúðmennis og góðs félaga. Árið 1940 kvæntist Þorsteinn Aagot Magnúsdóttur Guðmunds- sonar verzlunarmanns á Reyðar- firði, og eignuðust þau þrjú börn: Rósu, sem gift er Kristjáni Jónassyni gjaldkera, Ólaf Ágúst, sem er átján ára og hefur und- anfarið verið við nám í Noregi, og Ágústu Áróru, 13 ára. Þeir eiginleikar Þorsteins, sem nokkuð hefur verið lýst hér að framan, komu auðvitað ekki hvað sízt fram á heimili hans. Hann var ástríkur og umhyggju- samur heimilisfaðir, svo að af bar, og helgaði heimilinu og fjöl skyldunni flestar tómstundir sín- ar, þegar hann hafði lokið dag- legum störfum. Nú, eins og oft endranær, brestur oss skammsýna menn skilning á því, hvers vegna „dómnum" var fullnægt svo snemma. — „En til þess veit ei- lífðin alein rök.“ Orð ná skammt til huggunar í svo þungum harmi; en samúðarkveðjur vilj- um vér vinir og kunningjar Þor- steins senda eiginkonu hans og börnum, föður hans og öðrum ástvinum. Af persónulegum kynnum veit ég að viðhorf þeirra til dauðans er hið sama og skálds ins góða, sem sagði: „En ég veit að látinn lifir; það er huggun harmi gegn.“ Enginn veit, fyrr en hann stendur sjálfur í spor- um syrgjandans, hvílík náðar- gjöf sú trúarvissa er. Vér kveðjum góðan dreng og biðjum honum blessunar á þeirri leið, sem hann nú á fyrir hönd- um. Vér vitum að honum muni farnast vel, því að „þar sem góð- ir menn fara eru Guðs vegir.“ I V. M. Að kveðja heim sem kristnum ber um kvöld og morgun lífsins er jafn erfitt æ að læra. Og engum lærðist íþrótt sú, Ef ei, vor Jesú, værir þú hjá oss með orð þitt kæra. HIÐ skyndilega og sorglega frá- fall vinar míns og samferða- manns, Þorsteins Ólafssonar, kom sem reiðarslag yfir ættingja hans og vini. Svo óvæntan vina- missi á maður erfitt með að sætta sig við og enn erfiðara með að skilja. Ósjálfrátt leitar sú hugsun að manni, að ákveðinn tilgangur sé hér að verki fyrir tilstuðlan æðri máttarvalda, sem okkur mönnunum er og verður alla tið hulinn heimur. Eru ekki hverjum einstaklingi ásköpuð fyrirfram ákveðin örlög í lifanda lífi? Líflsleið Þorsteins var stráð þeim eiginleikum, er mest prýða góðan dreng. Hann var gæddur sérstakrl prúðmennsku og góð- vild. Snyrtimenni var hann hið mesta og samvizkusemi hans í því, er honum var trúað fyrir, var viðbrugðið. Kunnátta hans og þekking á daglegum viðfang.9- efnum var ótvíræð. Við, sem til þekktum, gleym- um ekki umhyggju hans og ástúð gagnvart eiginkonu, börnum og barnabörnum, litlu telpunum þremur, er hann reyndist svo nærgætinn og hugulsamur afi. Þorsteinn átti þeirri hamingju að fagna ,að eiga sér sem lífs- förunaut dugmikla og glaðværa eiginkonu, og í sameiningu skópu þau heimili, búið þeirri hlýju, sem laðar alla að sér. Þorsteinn var mikill unnandi útivistar og sóttist mjög eftir friðsæld og fegurð íslenzkra sveita. Ótaldar eru þær ferðir, er hann fór ásamt fjölskyldu sinni og vinum til lengri eða skemmri dvalar í nálægum sveit- um. Fráfall slíks heimilisföður, afa og vinar, er erfitt að umbera og þungur harmur kveðinn eða eft- irlifandi börnum hans, föður og öðrum ástvinum. Þungbær er sorg eiginkonunnar, er hann bar svo mikið traust til og unni meir en nokkru öðru. Góði vinur. Ég þakka þér all- ar vináttu og ánægjustundirnar er ég og fjölskylda mín áttum með þér. Vera mín á heimilj þínu um árabil og þau tengsl er af henni hafa leitt, eru mér hugstæðari en svo, að þakkað verði fyrir með nokkrum kveðju orðum. Minning þín mun bezt varðveitt með því að hlúa að þeim meiði er þú sjálfur unnir mest og gerðir mest fyrir. Við munum eftir því sem í okkar valdi stendur styðja og styrkja eiginkonu þína, börn og barna- börn, í þeirra sáru sorg. Sameig- inlega munum við vinna að efl- ingu þeirra dyggða, er þú sjálf- ur hafðir til að bera í svo ríkum mæli, og leiða til aukins kær- leika, fegurra og betra lífs. Far þú í friði, kæri vinur. S. M. Vélstjóror II. vélstjóra vantar á nýjan dieseltogara um miðjan janúar. Upplýsingar í síma 16357 og 19071. VA NTAR vélstjóra og háseta Uppl. Hótel Skjaldbreið herbergi no. 6. Röskur sendisveinn óskast hálfan eða allan daginn til vors. G L O B U S H/F., Vatnsstígur 3.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.