Morgunblaðið - 19.01.1963, Blaðsíða 8
8
MOKCVNBLAÐ I Ð
Laugardagur 19. janúar 1963 '
Fé husatryggingasjóðs
avaxtað á hag-
kvœmasta hátt
ÞAÐ vakti mikla athygli á fundi
borgarstjómar Reykjavíkur sl.
fimmtudag, að einn borgarfull-
trúi kommúnista, Guðmundur
Vigfússon, amaðist mjög við því,
að fé Húsatryggingasjóðs Reykja
víkurborgar væri ávaxtað, eins
og hagstæðast þykir, og borgar-
sjóður grípi til bráðabirgðalána
úr sjóðnum til þess að fleyta
sér yfir þann árstíma , er lítið
innheimtist af tekjum borgar-
sjóðs.
Kom þetta fram í ræðu, sem
Guðmundur flutti á fundinum
og tillögu, er hann bar fram í
sambandi við hana. Var tillaga
!hans um mjög mikla takmörkun
á ráðstöfun á fé sjóðsins, og rök-
studdi hann tillögu sína aðallega
með þvi, að nokkur drattur hefði
orðið á því, að leysa út bruna-
bifreið, er Slökkvilið Reykjavík-
ur hefur fest kaup á. Taldi hann
þetta sýna, að of nærri sjóðnum
hefði verið gengið. Og af þeim
sökum hefði sjóðurinn ekki get-
að lagt fram nægilegt fjármagn
til eflingar brunavörnum og til
lækkunar á iðgjöldum húseig-
enda.
Geir Hallgrím.sson, borgar-
stjóri, svaraði fyrst þeirri gagn-
rýni G.V., að hústryggingasjóð-
irr rækti ekki sem skyldi það
hlutverk sitt að efla brunavam-
ir í borginni. Minnti hann í því
sambandi á nokkur framlög, sem
borgarstjórn hefur samþykkt að
veita úr sjóðnum til eflingar
brunavörnum. Nefndi hann fyrst,
að laun 6 slökkviliðsmanna og
annar kostnaður við störf þeirra
eru borguð úr sjóðnum; ennfrem
Sendisveinn
óskast nú þegar. Þarf að hafa skellinöðru.
BJÖRIM & HALLDÓR
V élaverkstæði,
Síðumúla 9 — Sími 36030.
Afgreiðslumaður
ur er Húseigendafélagi Reykja-
víkur veittur styrkur úr sjóðn-
um til eflingar brunavörnum;
samþykkt hefur verið 1 millj.
kr. framlag til kaupa á slökkvi-
tækjum, þ.á.m. bíl — og hafa
þar af, þegar verið greiddar 7Ö0
þús. kr.; og til slökkvistöðvar
befur verið samiþykkt 4 millj.
kr. framlag úr sjóðnum, sem ekki
hefur enn komið til útborgunar.
Lioks minnti borgarstjóri á, að
borgarstjórn hefur veitt úr sjóðn-
um lö millj. kr. lán til hitaveitu-
framkvæmda, sem vissulega yrði
að telja til eflingar brunavarna,
þar eð með því væri stefnt að
útrýmingu olíukyndingartækja.
í»á talli borgarstjóri eðlilegt,
að borgarsjóður gripi til bráða-
birgðalána úr sjóðnum, þar sem
kunnugt væri að greiða yrði af
höndum bæði rekstrargjöld borg-
arsjóðs og framlög til margvís-
legra fjárfestingarframkvæmda
mun fyrr en tekjur innheimtast
og yfirleitt áður en mótframlög
fást greidd eða lán tekin. Og
auk þess sem bráðabirgðalán úr
sjóðnum léttu þannig undir með
borgarsjóði, þegar svo stæði á,
þá væri hér um að ræða hag-
stæðari ávöxtun sjóðsins en ella
væri.
Þá kvað borgarstjóri það al-
rangt, að tekjum sjóðsins hefði
ekki verið varið til lækkunar á
iðgjöldum húseigenda. Nefndi
hann því til sönnunar eftirfar-
andi tölur:
Árið 1929 var meðaliðgj. 2.24%
— 1953—54 var það 1.24%
— 1962 — — 0.95%
Vegna gagnrýni G.V. á drátt,
er orðið hefði á kaupum bruna-
bifreiðar, sem ákveðin voru 1958,
benti borgarstjóri á, að í fyrstu
hefði borgarsjóði verið neitað
um innflutningsleyfi fyrir bifreið
inni, og það hefði ekki verið
fyrr en eftir að innflutningur
var gefinn frjáls fyrir aðgerðir
núverandi rí'kisstjórnar, að hægt
var að fá bifreiðina flutta inn.
Hitt væri rétt, að 2—3 mánaða
töf hefði orðið á því að leysa
bifreiðina út eftir að hún var
komin til landsins, en' það hefði
verið gert áður en G.V. lagði
fram tillögu sína í borgarstjórn,
og því væri hér um að ræða
hreina tylliástæðu fyrir tillögu-
flutningi hans. Lagði borgar-
stjóri loks til, að tillögu G.V.
yrði vísað frá, og bar fram eftir-
farandi frávísunartillögu fyrir
hönd borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins:
„Borgarstjórn er það kunnugt,
að greiða verður af höndum
bæði rekstrargjöld borgarsjóðs
og framlög til margvíslegra fjár-
festingarframkvæmda mun fyrr
en tekjur innheimtast og yfir-
leitt áður en mótframlög fást
greidd eða lán tekin.
Borgarstjórn er og kunnugt
um erfiðleika, sem eru á því,
að fá lán til reksturs og fram-
kvæmda sveitarfélaga.
Telur borgarstjórnin því eðli-
legt, að grípa til bráðabirgða-
lána fyrir borgarsjóð úr sjóði
sjóðs húsatrygginganna, þar sena
um hagstæðari ávöxtun húsa-
tryggingasjóðs er með þeirri ráð-
stöfun að ræða, enda sé þess
gætt, að húsatryggingarnar
standi við skuldbindingar sínar.
Vísar borgaristjórnin frá tillögu
Guðm. Vigfússonar borgarfull-
trúa.**
Samiþykkti borgarstjórn til-
lögu þessa.
óskast nú þegar. Hafið samband við afgreiðslu-
stjóra Þórarinn Öfjörð.
= HÉÐINN =
Járniðnaðarnám
Viljum ráða nokkra nemendur til nám í renni-
smíði og vélvirkjun.
Framtíðarvinna. Góð laun. Góð vinnuskilyrði.
= HÉÐINN =
Hálfsdagsvinna
Stúlka með vélritunarkunnáttu getur
fengið atvinnu á opinberri skrifstofu
hálfan daginn frá kl. 1—5. Kaup eftir sam-
komulagi. Umsóknir sendist Mbl. fyrir
23. jan. merkt: „Hálfdags vinna — 3947“.
Ótímabœrt að hefja rekst■
ur skuttogara
M E Ð hliðsjón af hinum
mikla vinnuaflsskorti í
Reykjavík, fjárhagsástæðum
Bæjarútgerðar Reykjavíkur
og þeirri fjárfestingu, sem
fram hefur farið á hennar
vegum í landi, taldi borgar-
stjórn Reykjavíkur á fundi
sínum sl. fimmtudag tillögu
Guðmundar Vigfússonar,
borgarfulltrúa kommúnista,
um kaup á skuttogara fyrir
BÚR ótímabæra og vísaði
henni því frá. Lagði Geir
Hallgrímsson, borgarstjóri, á
það áherzlu, að fyrst og
fremst bæri nú að tryggja
rekstursgrundvöll þeirra tog-
ara, sem þegar eru reknir í
landinu, en afkoma þeirra
yrði svo að búa öflun nýrri
og fullkomnari tækja skil-
yrði.
Tillaga Guðmundar Vigfússon
ar var þess efnis, að stjórn BÚR
yrði falið að taka til athugunar
möguleika á smíði a.m.k. eins
skuttogara og jafnframt óskað
álits hennar um það, hvort ekki
væri tímabært að hefja smíði
eins verksmiðjuskuttogara. Taldi
GV sjálfsagt, að Islendingar
hæfust handa um að taka slíka
togara í notkun, en þeir hefðu
á undanförnum árum rutt sér
mjög til rúms hjá öðrum fisk-
veiðiþjóðum Evrópu.
Geir Hallgrímsson borgarstjóri
hafði leitað umsagnar fram-
kvæmdastjóra BÚR um tillögu
GV, en hann kveður það álit
sitt, að ekki sé tímabært fyrir
íslendinga að taka upp þessa
gerð skipa fyrr en meiri reynsla
hefur fengizt af þeim erlendis.
Ennfremur benti borgarstjóri á,
að ekki væri ástæða til að ætla,
að skuttogarar gætu aflað á afla-
leysistímum frekar en aðrir tog-
arar, en alkunnugt væri ihið
mikla aflaleysi íslenzkra togara
á undanförnum árum. Auk þess
væri fjárhagur BÚR ekki með
þeim hætti, að hann leyfði slíka
fjárfestingu, en verksmiðjuskut-
togari mundi sennilega ekki
kosta minna en 120 millj. kr.
Á árinu 1960 hefði rekstrarhalli
fyrirtækisins verið rúml. 14
millj. kr. og og á árinu 1961 9,9
millj. kr.; og skuld BÚR við
framkvæmdasjóð hefði í árslok
1962 sennilega numið u.þ.b. 56
millj. kr.
Þá benti borgarstjóri á, að
veiðiferð verksmiðju-skuttogara
mundi sennilega taka 3—4 mán-
uði. Væri því ólíklegt, að kleift
yrði að manna slíkt skip íslend-
ingum, eins og veiðum væri nú
háttað hér við land, þegar sjó-
mönnum þykir of langt að fara
í 3—4 vikna veiðiferð með tog-
ara.
Þá benti borgarstjóri á, að fs-
lendingar ættu nú yfir 50 fiski-
skip í smíðum. Væri sennilegt,
að þessir bátar fengju, þegar til
kæmi, aðallega vinnuafl sitt frá
togurunum, og þá yrði enn erf-
iðara að halda þeim úti en nú
er. Lagði borgarstjóri áherzlu
á hina miklu þýðingu togara-
útgerðarinnar fyrir vöxt Reykja
víkur og viðgang. Togaraútgerð-
in hefði vissulega beðið hnekki
við útfærslu landhelgir.nar, en
'þá hefði íhún misst mörg veiði-
svæði sín, og þar ofan á hefði1
svo bætzt aflaleysi á fjarlægari
miðum. Rekstrargrundvöll yrði
að finna fyrir. togaraútgerðina,
þvá að ekki væri hægt að hugsa
sér, að hún leggist niður. Vita-
skuld væri þýðingarmikið, að
sem bezt yrði fylgzt með nýj-
ungum öllum og bættri tækni,
en það væri fyrst og fremst í
verkahring útgerðarráðs og
stjórnanda BÚR. Ef þessir aðilar
teldu BÚR það hagkvæmt að
taka upp rekstur skuttogara, þá
bæri þeim að gera tillögu um
slíkt, en eins og nú stæðu sakir
virtist sú niðurstaða ólíkleg.
Að lokum lagði borgarstjórl
fram svohljóðandi frávísunartil-
lögu við tillögu GV, og sam-
Framhaild á bls. 11
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvot
heldur fund í Sjálfstæðishúsinu mánudaginn 21. janúar kl. 8,30 síðdegis.
FUND AREFNI:
Félagsmál.
Rætt verður um hlutveltuna. Nigeriu.
Frk. Elín Pálmadóttir, blaðakona, talar um eikþátt.
Ungar stúlkur úr Kvennaskólanum flytja 1
Kaffidrykkja. — Mætið stundvíslega.__________________
Stjórnin.