Morgunblaðið - 19.01.1963, Qupperneq 22
22
MORCUIVBLAÐIÐ
Laugardagur 19. janáar 1963 '
111 fyrirtœki í
firmakeppniTBR
Keppnin verður forgjafarkeppni en
sérstök 16 manna úrslitakeppni
FIBMAKEPNI Tennis- og bad-
mintonfélags Reykjavíkur er ný-
Iega hafin og tekur mikill fjöldi
fyrirtækja þátt i henni eða nokk
uð á annað hundrað talsins.
Keppnin er með forgjafarsniði
og eru leikimir því yfirleitt
mjög jafmr og úrslit tvisýn.
Vilja úrskurð
I. S. í.
A BLAÐAMANNAFUNDI er
stjórn ÍR hélt í gær var lögð
fram spuming um það hvað
ÍR hefði gert i máli er risið
sfur út af félagsskiptum
Valbjamar Þorlákssonar. —
Stjórnin viidi gefa eftirfar-
andi skýringu.
„Samkvæmt lögum ÍSÍ þarf
að vera búið að tilkynna til
sérráðs eða sambands ef
iþróttamaður ætlar að skipta
um félag með minnst mánað-
ar fyrirvara.
Stjórn ÍR telur æskilegt að
fá úr því skorið hvort hin
margræddu félagsskipti V.Þ.
hefðu farið fram eftir settum
reglum. Stjórnin vill þó taka
fram, að hún vill á engan.
hátt hindra V.Þ. né nokkurn
annan félaga i því að keppa
með því félagi sem hann ósk-
ar.“
Stjórnin gat þess að áskil-
inn hefði verið réttur á til-
settum tima til aðgerða í
máli V.Þ. og myndi sennilega
verða óskað úrskurðar ÍSÍ um
þetta atriði, en ÍSÍ á að úr-
skurða mál varðandi móta- og
keppendareglur.
Keppt er eingöngu í tviliðaleik.
Eins og áður er keppnin út-
sláttarkeppni og falla því úr þau
fyrirtæki, sem trpa leik.
Þegar eftir standa 16 firmu
ósigruð, verður efnt til sérstaks
úrslitamóts, og fer það væntan-
lega fram í Valshúsi laugardag-
inn 26. janúar nk.
Keppt er um fagran silfurbik-
ar, sem Leðurverzlun Magnúsar
Víglundssonar gaf, og er það
farandgripur. En auk hans hlýt-
ur það fyrirtæki, sem sigrar í
mótinu, áletraðan silfurbikar til
eignar, og einnig hlýtur það
firma, sem verður í 2. sæti, eign-
arbikar.
í sambandi við keppnina hef-
ur Herrabúðin við Austurstræti
boðið félaginu aðstöðu til glugga
sýningar. Þar má m. a. sjá verð-
launabikarana þrjá, sem keppt
er um, og nofn allra fyrirtækj-
anna, sem þátt taka í keppninni.
Nöfn fyrirtækjanna eru einnig
birt á bls. 21 hér í blaðinu.
Handbolti
helgina
um
UM þessa helgi verður hand-
knattleiksmótinu fram haldið að
Hálogalandi. í kvöld kl. 8.15
keppa 3. fl. karla ÍA og Breiða-
blik og í 2. deild karla ÍA og
Ármann og síðan Breiðablik og
Haukar.
Á sunnudag verður keppni
hafin kl. 2 e. h. og fara fram 4
leikir í 3. flokki karla og þrír í
2. flokki karla og leikur í 2.
deild milli ÍA og Vals.
Á sunnudagskvöldið kl. 8.15
verða tveir leikir í 1. deild
karla. Þá mætast KR og FH og
á eftir Fram og ÍR.
ÍR-skálinn og skíðabrckkurnar í Hamragili.
ÍR heldur námskeið skólanemenda
og mót undir stjórn Gabors
Mjög öflug ibróttastarfsemi félagsins
7 deildum
i
STJÓRN ÍR boðaði blaðamenn
á sinn fund í gær og skýrði frá
vetrarstarfi félagsins. Form. fé-
lagsins Reynir Sigurðsson lýsti
ánægju stjórnarinnar yfir að
Gabor þjálfari hefði komið svo
óvænt og fljótt til starfa hjá fé-
laginu, en þetta er 4. árið sem
hann starfar hér. Væntir félagið
sér mikils árangurs af starfi
hans.
Fram bezta hnattspyrnufélagið
HÉR er Einar Björnsson
form. Knattspyrnuráðsins að
afhenda formanni Fram Sig-
urði E. Jónssyni styttu þá
sem veitt er félagi því er
hlýtur titiiinn „bezta knatt-
spymufélag Reykjavíkur ’62“.
Um þann titil er keppt þann-
ig að lögð eru saman öll stig
sem félagið vinnur í öllum
aldursflokkum. Fram hlaut
samtals 194 stig, Valur 145,
KR 127, Víkingur 88 og Þrótt
ur 39. Þetta er í 4. sinn sem
Fram ber sigur úr býtum i
þessari sérkennilegu keppni,
en KR hefur hlotið sigur
einu sinni.
Kynningarnámskeið skólana
Samið hefur verið við Gabor
um 1 V-i árs starf. Hann hefur
þegar byrjað kennslu bæði í
frjálsíþróttadeild og í lyftinga-
deild.
Þá hefur verið ákveðið að
efna til sérstakra útbreiðslu- og
kynningarnámskeiða í frjáls-
íþróttum meðal framhaldsskóla-
nemenda. Hefjast þessi nám-
skeið sunnudaginn 3. febrúar nk.
ld. 3 og verða alla sunnudaga til
vors. Æfingarnar verða í ÍR-
húsinu. Er það von stjórnar ÍR
að þessi námskeið verði vel þeg-
in aí yngri áhugamönnum og
þeir noti tækifærið til að kynnast
frjálsum íþróttum, og njóti
fyrsta flokks kennslu.
Kynningarmót
í vor erður strax og veður
leyfir efnt til vornámskeiðs á
svipuðum grundvelli og var gerí
í fyrravor og gafst þá svo vel.
í sambandi við vornámskeiðin
verður efnt til einskonar kynn-
ingarmóta fyrir alla aldurs-
flokka allt niður í 8 ára. Á þeim
mótum mega einungis keppa
byrjendur í viðkomandi grein.
Er þetta gert til að reyna að fá
sem flesta til að reyna sig í
frjálsum íþróttum, unglinga sem
æfa aðrar íþróttir t. d. handbolta
eða sund en vilja gjarna reyna
sig í frjálsum íþrótum.
Sumarbúðastarf ÍR
í Reykjadal
Þá hefur ÍR tekið á Ieigu
íþróttaskólann í Reykjadal
18.—28. júni í sumar og verð-
ur þar starfrækt sumarbúða-
námskeið ÍR í frjálsum íþrótt
um. Þátttakendur verða að
hafa náð 12 ára aldri. Þar
mun Gabor kenna ásamt
beztu mönnum félagsins í
hverri grein.
Framkvæmdastjóri
ÍR hefur nú ráðið sér fram-
kvæmdastjóra til hjálpar stjórn
og deildum félagsins. Var ráð-
inn Höskuldur Goði Karlsson og
mun hann hafa skrifstofu opna
í ÍR-húsinu daglega kl. 5—7
nema sunnudaga. Gefur hann
allar upplýsingar um starfsemi
deilda félagsins sem nú eru 7
talsins, fimleikadeild, frjáls-
íþróttadeild, handknattléiksdeild,
körfuknattleiksdeild, lyftinga-
deild, skíða- og sunddeild. Hver
deild um sig vinnur sem mest
sjálfstætt og hefur starfið að
undanförnu gengið mjög vel að
sögn formanns. Fimleikadrengir
félagsins hafa hvarvetna hlotið
viðurkenningu og lof, körfubolta
menn hafa gengið nær óslitna
sigurgöngu og handboltadeild
aukizt mjög ásmegin. í sund-
deild er allt bezta sundfólk lands
ins og hafin iðkun sundknatt-
leiks.
Skíðadeildin
Einna öflugast er þó starf sxíðé
deildar. Hélt deildin námskeið
milli jóla og nýárs og var hinn
nýi skáli fullsetinn alla daga og
hefur svo verið undanfarnar
helgar. Deildin hélt fyrsta skiða-
Framh. á bls. 23 ,
Erlendur
skíðahennari
íyrir
almenning
SKÍÐADEIUD ÍR lefur verið L
falið að sjá um Reykjavíkur-
mótið í skíðaíþróttum Og verð
ur það í Hamragili um mán-
aðamótin febrúar-marz. Deild
in stendur nú í bréfaskiptum
við erlend félög um að fá
hingað góða keppendur á mót
ið sem jafnframt myndu vilja
taka að sér kennslu fyrir al-
menning í 2—4 vikur. Er það
ætlun deildarinnar að kennsl-
an verði sem víðtækust, helzt
hér í bænúm líka ef snjór er
nægur, annars í Hamragili
þar sem alltaf er snjór ef
1 hann finnst hér í nágrenninu. I