Morgunblaðið - 19.01.1963, Síða 24
15. tbl. — Laugardagur 19. janúar 1963
Bærinn á Melum í Fnjósk-
adal brann til ösku á 20 mín.,
og fórust 9 gripir í fjósi á-
samt heimilishundinum, eins
og skýrt var frá í blaðinu í
gær. Þessar myndir sýna eySi
legginguna, sú efri bæinn eins
og hann var fyrir brunann, en
sú síðari rústirnar.
Á efri myndinni er bærinn
með áföstu fjósi, og til vinstri
í aðeins 25 m fjarlægð, f járhús
in, sem tókst að verja með
því að stinga snjó upp úr
hörðum skafli og bera á hús-
in, sem neistaflugið dundi á.
Vatn var nær ekkert fáanlegt.
Ljósm. B. Sig.
Neðri myndin er tekin
nærri því á sama stað, þó
heldur nær. Þá stendur skor-
steinninn á íbúðarhúsinu einn
eftir, ásamt safnþrónni við
gripahúsin. Bak við hana sér
aðeins á fjárhúsin, sem bjarg
að var. — Ljósm. K. Hallgr.
Verkamenn leggja
fram lista til stjórnar-
kjörs í Dagsbrún
Kosið um aðra helgi
LÝÐRÆÐISSINNAR í Verkamannafélaginu Dagsbrún lögðu í gær
fram lista sinn til stjórnarkjörs í félaginu, en stjórnarkosning í
Dagsbrún hefur verið auglýst 26. og 27. þ. m. Listi verkamanna
er þannig skipaður:
Aðalstjórn: Björn Jónsson, for-
maður, Skipasundi 54; Jóhann
Sigurðsson, varaform., Ásgarði
19; Tryggvi Gunnlaugsson, rit-
ari, Digranesvegi 35; Torfi Ing-
ólfsson, gjaldkeri, Melgarði 3;
Magnús Hákonarson, fjármála-
ritari, Laugateigi 14; Þorgrímur
Guðmundsson, Sólheimum 27, og
Gunnar Sigurðsson, Bústaðavegi
105.
Varastjórn: Karl Þórðarson,
Flókagötu 14, Karl Sigþórsson,
Miðtúni 86, og Andrés Sveins-
son, Hringbraut 101.
Stjórn Vinnudeilusjóðs: Sig-
urður Guðmundsson, Freyjugötu
10 A, Guðmundur Sigurjónsson,
Gnoðarvogi 32, og Helgi Eyleifs-
son, Snorrabraut 35.
Varastjórn: Þórður Gíslason,
Meðalholti 10, og Jón Arason,
Ökrum v/Kaplaskjólsveg.
Endurskoðendur: Haukur
Guðnason, Veghúsastíg 1, og Ey-
steinn Guðmundsson, Þvervegi
3 C. —
Varaendurskoðandi: Agnar
Guðmundsson, Bjarnarstíg 12.
Stjórn Styrktarsjóðs: Daníel
Daníelsson, Þinghólabraut 31,
Þorbjörn Sigurhansson, Skóla-
braut 7, Seltjarnarnesi, og Hall-
dór Runólfsson, Hverfisgötu 40.
Varastjórn: Steinberg Þórar-
insson, Guðmundur Jónsson,
Baldursgötu 36; endurskoðandi
Sigurður Þórðarson, Tungu.
Auk þess var stillt upp hundr-
að manna trúnaðarráði og tutt-
ugu til vara. ^
Færeyingar fá
við fjogur lond
Flugfélagið hefur lokið við áætlun sína
FLUGFÉLAG Islands mun í
vor hefja reglubundnar ferðir
til Færeyja og þaðan til Bergen
og Kaupmannahafnar. Einnig
mill Færeyja og Glasgow. Verð-
ur flogið á Douglas DC-3, þar eð
flugvöllurinn í Færeyjum er ekki
nægilegra stór fyrir stærri vélar
félagsins, sagði Öm O Johnson,
framkv.stjóri félagsins, á fundi
með blaðamönnum í gær.
Félagið hefur nú endanlega
gengið frá áætlun sinni um flug-
samgöng’ur við Færeyjar, en eft-
ir er að fá nauðsynleg leyfi
norskra og danskra stjórnarvalda
Hins vegar er gert ráð fyrir því
í loftferðasamningi íslands við
Stóra-Bretland, að íslenzkar vél-
ar fljúgi milli íslands oig Skot-
lands með viðkomu í Færeyjum.
Rakti örn í stuttu máli að-
draganda málsins, gat þess, að
hann hefði farið til Færeyja fyr-
ir 7 árum til að kynna sér að-
stæður, en ekki hefði orðið úr
framkvæmdum fyrr en nú.
Flugfélagið mun ekki geta
misst neina flugvél úr innanlands
fluginu og ætlar því að leigja
Douglas-vél erlendis til Færeyja
flugsins, en áhafnir verða ís-
lenzkar. Jafnframt mun félagið
senda einn flugvirkja til Fær-
eyja og mun hann dveljast þar
í sumar. Hið nýstofnaða Flugfé-
lag Færeyja tekur að sér umboð
fyrir Flugfélagið í Færeyjum, og
hingað er væntanlegur innan
skamms Færeyingur frá félaginu
til stuttrar þjálfunar hjá Flug-
félagi fslands. Mun hann þar
læra að útfylla skjöl í sambandi
við hleðslu flugvéla og annað
síkt, sem annast þarf í sambandi
við afgreiðsluna.
Þá munu Færeyingar koma
upp bráðabirgðaljósum meðfram
flugbrautinni á Vaagey, byggja
lítinn skála fyrir farþega, og
setja upp litla talstöð til við-
skipta við flugvélar.
Ferðirnar hefjast um miðjan
maí og nær áætlunin til loka
september. Sagði örn, að þetta
væri allt gert í tilraunaskyni.
Reynzlan yrði að skera úr um
framhaldið, en hann kvaðst einn
Framh. á bls. 23
IPIatína fyr-
ir 40 mill-
Jónir í Loft-
leiðavél
UM kl. 22 í gærkvöldi lenti
hér á Reykjavíkurflugvelli
flugvél Loftleiða á leiðinni
frá Amsterdam um Glasgow
til New York.
Vélin hafði innanborðs
mjög dýrmætan farm, þar
sem voru 418 kg af Platínu
og Rhodium, og var megin-
magnið af fyrri tegundinni.
Platína er þriðji dýrasti
málmur heims, notaður til
skartgripagerðar og úrsmíði
og til gerðar fleiri skraut-
muna. Verðmæti farmsins er
um 40 millj. isl. króna.
Hér í Reykjavík var skipt
um vél og var lögregla og
tollgæzla viðstödd milliflutn-
ing hins dýra farms. Viðtak-
endur farmsins í New York
eru Engelhard Industries Inc.
Meðfylgjandi mynd sýnir
lögregluna standa yfir hin-
I um dýrmæta farmi er hann
var fluttur milli flugvéla.
Þetta er í annað skiptið,
sem jafn dýrmætur farmur
er fluttur með vélum Loft-
leiða nú í vetur yfir Atlants-
haf. —
Mý sundlaug í
Hlosfellssveit
I GÆR var reisugildi fyrir
nýrri sundlaug, sem byggð
hefir verið að Varmá í Mos-
fellssveit. Árið 1960 hófust
framkvæmdir við bygging
una, en laugin, ásamt búnings
herbergjum og böðum er
teiknuð af Guðmundi Guð-
jónssyni hjá húsameistara
ríkisins. Lokið er byggingu
laugarinnar, búningsklefa og
baða, og er áætlað að laugin
taki til starfa í vor. Sundlaug-
in er 25x8 m að stærð.
í tilefni þessa atburðar
ræddi oddviti Mosfellshrepps,
Jón Guðmundsson bóndi á
Reykjum, sögu íþróttamann-
virkja sveitarinnar og gat
forystu Sigurjóns á Álafossi
í þeim efnum. Auk sundlaug-
arinnar hafa verið gerð önn-
ur íþróttamannvirki við hinn
nýja skóla sveitarinnar að
Varmá, svo sem malar-íþrótta
völlur og fyrirhuguð er bygg-
ing grasvallar.
Byggingarkostnaður sund-
laugarinnar er 1,8 millj. kr.