Morgunblaðið - 24.01.1963, Blaðsíða 1
24 sfður
— nýjar upplýsingar i Röðuls.
málinu í sjórétti
YFIRMENN Röðuls var far-
ið að griuia á leiðinni frá
Vestmannaeyjum til Reykja-
víkur, að veikindi skipverja
stöfuðu af ólofti frá kæli-
vökva skipsins — fyrst í stað
héldu þeir, að skipverjar
hefðu neytt eiturlyfja og síð-
ast en ekki sízt: Leiðarvísir
með kælivél varaði við að
menn önduðu að sér methyl-
klóríð í langan tíma nema
með grímum.
Þetta kom m.a. fram í gær
í sjóréttinum, sem rann-
sakar orsök slyssins, sem varð
um borð í togaranum Röðli.
Sjóréttiurinn í Hafnarfirði, sem
fjallar uim Röðulsmálið, kvaddi
fyrir réttinn í gær 1. stýrimann,
Magnús Pálsson, ag Jens Jóns-
son, skipstjóra, til að fá nánari
upplýsingar um atriði, sem höfðu
komið fram í málinu.
Aðspurður skýrði 1. stýrimað-
ur frá því, að þagar Röðull hafi
verið búinn að sigla 2—3 tíma
írá Vestmannaeyjum til Reykja-
víkur si. laugardag, hafi hann
farið fram í forlúkar til að
stumra yfir einum hásetanna.
Þegar hann hafi verið búinn
að dveljast þar um það bil 10
mínútur hafi hann farið að finna
fyrir þyngslum í höfði og þá
tekið til þess ráðs að opna fyrir
allar loftræstitúður. Hann hafi
fundið, að hann hresstist mjög
við hann, hvort veikindi fram
farið og opnað fyrir loftræsting-
una á stjórnborðslúkarnum
líka.
' Stýrimaður kvaðst svo hafa
farið aftur á og þetta verið að
brjótast í sér. I>egar skipstjóri
hafi verið vakinn um kl. J1 um
kvöldið hafi hann fært það í tal
við hann, hvort veikindin fram
í gætu ekki stafað frá ólofti frá
kæiivélinni þar.
Töldu veikindin ekki geta stafað
frá kælikerfinu.
Samkvæmt framburði stýri-
manns kallaði skipstjóri 1. vél-
stjóra þegar fyrir sig og spurði
hann hvort veikindin gætu staf-
að frá frystivökvanum á kæli-
kerfinu.
Hafi 1. vélstjóri talið það úti-
lokað, svo og 2. vélstjóri, en
hann var spurður álits um það
bil sem Röðull kom til Reykja-
víkur.
Þetta hafi orðið til þess að hug
myndin hafi verið nefnd við
borgarlækni við komuna til
Reýkjavíkur og hafi það að lík-
indum flýtt fyrir því að lausnin
fannst.
Héldu að eiturlyf væru í
spilinu.
Þegar Jens Jónsson, skipstjóri,
kom fyrir réttinn síðar um dag-
inn staðfesti hann fyrngreind-
an framburð 1. stýrimanns.
Samkvæmt framburði skip-
stjórans hvarflaði að honurn, og
reyndar fleirum, fyrst þegar veik
inda háseta varð vart, að notk-
un eiturlyfja eða nautnalyfja
ættu þátt í þeim. Sjúkdómsein-
kennin voru svipuð og þegar
slíkra lyfja er neytt, sjáaldur
stækkuðu, augun urðu starandi
og mennirnir riðuðu til.
Skipstjóri kvaðst þó ekki hafa
álitið að slík lyf væru aðalorsök
in fyrir veikindum háseta, held-
Framh. á bls. 23.
Aðild Breta óskyld
Parísarsamningum
seg/r Adenauer, kanzlari, á fundi
með blaðamönnum i Bonn i gær
Bonn, 23. jan. — (NTB-AP) —
ADENAUER, kanzlari Vest-
ur-Þýzkalands, efndi í dag
til blaftamannafundar í Bonn,
þar sem hann ræddi samning
þann, er hann og de Gaulle,
Frakklandsforseti, undirrit-
uðu í París. Ein fyrstu um-
mæli kanzlarans voru á þann
veg, að samningurinn legði
ekki aðeins grundvöll að nán-
ara samstarfi Frakklands og
Vestur-Þýzkalands, heldur
og að samstarfi allra Evrópu-
ríkja.
Kánzlarinn efndi til hlaða-
mannafundarins aðeins 3 tím-
um eftir að hann kom flug-
leiðis frá París. Benti hann
| DeGaulle, Frakklandsforseti
tekur á móti Aðenauer, kanzl-
ara V-Þýzkalands, á tröppum
Elysee-hallar, við komu hins
síðarnefnda til Parísar s.l.
mánudag. Myndin var tekin
skömmu áður en leiðtogarnir
áttu fyrsta fundinn með sér.
þar á, að slíkur samingur
hefði sjaldan eða aldrei verið
gerður í heiminum, og án
hans væri ekki mögulegt að
stofna samband Evrópuríkja.
Aðspurður sagði Adenauer,
að hann hefði rætt aðild
Breta við de Gaulle, en kvað
það mál alls óskylt Parísar»
samningnum. — (Sjá nánar
bls. 2).
• Kanzlarinn lagði á þaS
Framh. á bls. 23
Eiturlyf, leiðarvísir,
grunur um hættuna
Samkomulag um57okaup?
hækkun til verkamanna
S/að/ð verður gegn launahækkunum
til þeirra, sem betri kjör hafa
Einn Röðuls-
mnnnn enn
þungt hnldinn
— en hinir allir
á góðum batavegi
MBL. átti í gærkvöldi
tal við Henrik Linnet, héraðs-
lækni í Vestmannaeyjum, varð
andi líðan þeirra tveggja skip
verja af Röðli, sem liggja í
sjúkrahúsinu þar. Henrik
sagði að Reynir Jensson væri
að verða fullfriskur, en hins-
vegar væri Brynjar Valde-
marsson enn mjög þungt hald-
inn. Hefði hann fengið bron-
kítis auk eitrunarinnar.
Ekki tókst að fá upplýslng-
ar hjá Bæjarspítalanum um
líðan þeirra skipverja á Röðli,
sem þar liggja, en Mbl. hafði
fregnir annars staðar frá í
gær að líðan þeirra hefði þá
verið yfirleitt betri. Einum
manni mun hafa þyngt í fyrra
dag, en hann var á batavegi
í gær.
í G Æ R náðist samkomulag
milli Vinnuveitendasambands
íslands og Verkamannafélags
ins Dagsbrúnar í Reykjavík
um 5% kauphækkun á alla
taxta. félagsins og er sám-
komulag þetta ótímabundið.
Auk þess hefur Vinnuveit-
endasambandið ákveðið ein-
hliða að tekið skuli upp sum-
artímafyrirkomulag í upp-
skipunar- og útskipunar-
vinnu við Reykjavíkurhöfn,
svo og í vinnu í frystihúsum,
og gildi þetta fyrirkomulag
allt árið, svo sem verkamenn
á viðkomandi stöðum hafa
óskað eftir, en þó getur kom-
ið til mála að verkamenn í
birgðaskálum við höfnina
hafi valfrelsi um hvort fyr-
irkomulagið þeir vilja hafa.
Um þetta atriði vildi Dags-
brún hins vegar ekki semja.
Hafa þannig hinar lægst
launuðu stéttir þjóðfélagsins
fengið raunhæfar kjarabæt-
ur en samkvæmt upplýsing-
um, sem Mbl. fékk í gær mun
verða staðið ákveðið gegn
hugsanlegum kröfum stétta,
sem hærra eru launaðar, um
sams konar launahækkun.
Mbl. átti í gær tal við Björg-
vin Sigurðsson, framkvæmda-
stjóra Vinnuveitendasambandsins
og spurði hann hvort hann teldi
að þessar kjarabætur til verka-
manna mundu leiða til almennra
launahækkana.
Björgvin kvaðst ekki telja að
svo yrði. Verkamenn hefðu dreg-
izt aftur úr í launahækkunum á
sl. ári miðað við aðrar stéttir og
miðuðu kjarabæturnar nú að því
að bæta þeim það. Kvaðst Björg-
vin þó telja að launahækkunin
mundi sennilega einnig ná til
stétta, sem á sl. vori fengu ekki
meiri hækkun en verkamenfft.
„En þessi launahækkun á ekki
að ganga yfir allar stéttir, aðeins
þær lægst launuðu, og ákveðið
verður staðið gegn hugsanlegum
kröfum annarra stétta um sams
konar launahækkun", sagði Björg
vin. Hann bætti því við að þessl
kauphækkun hefði staðið Dags-
brún til boða um nokkurn tíma,
og Vinnuveitendasambandið hefði
komið fram með margvíslegar
tillögur um afvinnslu og vinnu-
tímastyttingu, sem ekki hefði
náðst samkomulag um, né um
samningstímann. Launahækkunin
tekur gildi varðandi daglaun og
vikulaun frá og með deginum i
dag, en varðandi mánaðarlaun
frá næstu mánaðamótum.
Þá átti Mbl. í gær tal við
Framh. á bls. 23