Morgunblaðið - 24.01.1963, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.01.1963, Blaðsíða 22
22 MORGVNBLAÐIÐ Fímriitudagur 24. janúar 1963 „Ánægöur með lenda gegn Stdra-Bretiandi" sag&' Björgvin Schram, form. KSÍ — En Danir ergja sig mjög ÉG HEF ekkert nema gott um það að segja, að ísland skyldi lenda móti Bretum í fyrstu umferð í undanrás knattspyrnukeppni Olympíu leikanna í Tókíó, sagði Björg- vin Schram, formaður KSÍ, er við hringdum hann upp í gærkvöld er fréttir höfðu borizt um það hvernig drátt- ur í 1. umferð Evrópuriðils- ins fór fram. — Við þekkjum enska knattspyrnu vel og viðskipti okkar við Englendinga hafa alltaf verið góð. Það er gott að semja við þá og ég verð að segja, að þeirra áhugamenn eru ekki meðal þeirra allra • sterkustu í Evrópu. Til Eng- lands eru ódýrar ferðir. Það er því fleira en eitt sem mælir með því að við höfum verið heppnir í drættinum um 1. um ferð. Á þá leið mæltist Björg- vin Schram. — En svo kemur kannski að ferð til Grikklands? — Maður fer nú ekki að gera því skóna svona fyrst í stað, sagði Björgvin og hálf- hló. Það er nógur tíminn þegar þar að kemur. Heildarúrslit dráttarins um 1. Umferð í Evrópukeppninni urðu þessi: Luxembourg móti sigurvegara I leik Albaníu—Búlgaríu. Grikk- land í leik Englands og íslands. Danmörk gegn Rúmeníu. Ung- verjaland gegn Svíþjóð. Sovétrík- in gegn Finnlandi. Sviss gegn Spáni. Holland gegn Vestur- Þýzkalandi. Ítalía gegn Tyrk- landi. Austur-Þýzkaland gegn Póllandi. Tékkóslóvakía gegn Frakklandi. Júgóslavía kemst ásamt Japönum án undankeppni í aðalkeppnina í Tokío sem nú- verandi Olympíumeistari og gest- gjafar leikanna. Úr þessum hópi sem hér hefur verið nefndur komast 5 lið til aðalkeppninnar ( auk Júgóslava). Auk þeirra koma svo 3 Afriku- lið, 3 Asíulið, 2 frá S-Ameríku og 1 frá Norður-Ameríku í keppnina (og Japanir), alls 16 lið. Danir eru ákaflega slegnir yfir drættinum í 1. umferð. Þeir lögð ust gegn því að Norðurlöndin yrðu saman í riðli og sögðu marg ir það af ótta við að mæta Svíum. Nú drógust Danir og Rúmenar saman og Danir telja sigurvonir ákaflega litlar. En þó sigur ynnist er Tokíoförin ekki vís. Talsmaður Dana, Ebbe Schwartz sem er í miðstjórn Evrópusambandsins hef ur sagt dönskum blöðum svo frá að í 2. umferð muni Danir, ef þeir vinni Rúmena, mæta Búlgör- um og þessar tvær hindranir telja Danir óyfirstíganlegar. Og BT segir í þriggja dálka fyrir- sögn á forsíðu „Farvel Tokío“. Svíar fá einnig erfiða þraut þar sem Ungverjar eru. Þeir eru samt eina von Norðurlanda um að eiga lið í aðalkeppninni í Framhald á bls. 23. Gabor hjá Þrótti Ungverski þjálfarinn Simonyi Gabor sem hér er á vegum ÍH hefur tekið að sér knattspyrnu þjálfun hjá Þrótti. Gabor er vel inni í knattspyrnuþjálfun, hefur lagt nokkra stund á hana og einnig náð mjög góð- um árangri með verksmiðju- lið eitt í Ungverjalandi. Gabor hóf æfingar hjá Þrótti á dögunum og hér sézt hann vera að segja Þrótturum til. Knattspyrnuæfingar Þróttar eru í KR-húsinu við Kapla- skjólsveg á sunnudögum kl. 4.20 og á fimmtudögum kl. 10.10 síðdegis. Norömenn bjóða tugum topp- manna fría keppnis för á Holmenkollen Gera Holmenkollenmótið að einu mesta stórmóti Evrópu i ár * ALPAGREINAR. Varðandi alpagreinar hafa Norðmenn, Svíar og Finnar sam vinnu um boð „toppmanna.“ Sameiginlega bjóða þau 10 manna hóp frá Sviss, Austurrlki, Fraklandi og V-Þýzkalandi. Hef- ur hópurinn þegar verið valinn og boð send út. Þessi flokkur á að keppa víðar en aðeins á Holm enkollenmótinu. Hörður vonn l Stokkhólmi BRÉF hefur borizt frá Herði Finnssyni sundmanni, sem nú vinnur verzlunarstörf og æfir í Sokkhólmi. Hann keppti nokkr- um dögum eftir að hann kom út og vann þá 100 m. bringu- sund í 25 m. braut á^ 1.13.2. Annar í sundinu varð Árni Þ. Kristjánsson, Hafnarfirði sem einnig starfar í Stokkhólmi, synti á 1.17.0. Bezti Svíinn var á 1.18.5. Þetta mót var úrtökumót fyrir al'þjóðamót í Bremen en þangað komast Hörður og Arni ekki þar sem þeir geta- ekki keppt sem Svíar. Holmenkollenstökkbrautin var tekin í notkun á mánudaginn eftir umfangsmiklar lagfæringar og breytingar. 66. Holmenkollen- mótið verður síðan haldið 14.-17. marz og Norðmenn ætla að gera það eftirminnilegasta Holmen- kollenmót allra tíma. í reynslustökkum sem gerð hafa verið í brautinni siöustu daga reyndist hún mjög vel og gaf miklu lengri stökk en áður. Toralf Engan stökk þar manna lengst og glæsilegast 85,5 m dag eftir dag. „Topp“-stökkmennirnir skáru sig mjög úr í brautinni. Skíðastökkmenn um heim all- vita um breytingarnar á Hol- menkollenstökkbrautinni og þær umbætur sem þar hefur verið unnið að. Þeir vita einnig að miklir möguleikar eru á því að Vetrar-Olympíuleikarnir verði haldnir í Noregi 1968 og verður þá stökkið í Holmenkollen há- punktur þeirra. Það er því ætlun Norðmanna, að margir af beztu skíðastökkvurum heims vilji ekkert frekar en taka þátt í skíðastökkinu á Holmenkollen mótinu nú. Hinn góði árangur norskra skíðastökkmanna í vet- ur hefur og margfaldað áhuga manna heima fyrir, og ber enga íþrótt jafn hátt og stökkið nú. ★ GLÆSILEGT BOÐ. EN til að „hamra meðan járn- ið er heitt" hafa Norðmenn sent boð til allra landa sem eiga „góð nöfn“ innan skíða- íþróttarinnar, þar sem þrem- ur þátttakendum í stökki eru boðnar fríar ferðir auk uppi haldskostnaðar. Jafnframt er sami kostnaður greiddur fyrir einn fararstjóra. Ætlun Norð- manna er að allir „topp- menn“ heims í skíðastökki mætist í Holmenkollenbraut- inni. Norðmenn hafa jafnframt tak markað norska þátttöku umfram það sem vanalega er gert — til þess að „toppmennirnir” njóti sín. Þannig fá 80 útvaldir Norð- menn að keppa í stökkinu auk útlendinga. í tvíkeppni fá 35 Norðmenn að taka þátt, auk út- lendinga. En í 50 km. göngu er þátttaka ekki takmörkuð. í 15 km. göngu fá 70 Norðmenn auk útlendinga að taka þátt. Auk bezu manna Evrópu er búizt við að Japanir sendi úr- valsmenn sina til Noregs. Athugið! að borið saman við útbreiðslv er langtum ódýrara að auglýsa i Morgunblaðinu, en öðruœ blöðum. öanir eöa Svíar? POLITIKEN skýrir svo frá að danska handknattleikssam- bandinu hafi borizt boð frá íslandi, þar sem dönsku 1. deildar liði er boðið til ís- lands í lok apríl eða í maí- byrjun. Það eru Ármenningar sem að tilboði þessu standa og hyggjast með því halda upp á 75 ára afmæli félags síns. Politiken segir að Ármenn- ingar bjóði ókeypis vikudvól á íslandi fyrir 15 menn og enn fremur 6000 kr. danskar í ferðakostnað. Ferðina er ekki hægt að fara fyrir þá upphæð en blaðið spyr. Vilja ekki margir danskir handknattleiks menn gjarna leggja svolítið af mörkum fyrir íslandsför? Einn af stjórnarmeðlimum HSÍ staðfesti við blhðið í gær að þetta boð hefði farið gegn- um HSÍ til Danmerkur og einnig hefði verið skrifað til sænska sambandsins. HSÍ hefði haft bréfaskipti með höndum að beiðni Ármenn inga. Undirtektir danskra blaða við boðinu má telja góð- ,ar. 4.92 inm Á INNANHÚSSMÓTI i Lund- únum á laugardaginn setti Finninn Pennti Nikula nýtt heimsmet í stangarstökki inn- anhúss, stökk 4.92 m. Utan- hússmet hans er 4.94 m. Dúmara- nómskeið í köriuknnttleik EINS og flestum er kunnu.gt, sem körfuknattleik stunda er dómaraskorturinn, eitt af því, sem helzt stendur íþróttinni fyrir þrifum. Sem dæmi um það hve ástandið er orðið alvarlegt má nefna það, að á síðasta Reykja- víkurmóti í körfuknattleik voru aðeins þrír af þeim, sem dæmdu með dómarapróf og bar það iðu lega við að grípa þurfti til manna sem voru meðal á- horfenda og sem engin rétt- indi höfðu til dómarastarfa, og litla eða enga sefingu höfðu í að dæma. Eins og gefur að skilja, hlýtur slíkt ástand í dómaramál- um að koma mjög hart niður á íþróttinni og þeim sem hana stunda. Til þess að bæta úr þessu hef- ur stjórn KKÍ ákveðið að efna til dómaranámskeiðs og hefst námskeiðið næstkomandi sunnu- dag kl 1,30 í K.R.-heimilinu við Kaplaskjólsveg. Kennarar á nám skeiðinu verða þeir Guðjón Magn ússson og Viðar Hjartarson. Vænt anlegir þáttakendur eru beðnir að mæta í K.R. heimilinu föstu daginn 25. janúar kl. 18—20 eða laugardaginn 26. jaínúar kl. 1,30 til 2,30 og munu þeirn þá verða veittar allar upplýsingar viðvíkj andi námskeiði þessu. Stjórn K.K.Í. skorar hér með á alla þá, sem geta komið því við, að taka þátt í þessu námskeiði, og stuðla með því að vexti og viðgangd körfuknattleiksíþróttarinnar . .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.