Morgunblaðið - 24.01.1963, Blaðsíða 4
4
MORGXJ N BL ÍÐIÐ
Fimmtudagur 24. janúar 1963
Hafnarfjörður
ibúð óskast til leigu í
Hafnarfirði eða nágrenni.
í>rennt í heimili. —
Sími 51447.
Bókhald
Tökum að okkur bókhald
Og uppgjör. Getum bætt
við nokkrum fyrirtækjum.
Bókhaldsskrifstofan Þórs-
hamri við Templarasund.
Sími 24119.
Sængur
Endurnýjum gömlu sæng-
urnar. Seijum æðardúns-
og gæsadúnssængur — og
kodda af ýmsum stærðum.
Dún- og fiðurhreinsunin
Kirkjuteigi 29. Sími 33301.
Húsgagnasmíðanemi
óskast nú þegar.
Húsgagnavinnustofa
Árna H. Árnasonar
Laugavegi 42.
Unglingsstúlka
óskast í létta vist. Uppl. í
síma 33366.
WILLYS JEPPI
sem var nýstandsettur, er
til sölu, eins og hann er
eftir veltu. Uppl. Laxnesi.
Sími Brúarland.
3ja herb. íbúð til sölu
í Hlíðunum, jarðhæð. Þeir,
sem hafi áhuga, sendi nafn
til afgr. Mbl., merkt:
„X - 13 — 3922“ fyrir
sunnudag.
Ungur maður
óskar eftir herbergi strax.
I Vogum eða nágrenni.
Góðri umgengni heitið.
Upplýsingar í síma 32422
í kvöld kl. 8—9.
Verzlunarmaður
óskast. Reglusemi og bók-
haldskunnátta áskilin. —•
Framtíðarmöguleikar. Tilto.
með uppl., merkt: „Bóka-
verzlun — 3926“ sendist
afgr. Mbl. fyrir 30/1.
Saumanámskeið
er að hefjast. Innritun í
síma 34730.
Bergljót Ólafsdóttir.
Húsgagnameistarar
Ungur maður óskar eftir
að komast að sem nemi í
húsgagnasmiði. Uppl. í
síma 14232.
Islands Kortlægning
E. Munksgaards til sölu.
Ógallað eintak. Verðtilboð,
merkt: „Landabréf - 3926“
afhendist Mbl. fyrir 1.
febr. Staðgreiðsla áskilin.
Ungur
og ábyggilegur maður ósk-
ar eftir hreinlegri atvinnu
fyrri hluta dags. Tilboð
sendist Mbl. merkt: „3126“.
3—4 herb. íbúð
óskast til leigu. Uppl. í
síma 24613.
Trésmiðir
Til sölu. lítil sambyggð
trésmíðavél sænsk, hefill,
hjólsög, bandsög og bor.
Uppl. í sima 17328.
Komið, töllum fram og krjúpum
niður, beygjum kné vor fyrir
Drottni, skapara vorum, pví hann
er vor Guð. — (Sálmur 95, 6).
í dag er fimmtudagur 24. janúar.
24. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 4:43
Síðdegisflæði kl. 17:01.
•
Næturvörður vikuna 19. til 26.
janúar er í Vesturbæjar Apóteki.
(Sunnudag í Apóteki Austurbæj-
ar).
Næturlæknir í Hafnarfirði vik
una 19. til 26. janúar er Eiríkur
Björnsson, simi 50235.
Læknavörzlu í Kefiavík hefur
i dag Björn Sigurðsson.
Neyðarlæknir — sími: 11510 —
frá kl. 1-5 e.h. alla virka daga
nema laugardaga.
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga kl. 9,15-8, laugardaga
frá kl. 9,15-4., helgidaga frá kl.
1-4 e.h. Sími 23100.
Holtsapótek, Garðsapótek og
Apótek Keflavíkur eru opin alla
virka daga kl. 9-7 Iaugardaga frá
kl. 9-4 og helgidaga frá kl. 1-4.
Orð lífsins svarar í síma 10000.
Helgafell 59631257. VI. 2.
n Mímir 59631247 = 6
I. O. O. F. 5 = 1441248*4 == 9. 0.
FRETIIR
Sjómannastofan Hafnarbúðum er op-
in alla daga og öll kvöld. Óskilabréf
til sjómanna má vitja þangað.
Áfengisvarnarnefnd kvenna heldur
aðalfund í Aðalstræti 12 kl. 20,30 1
kvöld.
Málfundafélagið Óðinn. Skrifstofa
félagsins í Valhöll við Suðurgötu er
opin á föstudagskvöldum frá kl. 8.30
til 10, 9ími 17807. Stjórn félagsins er
þá til viðtals við félagsmenn og gjald
keri tekur við ársgjöldum þeirra.
Málfundafélagið Óðinn. Trúnaðarráð
Óðins er beðið að hafa samband við
skrifstofu félagsins föstudagskvöld kl.
8.30—10 sími 17807.
Málfundafélagið Óðinn. Stjóm Óðins
biður félagsmenn að hafa samband
við skrifstofu félagsins föstudagskvöld
kl. 8.30—10, sími 17807.
Frá Náttúrafræðifélaginu
Á fundi í Hinu ísl. náttúrufræðifé-
lagi í 1. kennslustofu Háskólans,
mánudaginn 28. janúar kl. 20,30, mun
fil. cand. Haukur Tómasson, jarðfræð-
ingur Raforkumálaskrifstofunnar,
flytja erindi: Niðurstöður jarðfræði-
rannsókna vegna Búrfellsvirkjunar.
Vegna áætlunar um virkjun i»jórs-
ár nálægt Búrfeili í Þjórsárdal, hafa
þar hin síðustu misseri farið fram
stórfelldar jarðfræðirannsóknir á veg-
um raforkumálastjóra, og hefur Hauk-
ur Tómasson unnið að þeim og haft
umsjón með þeim.
Löngum hafa jarðfræðingar, ekki
sízt íslenzkir, orðið að gera sér að
góðu að rannsaka sjálft yfirborð jarð-
ar og draga af því ályktanir um það,
sem undir liggur. En á hugsanlegum
virkjunarstöðum við stórár, eins og
Þjórsá undir Búrfelli — þar sem jarð
fræðin er augljóslega orðin „hagnýt
vísindi" — er ekki aðeins yfirborðið
kannað gaumgæfilega og kortlagt,
heldur einnig þreifað djúpt og þétt
niður í berglögin með jarðborun og
grefti.
í erindi sínu mun Haukur Tómas-
son rekja ýmsa þætti í jarðsögu stað-
arins og að nokkru leyti héraðsins
allt frá myndun elztu berglaga í Þjórs
árdalsfjöllum (á öndverðri ísöld eða
fyrr) til þess usla, sem Tungnár-
hraunin ollu í vatnakerfi Suðurlands,
er þau flæddu þar yfir (fyrir aðeins
4—8 þúsund árum).
Útivist bama: Börn yngri en
12 ára, til kl. 20,00; 12—14 ára
til kl. 22,00. Börnum og ungl-
ingum innan 16 ára aldurs er
óheimill aðgangur að veitinga-
og sölustöðum eftir kl. 20,00
Minningarspjöld Heimilissjóðs fél.
ísl. hjúkrunarkvenna fást á eftirtöld-
um stöðum:
Landsspítalanum, forstöðukonan;
Heilsuverndarstöðin, forstöðukonap;
Vífilsstaðir, yfirhjúkrunarkonan;
Hvíta bandið, forstöðukonan Ragnh.
Jóhannsdóttir; Anna O. Johnsen, Tún-
götu 7; Guðrún Lilja Þorkelsdóttir,
Skeiðarvogi 9; Sigríður Eiríksd., Ara-
götu 2; Bjarney Samúelsdóttir, Eski-
hlíð 6a; Elín Briem Stefánsson, Herj-
ólfsgötu 10 Hafnarfirði.
Hinn 20. des. sl. voru gefin
saman í hjónaband í Oddakirkju
af séra Arngrími Jónssyni, ung-
frú Sigurvina G. Samúelsdóttir
Dröngum, Strandasýslu, og Er-
lingur Guðmundsson, Uxahrygg
Rangárvöllum. Heimili þeirra
er að Hellu, Rangárvöllum.
Nýr obstrafalmdlari
EINHVER umdeildasta persóna í listaheiminuim í ár hefur
án efa verið Sjimpansinn Congo í dýragarðinum í London.
Mikið var um hann rætt og ritað og voru listaverk hans
notuð til sönnunar staðhæfingum um fáránleika abstrakt-
listar. Nýlega átti Congo 2 myndir á listsýningu í Institute
of Contemporary Art í London og seldust allar myndirnar.
Síðan hefur verið deilt um, hvort sýningargestir hafi vitað
að myndirnar voru gerðar af apa, eða hvort þeir hafi
verið gabbaðir
Apinn Congo er orðinn frægur
abstraktmálari víða um heim.
í list sinni ekki lítilþægur
hann líkist í fiestu mönnum þeim,
dunda sér við að draga á blað
dulbúna list og annað það.
Sagt er að greina megi ei milli
hvað manns eða apa sé þar iist.
Allt er þar líkt um andans snilli
og eins úr penslinum slett og hrist.
Leið hins frjálsborna listamanns
liggur þannig til upprunans.
FÁFNIR.
Ég er að velta því fyrir mér
hvort brúnklukkur gangi rétt.
I.æknar fiarveiandi
Ólafur Þorsteinsson 7/1 til 22/1.
(Stefán Ólafsson),
Páll Sigurðsson yngri 16/1 til 25/1.
(Stefán Guðnason).
Victor Gestsson 14/1 til 28/1.
(Eyþór Gunnarsson).
Þórður Möller fjarverandi 21. til 26.
jan. staðgengill Gunnar Guðmunds-
son.
fíULCtft
Heyrðu, pabbi minn, mikið vær
ir þú nú vænn, ef þú hjálpaðir
mér með heimadæmin
hans Pésa.
Maður nokkur kom inn á
rakarastofu til þess að láta
klippa sig.
— Viljið þér fá hárið aftur?
spurði rakarinn.
— Nei, takk, þér megið gjarn
an halda því.
— Já, en ég meina, hvernig
viljið þér hafa það?
— Alveg eins og hann föður-
bróðir minn.
— Hvernig hefur hann það?
— Hann hefur það ágætt.
— Sagði ég þér ekki að ta<ka
eftir því, þegar súpan syði upp
úr?
— Jú, ég gerði það, klukkan
var þá hálf ellefu.
Árbæjarbl. og
Selási
Fyrir nokkrum dögum hóf
Morgunblaðið skipulega dreif
ingu blaðsins í Árbæjar- og
Selásbyggðinni, og er blaðið
nú borið árdegis til kaup-
enda. Umboðsmaður MbL
fyrir byggðina er Hafsteinn
Þorgeirsson að Árbæjarbletti
36, og hefur hann á hendi alla
dreifingu og innheimtu blaðs-
ins.
Hafnarfjörður
Afgreiðsla Morgunblaðsins
í Hafnarfirði er að Arnar-
hrauni 14, sími 50374.
Kópavogur
Afgreiðsla blaðsins í Kópa-
vogi er að Hlíðarvegi 35,
sími 14947.
Garðahreppur
Afgreiðsla Morgunblaðsins
fyrir kaupendur þess i Garða-
hreppi, er að Hoftúni við
Vífilsstaðaveg, sími 51247.
JÚMBÓ og SPORI
Teiknari J. MORA
tj-j ■ e. runye3i\
— Vertu nú á svipinn eins og ferða-
maður og hegðaðu þér í öllum bæn-
um eðlilega, sagði Júmbó, þegar þeir
flýttu sér burtu frá hótelinu. — Við
vitum það ekkert ennþá, hvort við
erum eltir, en við höfum þó ef til vill
tækifæri til þess að komast undan.
— Það vona ég sannarlega, svaraði
Spori. En sú von hans gat þó ekki
orðið að veruleika, því að nokkrum
skrefum fyrir aftan þá gat á að líta
Knb- xrírS rla rrVilíilrS pr fvlo'Hllst
mjög vandlega með þeim.
Skyndilega varð Júmbó þyrstur o?
vinimir tveir gengu inn í litla kaffi-
sölu. Þá nam maðurinn á bak við
dagblaðið einnig staðar og tók sér
stöðu rétt hjá dyrunum.