Morgunblaðið - 24.01.1963, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.01.1963, Blaðsíða 10
10 MORCUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 24. janúar 1963 BIRGIR GUDGEIRSSON SKRIFAR UM HLJÓMPLÖTUR Friðrik Mikli Rússakeisari Ieikur á flautu við hirðina í Sans-Souci. Málverk eftir Adolph MenzeL ÞAÐ er kunnara en frá þurfi að segja, að Deutsehe Grammo- phon hefur um langt skeið gef- ið út tónlist hinna gömlu og oft lítt þelkktu meistara í sérút- igáfu, sem þeir nefna Arohiv Produktion. En nú nýlega hef- ur Eleetrola í Þýákalandi (á Columbia merki) sent frá sér all margar hljómplötur, sem að mörgu leyti minna á Arohiv-út- gáfu Deutshe Grammophon en fara þó nokikuð aðra leið, ög hana að mörgu leyti til bóta Þar sem Archiv-útgáfan helgar að öllu jöfnu einu tónskáldi hverja plötu um sig, helgar Electrola útgáfan aftur á móti einni borg hverja plötu. Er hér um bráðsnjalla hugmynd að ræða. Þessar borgir eru ýmsar þekiktar borgir í Þýzkalandi og Austurríki. í þessum borgum böfðu á sínum tím’a, eða þeim sem tónlistin er frá, margir þekktir furstar og aðrir aðals- menn aðsetur sitt, þegar Þýzka- landi var skipt í mörg smáfylki eða ríki. Tónlist sú; er hér um ræðir, er aðallega frá 18. öld, en þá var tónlist mjög oft sam- in eftir pöntun frá áðurnefndum furstum og leikin við hirðir þeirra. Með því móti að velja tónlistina með hliðsjón af þessu, hefur tekizt að ná fram ótrú- legum fjölbreytileik í efnisvali, þannig að lítil hætta er á, að nokkur þreytist á að hlusta á eina eða fleiri plötur til enda. Sem daemi má nefna, að á einni piötu, sem kennd er við Dresden (Saxneska hirðin), eru: Konsert eftir Vivaldi; Largo fyrir ein- leiksfiðlu eftir Piesendel; Fanta- sía fyrir lútu eftir Weiss; Jóla- pastoral fyrir lútu, cembal og hljómsveit, eftir Heiniohen; For- leikur og aría úr óperunni „Ar- minio“ eftir Hasse; og konsert fyrir flautu og hljómsveit sömu leiðis eftir Hasse. Á þessu má nokkuð marka, hversu margra grasa kennir á hverri einstakri plötu. Það sem skiptir samt mestu máli varðandi þessa út- gáfu Electrola (Columbiia) er fyrst og fremst, að hér er yfir- leitt um að ræða tónlist, sem sjaldan eða jafnvel aldrei heyr- ist, að vísu nokkuð misgóða, en eigi að síður mjög áheyTÍlega og í fjöldaihörgum tilfellum langtum meira en það. Það er engin goðgá að fullyrða, að marg ur maðurinn muni eiga erfitt með að hætta í miðjum klíðum að hlusta á þessi verk. Miklu fremur, að kynnist maður einni plötu í þessum útgáfuflokki, langi mann að eignast þær all- ar. Það verður því að teljast mjög lofsvert, að Electrola skyldi ráðast í þessa útgáfu, og hljóm- plötudeild „Fálkans“ (sem hef- ur umboð fyrir þetta merki) á miklar þakkir skilið fyrir að hafa flutt þessar hljómplötur til landsins, og þar með vakið at- hygli tónlistarunnenda á mjög svo göfugri tónlist, sem þeir hefðu gjarnan ekki haft hug- mynd um að væri til, hvað þá meira. Það skal tekið strax fram, að hljóðritun þessara verka hef- ur tekizt með svo mikilli prýði, að leitun er á öðru eins og flutnángur hinna mörgu lista- manna oftast góður og jafnvel frábær. Þar sem all umfangs- mikið yrði að fjalla um hverja einstáka hijóðritun í einum þætti, það gæti næstum fyllt þetta blað, er ætlunin að skrifa nokkuð um tvær plötur til að byrja með, en hinar eftir því, sem tími og tækifæri gefst. SALZBURG Á þessari plötu, sem kennd er við Salzburg, eru þrjú verk eftir Mozart: Cassation í G-dúr,K. 63; Divertimento í Es-dúr, K. 113; og Serenada í D-dúr, K. 100. Nokkuð er brugðið hér frá því, sem gildir um hinar plöturnar í þessum flokki, þar sem öll verkin eru eftir eitt og sama tónskáldið. Allt eru þetta æsku- verk, samin á aldrinum 13—15 ára. Því mun engum detta í hug að gera sömu kröfur til þeirra og verka Mozarts, sem hann samdi, er hann var fullþrosk- aður. En ótrúlega góð eru þau engu síður, og sögulegt gildi þeirra ótvírætt. öll eru verkin flutt af Mozarteumhljómsveit- inni í Salzburg undir stjórn hins kunna Mozarthljómsveitarstjóra, Bernhard Paumgartner. Flutn- ingur er hressilegur og hvergi örlar á að Paumgartner hafi til- hneigingu til þess að ’gera Moz- art eins kvenlegan og næstum því brothættan og allt of oft heyrist í flutningi verka meist- arans. Hljóðritun er hljómmikil með styrkum bassa og fögru og björtu efra tónsviði. Stereo-dreif ing og dýpt er með ágætum. Með þessari plötu, eins og reyndar öllum öðrum í þessum flokki, fylgir vandað rit á stærð við plötuumslagið. Hefur það mik- inn fróðleik að geyma auk þess sem í því eru margar eftir- prentanir listaverka. Númer eru: WCX 536 (M); SAXW 9516 (S). POTSDAM Þessi plata ber titilinn „Við hirð Friðriks Mikla í Potsdam“. Hún hefst í Sinfóníu í D-dúr eftir sjálfan Friðrik Mikla, en hann var sem kunnugt er mjög áhuga- samur flautuleikari. Þarf þvi engan að furða, þó að flautan gegni veigamiklu hlutverki í verki þessu, einkum er það í hæga kaflanum, sem hún er á- berandi. Er hér um hugþekkt verk að ræða, flutt af Phil- harmoniuhljómsveitinni í Berlín undir stjórn Han von Benda. Flutningur mjög góður, en án mikils sveigjanleika. Næsta verk er eftir Carl Heinrioh Graun (1701—59). Er það aría fýrir sópran úr óperunni „Monte- zuma“, sem Pilar Lorengar syng ur í hreinum og fáguðum stíl. Graun er lítt þekktur nú í dag, en hann var einn af tónlistar- stjórum (Kapellmeister) Frið- riks Mikla. Óperan „Montezuma'* var með seinustu óperum höf- undar, en hann samdi fjölda- margar, og er þessi í næsta Hándelskum stíl. Því næst er konsert fyrir flautu og hljóm- Framhald á bls. 17. RYÐEYDIR Á SKIP & BÍLA ER MÁLNINC 5EM EYÐIR RYÐI SPARAR TÍMA OG FYRIRHÖFN. ER AUÐVELD í MEÐFÖRUM SANDBLÁSTUR OG RYÐHREINSUN ÓÞÖRF KAUPSTEFNU OG SÝNINGAÞJÖNUSTA L&L er starfrækt til þæginda fyrir kaupsýslumenn og aðra, er heimsækja vilja kaupstefnur og sýningar erlendis. ALÞJÓÐA VÖRUSÝNINGIN í VÍN © Nurnberg 10.—15. febr. o Köln 15.—18. febr. Offenbach 16.—21. febr. o Frankfurt 17,—21. febr. 10.—17. marz Samsýning 15 landa, með sérsýningu í hverri iðngrein. Vefnaðar- og tízkusýning. Iðnaðar- og tæknisýning. ' Landbúnaðarsýning. Sparið tíma og fyrirhöfn. — Hringið í síma 20800 og við munum greiða götu yðar og sendum yður far- seðla og önnur skilríki er þarf. LÖND& LEIÐIR H.F. Sími 20800

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.