Morgunblaðið - 24.01.1963, Page 12
12
MORGVIS BL AÐIÐ
■Pimmtu'dagur 24. Januar 1963
Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson,
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 4.00 eintakio.
STEFNA BER AÐ
KJARABÓTUM
rins og frá er skýrt á öðrum
^ stað í blaðinu hefur nú
loks náðst samkomulag milli
Dagsbrúnar og Vinnuveit-
endasambandsins um þá kaup
hækkim, sem verkamönnum
hefur að tmdanfömu boðizt.
Hefur stjóm Dagsbrúnar
þannig látið tmdan þunga al-
ménningsálitsins meðal verka
manna og horfið um sinn
a.m.k. frá verkfallastefnunni
og til kjarabótaleiðarinnar.
En um þessar leiðir hefur
deilan lengi staðið.
Nauðsynlegt er að rifja
nokkuð upp hin mismunandi
sjónarmið í þessu efni. — í
fyrra benti Morgunblaðið á
nauðsyn þess annars vegar,
að dyggilega væri unnið að
því að bæta kjörin með sam-
starfsnefndum vinnuveitenda
og launþega, aukinni ákvæðis
vinnu og hverskyns vinnu-
hagræðingu, og hinsvegar
var það undirstrikað, að þeir,
sem lægst hefðu launin, ættu
rétt á því að njóta fyrstir
ávaxta viðreisnarinnar og fá
raunhæfar kjarabætur, en
ekki kauphækkanir, sem
leiddu til þess, að allir aðrir
fengju sömu eða meiri hækk-
anir og þar með yrði raun-
verulega um litlar eða engar
kjarabætur að ræða.
Kommúnistar hafa alla tíð
verið áhugalausir um það að
fara kjarabótaleiðina, og
þess vegna hefur því miður
enn ekki miðað nógu langt,
til dæmis að því er varðar
vinnuhagræðingu og ákvæðis
vinnu, þótt nokkrar tilraunir
hafi verið gerðar í þessu efni,
sem sannarlega bera þess
glöggt vitni, hve miklum ár-
angri væri hægt að ná, ef
dyggilega væri að þessum
málum imnið.
Um hitt atriðið, að tryggja
verkamönnum fyrst raunhæf
ar kjarabætur, verður líka að
segja það eins og það er, að
þar hafa hinni kommúnísku
forystu í verkalýðsfélögun-
um verið mjög mislagðar
hendur. í fyrra bauðst Við-
reisnarstjómin til að beita
sér fyrir þvi, að verkamenn
fengju kauphækkanir, ef
stjóm Alþýðusambands ís-
lands vildi fallast á, að kaup-
kröfum annarra stétta væri
frestað um sinn. Ríkisstjóm-
in fékk það svar, að kaup
lægst launaðra verkamanna
væri ekki í verkahring stjóm
ar Alþýðusambands íslands.
En þegar verkamenn höfðu
fengið kauphækkanir var ró-
ið að því öllum ámm, að aðr-
ar stéttir fengju meiri hækk-
anir en verkamenn höfðu
fengið. Af því leiddi óhjá-
kvæmilega almennar verð-
hækkanir, sem von bráðar
urðu þess valdandi, að kjara-
bætur verkamanna urðu
minni en þeim höfðu verið
boðnar án átaka.
SIGUR VERKA-
MANNA
egar hliðsjón er höfð af
þeirri slæmu reynslu,
sem af því er að stofna til
mikilla almennra kauphækk-
ana, er ekki að furða þó að
verkamenn fagni því að fá
nú kauphækkanir án þess
að þær leiði til þess, að
aðrar stéttir fylgi í kjölfarið
og þannig yrði um almennar
kaup- og verðhækkanir að
ræða.
Kommúnistamálgagnið lýs-
ir því í gær, að sú stefna, sem
undanfarin ár hefur verið
farin í kaupgjaldsmálum, hafi
ekki leitt til kjarabóta verka-
manna. — Auðvitað vissu
kommúnistar það áður en
þeir stofnuðu til meiri kröfu-
gerða fyrir hönd annarra
stétta, að það hlaut að leiða
til þess að kjarabætur þeirra,
sem lægst hafa launin, yrðu
ekki eins miklar og skyldi.
Aðalatriðið er, að allir geri
sér grein fyrir því, að verka-
menn geta ekki vænzt þess
að fá eðlilegar kjarabætur, ef
kapphlaupið um kaupgjald
og verðlag er sett af stað
einu sinni enn.
En árangur sá, sem nú hef-
ur náðst er auðvitað viðreisn-
inni að þakka og þeirri stefnu
ríkisstjómarinnar, að þeir,
sem lægst hafa laun eigi fyrst
að fá hækkanir.
RÉTTA LEIDIN
¥>étta leiðin í kaupgjalds-
** málunum er að sjálf-
sögðu sú, að takmarka kaup-
hækkanimar við það, sem
þjóðarbúið getur borið, án
þess að til verulegra verð-
hækkana dragi. — Almennt
telja menn líka eðlilegt, að
þeir, sem lélegust kjör hafa,
fái fyrstir þær kjarabætur,
■sem unnt er að veita, án þess
að efnahagslífið fari úr skorð-
um.
Nú fá verkamenn og aðrir
þeir, sem verst hafa kjör,
raunhæfar kjarabætur, og
jafnframt er því yfirlýst, að
fast verði staðið gegn því, að
aðrir fylgi í kjölfarið.
Auðvitað hefði verið æski-
legt að þessar hækkanir
UTAN UR HEIMI
ÍKAFFI
HJÁTÍTÓ
JÓSIP TÍTÓ, forseti Júgó-
slavíu, er ekki gefið um heim
sóknir vestrænna frétta-
manna. Fyrir skömmu féllst
hann þó á að veita brezkum
fréttamanni viðtal. Forsetinn
tók á móti fréttamanninum
og ljósmyndara, sem var með
honum í förinni, í listihúsi í
garðinum við einbýlishús sitt.
Tító var hinn vingjarnleg-
asti við gestina og lék við
hvern sinn fingur. Þegar þeir
voru seztir, kom kona forset-
ans, Jovanka, og tók þátt í
samræðunum.
Forsetinn bauð gestunum
kaffi, þeir þáðu það og þá
stóð hann upp sjálfur, setti á
sig svuntu og byrjaði að laga
kaffið.
Frú Jovanka rétti manni
sínum ekki hjálparhönd. Hún
sagði fréttamanninum, að
hann byggi til ágætis kaffi
og einnig sagði hún, að hann
hefði mjög gaman af því að
búa til mat og gerði það oft í
frístundum.
Fréttamaðurinn og Ijós-
myndarinn sátu hjá forseta-
hjónunum í góðu yfirlæti í
rúma klukkustund og drukku
kaffið, sem forsetinn hafði
lagað.
Stokhólmi, 21. jan. — NTB.
• TVEIR menn fórust í
tveim flugslysum er urðu í
Svíþjóð í dag og þriðji maður
særðist lífshættulega. Önnur
flugvélin var orrustuþota, er
hrapaði til jarðar, hin var lítil
tveggja sæta flugvél. Báðar
vélarnar komu niður á ísi lögð
vötn í Suður-Svíþjóð.
hefðu getað orðið meiri, en
aðalatriðið er, að reynt verð-
ur að sjá svo um að þetta
verði raunhæfar kjarabætur.
E. t. v. reyna kommúnistar
að hindra að svo verði með
því að æsa aðra til að heimta
sömu eða meiri hækkanir,
eins og þeir gerðu í fyrra. En
verkamenn munu vissulega
taka eftir því. hvort sú verð-
ur raunin.
Jovanka kona Titos.
Tító forseti með svuntuna.
Segir
Grotewohl
af sér?
Berlín, 21. jan. — NTB—AP.
HAFT er eftir áreiðanleg-
um heimildum í Austur-
Berlín, að forsætisráðherra
A-Þýzkalands Otto Grote-
wohl muni segja af sér em-
bætti innan skamms, vegna
heilsubrests. Herma fregnir
að Grotewohl hafi lengi
þjáðst af magasjúkdómi og
blóðrás hans sé í ólagi.