Morgunblaðið - 24.01.1963, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 24.01.1963, Qupperneq 16
Fimmtudagur 24. janúar 1965» 16 MORCVNBLAÐIÐ Jóhanna Eggertsdótfir Briem — Minning FLÓÐIN fluttu nýlega þá tilkynn ingu, að Jóhanna Eggertsdóttir Briem hefði látizt hinn 4. des. s.l. að Laugarbökkum í Qlfusi. Það er vfst allra ör!ög að skilj- ast við þettta jarðlíf og ekki nema eðlilegur viðburður að níræð kona hverfi héðan af sjón- arsviðinu. En andlátsfregnir snerta misjafnlega djúpt eftir því hvernig það sjónarsvið er, sem við manni blasir er litið er til baka yfir líf og störf þess, sem kvaddur er. Hér er það svo, að stórmerk kona er horfin af svið inu. Og þar sem ég er einn hinna mörgu, sem hef hér margs að minnast og margs að þakka, lang- ar mig til að skrifa hér örfá orð um þann þátt úr ævi frú Jó- hönnu, sem mér er kunnastur, en það er sá tími, sem hún var húsfreyja á þeim fræga stað, prestssetrinu Reykholti og réði þar ríkjum ásamt manni sínum, prúðmenninu séra Einari Páls- syni. Það var vorið 1908, að prests- kosningar fóru fram í Reykholts- sókn, og af fjóxum umsækjend- um var séra Einar Pálsson, þá- verandi prestur í Gaulverjabæ, kosinn með yfirgnæfandi meiri- hluta atkvæða og fluttist að Reyk holti þetta vor með allt sitt skyldulið, setti þar saman bú og bjó þar til ársins 1930 og þjón- aði bæði Reykholts- og Stóra- Assókn sama tíma, en auk þess varð séra Einar að bæta við sig að þjóna Gilsbakkaprestakalli frá 1917—1930. En þessi prestaköll höfðu verið setin langa hríð af tveimur önd- vegisprestum. — Reykholt af séra Guðmundi Helgasyni og Gilsbakki af sr. Magnúsi Andrés- syni. — Verkefnið var því ekki lítið, sem beið hinna nýkomnu f prestshjóna að fylla hið mikla skarð, sem hér var fyrir skildi. í>að segir sig sjálft, að hlut- ur frú Jóhönnu hefur ekki ver- ið lítill í að stofna í Reykholti heimili er bæri bá reis'n, er hæfði hinum stóra stað. En þrátt fyrir hina löngu og erfiðu búferla- flutninga var ákveðið að verki gengið. Staður var fundinn fyrir hvern hlut og hver hlutur var látinn á sinn stað; allt var hreint og fágað og ekki leið á löngu að í Reykholti væri á ný risið full- mótað fyrirmyndarheimili. Veik- indi voru þó á heimilinu fyrsta sumarið, sem mjög hafa aukið á byrjunarörðugleikana. í Reykholti var löngum eril- samt fyrir húsmóðurina, því um- ferð og gestakoma var mikil, bæði í sambandi við prestsem- bættið og af langferðamönnum, bæði innlendum og útlendum. Heimilið í Reykholti var stórt. Auk prestshjónanna og sjö barna þeirra tilheyrðu fjölskyldunni: Hróðný Einarsdóttir, móðir prests ins og systkini hans tvö, Helga og Jón. Hann var farlama eftir slys, er hann lenti í og lifði ekki lengi. >á kom og með þeim Jón Kjartanson, gamall maður, er ver ið hafði ráðsmaður hjá Hróðnýju. Einnig var jafnan eitthvað af hjúum og öðru verkafólki. svo að í mörg horn var að líta fyrir húsmóðurina. Ég, sem þessar línur rita, átti því láni að fagna, að vera ferm- ingarbarn séra Einars Pálssonar. Og mér eru mjög minnisstæðar komur mínar að Reykholti, bæði að messum og spurningum. Gistrisni var þar meira en þekkzt hafði á þeim tímum. Kirkjur voru þá enn mikið sótt- ar, svo að fjöldi fólks kom að Tímarit Máls og menningar 4. - 5. hetti 1962 Efni GREINAR Halldór Kiljan Laxness: Island, Norðurlönd og Evrópa Jóhannes úr Kötlum: Þrjár kynslóðir Gísli Ásmundsson: Einstaklingshyggja — félagshyggja Björn Jóhannesson: Raunvísindi og islenzkur þjóðarbúskapur Sigurður Blöndal: Skógrækt Skúli Guðjónsson: Blessuð sértu sveitin mín Baldur Ragnarsson: Vikið að 1 jóðlist Gunnar Benediktsson: Var á því þingi svarður skattur Björn Franzson: Nokkrar hugleiðingar um nýja tónlist Björn Þorsteinsson: Sagnaskemmtun og upphaf íslcnzkra bókmennta LJÓÐ OG SÖGUR eftir Snorra Hjartarson Guðmund Böðvarsson Kristin Reyr Ólaf Jóh. Sigurðsson Guðmund Thoroddsen Hannes Sigfússon Guðberg Bergsson Þorstein frá Hamri Dag Siguðarson Skúla Magnússon Árgjald Máls og menningar 1962 var kr. 250,00 Félagsbækur ársins auk Tímaritsins: Hermann Pálsson: Sagnaskemmtun íslendinga Juan José Arévalo: Hákarlinn og sardínurnar Myndlist/Manet. Fyrsta félagsbók þessa árs verður nýtt bindi Mann- kynssögu Máls og meningar, um tímabilið 1648—1789, samið af Bergsteini Jónssyni. MÁL OG MENNING Laugavegi 18. — Símar 15055 og 18106. Fyrir nokkru luku 24 nem. lokaprófi í smáskipadeild Stýrimannaskólans. Aftasta röð frá vinstri: Þráinn Sigtryggsson, Kristinn J. Friðþjófsson, Eiríkur Óskarsson, Þórólfur Sveinsson, Björn Björnsson, Sigmundur Magnússon og Friðrik Friðriksson. I miðju, talið frá vinstri: Guðmundur Friðriksson, Einar B. Sigurðsson, Kristinn Karlsson, Viktor Sturlaugsson, Jóhannes Guðvarðar- son, Árni Símonarson, Jón Ólafsson, Þorgrímur Eyjólfsson, Björn Þórhallsson og Kristián Björnsson. Sitjandi frá vinstri: Sigurður T. Sigurðsson, Trausti Örn Guðmundsson, Bela Hege- diis (ungverskur flóttamaður), Halldór H. Jónsson, Jónas Björgvinsson, Lúkas Kárason og Hjálmar Randversson. hverri messu. Þá var ekVi eins og nú, að hægt var að hlýða á messu í hvers manns húsi með þvi að snúa einum takka. Kirkj- umar voru einu samkomustað- irnir og á hverjum bæ var margt fólk, sem gat farið til 'kirkju. Af þessu leiddi það. að frúin varð að leggja á sig mjög mikla vinnu við bakstur og veit- ingar, því að á hverjum messú- degi voru hlaðin borð af veit- ingum, sem óspart voru með- teknar af kirkjugestum. Fólki var í bá daga meira nýnæmi í öHu sliku en nú. Ég minnist bess hvað prests- frúin var alúðleg við okkur krakkana og umhygpjusöm. Ef við komum blaut og illa til reika, þá kom hún með hrein, þurr og hlý föt, sem við skyldum vera í á meðan við var staðið og hin fötin voru að þorna. Og öll um- hyggja var eftir því. Hún vakti yfir öllu og allt skyldi haft í því bezta lagi, sem kostur var á. Einnig mun hún hafa haft mjög vakandi augu með hverju heimili í sóknunum. sem maður hennar þjónaði og eins eftir að þau voru flutt burt úr héraðinu. Henni var auðvelt að komast i kynni við konur í sóknunum, því að hún var ekki að halda í þann sið. sem verið hafði. að alþýðan varð að þéra alla embættismenn og konur þeirra. Þar var hún á undan samtíð sinni sem annars staðar. Öll yfirborðsmennska var henni fjarri skapi, hégómi og tild ur, því hún kunni vel að greina kjarnan frá hisminu. Hún var mikill persónuleiki . ' Hér verður engin ævisaga rak- in og hvorki raktir forfeður né afkomendur. það munu aðrir færari gjöra. Fædd var hún norð ur í Skagafirði, að Hjaltastöð- um, 2. febr.. 1872. Foreldrar henn ar voru hin merku hjón Eggert Briem, sýslumaður og kona hans Ingibjörg Eiríksdóttir Sverrissen, sem næsta vor fluttu að Reyni- stað og þar ólst Jóhanna upp hjá foreldrum sínnm í hópi hinna mörgu systkina, sem flest urðu þjóðkunn. Hún var yngst þeirra Reynistaðasystkina. Engum sem þekkti frú Jó- hönnu, gat dulizt að hún væri Nýr — gullfallegur Svefnsófi á aðeins kr. 1500,- Yfirdekkjum. Sófaverkstæðið Grettisgötu 69. Opið kl. 2—9. góðrar ættar og af sterkum stofn um komin, því hæfileikar henn- ar. mannkostir og svipmót allt. bar vott um það. Hún var há vexti og tíguleg, hárprúð í bezta lagi, framgangan örugg og djarf- leg og augnaráð óvenju sterkt og skýrlegt. í Reykholti skilaði hún miklu starfi. Þar uxu unp sjö börn þeirra hjóna, undir hinni móðurlegu umhyggu hénnar og henni auðnaðist að sjá þatr öll verða vel menntað fyrirmynd- arfólk. En leiðir þeirra allra láu frá Reykholti. Og var að þeim mikil eftirsjá fyrir alla í sókn- inni. Þau voru, talin eftir aldurs- röð: Eggert. læknir í Borgar- nesi, Ingibjörg, húsfreyja í Reykjavík, Gunnlaugur, guð- fræðikandidat, látinn. Svanbjörg. húsfreyja í Reykjavík. Valgerð- ur. húsfreyja um 30 ára skeið í Kalmanstungu, en nú flutt til Reykjavikur, Páll, vélameistari í Reykjavik og Vilhjálmur. bóndi að Laugarbökkum í Ölfusi. Vorið 1930 hætti séra Einar Pálsson prestsskap .fluttist til Reykjavíkur og gerðist starfsmað ur við Söfnunarsjóð íslands. í skilnaðarsamsæti. er þeim hjónum var haldið að skilnaði í Ungmennafélagshúsi Revkdæla. sá ég þau hjón í síðasta sinn. Þar Katiöir bærinn M Búnaðarféla^s- húsið? BÚNAÐARFÉLAG íslands hefur skrifað borgarráði og boðið bæn um til kaups gamla Búnaðarfé- lagshúsið í Lækjargötu 14 B. Var bréfið lagt fram á síðasta borg- arráðsfundi og þar vísað til borg arlögmanns. Ekki hefur enn ver- ið rætt um kaupverð. Nú fer að líða að því að Bún- aðarfélagið flytji starfsemi sína yfir í nýju Bændahöllina og þá losnar gamla húsið við Tjörn- ina. voru þau og börn þeirra kvödd með virðingu og söknuði. eftir tuttugu og tveggja ára þroflaust, heillaríkt starf, er þau höfðu unnið í þágu sveitar og safn- aðar. Frú Jóhanna Eggertsdóttir Briem mun vart gleymast þeim, er hana þekktu. Og ég hygg að flestir, sem hana þekktu, hefðu orðið sammála um, að hún hefði allsstaðar hlotið að sóma sér vel, jafnt hvort hún hefði verið drottn ing í hárri höll eða bóndakona í lágum sveitabæ. Með henni hefði umhverfið alltaf stækkað og fengið virðulegri svip. Hlýjar kveðjur munu hvaðan- æva fylgja henni yfir landamær- in. Með virðingu og þökk i huga kveð ég hana og óska henni góðr ar heimferðar. Börnum hennar og öðrum að- standendum sendum við hjónin beztu samúðarkveðjur. Einar Kristleifsson. r A^ætur fundur Sjálfstæðisfélag- anna í Bolun«arv. Bolungarvík, 21. jan. SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN hér efndu til fundar í sjómannales- stofu félagsheimilisins í gær. Formaður „Þjóðólfs" Friðrik Sigurbjörnsson lögreglustjóri setti fundinn og stjórnaði hon- um. Sigurður Bjarnason frá Vigur flutti ræðu um stjórnmálavið- horfið og var ræðu hans ágæt- lega tekið. Til máls tóku auk frummæl- enda: Guðmundur B. Jónsson vél- smiðjustjóri, Jónatan Einarsson vélsmiðjustjóri, Friðrik Sigur- björnsson og Högni Torfason hinn nýskipaði erindreki Sjálf- stæðisflokksins á Vestfjörðum. Mikill áhugi ríkti á fundinum og fór hann hið bezta fram. Sólar-kaffi Árshátíð 'Isfirðingafélagsins verður í Sjálfstæðis- húsinu í kvöld kl. 20,30 — — Beztu skemmtikraftar —• Aðgöngumiðar í Sjálfstæðishúsinu seldir í dag kl. 5—7.'— Borð tekin frá á sama tíma. ísfirðingafélagið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.