Morgunblaðið - 27.01.1963, Síða 1
24 síður og Lesbók
De Gaulle segir Dani fá fulla aðild
aö EBE þó viöræður við Breta hætti
Parts, 26. jan. — NTB-AP
FORSÆTISRÁÐHERRA
Dana, Jens Otto Krag, ræddi
í morgun við de Gaulle
Frakklandsforseta í Elysée-
höllinni í París. Eftir viðræð-
urnar sagði Krag fréttamönn-
um, að de Gaulle hefði látið
svo ummælt, að Danir gætu
fengið fulla aðild að Efna-
hagsbandalagi Evrópu, þó að
viðræðurnar um aðild Breta
færu út um þúfur.
Krag sagði de Gaulle hafa lýst
J>ví yfir, að færu viðræður Breta
við EBE um aðild út um þúfur,
yrðu Danir að velja um aukaað
ild eða fulla aðild með þeim efna
hagslegu og sjórnmálalegu skil-
málum, sem hún fæli í sér.
Krag sagðist ánægður með
þetta tilboð de Gaulle og sagði
að það myndi verða tekið til ná
kvæmrar athugunar innan
dösnsku stjórnarinnar. Krag sagð
ist hafa skýrt de Gaulle frá þýð
ingu hinna viðskiptalegu tengsla
Danmerkur og Bretlands og sagt,
að það yrði að taka tillit til
þeirra. *
Krag sagðist ennfremur hafa
lagt áherzlu á það við de Gaulle,
að mikill áhugi ríkti í Danmörku
á því, að Bretar, Norðmenn og
Danir fengju allir aðild að banda
laginu og látið í ljós þá von, að
viðræður þessarra þjóða við EBE
yrðu farsællega til lykta leiddar.
Sagðist Krag telja, að það væri
enn mögulegt.
Á mánudag ræðir Krag við for
sætisráðherra Frakka, George
Pompidou, en um miðja vikuna
heldur hann til Bretlands til við
ræðna við Macmillan, forsætis
ráðherra Breta.
Konur kjósa
*
í Iran
en atkvæði þeirra
ekki talin
Teheran, 26. jan. (AP) —
f dag gengu um 5 milljónir
íranbúa til atkvæðagreiðslu
um frumvarp keisara landsins.
Frumvarpið felur m. a. í sér,
að jörðum stóreignabænda
verður skipt milli smábænda,
endurbætur í kennslumálum
og endurbætur á sviði iðnað-
ar.
Konur fengu að greiða at-
kvæði í dag í fyrsta skipti
sögu íran. Konurnar kusu á
sérstökum kjörstöðum og
vegna þess, að ekki er gert
ráð fyrir því í kosningalögum
í landinu, að konur greiði at-
kvæði verða atkvæði kvenn
anna ekki talin með.
Togorasölur
B.V. GEIR seldi 172 tonn í Hull
á föstudag fyrir 13.234 sterlings
pund. Tveir togarar selja á mánu
dag, Þormóður goði í Bretlandi
og Hvalfell í Þýzkalandi.
Málgagn kommunista i Kína segir'
Uibricht kom rudda-
lega fram í Berlín
Peking, 26. jan. — NTB-AP
D A G B L A Ð þjóðarinnar“
skýrði kínversku þjóðinni frá
því í dag, sem fram fór á
þingi austur-þýzkra kommún
istaflokksins í Austur-Berlín.
Er þetta í fyrsta skipti, sem
minnzt er á flokksþingið á
opinberum vettvangi í Kína.
Blaðið birtir á baksíðu sinni
útdrátt úr ræðum allra þeirra, er
gagnrýndu stefnu kommúnista-
flokka Kína og Albaníu, þar á
meðal ræðum Ulbrichts, leiðtoga
austur-þýzka. kommúnistaflokks-
ins, Krúsjeffs, forsætisráðherra
Sovétríkjanna og Gomulka, leið-
toga pólskra kommúnista.
Blaðið skýrir einnig frá viðtök
unum, sem formaður sendinefnd-
ar kínverskra kommúnistaflokks
ins á flokksþinginu í Berlín Wu
Hsiu Chuan, hlaut, er hann steig
í ræðustól og gagnrýndi Júgó-
Herflugvél
ferst í USA
New York, 25. janúar — AP.
BANDARÍSK sprengjuþota, af
gerðinni 5—52, með 9 manns inn
anborðs, hrapaði í óbyggðum
hluta Maine-ríkis í Bandaríkjun-
um 1 gærkvöldi.
9 menn voru með vélinni. Að-
eins 2 höfðu fundizt, er síðast
fréttist, Leit heldur enn áfram.
Flugvélin var á æfingaflugi,
er slysið bar að höndum.
slava, en tók upp hanzkann fyrir
Albani. Skýrði blaðið nákvæm-
lega frá því, að þingfulltrúar
hefðu stappað, hrópað, flautað
og hlegið og sakaði Ulbricht um
að hafa komið ruddalega fram,
þegar hann hefði ætlað að þagga
niður í fundarmönnum.
STJÓRN útgáfufélagsins mundur Sveinsson, mynd-
Árvakurs hefur í heiðurs- höggvari.
og virðingarskyni við Hér að ofan hirtist mynd
Valtý Stefánsson, ritstjóra, af styttunni en ráðgert er
látið gera af honum hrjóst- að koma henni fyrir í húsa-
mynd. Myndina gerði Ás- kynnum Morgunhlaðsins.
Fðr Gullfoss gegnum ísinn
Stutt samtal v/ð Kristján
Aðalsteinsson skipstjóra
GULLFOSS, skip Eim-
skipafélags íslands, kom
til Kaupmannahafnar á
laugardagsmorgun eftir að
hafa siglt í gegnum ísinn
á Kattegat og Eyrarsundi.
Gullfoss festist ekki í ísn-
um, en varð lítillega á eft-
ir áætlun af völdum hans.
Fréttaritari Morgunhlaðs
ins í Kaupmannahöfn átti
stutt samtal við Kristján
Aðalsteinsson skipstjóra á
laugardaginn og fer skeyti
frá honum hér á eftir:
Einkaskeyti til M!bl. frá
Kaupmannahöfn 26. janúar.
Gullfoss kom til Kaup-
mannahafnar í morgun með
80 farþega. Var skipið aðeins
á eftir áætlun, vegna tafa af
völdum íss á Kattegat og Eyr-
arsundi.
Kristján Aðalsteinsson, skip
stjóri, sagði, að Gullfoss hefði
siglt inn í ísinn á Kattegat
eftir að dimmt var orðið í
gærkvöldi. Þó að farið sé að
þiðna veldur ísinn ennþá
miklum erfiðleikum og Krist-
ján sagði, að á Eyrasundi
hefði Gullfoss siglt fram hjá
mörgum skipum, sem föst
voru í ísnum. Gullfoss festist
ekki í ísnum. Sagði Kristján,
að minnsti hraði skipsins á
siglingunni gegnum ísinn
hefði verið 5—6 mílur, en
meðalhraði skipsins væri 14—
15 mílur á klukkustund.
Ekki er talið, að erfiðleik-
arnir vegna íssins umhverfis
Danmörku minnki í bráð, því
að vindur hrekur nú ísinn
inn í sundin. Ferðir yfir sum
sundanna liggja alveg niðri
og Stórabeltisferjan hefur
orðið fyrir miklum töfum af
völdum íssins.
Rytgaard. * 1
Bandarískir kafbdfar með Polaris
til Miðjarðarhaisins d þessu dri
Hafa ekki aðsetur í ítölskum höfnum
Róm, Washington,
26. janúar (NTB — AP).
Fjöldi lý&ræðissinna
strikaður út í Dagsbrún
ENDA ÞÓTT lög ASÍ kveði
svo á, að kjörskrár skuli af-
hentar í síðasta lagi tveim
dögum áður en kosningar hef j
ast í verkalýðsfélögum, fengu
lýðræðissinnar ekki afhentar
kjörskrár Dagsbrúnar fyrr en
kosning hófst í gær.
Þegar farið var að athuga
kjörskrána kom í ljós, að
meira en 400 verkamenn höfðu
verið strikaðir út af henni frá
því í haust. Þá voru 2750 á
kjörskrá en eru nú um 2330.
Ástæðan til þessarar fækk
unar er sú m.a., að kommúnist
ar hafa ræk'ilega strikað út
alla lýðræðissinna, sem ekki
höfðu að fullu greitt gjöld sín
til félagsins, án þess að inna
þá eftir greiðslu, en hins veg-
ar gætt þess jafn vandlega að
fella enga af sínum mönnum
af kjörskránni.
Morgunblaðið vill benda
þeim verkamönnum, sem strik
aðir hafa verið af kjörskrá af
þessum sökum á það, að þeir
hafa fullan rétt til að krefjast
þess að vera teknir á kjörskrá,
ef þeir greiða gjöld sín í dag.
Forsætisráðherra Ítalíu, Amin-
tore Fanfani, skýrði frá þvi í
ræðu á ítalska þinginu í dag, að
Bandaríkin myndu senda kaf-
báta búna Polaris-eldflaugum til
Miðjarðarhafsins í stað Júpíter-
eldflauganna, sem fluttar verða
frá Ítalíu. Fanfani sagði, að kaf
bátarnir yrðu ekki staðsettir I
ítölskum höfnum, en gat ekki um
i hvaða höfnum þeir myndu hafa.
aðsetur.
Skýrt var frá því í Washington
í dag, að fyrsti kafbáturinn, bú-
inn Polaris-eldflaugum yrði vænt
anlega sendur til Miðjarðarhafs-
ins á þessu ári.
I ræðu sinni í ítalska þinginu
sagði Amintore Fanfani m.
að ítalir væru hlynntir þeirri hug
mynd Bandaríkjanna, að búa her
afla Atlantshafsbandalagsins kaf
bátum með Polaris-eldflaugar.
Framh, á bls. 2