Morgunblaðið - 17.02.1963, Page 24
ánafoss rakst á
sryggju á Akureyri
er hann kom til landsins í fyrsta sinn
Steini Mánafoss rakst á bryggjuna á Akureyri.
Ljósm. st. e. sig.
IVfælingar í jökulánuna
úr IVlýrdalsjökli
AKUREYRI, 16. febr. — Mána-
foss, hið nýkeypta flutningaskip
Eimskipafélags íslands kom til
Akureyrar í morgun kl. 8. Er skip
ið var að leggjast að bryggju
að tollafgreiðslu á Akureyrar-
polli aflokinni, varð það
óhapp að skipið rakst á
bryggjuna svo að það dældaðist
all mjög að framan og gat kom
á stefni þess. Einnig olli það
nokkrum skemmdum á aðal hafn-
arbryggjunni, stálþil rifnaði og
flettist frá og bryggjukanturinn
brotnaði. Sannast vonandi hið
forkveðna að fall er fararheill.
Orsök óhappsins mun væntan-
lega var sú, að aílvél skipsins
Geta ge'ið lengri aðvörunarírest
fyrir Kötlugos
Á SL. ári hefur verið fylgzt með
efnasamsetningu í jökuiánum
sem koma úr Mýrdalsjökli og
gerð efnagreining á þeim, í þeim
tilgangi að vita hvort um nokkra
breytingu á því geti verið að
ræða sem undanfari Kötiugoss.
Og er ætlunin að gera þessar
mælingar mánaðarlega á þessu
ári. En með þessu má e. t. v. fá
svolítið iengri aðvörunarfrest
fyrir gos en með jarðskjálftamæi
ingunum. Sem kunnugt er, er
gostími Kötlu kominn, ef hún
fer að venju, að gjósa tvisvar á
öld.
Það er Guðmundur Sigvalda-
son, jarðefnafræðingur, sem hef-
ur þessar rannsóknir á hendi, en
kostnaðinn af þeim bera Iðnaðar-
deild Atvinnudeildar, Jöklarann-
sóknarfélag íslands og Vatna-
mælingadeild Raforkumálaskrif-
stofunnar.
íkveikja á
Litla Hrauni?
GRTJNUR leikur, á að kveikt hafi
verið í vinnuskálanum, sem
fbranin fyrir skömmu á Litla-
Hrauni. Hefur EMas Elíasson í
dómsmálaráðuneytinu verið skip
aðuir til að ramnsaka málið. Var
Ihann fyrir austan í gær, þeg-
ar blaðið fór í prentun, og kvaðst
ekk.ert geta sagt um málið enn
sem komið er.
Hver hefur séð
blátt reiðhjól?
AÐFARANÓTT föstudagsins var
reiðhjóli stolið í kjallara Morg-
unblaðsins. Var það læst, en
horfið um morguninn. Þetta er
blátt reiðhjól með krómuðum
böglabera og stýri, og hvítum
dekkjum. Stöngin á hjolinu er
bogin. Þeir sem kynnu að hafa
orðið varir við slíkt hjól eru
þeir beðnir um að tilkynna
rannsóknarlögregiunni.
Við Öskjugosið varð
efnabreyting á vatni
— Undir Mýrdalsjökli er hvera
svæði sem gefur frá sér gufur
og vatn, er rennur út í árnar,
sagði Guðmundur' í viðtali við
blaðið í gær. Þegar eitthvað er
að gerast undir jöklinum, hefur
alltaf komið fýla, og því ætlunin
að fylgjast nú með efnasamsetn-
ingunni í vatninu. í Öskjugosinu
síðasta komu líka nokkru á und-
an fram hverir og hafði vatmð
í þekn mikið af uppleystum efn-
um. Er ekki ólíklegt að svipaðar
breytingar verði í hverasvæðinu
undir Mýrdalsjökli á undan Kötlu
gosi.
Þetta er a. m. k. það eina sem
hægt er að gera til að reyna
að segja fyrir um gos, þar eð við
höfum ekki tök á að koma á' ný-
tízkulegri aðferðum. Eftir að vit-
að er hvað eru eðlilegar breyt-
ingar með reglulegum mælingum,
þá er hægt að segja til um hvað
er óvenjulegt og grundvöllurinn
fenginn. Ef einhver breyting
kemur fram í þessum mæling-
um, er ástæða til að fylgjast af
meiri árvekni með jarðskjálfta-
mælunum, ef gos kynni að byrja.
Japanir teija sig fá 8 ára fre«t
Ekki hefur verið reynt áður
hér á landi að gera slíkar mæl-
ingar. En Japanir munu eitthvað
hafa reynt þetta og segjast geta
sagt fyrir um eldgos með 18 mán.
fyrirvara með þessu, en Guð-
mundur Sigvaldason kveðst ekki
Færeyskt ship
tekur niðri *
VÉLSKIPIÐ Venus frá Færeyj-
um tók niðri á Ausburtaglinu á
Eragey um kl. 9 í gærmorgun er
skipið var að leggja af stað út
með fiskfarm. Eftir skamma
stund losnaði skiþið af sjálfs-
dáðun af'tiur og var þá kafað
við það ag héit það siðan út á
ný um kl. 12 á hádeigi í gær.
Talið er að skipstjórimn hafi
valið rr nga útsjglingu úr höfn-
jnni.
trúaður á þetta langan fyrirvara.
Með nýtízku mælingunum sem
fyrr var getið, er átt við mæl-
ingar á hreyfingum í sjálfu eld-
fjallinu, sem þenst út og lyftist
svolítið fyrir gos, en reglulegum
á lóðréttum hreyfingum í fjalls-
hljðum beita vísindamenn á
Hawai við sitt mesta eldfjall. Og
á Trinitat eru mældar þenslu-
hreyfingar. En í Mýrdalsjökli
væri að sjálfsögðu ekiki hægt að
koma fyrir mælingum á fjallinu
sjálfu.
— Við erum að reyna með
þessu að fá lengri aðvörunar
frest, sagði Guðmundur að lok-
um. Og þó það beri kannski ekki
árangur núna, þá verður það til
leiðbeininga fyrir þar næsta gos.
í i
s.
Mánafoss fánum skreyttur við
Akureyrarbryggju.
vinnur hraðar en vélar annarra
skipa Eimskipafélagsins, og þarf
þar af leiðandi lengri tíma til
að venda henni.
Skipstjórinn sendi boð urn
stöðvun fyrr en vant er að gera,
en þrátt fyrir það komu þau br- J
of seint í vélarrúm, ekki vannst
tími til að taka aftur á bak nógu
snemma. Afleiðingarnar urðil
fyrgreindar skemmdir. Gert
verður við skipið á AkureyrL
Fagnað með fánum
Skipið var fánum prýtt er það
lagðist að bryggjunni á Akureyri,
í fyrsta sinn sem það leggst und-
ir íslenzkum fána að bryggju hér
á landi. Fánar blöktu og víða i
bænum til að fagna komu skips-
ins.
Skipið átti að leggja af stað
frá Kaupmannahöfn sl. laugar-
dag. en tafðist þar í hartnær 2
sólarhringa vegna ísalaga. Ferð-
in heim gekk að öðru leyti ágæt-
lega, enda lengst af stillt veður
á leiðinni. Ganghraði skipsins
er um 11 sjómílur. Skipið flytur
almenna stykkjavöru á Norður-
og Austurlandshafnir. Engir far-
þegar eru með skipinu, enda
ekkert farþegarými um borð.
Skipstjóri er Eiríkur Ólafsson,
fyrsti stýrimaður Bernódus Krist
jánsson og fyrsti vélstjóri Hauk-
ur Lárusson.
Eimskipafélag íslands býður
ýmsum gestum úr bænum um
borð kl. 4 í dag og verða þar
m. a. Óttar Möller, forstjóri,
Sigurlaugur Þorkelsson blaða-
fulitrúi og Jónas H. Traustason,
umboðsmaður félagsins á Akur-
eyri — Sv. P.
*Húenzu i
7Ö7 láfízt úr
Bandaríkjunum á 5 vikum
FaralduEÍnn breiðist óðfluga út um landið
SUórnmálanám-
•f
skeið Ileimdallar
Iieldur áfram á
mor«im
Á MORGUN • verðutr þriðji fund-
ur Stjórnmálanáimskeiðs Heim-
daillar.
í tveimuir erindum hefur stjórn
máiasagan frá 1918—1956 ver-
ið rakin, en á fundinum á morg-
un mun Ólafur
Björnsson, próf-
essor, flytja er-
indið: V instri
stjórnin, verk
bennar og staða
í íslenzkri stjórn
miálasögu.
Þess er að
vænta að fund-
Ólafur B. ur þessi verði
eigi síður fjölmennir en hinir
fyrri. Freikari upplýsingar eru
veittar á skrifstofu Heimdalilar
í Valihöll, simi 17102.
Einkaskeyti til Morgunblaðs-
ins, Atlanta, Georgia, 16.
febrúar — AP.
INFLÚENZUFARALDUR sá,
sem gengið hefur í Banda-
ríkjunum, hefur nú breiðzt
víða út, og nemur tala dauðs
falla af völdum hans nú rúm
lega 700. Er hér um allmiklu
hærri tölu að ræða, en gert
mundi verða ráð fyrir undir
venjulegum kringumstæðum.
Hér er um að ræða svonefnda
Asíuinflúenzu, og hefur hún
þegar gert vart við sig í 16
ríkjum. Faraldurinn kom upp
í Norður-Karolínuríki, en hef
ur nú færzt austur á hóginn,
þótt tilfella hafi einnig orðið
vart í vesturríkjunum.
Sérstaklaga hefur borið á úf-
breiðslu veikinnar í New York,
Michigan, ag umhverfi Washing
ton undanfarna daga. Sum stað-
ar, þar sem veikinnar hefur orð-
ið vart, hefur hún tekið á sig
aðra mynd, en þar sem hún gaus
fyrst upp.
Alls hafa 707 Játið lífið í 108
borgum á þeim fimm vi'kum,
frá því fyrst varð ljóst, að um
faraldux er að ræða. Er hér mið-
að við vikuna, er lauk 9. febrú-
ar, en nýrri tölur eru ekki fyrip
hendi í dag. Er tal dauðstilfella
um 150 hærri, en talið er eðli-
legt miðað við útbreiðslu.
Allt bendir -nú til þess, að
faraldurinn sé einnig að færast
vestur á bóginn.
Akoreyringar
BINGÓKVöLD Sjálfstæðisfélag-
ánna verður að Hótel KEA
sunnudaginn 17. febrúar kl. 8.30
e. h. Margir glæsilegir vinning-
ar. Vinningarnir verða til sýnia
í glugga Amaro. Forsala aðgöngu
miða verður á skrifstofu flokks-
ins kl. 2—4 í dag, sunnudag.
sími 1578.
HAFNARFJÖRÐUR
Sjálfstæðiskvennafélagið Yor-
boðinn í Hafnarfirði beldur að-
alfund í Sjálfstæðishúsinu annað
kvöld kl. 8.30. Fram fara venju-
Ieg aðalfundarstörf og Ilafsteinn
Baldvinsson bæjarstjóri ræöir
um bæjarmái. Kaffi verður fram
reitt. - "