Morgunblaðið - 27.03.1963, Blaðsíða 1
24 síður
Hörmungarástand. ríkjandi á Bali í Indénesíu:
Öttazt a5 ellefu bús. hafi farizt
og 400 þús. heim-
ilislausir ai vold-
um eldgossins
Den Pasar, 26. marz.
— NTB-Reuter —•
Ó T T A Z T er, að 11 þúsund
manns, að minnsta kosti, hafi
farizt af völdum eldgossins í
fjallinu Agung á Balí í Indó-
nesíu. Meira en 400 þúsund
manns hafa misst heimili sín.
Talið er víst, að flytja verði
fólk þetta hrott frá eynni, því
að tíu ár murri líða áður en
unnt verður að hefja ræktun
þar að nýju.
Formaður Rauða krossins í
Indónesíu, frú P. Abdul Rahman,
átti fund með fréttamönnum í
dag og skýrði frá því, að 400
þúsund manns hefðu misst heim-
ili sín og aleigu vegna hamfar-
anna á Balí. Sagði hún suðaustur
hluta eyjarinnar, þar sem mestur
hluti fólksins bjó, hafa orðið
mjög illa úti, vegna öskufalls og
hraunstraums. Sennilega yrði að
flytja allt þetta fólk á brott, því
að áratugur mundi líða áður en
unnt yrði að hefja ræktunarfram
kvæmdir að nýju.
Frú Rahman sagði, að þegar
hefðu 50 þús. manns verið flutt-
ir burt og aðrir 35 þús. færu fyr-
ir vikulokin. Hún sagði Rauða
krossinn hafa farið fram á aukna
aðstoð stjórnarinnar við björg-
unarstarfið, fleiri flutningavélar,
þyrlur og báta, og ennfremur
meiri lyf, hrísgrjón og fatnað.
í>á sagði talsmaður Indónesíu-
stjórnar á Balí í dag, að ætla
mætti að ellefu þúsund manns
hafi týnt lífi í þessum náttúru-
hamförum. \
Á Vestur-Borneó hafa þúsund-
ir manna misst heimili sín vegna
flóða.
Fregnir frá Manila herma, að
stjórn Filippseyja hafi ákveðið
að senda þrjár stórar flugvélar
með lækna, hjúkrunarkonur, lyf
og önnur hjúkrunargögn til Balí.
Verða fjörutíu læknar í liðinu.
Indónesíustjórn hafa borizt
samúðarkveðjur víða að, meðal
annars frá stjórn Hollands.
Eggert Gíslason við nýja bátinn. (Ljósm. Sigurður Finnsson).
Eggert að koma með Sigorpól
SIGURPÁLL, hinn nýi bátur Guð
mundar á Rafnkelsstöðum, sem
Eggert Gislason fyrrum á Víði II
er að sækja, er nú að verða til
búinn í Marstrand í Svíþjóð og er
vonast til að hann geti lagt af
stað til íslands um miðja næstu
viku, að því er Guðmundur
skýrði blaðinu frá í gær.
Smíði bátsins iafðist um 3 vik
ur vegna frosta og sagði Guð
mundur að Eggert væri að verða
óþolinmóður, þar eð hann sé
Framh. á bls. 23
Meðfylgjandi mynd var tekin 23. marz sl. á Bal i þar sem verið var að flytja fólk brott frá eynni.
Mestu óeirðir í London
írá því fyrir stríð
— 7000 manns söfnuðust
saman við þinghúsið
London, 26. marz — NTB-AP
í dag kom til alvarlegra
óeirða við þinghúsið í
London, er um það bil sjö
þús. atvinnuleysingjar víðs-
vegar að af Bretlandseyjum
söfnuðust þar saman til árétt-
ingar kröfum sínum um vinnu
og brauð. Margir særðust svo
að flytja varð í sjúkrahús og
enn seint í gærkvöldi voru
þúsundir manna samankomn-
ir í nágrenni þinghússins, en
lögregla hélt mannfjöldanum
í skefjum. Slíkar óeirðir hafa
ekki orðið í London frá því
fyrir stríð.
í nótt hafði fólk þetta flykkzt
til London til þess að taka þátt í
mótmælafundi vegna atvinnu-
leysis. Fór mannfjöldinn kröfu-
göngur um götur borgarinnar,
hélt sinn fund og lagði síðan leið
sína til þinghússins. Kröfuspjöld
voru borin, þar sem á stóð: „Lát-
ið okkur fá vinnu“, „Niður með
Macmillan“ o. s. frv.
Margir göngumanna voru
mjög við aldur og höfðu sumir
þeirra tekið þátt í hinni svoköll-
uðu „hungurgöngu" árið 1933. í
fararbroddi lék lúðrasveit og
meðal forystumanna voru þrír
þingmenn Verkamannaflokksins,
Anthony Greenwood, frú Bar-
bara Castle og Douglas Jay.
í fyrstu fór allt fram með frið-
samlegum hætti. Lögreglumenn
hleyptu fimmtíu manna sendi-
nefnd inn í þinghúsið, þar sem
átti að afhenda Macmillan for-
sætisráðherra mótmælaorðsend-
ingu. Fúndur stóð yfir í neðri
málstofunni og er einn af þing-
mönnum Verkamannaflokksins
spurði forsætisráðherann, hvort
hann vildi taka á móti sendi-
nefndinni, svaraði hann því ját-
andi.
Á FÖSTUDAG urðu kunn úrslit
i aukakosningum þeim, er fram
fóru í Colne Valley á Englandi,
í fyrri viku. Kosið vaí um eitt
þingsæti, er Verkamannaflokkur
inn hafði áður.
Úrslitin nú urðu á þann veg,
að Verkamannaflokkurinn tapaði
sætinu til Frjálslyndra, en
fhaldsflokkurinn, flokkur Mac-
millans, forsætisráðherra, hlaut
fæst atkvæði.
Þykir brezka stjórnin hafa
beðið mikinn ósigur, er flokkur
hennar fær svo fá atkvæði.
Almennt var talið, fyrir kosn-
ingarnar, að Verkamannaflokk-
urinn myndi halda þingsætinu,
íhaldsflokkurinn fengi næstflest
Meðan þessu fór fram komst
hreyfing á mannfjöldann og áður
en varði höfðu slagsmál og
skemmdarverk hafizt. Bifreiðir
þingmanna voru umkringdar og
grýttar og fengu lögreglumenn
sömu útreið, er þeír reyndu að
sporna við skemmdarverkum. —
Mannfjöldinn reyndi að ryðjast
inn í þinghúsið, en lögreglu-
mönnum tókst með naumindum
að koma í veg fyrir það, meðan
riddaraliðssveit lögreglunnar var
kvödd á vettvang. Mannfjöldinn
beitti glerbrotum, grjóti og
hrossataði gegn lögreglumönn-
um en þar kom, að þeir fengu
nokkurn veginn náð yfirhönd-
inni. I>á tóku mó,tmælendur það
til bragðs að setjast niður á göt-
urnar í stórum hópum með þeim
atkvæði, en Frjálslyndir myndu
reka lestina.
Frjálslyndir fengu 18.033 at-
kvæði, Verkamannaflokkurinn
15.994 og íhaldsflokkurinn aðeins
6.288.
Verkamannaflokkurinn fékk
aðeins fleiri atkvæði, hlutfalls-
lega, en við síðustu kosningar,
en Frjálslyndir fengu alla fylgis-
aukningu sína frá íhaldsflokkn-
um.
í aukakosningum þeim, sem
farið hafa fram að undanförnu,
hefur verið kosið um 8 sæti, sem
íihaldbflokkurinn hefur haldið.
Hefur hann nú tapað fjórum af
þeim.
Framhald á bls. 2.
Brezki Ihalds-
flokkurinn tapar
— í aukakosningum í Colne Valley