Morgunblaðið - 27.03.1963, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.03.1963, Blaðsíða 22
22 MORGIIISBL4Ð1Ð Miðvikudagur 27. marz 1963 Sænskur knattspyrnu- dómari hingað Atþiíðaknattspyrnus.'vmbandið hefur nýlega skipað 10 kunna ðómara í nefnd til að annast dómaranámskeið hjá aðildarríkj' unum. Er hugmyndin að dómar- arnir heimsæki viðkomandi lönd Milan og Benefica mætast DREGIÐ hefur verið um það hvaða lið keppa saman í undanúrslitum keppninnar um Evrópubikarinn í knatt- spyrnu. Drátturinn fór þann- ig að Milan ítaliu mæti Benef ica Portugal og Feynoord Hol landi leikur gegn Dundee Skotlandi. Þá hefur einnig verið dreg- ið um það hVaða lið lenda saman í undanúrslitum í keppni bikarsigurvegara Evr- ópulanda. Sá dráttur fór þann ig að OFK, Belgrad eða ítalska liðið Napoli (þau eiga eftir . aukaieik) mæta Tottenham. 1 hinum léiknum mætast Nurn- berg, Þýzkalandi og spánska liðið Atletico Madrid. og starfi þar stuttan tíma að dómaramálum. Knattspyrnusamband íslands hefur farið þess á leit við Al- þjóðasambandið, að einn nefnd- armanna komi til íslands. Hef- ur nú verið ákveðið að hinn kunni dómari Ake Bromm frá Sviþjóð komi til íslands 19. apr- íl n.k. og dvelji í Reykjavík í 3 daga. Mun hann halda fyrir- lestra á námskeiðum fyrir dóm- ara, skýra út knattspyrnulögin og reglur o.fl. Dómaranefnd K.S.f. mun ann- ast undirbúning og framkvæmd námskeiðs þessa, en Dómara- nefndin er þannig skipuð: Einar Hjartarson, form., Þorlákur Þórð arson og Carl Bergmann. Er reiknað með, að dómarar af ölilu landinu muni notfæra sér þetta einstaka tækifæri og fjölmenna á námskeiðið. » Tvð íslandsmet TVÖ íslenzk met voru sett á sundmóti ÍR í gærkvöldi og voru ÍR -ingar að verki í bæði skiptin. - Enska knattspyrnan - Úrslit leikja sem fram fóru fyr- hluta þessarar viku. Bikarkeppni: Coventry - - Portsmouth ... 2-1 N. Forest - — Leeds ... 3-0 Dundee — Hibernians .. 1-0 St. Mirren — Patrick .. 1-1 Rangers — • E. Stirling ... 7-2 Dundee — Queens Park .. 3-1 Deildarkeppni: Ipswich — Everton .. 0-3 West Ham — Manchester U. . ... 3-1 Bury — Rotherham .. 0-5 Preston — Walsall ... 4-2 Celtic — Raith ............. 4-1 Hearts — Kilmarnock ........ 2-3 Wolverhampton — Bolton ..... 4-0 Blackpool — Bumley ......... 0-0 Liverpool — W.B.A........... 2-2 Derby — Plymouth ........... 3-2 Southampton — Huddersfield .... 3-1 Sunderland — Norwich ....... 7-1 Clyde — Airdrie ............ 3-0 Motherwell — Third Lanark .... 3-3 Sl. miðvikudag fór fram lands- leikur í Cardiff milli Wales og Ung verjalands og urðu úrslit 1—1. Hrafnhildpr Guðmundsdóttir setti met í 200 m bringusundi á 2.58.6 og sveit ÍR, Guðmundur Gíslason, Sigurður Sigurðsson og Þorsteinn IngóIfsson settu nvst í 3x100 m þrísundi, syntu á 3.28.6. • Metin Hrafnhildur synti mjög vel, en hafði litla keppnl. Hún var 14 sek á undan keppinaut sín- um Auði Guðjónsdóttur Kefla vík, sem synti á 3.12.9 en það er langbezti tíma Keflavík- ursund^onu í þessari grein. Gamla met Hrafnhildar var 2.59.2 og sett 1961. Hrafnhildur er í mjög góðri þjálfun nú. Hún ógnaði meti Ágústu Þorsteinsdóttur Á' í 50 m skriðsundi, synti á 29.7 en met Ágústu er 29.3. Sveit ÍR hafði mikla yfir- burði í boðsUndinu. Sveitin bætti metið um 7.6 sek en gamla metið átti ÍR 3.36.2. Var ÍR sveitin nær 25 m. á undan sveit KR og um 50 m á und- an hinum sveitunum tveim sem kepptu. ^ÞETTA eru þrír af reykvísku skíðamönnunum sem kepptu í bæj aikeppni við Bergen og Glasgiow í Solfönn við Berg len. Myndirnar eru teknar í isvigkeppni mótsins og allar við sömu beygjuna svo vel |má bera saman stíl kappanna. Lengst til vinstri er Valdimar tÖrnólfsson, í miðið Þorberg- iur Eysteinsson og t.h. er Gunn Gaugu^.Sigiirðssonj. t r • Sigurvegarar Sigurvegarar í einstökum grein u m voru: 100 m skriðsund karla, Guðm. Gíslason ÍR 59.5 sek. 100 m bringusund telpna, Auður Guðjónsdóttir ÍBK 1.29.5. 100 m bringusund drengja, Guðm Grímsson Á 1.25.2. 200 m bringusund karla, Sigurð- ur Sigurðsson ÍR 2.50.8. 100 m flugsund karla, Guðm, Gíslason ÍR 1.08.1. 200 m bringusun'd kvenna, Hrafn hildur Guðmundsd. ÍR 2.58.6. 50 m skriðsund drengja, Trausti JúMusson Á 30.2 100 m baiksund karla, Guðm. Gíslason ÍR 1.08.0. 50 m skriðsund sveina, Þorsteinn Ingólfsson Á 31.4. 50 m skriðsund kvenna, Hrafn- hildur Guðmundsd. ÍR 29.7. 3x100 m þrísund, sveit ÍR 3.28.0 Met. firði um páskana Siglufirði, 26. marz. — Ákveðið mun vera að Skíðamót íslands fari fram á Siglufirði um pásk- ana. Það hefst þriðjudaginn 9. apríl og lýkur sunnudaginn 14. apríl. Keppni hefst 9. apríl með 10 og 15 km göngu. Miðvikudaginn 10. apríl er stökk í öllum flokk- um, og fimmtudaginn 11. 4x10 km boðganga og flokkasvig. Laug ardaginn 13. verður 30 km ganga og stórsvig í karla- og kvenna- flokkum, og sunnudaginn 14. er svig í karla- og kvennaflokkum. Þátttöku þax-f að tilkynna fyrir þriðjudaginn 2. apríl, þar sem útdráttur um rásx-öð fer fram miðvikudaginn 3. apríl. Skíðamótið var fyrirhugað á Norðfirði en frá því þurfti að hverfa vegna snjóleysis þar. Hér á Siglufirði er svo til snjólaust i byggð, en vonir standa til að mót ið geti farið fram í svonefnduia Skarðsdal. Mótstjóri verður Helgi Sveins- son, íþróttakennari, og aðrir i mótsstjórninni eru þessir: Guð- mundur Árnason, Baldur Ólafs- son, Aðalheiður Rögnvaldsdóttir, Bragi Magnússon og Jón Þor- steinsson.—Stefán. — Hór/ð t>itt... Framhald af bls. 3. Læknirinn við vitnagrind- urnar: — Eg get ekki annað sagt en að það var ekki mín sök, ef við sleppum því, að hátterni hans (og því miður er ekki hægt að þagga það niður) varð (við skulum ekki vera að skafa utan af því) alltaf gyðinglegra og gyðing- legra, enda þótt það geti ver- ið, að ungi maðurinn hafi ver- ið Andorri eins og við hin. Ég er alls ekki að draga nein* dul á það að við létum stjórn- ast af því, sem kalla mættl dægurflugu. Við skulum ekki gleyma því, að þetta voru rósturtímar. ★ • ★ í lok leiksins hvíttar Barbl- in enn. Hún segir við prestr •inn: — Pabbi er dáinn. Faðir: — Ég veit það Barbl- in. Barblin: — Og hárið á mér? Faðir: — Hárið á þér, Barbl in, það vex aftur.... Barblin: — Eins og grasið á gröfunum. Þessir 10 Framarar vorn sæmdir gullmerki féia gsins fyrir vel unnin störf í þágu þess á afmælis- hátíðinni. (Ljósm. Sveinn Þorm.). \ Veglegt afmælishðf Fram Guðmundur Jónsson knattspyrnuþjálfari Fram með styttuna. FRAM minntist 55 ára afmæl- is síns sem er 1. maí n.k. með hófi^að Hótel Borg s.l. laugar- dagskvöld. Var hófið fjöimennt og fór fram með miklum mynd- arbrag öllum til ánægju. Meðal gesta Fram í hófinu var borgar- stjórinn Geir Hallgrímsson og frú, heiðursforseti ÍSÍ Ben. G. Waage, forrn ÍBR B'aldur Möll- er, formenn flestra íþróttafélaga í bænum o.fl. Veizlustjóri var Jón Sigurðs- son slökkviliðsstjóri en aðalræð- una fyrir minni Fram flutti Pét- ur Sigurðsson háskólaritari. Þá flutti ræðu Ben. G. Waage, Bald- ur Möller ávarpaði veizlugesti svo og Reymr Sigurðsson form. ÍR sem talaði af hálfu 11 íþrótta félaga í Reykjavík og nágrenni sem keppa við Fram og afhenti hann sameiginlega peningagjöf frá þeim. Ómar Ragnarsson skemmti veizlugestum í orðsins fylietu merkingu oig dansað var af miklu fjöri fram eftir nóttu. Undir borðum voru heiðraðir ýmsir Framárar eldri o,g yngri sem unnið hafa félaginu dyggi- lega. Tiu hlutu gullmerki Fram og þjálfarar félagsins í hand- knattleik og knattspymu hlutu styttur áletraðar að gjöf fyrir vel unnin störf innan félagsins. Eru það þeir Guðm. Jónsson í knattspyrnu og Karl Benedikts- son í handknattleik en hann var fjarstaddur með unglingalands- iiðinu í Noregi. Sigurður Jónsson form. Fram afhenti heiðursmerkin og þakk- aði öllum sem þeim hlutu hin dyggu störf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.