Morgunblaðið - 27.03.1963, Page 2
2
MORCVNBLAÐ1Ð
Miðvikudagur 27. marz 1963
Stuðningur við stefnu
Vi&reisnars tjórn arinn ar
í Efnahagsbandalagijnu
glopraðist upp úr Framsóknarþingmanninum
Jón Skaftason, þingmaður
Framsóknarfl., ritaði í gær
langhimd um Efnahagsbanda-
lagsmálið í Tímann. Er þar um
furðulegan samsetning að
ræða, svo að játa verður að
menn verða hálf ruglaðir við
lestur hans, og hvað mundi
þá vera um það að skrifa slíkt.
Má vera, að þar
sé fundin skýr-
ingin á því, að
greinarhöf. tek-
ur aftur með
einu orðinu það,
sem hann segir
í h inu.
Hvað sem um
það er, þá glopr
Jón ast það á einum
stað upp úr þingmanninum, að
hann sé í raun réttri stuðn-
ingsmaður stefnu ríkisstjóm-
arinnar, þótt hann mótmæli
sjálfum sér á öðram stað í
greininni. Á einum stað segir
hann:
,4 umræðum m.a. á þingi
virðast allir ræðumenn vera
sammála um tvennt. Hið
fyrra er, að full aðild að
bandalaginu henti ekki, og hið
síðara er, að nauðsynlegt sé
að ná samningum við banda-
lagið um viðskipta- og tolla-
mál a.m.k.“
Síðar segir Jón Skaftason:
„Talað er um tvær færar
leiðir til þess að ná þessu
marki, þ.e.a.s. að tengjast
bandalaginu sem aukaaðili
skv. 338. gr. Rómarsamnings-
ins eða að gera við það við-
skipta- og tollasamning. Ljóst
er að margt er það um þejsar
leiðir óvitað og óskýrt í dag,
er vitneskja fæst um síðar.“
Á enn öðrum stað segir
greinarhöfundur:
„Mér sýnist því engin á-
stæða tU að rasa um ráð fram
í ákvörðunum um tengsl við
bandalagið, engin efnahagsleg
rök neyði okkur tU slíks, ef
allt er tekið með í reikning-
inn.“
Þama segir Jón Skaftason
umbúðalaust, að alUr séu sam-
mála um nauðsyn á tengslum
við bandalagið að um tvær
leiðir sé að ræða og óljóst sé
enn, hvor muni betur henta
okkur, og loks að ástæða sé
að doka við og sjá hvernig
málin þróast. Þetta er í ná-
kvæmu samræmi við þá
stefnu, sem Viðreisnarstjóra-
in hefur markað, en Framsókn
armenn almennt ráðast á af
mikilli heift.
Síðar í greininni ræðst Jón
Skaftason að viðskiptamáila-
ráðherra fyrir það, að hann
hafi fyrir alllöngu „harðneit-
að því, að mögulegt væri að
leysa vandamál okkar eftir
toIlasamningsleiðinni.“ Síðar
hafi ráðherrann raunar — og
ríkisstjórnin öll — talið, að
eðlilegt væri að halda þeirri
leið opinni jafnt og aukaað-
Udarleiðinni.
En þegar hliðsjón er höfð
af því, að þingmaðurinn telur,
að tvær leiðir komi tU greina
og óljóst sé, hvor heppUegri
reynist að lokum, er það furðu
legt að hann skuU ráðast að
viðskiptamálaráðherra og
telja meginsök hans þá, að
hann hafi áður viljað loka
þessari leið. Sannleikurinn er
sem sagt sá, að það eru Fram-
sóknarmenn, sem hafa talið
brýna nauðsyn bera til þess
að loka annarri leiðinni, án
þess að kanna, hvort hún væri
heppilegri en hin.
í raun réttri er Jón Skafta-
son því að ráðast á forystu
síns eigin flokks, þegar hann
segir það fráleitt að loka ann-
arri leiðinni, sem tU greina
getur komið.
Segja má, að það sé virð-
ingarvert, ef Jóni Skaftasyni
er sjálfrátt, þegar hann Iýsir
stuðningi við stefnu ríkis-
stjórnarinnar, en hitt er því
miður líklegra, að slegið
hafi út í fyrir honum og hann
muni því herða sig upp í
fuUri ,„framsóknarmennsku“
og trúmennsku við stefnu
foringjanna.
Reykjavík ðnnur hðfuð-
borg Danakdngs
Þangað heíði Kristjdn X. getað farið
í stríðinu, segir danskur fræðimaður
RITSTJÓRI danska blaðsirts
Information, Börge Outze, vinnur
nú að stóru ritverki um heims-
styrjöldina síðari, sem nefnist
„Danmark under den anden
verdenskrig”. Ritverk þetta fjall-
ar einkum um þann þátt styrjald-
arinnar, sem gerðist í Danmörku,
eða hafði bein áhrif á aðstöðu
Danmerkur, þótt víðar sé komið
við.
Ritverk þetta er gefið út í 64
síðna heftum, og fjallar nýút-
komið hefti, hið Í2., um þá at-
burði, er fylgdu í kjölfar hernáms
Danmerkur og Noregs.
Ræðir Outze þar uppgjöf Nor
egs og ákvörðun Hákonar, kon-
Ungs, að flýja land og stjórna því
erlendis frá. Segir hann síðan:
„í síðasta boðskapnum til
norsku þjóðarinnar var lögð á
það áherzla, að baráttunni væri
ekki lokið, nú yrði aðeins að
stjórna henni að utan. Upp úr því
varð til hugtakið „Hinn frjálsi
Noregur“, stríðandi þjóð 1 her-
numdu landi. Frjáls norsk yfir
ráðasvæði voru nú aðeins þilför
á skipum. (Dönsk útlagastjórn
hefði verið betur sett þjóðréttar-
lega — það gerir t.d. Færeyjar og
Grænland. Ef Danakonungur
hefði breytt á sömu lund og Há-
kon, hefði hann enn haft höfuð-
borg: Reykjavík“.
Morgunblaðið bað fréttaritara
sinn í Kaupmannahöfn, Gunnar
Rytgaard, að hafa samband við,
Kristján X
Börge Outze, og biðja hann að
gera nánari grein fyrir þessu og
skýra við hvað hann hefði átt
með fyrrnefndum ummælum í
bókinni.
í gær barst Morgunblaðinu
svarskeyti með eftirfarandi um-
mælum höfundarins:
„Ummæli mín eru rökrétt með
tilliti til þáríkjandi sambands
milli Danmerkur og íslands. Með
an konungssambandið stóð, hafði
Kristján konungur í rauninm
tvær höfuðborgir, og hefði hann
yfirgefið Danmörk hefði hann
raunverulega getað sezt að í hinni
höfuðborginni, Reykjavík.
Ég held ekki að neinn hafi
hugsað út í þetta þá, og ég hef
ekki séð þessa hugsun koma neins
staðar fram. En þetta hlyti að
geta hafa átt sér stað, og frá
fræðilegu sjónarmiði væri mjög
fróðlegt ef varpað yrði ljósi á
þetta þjóðréttarlega.
En þó þessi hugsun hefði komið
fram, hefði það engu breytt, því
konungurinn vildi ekki yfirgefa
Danmörk, þótt reynt væri að fá
hann til þess“.
Óeirðir
Framhald af bls. 1.
afleiðingum, að umferð fór öll úr
skorðum. Allmargir menn særð-
ust svo í óeirðunum að flytja
varð í sjúkrahús og margir voru
handteknir.
I kvöld hafði mannfjöldinn
dreifzt um miðborgina, en lög-
reglumenn óttuðust að enn kynni
að koma til vandræða, einkum
fyrir utan Church House, nokk-
ur hundruð metra írá þinghús-
inu.
Fólk þetta var fulltrúar 700.-
000 manna, sem atvinnulausir
eru í Englandi. Flestir komu frá
Norður-írlandi Skotlandi og
Norðaustur-Englandi, en þar er
atvinnuleysið mest.
Fjórir ráðherrar, þar á meðal
Maudling fjármálaráðherra hafa
lýst sig fúsa að hefja viðræður
um leiðir til lausnar þessa máls.
Hafnarfjörður
SPILAKVÖIjD Sjálfstæðisfé-
Iaganna í Hafnarfirði verður í
kvöld og hefst kl. 8.30. Spiluð
verður félagsvist og verðlaun
veitt.
Siglufjarðar-
skarð eitt
lokað af snjó
Siglufirði, 26. marz. — Mjög
lítill snjór er í Siglufjarðar-
skarði, aldrei verið minni á i
þessum árstíma. Er það varla
meira en 2—3 daga verk fyrir'
eina ýtu að ryðja snjó af veg-
inum, en Siglufjarðarskarð
mun nú eini þjóðvegur lands-
ins, sem ekki er opinn til um-
ferðar. — Stefán.
Paul Reumert áttrœður
í GÆR, þriðjudaginn 26. marz,
varð Paul Reumert, leikari átt
ræður. Danir hafa sýnt honum
margvíslegan sóma og dagblöð
in dönsku minnast afmælis
hans með greinum og myndum
frá leikferli hans. Sjálfur hafði
Reumert tilkynnt að hann yrði
fjarverandi á afmælisdaginn
og fór hann frá Kaupmanna-
höfn, ásamt f jölskyldu sinni sl.
fimmtudag. Ekki var vitað,
hvar hann mundi dveljast.
í tilefni áttræðisafmælis
listamannsins komu út hjá
Gyldendal-forlaginu tvær bæk
ur, önnur eftir Reumert sjálf
an „Teatrets Kunst“ en hin er
minningabók um hann, skrifuð
af vinum hans og samverka-
mönnum, og nefnist hún „Bog
en om Poul Reumert — Skrev
et af hans Venner". Meðal
þeirra, er skrifa þar, eru Bodil
Ibsen, Henning Moritzen, Ed-
vin Tiemroth, Marcus Mel-
chior, Julius Bomholt, Osvald
Helmuth og Sigurður Nordal.
Gagnrýnandi danska blaðs-
ins BT, Inge Dam, fer mjöig
lofsamlegum orðum um bæk-
urnar. Minnist gagnrýnandi
á þann kapítula bókar Reum-
erts, sem m. a. segir frá ræð-
unni, sean Poul Reumert flutti
á leiklistarráðstefnu í Reykja
yík fyrir nokkrum árurn.
Inge Dam segir: „Efni ræð-
unnar var: Hvernig er bezt
unnt að efla hið þjóðlega leik
hús? Flestir töldu það bezt
gert með skólum, þar sem íeik
stjórar kenndu leikurum með
aðstoð leiktjaldamálara, leik-
búningateiknara, leiksviðs-
stjóra og ljósamanna, — og
þá var það, sem Reumert stóð
upp og vakti rólega athygli
á því, að í sérhverju leikhúsi
í heiminum gæti einnig að
finna leikara og leikkonur. Og
hann kvaðst sjá vaxandi
hættu, — já raunar upphafið
á eyðileggingu leiklistarinnar
— í sívaxandi valdi leikstjór-
anna“.
Fái fullan lífeyrisrétt
hjá almannatryggingum
Ríkisstjómin hefur lagt fram
frumvarp á Alþingi um Lífeyris-
sjóð starfsmanna ríkisins, en
breytingar laganna eru við það
miðaðar, að tryggja opinberum
starfsnr.önnum, sem lögin taka
til, og eftirlátnum mökum þeirra
og börnum, viðhlítandi ellilíf
eyri, maka- og barnalífeyri, áa
þess að stöðugt þurfi nýja laga-
setningu um uppbætur á lífeyr-
inn. Þessu er reynt að ná með
eftirtöldum ráðstöfunum:
1) Allir þeir, sem lög þessi taka
til, fá fullan lífeyrisrétt hjá al-
mannatryggingunum. En ætla
má, að Hfeyrir almannatrygging-
anna verði í meginatriðum látinn
taka bireytingum í samræmi við
breytingar á kaupmætti kxónunn
ar.
2) Reglan um að miða elli-,
örorku- og makahfeyri við með-
altal síðustú 10 ára er felld nið-
ur og þess í stað miðað við síð-
ustu laun sjóðfélagans.
3) Gert er ráð fyrir, að ef al-
menn hækkun verður á launxim
opinberra starfsmanna, skuli lif
eyrisgreiðslur úr sjóðnum hækka
á tilsvarandi hátt, en ríkissjóð-
ur endurgreiða sjóðnum þó hækk
un á iífeyrisgreiðslum, sem af
þvi leiðir.
Kynnisferð
Heimdallar
Heimdallur efnir til kynnis-
ferðar til Akraness n.k. laugar-
dag í samvinnu við Þór, féia.g
ungra Sjálfstæðismanna á Akra-
nesL
Á Akranesi verður m.a. skoð-
uð Sementsverksmiðja ríkislns
undir leiðsögn sérfróðra manna.
Haldinn verður fundur með
ungum Sjálfstæðismönnum á
Akranesi og þátttakendum, og
loks mun í>ór, FUS, efna til dan3
leiks á Hótel Akranesi um kvöld-
ið.
Lagt verður af stað frá Reykja-
vík kl. 2 eh. á laugardag. Vænt-
anlegir þátttakendur láti skrá
sig í síma 1 71 02 sem fyrst.
Einmánuður byrjaður læg átt, sem var að. snúast
1 GÆR hyrjaði einmánuður. meir til austurs. í Frakiklandi
Þá var á hádegi frostleysa var hlýtt, en ennþá kaldar á
hér um allt land og hæg suð- Norðurlönduna.
2C. MakZ /9i3njt
[ NA /5 hnáiar | ^ SV 50 hnútar X Sn/Homa » ÚSi V Shárir S Þrumur 'Wz, KuUathi! Hifasiii H Hmt | L* t-ZSlX