Morgunblaðið - 27.03.1963, Page 12
12
MORCVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 27. marz 1963
írtgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arní CJarðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Að^lstræti 6.
Au^lýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 4.00 eintakib.
NÝSKIPAN
FERÐAMÁLA
i sl. sumri skipaði Ingólfur
Jónsson, samgöngumála-
herra, þriggja manna nefnd
til þess að gera tillögur um
framtíðarskipan ferðamála á
íslandi. Hefur nefnd þessi nú
skilað, áliti og ríkisstjórnin
síðan lagt það fyrir Alþingi í
frumvarpsformi.
í frumvarpi þessu eru ýms-
ar nýjungar, sem líklegar eru
til þess að stuðla að auknum
ferðamannastraumi til lands-
ins og bæta aðstöðuna til mót-
töku innlendra og erlendra
ferðamanna. Þar er m. a. gert
ráð fyrir, að einkaréttur
Ferðaskrifstofu ríkisins til
móttöku erlendra ferða-
manna falli niður. Munu því
allar ferðaskrifstofur, sem
fullnægja þeim skilyrðum,
sem sett eru í hinni nýju lög-
gjöf, hafa rétt til þess að ann-
ast móttöku erlendra ferða-
manna. Hins vegar er gert ráð
fyrir því, að Ferðaskrifstofa
ríkisins starfi áfram sem al-
menn ferðaskrifstofa. Eru
henni falin ýmis verkefni í
þágu landkynningar og ferða-
mála í landinu.
Meðal merkustu nýmæla í
frumvarpinu er stofnun ferða
málaráðs, en í því munu eiga
sæti fulltrúar frá báðum flug-
félögunum, Eimskipafélagi ís
lands, Félagi sérleyfishafa,
Ferðaskrifstofu ríkisins, Sam-
bandi veitinga- og gistihúsa-
eigenda og Landssambandi
islenzkra ferðaskrifstofa. —
Hlutverk - ferðamálaráðs skal
m.a. vera að vera Alþingi
og ríkisstjórn ráðgjafandi um
allt það, er að ferðamálum
í landinu lýtur, að gera áætl-
anir og tillögur um skipun
gistihúsamála í landinu, svo
sem um það, hvar einkum sé
nauðsynlegt að gistihúsakost-
ur verði aukinn eða bættur,
hver tegund gistihúsa skuli
vera á hverjum stað og með
hvaða hætti þeim verði kom-
ið upp.
Þá er með lögum þessum
stofnaður sérstakur sjóður,
er nefnist ferðamálasjóður.
Er hlutverk hans að stuðla að
byggingu gisti- og veitinga-
húsa í landinu og bæta þann-
ig skilyrði til að veita inn-
lendu og erlendu ferðafólki
sem beztar móttökur og að-
búð. Skal árlega greiða úr
ríkissjóði framlag til ferða-
málasjóðs, er sé eigi lægra en
ein milljón króna. Ferðamála-
sjóði er heimilt, með sam-
þykki ráðherra, að taka lán
allt að 20 millj. kr. og er fjár-
málaráðherra heimilt að á-
byrgjast slík lán fyrir hönd
ríkissjóðs. Hefur framlag til
ferðamálasjóðs þegar verið
tekið á fjárlög fyrir frum-
kvæði Gunnars Thoroddsens,
f j ármálar áðherra.
Það nýmæli er einnig í
þessu frumvarpi að ráðherra
er heimilað að ákveða að
fenginni umsögn ferðamála-
ráðs, að greiddur skuli að-
gangseyrir að fjölsóttum
ferðamannastöðum sem eru í
eign ríkisins, enda sé fé það
sem þannig safnast að frá-
teknum innheimtukostnaði,
eingongu notað til fegrunar
og snyrtingar viðkomandi
staðar, og til þess að bæta að-
stöðu við móttöku innlendra
og erlendra ferðamanna, sem
þangað koma.
Hér er vissulega um merki-
legt umbótamál að ræða. —
Ferðamálunum hefur ekki
verið sýndur sá sómi, sem
æskilegt væri hér á landi.
Með bættum samgöngum hef-
ur ferðamannastraumur hing
að stóraukizt, en öll aðstaða
til móttöku þeirra hefur ver-
ið hin erfiðasta fram til síð-
ustu ára. Mikill hótelskortur
hefur ríkt og aðstaða hin erf-
iðasta til móttöku gesta á
flestum stöðum, sem fjölsótt-
astir hafa verið af erlendum
ferðamönnum.
Þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins hafa á undanförn-
um árum oft flutt frumvarp
og tillögur til umbóta í þess-
um efnum. Munu þeir því
fagna sérstaklega frumvarpi
því sem ríkisstjórnin hefur
nú lagt fram. Með því er
mörkuð raunhæf stefna í
þessum málum. Er ástæða til
þess að ætla, að þing og þjóð
muni taka henni vel og þetta
frumvarp muni verða að lög-
um á þessu þingi.
LÆKKUN
SEMENTS-
VERÐSJNS
C*ú ákvörðun stjórnar Sem-
entsverksmiðju ríkisins
að lækka verð á sementi um
70 kr. lestina vekur mikla at-
hygli. Aðalorsakir hennar eru
samkvæmt yfirlýsingu verk-
smiðjustjórnarinnar tvær. í
fyrsta lagi að fyrirsjáanleg er
mikil aukning á sementsnotk-
un í landinu. Er gert ráð fyr-
ir, að sementsnotkunin fari
upp í 90 þúsund lestir á þessu
ári á móti 75 þús. lestum á
síðasta ári. Þar að auki koma
svo 12 þúsund lestir, sem seld
ar eru til Bretlands.
Hitt atriðið, sem stuðlar að
New York, 13. febrúar.
— NTB-Reuter —
Af í yfirlýsingu einnar af
sérstofnunum Sameinuðu
þjóðanna, sem birtist fyrir
nokkru, segir frá því, að í
vissúm hlutum heimsins verði
meira en helmingur barna
hundurdauðanum að bráð,
áður en þau ná eins árs
aldri. Nær þessi skelfilega
staðreynd til milljóna barna.
Aðrar milljónir ungbarna
þjást af skorti á mikilvæg-
ustu næringarefnum og bíða
þess aldrei bætur, þótt þau
kunni að lifa það af.
í yfirlýsingunni, sem
undirrituð er af fram-
Þetta litla barn frá Kenýa er eitt af beim milljónum barna,
sem þrjást af skorti á mikilvægum næringarefnum. Barnið
þjáist af sjúkdómi, sem nefndur er „kwashiokor“ og stafar af
skorti á eggjahvítuefnum
Meira en 400 milij barna þjást
af skorti á næringarefnum
Þróuð ríki herði bardttuna gegn sulti,
fdtækt og fdvizku
kvæmdastjóra matvæla- og
landbúnaðarstofnunarinnar
FAO og barnahjálparsjóðsins
UNICEF er skorað á þau ríki,
sem vel eru á veg komin
tæknilega, efnalega og menn-
ingarlega, að vinna að því að
vekja athygli og skilning
fólks á baráttunni gegn sulti
og hvetja til þátttöku í þeirri
baráttu.
Yfirlýsingin var birt í aðal-
stöðvunum í New York í upp-
hafi herferðar gegn hungrinu í
ýmsum hlutum heims. — Þar
segir meðal annars: „Af öll-
um þeim þjáningum, sem leiða
af sulti og vannæringu, eru
þó skelfilegastar afleiðingarnar,
sem bitna á milljónum og aftur
milljónum barna — saklausra
barna — sem verða fórnardýr
fátæktarinnar og — í flestum til-
fellum — fávizkunnar. í vissum
hlutum heims deyr annað hvert
barn, skömmu eftir fæðingu. Af
um það bil 800 milljónum barna
í vanþróuðu ríkjunum, þjáist
meira en helmingur af skorti á
eggjahvítuefnum og öðrum
mikilvægum næringarefnum. —
Þúsundir og aftur þúsundir bíða
þessa aldrei bætur, þótt þau
kunni áð lifa hörmungar sultar-
ins af“.
1 yfirlýsingunni segir enn-
fremur, að fyrir lok þessarar
aldar verði börnin í heiminum
helmingi fleiri en nú og því
liggi mikið við, að beitt sé öllum
nýtízkulegustu aðferðum í land-
búnaði og vísindalegum upp-
götvunum, sem miða að því að
auka næringargildi matvæla. —
Nauðsynlegt sé að auka kennslu
í meðferð nýjustu tækja og
herða baráttuna gegn öllum
London, 22. marz — (NTB) —
TALSMAÐUR brezka verzl-
unarmálaráðuneytisins skýrði
frá því dag, að brezka stjórn-
in hygðist ekki banna brezk-
um útflytjendum, að selja rör
til Sovétríkjanna. í byrjun
vikunnar bannaði stjórn Vest
ur-Þýzkalands útflutning á
slíkum rörum til Sovétríkj-
anna. —
þeim sjúkdómum, sem hindra
afköst í landbúnaðinum.
Þessi vandamál eru nátengd
því vandamáli hve bilið' er
breitt — og fer vaxandi — milli
auðugra rikja og fátækra. Fá-
tækar þjóði/ þarfnast ekki að-
eins skyndihjálpar og matvæla-
gjafa, heldur einnig aðstoðar við
að hagnýta sér þær leiðir sem
til eru til nýtingar þeirra nátt-
úrulinda, sem fyrir hendi eru
á hverjum stað. Segir að lokum,
að k&ppa beri að því að fræða
mæður og börn um vísindalegar
aðferðir við jarðyrkju, svo að
þau geti létt baráttuna við mat-
vælaskortinn.
Rússlands
Þær fregnir höfðu borizt" til
Bretlands, að brezka stjórnin og
stjórn Vestur-Þýzkalands hefðu
rætt bann við útflutningi röra tii
Sovétríkjanna, en talsmaður
brezka utanrikisráðuneytisins
bar þessar fregnir til baka i dag.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum í London, að brezka
stjórnin hafi hafnað tilmælura
fundar Atlantshafsbandalagsríkj-
anna í des. sl. um að bandalags-
ríkin seldu ekki stálrör til komrn
únistaríkjanna.
Bretum helmilt að selfa
stálrör til
lækkun sementsverðsins, er
það, að í verksmiðjunni
sjálfri hafa farið fram rann-
sóknir og verið gerðar ráð-
stafanir til að nýta sem bezt
vélakostinn og fá sem mest út
úr honum. Ennfremur hafa
verið gerðar þær tæknilegar
breytingar, sem stuðla að
auknum sparnaði. Með þessu
hefur tekizt að spara milljón-
ir króna.
Hin íslenzka stóriðja er á
réttri leið. Aukin hagkvæmni
í rekstri og vaxandi fram-
leiðsla lækkar sementsverðið
og auðveldar þar með bygg-
ingarframkvæmdir í landinu.
Þetta er vissulega gleðileg
þróun, sem lofar miklu um
framtíðina.
ANNRIKI
Á ALÞINGI
lmennt er nú gert ráð fyrir,
að Alþingi ljúki störfum
skömmu eftir páska. En mik-
ill fjöldi stórmála, sem ríkis-
stjómin beitir sér fyrir, liggja
fyrir þinginu. Má því búast
við miklum önnum á Alþingi
þær vikur, sem það á eftir að
sitja á kjörtímabilinu. Öll
störf þessa þings hafa mótazt
af farsælli forystu ríkisstjórn
arinnar um flutning margs
konar nytjamála. Er það mál
allra er til þekkja, að allt ann-
ar svipur hafi verið á störfum
Alþingis á kjörtímabili Við-
reisnarstjórnarinnar, en þeg-
ar vinstri stjómin fór með
völd. Þá setti glundroðinn og
forystuleysi allan svip á störf
þingsins.