Morgunblaðið - 27.03.1963, Qupperneq 20
20
MORCVN BL AÐIÐ
Miðvikudagur 27. marz 1963
DUNKERLEYS
missa, yrði að hypj'a sig af stað
eins og skot, en á næstu stundu
sat hann hjá þeim hinn rólegasti
í kaffistofunni á stöðinni og
kepptist við að kalla Dinu ung-
frú Dunkerley í hvert sinn sem
hún kallaði hann Felix.
Dina hellti í tebollana og Sim
kunni vel við sig í félagsskap
svona geðugra unglinga, sem vor
sýnilega hrifin hvort af öðru, en
ekki gat hann annað en farið að
hugsa um, hvað foreldrar henn-
ar hennar mundu segja um öll
þau boðorð. Hann mundi glöggt
svona frostdag í Manchester, forð
um daga, þegar Dan var víst á
aldri þessara unglin,ga, og 'hafði
gengið yfir götuna, ávarpað ung
frú Agnesi Satterfield og síðan
sagt honum, að þarna væri stúlk
an, sem hann ætlaði sér að gift-
ast. Svona kæruleysislega og for
málalaust hafði Dan gengið að
sínum hjartans málum, en gamli
maðurinn efaðist bara um, að
sir Daniel kærði sig um að dóttir
hans yrði tekin á löpp á sama
hátt. Karínski hefði hann átt að
sleppa þessari tedrykkju, enda
þótt hún væri annars orðin fast
ur liður í heimkomu Dinu. Lík-
lega hefði hánn átt að skella
henni upp í leiguvagn og þjóta
með hana heim. En hann hefði
víst aldrei komizt upp með það,
því að nú var Dina farin að
blaðra aftur:
— Það er heppilégt, að Felix
estertorgið. Þá getum við öll orð
ið samferða.
— Manohestertorgið.. Boys..
tautaði Sim.. Nú skil ég.. Boys
dómari.... “
— Já, hann er pabbi minn,
sagði Felix.
— Þetta er allt svo ósköp ein
falt, tók Dina fram í. Pabbi hans
Felixar giftist svissneskri konu,
sem hét Colet, og þeissvegna er
Felix hálf-svissneskur. Og systir
hennar er aftur gift þýzkum
Svisslendingi, sem heitir Holst.
En mamma hans Felixar er dáin
fyrir mörgum árum og eins er
hr. Holst, og þessvegna hefur
Felix verið í Sviss. Frú Holst,
sem hefur skólann, sem ég geng
í, er frænka Felixar, og hann
hefur átt heima hjá henni árum
saman. Hann kennir þar dálítið
ensku og er afskaplega eftirsótt-
ur.
— Það skyldi maður ætla, taut
aði Sim við sjálfan sig. — En
hvað nú? spurði hann. Ætlið
þér að verða kyrr heima, hr.
Boys?.
— Nei, bara í fríinu, sagði Fel
ix. — Svo ætla ég að fara til
ítroðara. Pabbi vill, að ég geti
farið til Oxford næsta haust.
— Getir, þó, þó! sagði Dina
móðguð. þú sem talar frönsku og
þýzku eins Og innfæddur. Bróð
ir minn er í Oxford og hann gæti
ekki pantað sér spælegg á frönsk
um veitingastað.
■—. Það er allt í lagi með nýju
málin hjá mér, sagði Felix bros-
andi. það eru þau gömlu, sem
ég þarf að taka tak.
— Ef Laurie ber þau gömlu
frarn eins og þau nýju, mundi
Júlíus gamli Sesar snúa sér í
gröfinni. sagði Dina.
Sim gamli stóð upp. — Við ætt
um víst að fara að koma okkur
af stað, sagði hann.
— En, afi, sagði Diana. Það
er ekki óviðeigandi að við ferð-
umst svona saman. Mamma og
skuli líka eiga heima við Manch frú Holts komu sér saman um,
ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN
VOitlÐ ER í INJÁIMD
Eruð þér farinn að hugsa til sumarferða?
Er það þá ekki einmitt VOLKSWAGEN,
seni-leysir vandann?
PANXIÖ XÍMANLEGA
VOLKSWAGEN er ódýr
í innkaupi og rekstri.
Verð frá kr: 121.525.—
©
VERIÐ HAGSYN
VinsæJdir VOLKSWAGEN hér á landi
sanna ótvírætt kosti hans við okkar stað
hætti. — VOLKSWAGEN er ekkert tízku
fyrirbæri það sannar bezt hið háa endur-
söluverð hans.
VELJIÐ VOLKSWAGEN.
HEILDVERZLUNIN HEKLA HF
Laugavegi 170—172 — Reykjavík — Sími 11275.
að úr því við værum samtímis
á ferðinni, væri gott, að Felix
gæti verið fylgdarmaður minn.
— Einmitt! sagði Felix alvöru
gefinn.... — Annars.. nei, skítt
með það alltsaman.
— Jæja, gott og vel, það er
víst allt í lagi, hugsaði Sim og
honum létti. Hm. En þær hefðu
getað sagt mér það, bætti hann
við og snuggaði. — Jæja, væna
mín, viltu ekki líta á þetta?
Þetta var fallegt ferðaúr í
rauðu saffianshulstri. Hún lagði
hendurnar um hálsinn á honum
og kyssti hann aftur. — Guð
minn góður, hvað allir geta ver-
iö góðir við mig. Eg verð alveg
ómöguleg af öllu þessu eftirlæti.
— Jæja,.... sagði Felix, en
fór svo ekki lengra, hvað sem
hann nú hefur ætlað að segja,
roðnaði og flýtti sér út til að leita
að leiguvsfgni. Þegar hann skildi
við þau fyrir framan hús sir
Daniels, sagði Dina: — Þú verð-
ur að borða með okkur á aðfanga
dagskvöld. Eg skal koma því í
kring.
Sim gamli hafði hlaupið upp
tröppurnar og hringt bjöllunni.
Nú sneri hann sér við og horfði
niður á torgið. Það var orðið al-
dimmt og kuldinn orðinn napur.
Götuljósker Varpaði daufum
bjarma á niðurlútan vagnhest og
unglingana tvo og vagninn. Ef
frá voru taldir unglingarnir, var
þetta dapurleg sjón. Það var of-
urlítið farið að snjóa og ökumað
urinn var að draga ferðakofort
ofan af vagnþakinu. Dina og Fel
ix virtust ekki taka eftir neinu,
hvorki dauflega hestinum óveð-
ursskýjunum né snjónum. Ljósið
féll nú á andlitið á þeim, sem
voru Ijómandi og sýndi líka snjó
inn, sem var tekinn að falla á
loðskinnin á stúlkunni og harða
hattinn unga mannsins. Nú
mundu þau kyssast, ef ég væri
ekki hérna, hugsaði Sim gamli
Þau voru fögur sjón, en samt
gerðu þau hann niðurdreginn.
Hann fann allt í einu, að hann
var orðinn gama'll. Það var orðið
svo langt síðan hann var lítið
eldri en þau nú og hafði fundið
snjóinn — og meiri snjó en þetta
— sem féll niður úr himninum
austur á Krím. Svo opnuðust
dyrnar og þarna stóð frú Dunk
erley, að baki brytanum. — Jæja
hér er hún komin, Agnes, sagði
hann ög svo stikaði hann beint
upp í íbúðina sína í þakhæðinni
Þar logaði glatt á arninuim og
hann fleygði sér niður í stól við
eldinn. Hann gat blundað í eina
klukkulstund, áður en hann þurfti
að vera tilbúinn til kvöldverðar.
Það var gott að hafa svona íbúð
út af fyrir sig; þá þurfti enginn
að vita um þennan veikleika hans
sem var sá að þurfa að leggja
sig seinnipartinn.
Dina kyssti móður síná inni-
lega. — Hvar er afi? spurði hún.
— Hann er allt í einu horfinn.
— Hafðu ekki hátt, væna mín
Hann hefur víst farið upp að
■leggja sig.
Auðvitað ber mér ekki að van
þakka lán mitt, hugsaði Agnes.
Það var sannarlega ekki einskis
virði að vera frú Dunkerley. Að-
aífrúartitillinn var hreint ekki ó-
nýtur, þegaæ nafnið hans var ti'l
kynnt við dyrnar í samkvæmum.
Og þó var maður ekki alltaf
mikils vísari, að heyra þessi
nöfn. Oftast kannaðist maður allis
— Nú veit ég þó hvað „Nicht hinauslehnen" (hallið yðvrf ekld
út) þýðir.
ekki við konurnar, þrátt fyrir
fína titilinn. En það var allt öðru
máli að gegna, þegar nafn. sir
Daniels og frú Dunkerley var
tilkynnt. Það var varla hægt að
líta í blað, án þess að lesa þar,
að sir Daniel hefði verið fundar
stjóri eða framámaður við hitt
eða þetta tækifæri, eða Styrktar
maður einhvers eða þá líka for-
dæmt eitthvað. Og hann vildi
gjarha hafa hana með sér. Hún
var alveg hætt að vera 'hrædd
við svona opinberar samkomur.
Þar var vandinn enginn annar
en sá að segja sem minnzt og
láta Daniel tala fyrir þau bæði
þá var allt í lagi. Hann var á
hátindinum, og hann vildi gjarna
að hún stáeði hjá honum og héldi
í höndina á honum. Og hann var
vanur að vera snöggur við hvern
þann, sem ekki sýndi frú Dunk-
erley tilhlýðilega virðingu. Nú,
er hún sat í mjúkum hæginda-
stólnum við logandi arininn,
minntiist hún eins atviks, þegar
Daniel kom inn til hennar og
hafði fleygt korti á borðið, rétt
fyrir framan augu hennar.
— Líttu á þetta! sagði hann.
Hann var eldrauður í kambinn.
Einhver hafði óskað ánægjunn
ar af aé sjá sir Daniel við eitt-
hvert fínt tækifæri, en á eftir
orðunum — „Sir Öaniel“, hafði
hann sjálfur bætt við, undir-
strikað „og frú“.
Agnes leit á þetta spurnaraug-
um og síðan á mann sinn.
— Þessir dónar hafa gott af að
læra mannasiði, sagði hann reiði
lega. — Eg ætla að senda þeim
þetta aftur, með viðeigandi leið
réttingu.
aitltvarpiö
Miðvikudagur 27. marz
8.00 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
13.15 Þáttur bændavikunnar: Frá
/ búnaðarþingi (Agnar Guðna-
son).
14.15 „Við vinnuna": Tónleikar.
14.40 „Við, sem heima sitjum": Sig
urlaug Bjarnadóttir les skáld-
KALLI KUREKI
TeiknarL
Fred Harman
■— Það verður gott að fá góðan mat
aftur eftir að hafa lifað á tómum
kanínum.
— Já, og ekki er það síðra að fá
rúm og svolítinn frið og ró. Það er
vissulega gott að komast aftur heim.
Sama kvöldið.
— Kalli, skuldabréfið er komið í
gjalddaga. Hvernig eigum við að út-
vega peninga til að standa við af-
borgunina.
— Ég hef fengið tilboð frá Wind-
mill-búgarðinum. Þeir vilja kaupa af
mér vetrungana.
— Þetta er ekki góður tími til að
selja, en ég býst við að það sé eina
úrræðið. Ég ætla að fara á morgun
og ræða við bústjórann á Windmiil
búgarðinum.
söguna „Gesti" eftir Kristínu
Sigfúsdóttur (11).
15.00 Síðdegisúívarp.
17.40 Framburðarkennsla í dönsku
og ensku.
18.00 Útvarpssaga barnanna: „Börn-
in í Fögruhlið" eftir Halvor
Floden; III. (Sigurður Gunn-
arsson).
18.20 Veðurfregnir. — 18.30 Þing-
fréttir. — 18.50 Tilkynningar.
19.30 Fréttir.
20.00 Lestur fornrita: Ólafs saga
helga; XXI. (Óskar Halldórs-
son cand. mag.).
22.20 Kvöldvaka bændavikunnar:
a) Sumardvöl kaupstaðar-
barna í sveit: Séra Bragi Frið-
riksson flytur ávarp, og rætt
verður við Reykjavíkurbörn
og hjónin að Hlíð í Gnúp-
verjahreppi.
b) Veiðimannaspjall: Erlend-
ur Vilhjálmsson deildarstjóri
ræðir við Kristján Guðmunds
son veiðimann.
c) Á milli kunningja: Páll
Zóphoníasson fyrrv. búnaðar.
málastj. og Ólafur E. Stefáns-
son ráðunautur talast við.
d) Þrjú skemmtiatriði frá
Dalvik: Jóhannes Haraldsson
fer með lausavísur, Jóhann
Daníelsson syngur og Karla-
kór Dalvíkur syngur undir
stjórn Gests Hjörleifssonar.
Lokaorð formanns Búnaðar-
íélags íslands, Þorsteinn Sig-
urðssonar bónda á Vatnsleysu
21.45 íslenzkt mál (Ásgeir Blöndal
Magnússon cand. mag.).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Passíusálmar (39).
22.20 Kvöldsagan: „Svarta skýið“
eftir Fred Hoyle; XI. (Örn-
ólfur Thorlacius).
22.40 Næturhljómleikar: — Síðari
hluti tónleika Sinfóniuhljóm-
s .ar fsl. í Háskólabíói 21.
þ.m. Stjórnandi William
Strickland.
23.15 Dagskrárlok.
Fimmtudagur 28. marz
8.00 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
13.15 Erindi bændavikunnar:
a) Um júgurbólgu (Jón Guð-
brandsson dýralæknir).
b) Landnám ríkisins (Stefán
Sigfússon).
c) Maðurinn og starfið, eftir
Pál Zóphoníasson (Páll H.
Jónsson flytur).
14.00 „Við vinnuna": Tónleikar.
14.40 „Við, sem heima sitjum (Dag
rún Kristjánsdóttir).
15.00 Síðdegisútvarp. ,
17.40 Framburðarkennsla í frönsku
og þýzku.
18.00 Fyrir yngstu hlustendurna
(Margrét Gunnarsdóttir og
Valborg Böðvarsdóttir).
18.20 Veðurfregnir. — 13.30 Þing-
fréttir. — 19.00 Tilkynningar.
19.30 Fréttir.
20.00 Erindl saga og sagnfræði (LÚ8
vík Kristjánsson rithöf.).
20.25 íslenzkir söngvarar kynna
lög eftir. Franz Schubert; IÍ.
Þorsteinn Hannesson óperu.
söngvari syngur átta lög. Við
hljóðfærið: Árni Kristjánsson,
21.00 Raddir skálda: Þorsteinn Jóna
son frá Hamri les Ijóð og
Jón Óskar smásögu.
21.45 Hljómsveit/ Ríkisútvarpssina
leikur. Stj órnendur: Hana
Antolitsch og Bohdan Wod-
iczko.
22.00 Fréttir og veðurfregnir,
22.10 Passíusálmar 40).
22.20 Kvöldsagan: „Svarta skýið*
eftir Fred Hoyle; XII. (Örn-
ólfur Thorlacius).
22,40 Harmonikuþáttur (Reynif
Jónasson).
23.10 Dagskrárlok.