Morgunblaðið - 05.04.1963, Page 2

Morgunblaðið - 05.04.1963, Page 2
2 MORCVNBf'4 ÐHB Föstudagur 5. apríl 1963 Landburður af físki á Eyrarbakka Bakkabátar hornreka 1 Þorlákshöfn EYRARBAKKA, 4. april. — Hér hefur verið óvenjugóður afli síð ustu vikuna, allt upp í 30 lestir í róðri. Hafa bátamir getað land að heima nema í gærkvöldi og nú í kvöld. Þá hafa þeir ekki komizt inn í myrkrinu vegna brims og orðið að fara til Þor- lákshafnar. Þar er þó sá galli á gjöf Njarð ar, að okkar bátar hafa ekki sama rétt og heimabátar. Fá Stokkseyrarbátar og Eyrarbakka bátar eitt bryggj upláss ásamt öðrum aðkomubátum, en Þorláks hafnarbátar hafa hin. Afleiðing- in er að sumir Eyrarbakkabát- anna og Stokkseyrarbátanna komust ekki að fyrr en í morg- un. Bílarnir frá okkur biðu á bryggjunum í alla nótt eftir afl- anum. Og þegar loks tókst að ná aflanum upp á bryggjuna var viktarmaðurinn farinn heim og neitaði að vega hann. Er hætt við að ef við verðum hafnlaus- ir en höfn kömin í Þorlákshöfn, þá verði bátum okkar æði oft skákað út í horn og þykjast menn sjá fram á hvernig það verði. Hér er unnið af kappi í fisk- inum, húsmæður sóttar út í sveit ir og börnunum gefið frí i skól- unum, allt niður í 11 ára aldur, til að reyna að vinna aflann. — Fréttaritari. Sendiherra Ungverjalands • í heimsókn SEiNDEHERRA Ungverjalands, Pál Karbacsics er væntanlegur hingað til lands föstudagskvöld 5. þ. m. og verður hér á landi til 15. þ. m. Korbacsics hefur verið sendi- herra hér á landi síðan 1960, en eigi hafa svo langa viðdvöl fyrr. Hann er búsettur í Stokkhólmi. í fylgd með sendiherranum er Dr. Rezsö Bányász, sendiráðsrit- ari, sem er blaðafulltrúi sendí- ráðsins. Sendiherrann ætlar að taka á móti gestum í tilefni þjóðhátíðar Uagverjalands 9. þ.m. . NÁMSMAÐUR í Svíþjóð, Jón Björnsson stud arch., hef- ur sent okkur myndir sem hann tók af Sigurpáli GK 375, hinum nýja báti Guð- Sigurpáll í reynsluför mundar á Rafnkelsstöðum, sem verið hefur í smíðum í Marstrand, smábæ 40 km frá Gautaborg. Birtum við hér eina mynd af Eggert Gísla- syni skipstjóra, ásamt vél- stjóranum og frú hans, þar sem þau standa við nýja bát- inn. . ______ Sigurpáll átti að fara í reynsluferð þriðjudaginn 2. apríl og gerði Eggert þá ráð fyrir að lagt yrði af stað heim þann 10. apríl. Sigurpáll virðist vera byggður eingöngu fyrir síld- veiðar, eins og við var að bú- ast ef haft er í huga hver skipstjórinn er, skrifar Jón Bjömsson. Báturinn verður blár að lit og yfirbygging hvít og er öll innrétting mjög vönduð. Eggert hefur verið hér í Svíþjóð um tíma og fylgzt með smíðinnL Þetta er fyrsti stálbátúrinn, sem skipasmíðastöðin í Mar- strand byggir fyrir íslend- inga, en nú hefur hún fengið pöntun á tveimur sams konar bátum að auki og jafnvel bú- izt við að pöntunum fjölgi við heimkomu Sigurpáls. Stjórnarsinnar hafa náð yfirhöndinni — byltlngcamenn í Argentínu hafa þó enn skip á sínu vafdi Buenos Aires, april — NTB STJÓRNARSINNAR í Argcn tínu virðast nú hafa náð yfir- höndinni í viðureign sinni við byltingarsinna í landinu. Síð- asta vígi þeirra í landi, flota- stöðin Mar del Plata, féll í dag. Gáfust byltingarmenn þar upp án þess að til átaka kæmi. Flotastöðin var eina herstöð- in, sem byltingarmenn höfðu þa á valdi sínu. Þá þegar höfðu þeir gefizt upp og horfið frá þremur öðrum flotastöðvum Punta Indio, Rio Santiago og Puerto Belgrano. Nú á aðeins eftir að ná til HA 15 hnútar S V 50 hnútar k Sn/óAoma t Úiiwm V S/rúrir 2 Þrumur '/ÆKt9n\^fj KutíaM HA Hmt Æ/trmik^ Hitath* L*La Rússneskt skip með ísl. átusafnara í GÆR kom inn til Reykjavíkur rússneskt fiskirannsóknarskip. Tekur það þátt í rannsóknum á hrygningu þorsksins við Vestur Grænland og er í sama leiðangri og franska rannsóknarskipið, er hér var fyrir skömmu. Skipið kom hér við til að taka tæki til rannsóknanna, en það er sérstakur átusafnari, sem Her mann Einarsson átti upptökin að og Fiskideild Atvinnudeildarinn- ar hefur. En nú nota flest rann- ' sóknarskipin þessi tæki. Skipið er | væntanlegt aftur úr ferðinni 25. apníL UM HÁDEGI í gær var hamn gróinn í sunnanátt með há- þrýstihrygg fyrir austan land- ið, en víðáttumikla lægð suð- ur af Grænlandi. Hér á landi var víða 10 stiga hiti og auk . þess smiárigning sunnan lands f og vestan, bezta giróðrarveð - ur. Þá var hiti 2 st. í Kaup- maonahöin, 1 í OsLó og 6 í New York og París. 10 þús, la% gjöf til skógræktar SKÓGRÆKTARFÉLAGI fslands hefur borizt gjöf að upphæð kr. 10.000,— Ragnhildur Runólfsdóttir kaup kona, Hafnarstræti 18, sem and- aðist hér í bæ hinn 6. marz 1963, arfleiddi Skógræktarfélag íslands að kr. 10.000.— til frjálsrar ráð- stöfunar. Stjórn félagsins hefur tekið á móti þessari höfðinglegu dánar- gjöf. þeirra uppreisnarmanna, sem hafa á sínu valdi nokkur her skip á hafi úti. Höfðu þeir hót- að að gera árás af sjó, en þeirri áætlun mun nú hafa verið slegið á frest. Yfirmaður sjóhersins, Eladio Vazquez, ræddi í dag við landvamaráðherrann, Jose Manu el Astiguata, og munu viðræður þeirra einkum hafa snúizt um vopnahlé. Ekkert hefur þó verið látið uppi um þær viðræður. Stjórnmálafréttaritarar skýra svo frá í dag, að svo virðist, sem stjórnin hafi ekki enn tekið á- kvörðun um, hvort krafizt skuli skilyrðislausrar uppgjafar af byltingarmönnum, eða hvort reyna skuli að koma á einhverju samkomulagi. Krafa byltingarmanna er sú, að kosningum þeim, sem halda á í júní, skuli frfestað. Fréttir voru í fyrstu óljósar, en nú heyr- ist, að tilgangur byltingartiiraun- anna hafi verið sá að reyna að koma í veg fyrir kosningasigur Peronista. Síðustu fréttir hermdu, að Vaz quez, yfirm. flotans, hatfi skipað uppreisnarmönnum á hafi úti að sigla skipum sínum þegar til hafnar. Ætti heldor að þokko fyrir hreingern- ingornnr Á ALÞINGI hafa framsóknar- menn haldið uppi miklu mál- þófi að undanförnu vegna þeirra sjálfsögðu ráðstafana, sem núverandi ríkisstjóm hef- ur gert til að koma ríkisábyrgð unum í viðunandi horf, en við þær umræður lýsti Eysteinn Jónsson því m. a. yfir, að í ráðherratíð hans hefði í mý- mörg skipti verið veitt ríkis- ábyrgð, þótt fyrirsjáanleg hefði verið, að ekki yrði staðið í skilum. Gunnar Thoroddsen fjár málaráðherra undirstrikaði afi* 1 þessu tilefni, að alis ekki getur gengið til lengdar, að ríkis sjóður vitandi vits geri sveit arstjórnir, einstök félög eðaí einstaklinga að vanskilamönn f um með þessum hætti. Slíkt spillir fjármálasiðferðinu í landinu. Það verður að skapa þeim, sem ríkisábyrgðir fá, skilyrði til að standa við skuld bindingar sínar. Kæmu þar m. a. til greina annaðhvort beinar styrkveitingar eða lán, sem afborgunarlaus yrðu fyrstu árin, meðan viðkom- andi aðili væri að koma undir sig fótunum. ^ Ræðu sinni lauk ráðherrann síðan með þessum orðum: „I stað þess að ónotast út af þess- um umbótum og hreingeming um ætti hv. 1. þm. Austf. (Eysteinn Jónsson) heldur að þakka fyrir það, að einhver fæst til að gera hreint eftir allt of langa um.gengni hans um fjárhirzlur rikisins. Meðoiaili Keilavíkurbáfa 7,31 lesf KEFLAVÍK, 4. apríl. — Frá Keflaviík eru nú 45 bátar á veið- um með línu og net. Heildarafili miðað við mánaðamótin marz— apríl er 12.542 lestir í 1714 veiði- ferðum. Á sama tíma í fyrra var aflinn 9770 lestir í 1301 veiði- ferð. Meðalafli í veiðiferð er þvá I það sean eif er þessu ári 7,31 lest, en var í fyrra 7,05 lestir. Aflahæstur er Frarn með 503 lestir í 57 veiðiferðum, Baldur naestur með 485 lestir í 61 ferð, Hilmir 478 lestir í 48 ferðuim, Jón Finnsson 473 lestir í 51 ferð, og Ólafur Magnússon 470 lestir í 59 veiðiferðum. 13 bátar haifa eingöngu veitt í net, en 32 verið með línu og net og nokikrir þeirra með Knu eingöngu. Ógæftir voru fyretu daga mánaðarins en mua betri seinni partinn. Heildarloðnuafli í Keflavikiur- Ihöfn var 12500 tunnux. , ^ Helgi S.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.