Morgunblaðið - 05.04.1963, Page 10

Morgunblaðið - 05.04.1963, Page 10
10 MORCVISBLÁÐ1Ð Fostudagur 5. april 1963 PETIJR OTTESEM SKRIFAR UM: FÖR TIL LOFOTEN Enn lifir í koiunum ÞAÐ er upphaf þessa máls, að við ferðafélagarhir tókum okkur upp fyrir hálfum mánuði og lögðum leið okkar til Noregs, og var ferðinni heitið til hinna margra alda gömlu verstöðva í Lófóten, sem er á vesturströnd Noregs, um 200 km norðan við heimsskautsbaug. För þessi hafði haft nokkurn aðdraganda. All- lengi hafði hugur okkar stefnt að því, að gaman væri og fróð- legt að geta séð með eigin aug um hinar sérkennilegu aðstæður norður þar til fiskveiða, sem sagnir hermdu, að um sjósókn, fiskverkun og fleira líktist miög athafnalífinu í verstöðvum ýms- um hér á landi. Við, sem hér eigum hlut að máli og beindum nú för okkar í vetrarríkið norður þar, erum: Hafsteinn Bergþórsson, sem lengi var togaraskipstjóri og háði marga hildi í þeim sæför- um, en hefur nú um langt skeið verið framkvæmdastjóri Bæjar- útgerðar Reykjavíkur, og var hann foringi fararinnar. Annar í röðinni var Einar Guðfinnsson, útgerðarmaður og kaupmaður í Bolungarvík. En það er um hann að segja, að hann lætur sér ekki lengur nægja að beina útgerð sinni á Kvíamið Þuríðar sunda- fyllis út af ísafjarðardjúpi, en í þess stað hefur hann nú hin síð- ari ár haslað hinum stærri bát- um sínum völl á víðara sviði, eftir árstíðum, á miðunum fyrir sunnan og norðan land, og hafa þeir löngum reynzt þar harla fengsælir. Þriðji maður farar- innar var svo ég, sem línur þess- ar rita. Ég hef lengst af minni ævi verið bóndi uppi í sveit, og má því segja, að það skjóti nokkuð skökku við, að áhugi minn beinist í þá átt, er að för þessari lýtur. En við því er það að segja, að á unglingsárum mín- um stundaði ég sjó um skeið og það Hefur lifað í þeim kolum síðan, þótt þátttaka mín í sjávar- útgerð hafi verið sú ein að afla á báti mínum á stundum soðn- ingar í bú mitt. Nú er við ferðafélagarnir fór- um að bera saman bækur okkar um ferðalagið, kom 'til liðs við okkur hinn áhugasami fiskimála- stjóri, Davíð Ólafsson, forstöðu- maður Fiskifélags íslands. — Greiddi hann götu okkar á ýms- an hátt, meðal annars með því að skrifa nokkrum mönnum, sem hann þekkti á þessum slóð- um og beiddi þá að veita okkur aðstoð um upplýsingar varðandi útgerðaymál þar, sjósókn, land- háttu o. fl. Allt bar þetta góðari árangur og viljuni við færa fiskimálastjóra beztu þakkir fyr- ir alla aðstoð hans og liðveizlu. Ferð okkar hófst með þeim hætti, að við flugum með flug- vél Flugfélags íslands til Bergen laugardaginr^ð. þ. m. Ferðalagið tók um fjórar klukkustundir. Leiðin liggur yfir Færeyjar, og sjást eyjarnar harla vel, ef bjart HLJOMLEIKAR Delta Rythm Boys Tekist hefur að framlengja dvöl lista- mannanna um 2 daga og verða 5. hljóm- leikar n.k. föstudagkvöld kl. 11,15 og þeir 6. laugardagskvöld kl. 11,15. — Vegna geysilegrar eftirspurnar verður bætt við hljómleikum laugardag kl. 7,15 e.h. — Miðasala hafin að þessum þremur hljóm- leikum í Bókaverzl. Lárusar Blöndal Vest- urveri og á Skólavörðustíg og í Háskólabíói. Ósóttar pantanir óskast sóttar í dag — annars seldr öðrum. er í lofti. En skýjafari var svo háttað að þessu sinni, að ekkert sást móta fyrir þeim. Flugvöllur- inn í Bergen er tiltölulega nýr og er um hálftíma akstur af hon- um inn í bæinn. Bergen er næststærsti bær Noregs með um 150 þúsund íbúa. í Ósló með úthverfum eru um arsviðið fyrsta og stærsta gleði- leikaskáld Norðurlanda, Ludvig Holberg. J. C. Dahl endurvekur norska málaralist, Ole Bull getur sér heimsfrægð fyrir fiðluspil sitt og Edvard Grieg vekur fögn- uð og hrifningu í hjörtpm fólks- ins með sinni ódauðlegu tónlaga- smíð. í Bergen vann skjáldjöfur- inn Henrik Ibsen sinn fyrsta leik hússigur. Veraldlegt gengi og andleg straumhvörf sigla hrað- byri inn á svið síðari tíma menn- ingar og þroska. Elzta byggingin í Bergen er Maríu-kirkjan frá því um miðja 11. öld. Margar fieiri gamlar byggingar eru þar, eins og Há- konarhöllin. Margar gamlar kirkjur eru í Bergen. og er dóm- kirkjan þeirra stærst og vegleg ust að allri gerð. Á blómaskeiði norskra herkon- unga á 12. og 13. öld. er yfirráða- svæði þeirra tók iangt út yfir strendur Noregs í vesturátt, voru ekki færri en 27 kirkjur og klaustur í Bergen. Er talið, að fslendingar njóta útsýnis frá „Flöien'. 500 þúsund íbúar. Bergen er einn af elztu bæjum Noregs. Grund- völl að stofnun bæjarins lagði Ólafur konungur Kyrri um 1070. A 12. og 13. öld, og raunar lengi e'tir það, var Bergen höfuðstað- ur Noregs. Ríkastan þátt í vexti bæjarins um þessar mundir átti hinn mikli útflutningur skreiðar, sem var verðmætasta útflutnings vara þeirra tíma. Öll skreið sem verkuð var í Vestur-Noregi var þá flutt út frá Bergen. Langt fram á aldir var Bergen mesti útflutnings- og siglingabær Nor- egs. Lengi voru Hansakaupmenn sterkasta aflið í viðskiptalífi bæjarins. Enn standa í Bergen stórar húsaraðir frá þessu tíma- bili og snúa stöfflum að höfninni. En upp úr miðri 16. öíd tók veldi Hansakaupmanna að hnigna og innlendir kaupsýslumenn tóku forystuna á sviði' verzlunar og siglinga. Menningarlíf og listir tóku þar miklum framförum á 19. öld. Þá kemur þar fram á sjón- Hentar öllum. — Prýðir alls- staðar. Innpakkað í smekklega gjafaösku. Tilvalinn til ferm- ingar- og annarra tækifæris- gjafa. ^«mpínn sem allir hafa beðið eftir kemur á markaðinn í þess- ari viku. Umboðsm. S. ÁRMANN MAGNÚSSON heildv. sími 16737. juaugavegi 31. krýning Hákonar Hákonarsonar’ er þar fór fram, hafi á sér mest- an viðhafnarblæ og beri hæst allra frásagna miðaldasögunnar um tign og veldi ríkis og bæjar í Bergen er mikið af söfnum margs konar, enda eru Norð- menn þekktir að því að halda til haga öllu sem gildi hefur og sýn- ir forna menningu þeirra og snilli. Þarna er sjófiskasafn, og vísindi og listir skipa þar í hví- vetna veglegan sess. Byggingar í Bergen eru mjög sundurleitar að gerð. Bera eldri byggingar einkenni síns tíma. En yngri byggingar allar eru óbrotn- ar að gerð, stílhreinar og er meðal þeirra margt háhýsa. Árið 1916 brann stór hluti bæjarins, og er allt það svæði fullbyggt, breið ar götur og torg og raðir fallegra steinbygginga. Bergen varð fyr- ir allmiklum skemmdum í síð- ustu heimsstyrjöld, en dugnaður og framtakssemi Bergenbúa hef- ur grætt þau sár. Mikill hluti bæjarins er reistur utan í fjalls- hlíðum og nær byggðin sumstað- ar undrahátt upp eftir hlíðunum. Mikill hluti borgarbúa býr því í miklum bratta. En hvergi nær byggðin hærra en svo, að tekizt PÉTUR OTTESEN, fyrrum alþingismaður, er skömmu kominn heim úr Noregsferð. — Hann fór við þriðja mann alla leið norður til Lofoten og mun í nokkrum greinum hér í Morgunblaðinu lýsa því sem fyrir augu bar. Um för sína sagði Pétur Otte- sen við Morgunblaðið: „Hin sérstæða sigling norður til Lofoten, innan skerjagarð- anna, er mér sagt eigi engan sinn líka. Noregsferðin var mér ógleymanlegur lærdóm- ur, ekki sízt kynnin af þessu duglega og þrekmikla fólki, sem býr í norðurhéruðum Noregs“. Pétur Ottesen fór til ísraels /i um áramótin 1958—1959, eins ( og öllum er í fersku minni. Um ferð sína þangað skrifaði hann greinarflokk í Morgun- blaðið og varð hann mjög vin- sæll, enda er Pétur skemmti- legur penni. hefur að leggja akfæra vegi ! ótal krákustígum upp að húsun- um .til afnota fyrir þá, sem þar búa. Uppi á háfjalli fyrir ofán borg- ina er skemmtistaður í stórfi og veglegri byggingu, er kallast Flöien, er þaðan gott útsýni yfir b'orgina og innsiglingarleiðina til hennar. Síðasta spölinn upp á fjallið, sem er snarbrattur, er farið með rafmagnsbraut. Við vorum elnn sunnudag um kyrrt í Bergen og vorum við messugerð í einni af hinum gömlu kirkjum. Kirkjusókn var góð og margt fólk til altaris, og hafði hver altarisgöngugesíur sinn bikar við útdeilingu á messuvíninu. Veggir og súlur kirkjunnar að innan búa sýni- lega að fyrstu gerð, ekkert gert til að afmá hið hrjúfa yfirborð þeirra, og fer vel á því. Kirkjan er mjög myndskreytt. Altari og ræðustóll hvort tveggja listaverk. Myndir þessar og höggverk tengja hug kirkjugesta við löngu liðinn tíma og vekja þá til um- hugsunar um það, að listamenn fortíðarinnar lögðu alla sál sína í það að beita listamannsgáfunni að því að skapa verk, er orð:ð gætu til dýrðar og vegsemdar trúnni og guðlegri forsjón. Þessi verk lifa, og áhrifin af þvi að virða þau fyrir sér ná til hjart- ans. Um kvöldið fórum við um borð í skipið, sem flutti okkur frá Bergen til Lófóten, og verð- ur sagt frá þeirri ferð í næstu greinum. TÓNLEIKAR ________ Lúðasveitín Svanur heldur tónleika í Tjarnarbæ sunnudaginn 7. apríl næstk. kl. 9 e.h. Stjórnandi Jón G. Þórarinsson. Fjölbreytt efnisskrá. Aðgöngumiðasala í bókaverzlun Sigfúsar Eymunds- sonar og Lárusar Blöndal, Skólavörðustíg og Vestur- veri og í Tjarnarbæ á sunnudag frá kl. 4 e.h.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.