Morgunblaðið - 05.04.1963, Síða 12
12
MORCVNBLAÐ1Ð
Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar fCristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðj.lstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 4.00 eintakib.
FRAMBOÐ SJÁLF-
STÆÐISFLOKKSINS
Cjálfstæðisflokkurinn hefur
^ nú lagt fram framboðslista
sína við alþingiskosningarnar
í sumar í öllum kjördæmum
landsins. Eru frambjóðendur
flokksins við þessar kosning-
ar eins og jafnan áður úr öll-
um stéttum og starfshópum
hins íslenzka þjóðfélags. —
Þetta fólk gerþekkir hagi og
hagsmtman-iál héraðanna og
fólksins í sveitum og við
sjávarsíðu. Það sem fyrst og
fremst setur wvip sinn á bar-
áttu Sjálfstæðismanna er að
þar stendur stétt með stétt.
Þar berjast i-ulltrúar allra
stétta hlið við hlið undir
merki frjálslyndrar og víð-
sýnnar stjórnmálastefnu með
alþjóðarhag að markmiði.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
allt frá því hawn var stofnað-
ur fyrir rúmum 30 árum ver-
ið langsamlega stærsti stjórn-
málaflokkur þjóðarinnar og
áhrifamesta aflið í íslenzku
þjóðlífi. Um og yfir 40%
kjósenda hafa við hverjar
einustu koaninffar skipað sér
imdir merki flokksins. Is-
lenzka þióðin getur ekki ver-
ið án forvstu Sjálfstæðis-
flokksins. Hann er hið sam-
einandi afl í þjóðlífi hennar.
Þær tilraunir, sem gerðar
hafa verið af hálfu andstæð-
inga hans til þess að einangra
hánn og stjórna landinu í and-
stöðu við hann, hafa allar far-
ið út um þúfur. Hinar svo-
kölluðu vinstri stjórnir, sem
haft hafa bað takmark að
einangra Siálfstæðisflokkinn
hafa gefizt upp, sumar á
miðju kjörtímabili. Þær haf?
ekki getað stiómað íslandi
með hag alhióðar fvrir aug-
um. Þær hafa ekki revnz+
þess megnu^ar að leysa
vandamálin.' Það hefur svo
komið í hlut Siálfstæðis-
manna að taka við vandan-
um og hafa forystu um lausn
h"—*.
Ar
Sjálfstæðisflokkurinn er í
dag einhuga og sterkur Inn-
an hans verður að sjálfsögðu
vart ágreinings um menn o«*
málefni. Sætir það heldur
engri furðu í svo storum
þróttmiklum siiómmál51
flokki. En ailir Siálfstæðis-
menn standa sameinaðir o"
einhuga um husrsión sjáif
stæðisstefnunnar, frelsi ein-
staklin vcíns. h'ðr«*ði og fhanr
helgi. Og takmark beirr?
allra er hið ssmr Rúm»f'H
og réttlátt þjóðfélag á Is-
landi.
Þessi siofna. hes<si ú-flarirt
er það sem gert hefur Sjálf-
stæðisflokkinn að langsam-
lega ’ sterkasta aflinu í ís-
lenzku stjórnmálalífi. Sá góði
drengskapar- og félagsandi,
sem jafnan hefur ríkt innan
flokksins, hefur einnig átt ó-
metanlegan þátt í að laða
stéttir og starfshópa til sam-
eiginlegra átaka og heiðar-
legs og drengilegs samstarfs
innan vébanda hans.
Sjálfstæðisflokkurinn stend-
ur nú mitt í stórbrotnu starfi
og báráttu fyrir velferð þjóð-
ar sinnar í nútíð og framtíð.
Hann þarf því mjög á liðstyrk
allra frjálslyndra og ábyrgra
íslendinga að halda. Fram-
boðslistar hans um land allt
eru skipaðir dugmiklu og
góðviljuðu fólki, sem fyrst og
fremst byggir stjómmála-
starfsemi sína á trúnni á
landið, og einlægum vilja til
þess að bæta það og skapa
þjóð sinni sem bezta aðstöðu
í lífsbaráttunni.
Sjálfstæðisflokkurinn hvet-
ur í dag þjóð sína til sóknar
fyrir framförum og uppbygg-
ir.gu á íslandi, í skjóli víð-
sýnnar og raunsærrar stjórn-
málastefnu sinnar.
BÆTTAR SAM-
GÖNGUR A SJÓ
A Alþingi því, sem nú stend-
ur yfir, hafa verið fluttar
margar tillögur um bættar
samgöngur á sjó við hina
vmsu landshluta. Þannig
hafa þingmenn Siálfstæðis-
flokksins flutt tillöpu um
bættar samgönsur við Vest-
firði og Austfirði. Þingmenn
úr öðrum flokkum hafa flutt
svipaðar tillögur.
Allsherjamefnd sameinaðs
bings hefur fengið allar þess-
ar tillögur til meðferðar o«
lagt til að skipuð verði milli-
hinganefnd til bess að athuga
allan rekstur Skipaútgerðar
ukisins, og að lokinni þeirrí
rannsókn skuli gerðar tillög-
ur um fyrirkomulag á rekstri
strandferða, sem miði að bet-
ur skinulagðri og hagnýtau
'trandferðaþiónustu fyrir alla
^andsmenn. Skal þessu verki
iokið svo fliótt sem verða má
og niðurstöður allar og tillög-
’ir bá lagðar fyrir Alþingi.
Segja má. að betta sé ekv:
^eðlileg málsmeðferð. Alli«-
eru sammála um, að brýn
nauðsyn sé bættra samgangn?
á sió við einstaka landshlut?
Enda þótt flugið hafi haft í
för með sér stórkostlegar
samgöngubætur, getur það
Föstudagur 5. aprfl 1963
-----------------L
PJBWpR!:;
Skatfalœkkanir
i Bretlandi
700 milljóna punda greiðsluhalli, skv.
fjarlagafrumvarpinu, sem flutt var í gœr
Skriða féll fyrir skömmu á
franska þorpið Plan du Var.
Þrír menn létu lífið af völd-
um skriðunnar og margir særð
ust, þegar hún féll á hús
þeirra. Myndin er tekin í
miðju þorpinu og steinninn á
götunni var einn þeirra
stærstu í skriðunni. Miklar
rigningar höfðu verið í þorp-
inu og nágrenni þess áður en
skriðan félL
London, 3. apríl — (NTB-AP) —
B R E Z KI f jármálaráðherrann,
Reginald Maudling, lagði í' dag
fram fjárlagafrumvarp stjórnar-
innar. Er þetta fyrsta frumvarp
sinnar tegundar, sem Maudling
flytur.
Frumvarpið gerir ráð fyrir 700
milljóna punda greiðsluhalla.
Helztu nýmæli þess eru þau, að
tekjuskattur verður felldur nið-
ur á þeim, sem eru í lægstu
Iaunaflokkum, og verða um 750
þús. manns þeirra fríðinda að-
njótandi.
I-fjárlagaræðunni lýsti Maudl-
ing því yfir, að þessar breyting-
ar, sem leiða af sér um 270 millj.
punda tekjumissi ríkisins. væru
nauðsynlegar nú. Rökstuddi
hann mál sitt með því að benda
á, að án skattaívilnana væri ekki
hægt að örva efnahaiísþróunina.
Þessa frumvarps hefur verið
beðið með mikilli eftirvæntingu
þar sem þess var vænzt, að stjórn
in myndi nú reyna að vinna sér
hylli kiósenda, en það hefur
minnkað nokkuð að undanförnu,
bó aldrei levst sjósamgöngur
algjörlega af hólmi. Þess verð
ur að vænta, að sú rannsókn,
sem nú verður látin fram
fara á strandferðunum gangi
fljótt og vel og að niðurstaða
hennar verði raunhæfar til-
lögur til úrbóta.
FÆREYJAFLUGIÐ
F- að liggur nú ljóst fyrir, að
** Danir munu veita Flug-
félagi íslands leyfi til þess að
Ujúga milli Færevia og Kaup-
mannahafnar. Hafa forráða-
menn Flugfélagsins nú hafizt
handa um að undirbúa Fær-
evjaflugið. Gert er ráð fyrir.
að ýmsar örvggisráðstafanir
þurfi að framkvæma við flug-
eins og komið hefur fram í auka-
kösningum í seinni tíð.
Meðal þeirra gjalda, sem rikið
hefur fengið greidd, en nú verða
felld niður, má nefna eigna-
skatta, vegna íbúðarhúsa og
heimila, sem eigandi notar sjálf-
ur. Þá hafa fyrirtækjum verið
veitt ýmis fríðindi, og þá eink-
um vegna vélakaupa og aukinn-
ar starfsemi. Lýsti Maudling þvl
yfir, að þessi ráðstöfun væri gerð
til að reyna að vinna bug á at-
vinnuleysi, sem allmikið hefur
gert vart við sig að undanförnu.
íranskir stúdentar
hætta námi í Moskvu
UM ÞAÐ bil fimmtíu stúd-
entar frá írak, sem stundað
hafa háskólanám í Sovétríkj-
unum, hafa hætt námi og
krefjast þess að verða séndir
heim, þegar í stað.
Talsmaður sendiráðs íraks í
Moskvu, Mahmoud Shukri, sagði
í viðtali við fréttamenn á mánu-
dag, að stúdentar hefðu tekið
þessa ákvörðun í mótmælaskyni
völl bann, sem notaður verð-
ur í Færeyjum áður en flugið
getur hafizt. Er ekki ennþá
hægt að fullyrða, hvenær
fyrsta flugferðin verður far-
in, en væntanlega verður það
snemma á komandi sumri.
Flucfsamgöngur milli Fær-
eyja, íslands og Danmerkur
munu að sjálfsögðu verða
mikil sam^öngubót fyrir Fær-
eyinga. íslendingar fagna
einnig bættu sambandi við
hina færeysku frændþjóð
sína. Það er ósk íslendinga o«
von, að Færeyjaflug Fluvfé-
lags íslands megi verða Fær-
eyingum til sem mestra hags-
bóta. Flugfélag íslands á þakk
ir skildar fyrir frumkvæði
sitt í þessum efnum.
við andróður sovézkra yfirvalda
gegn hyltingarstjóminni í írak,
eftir handtökur og líflát leiðtoga
kommúnista þar í landi. Sagðist
sendiherrann bíða endanlegrar
heimildar stjórnar sinnar til að
senda stúdentana heim og færa
þeir væntanlega síðar í vikunnL
f Sovétríkjunum stunda nám
1335 stúdentar frá Irak, og eru
þeir fjölmennasti hópur erlendra
stúdenta þar í landi. Komið hef-
ur til átaka milli þeirra og
sOvézkra skólabræðra þeirra eft-
ir byltinguna og einnig þeirra
sjálfra í milli — og hafa þá átzt
við stuðningsmenn Kassems og
stuðningsmenn byltingarstjórn-
arinnar og Baath-sósialista.
Sendiráðið í Moskvu varð að
gera sérítakar ráðstafanir til
þess að hindra, að allir stúdent-
arnir þyrptust heim. Var hert S
ák.væðum um frí fargj51 d til íraka
og þau alls ekki veitt öðrum en
meðlimum Stúdentafélags íraks.
sem jafnframt var fyrirskinað
að takmarka inntöku nýrra fé-
laga um hríð.
íraskir stúdentar hafa veriS
í háskólum í Tahskent, Baku,
Odessa, Kiev og Kharkov, auk
Moskvu. 14. marz síðastl. gerðu
sovézkir Moskvustúdentar undir
forystu arabískra stúdenta aðsúg
að sendiráði traks I borginnL
Köstuðu þeir snjókúlum og blek-
byttum og ollu nokkrum'
skemmdum, einkum á gluggum
og hurðum.