Morgunblaðið - 11.04.1963, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 11.04.1963, Qupperneq 12
12 " MORCV1SBLAÐ1Ð Fimmtudagur 11. apríl 1963 róiffllSltMðfrffr Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavílo Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur Matthias Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arm Garðar Kristinsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aðs.lstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 4.00 eintakib. HAGSTÆÐASTA ÞRÓUN FRÁ STRÍÐSL OKUM jTins og fram kemur í skýrslu^ ^ Seðlabanka íslands var þróunin í gjaldeyris- og við- skiptamálum Islands á síð- asta ári hin hagstæðasta, sem verið hefur frá styrjaldarlok- um. Viðskiptajöfnuðurinn á vörum og þjónustu varð hag- stæður á árinu um 250—300 millj. kr., en sú tala sýnir raunverulega afkomu þjóðar- búsins út á við. Árið 1961 var greiðslujöfnuðurinn hagstæð ur um 225 millj. kr. og var það hagstæðasta ár, sem þá hafði komið frá stríðslokum. En árið 1962 hefur orðið enn hagstæðara. Þróunin er hin sama á öðr- um sviðum. Þannig hefur þjóðarframleiðslan aukizt um 5% á árinu 1962 í stað 3% 1961. Gjaldeyrisstaðan hefur batnað um 623 millj. á árinu og var gjaldeyriseignin í árs- lok hvorki meira né minna en 1150 millj. kr. Á árinu 1962 jukust spari- innlán einnig meira en nokkru sinni fyrr eða um 762 millj. kr. Útlán jukust minna eða um 633 millj. Eins og kunnugt er tóku Is lendingar yfirdráttarlán hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Evrópusjóðnum, þegar við- reisnarráðstafanimar voru gerðar. Vegna hinnar góðu gjaldeyrisstöðu og síbatnandi hags þjóðarinnar hafa lán þessi nú að fullu verið uþp greidd og íslendingar fylli- lega staðið í skilum. Á öllum sviðum er þannig gjörólíkt um að litast því, sem var á tímum „vinstri stefnunnar“, stefnu hafta, þvingana og uppbóta. Þá var stöðugur halli á þjóðarbú- skapnum, þrátt fyrir vöru- skort. Nú safna íslendingar hins vegar gjaldeyrisinnstæð um og miklu sparifé, sam- hliða því sem lífskjörin eru betri en nokkru sinni áður og nægilegt framboð af hvers kyns vörum. Þegar þessar staðreyndir liggjá fyrir er ekki að furða, þótt stjórnarandstæðingar, sém hatrammlega hafa bar- izt gegn viðreisninni, séu uggandi um sinn hag og sjái fram á, að þjóðin muni votta viðreisnarstefnunni traust og þar með tryggja áfram- haldandi framfarir og bætt- an hag einstaklinga og þjóð- arheildarinnar. AÐVÖRUN BANKASTJÖRNAR INNAR 'C'nn einu sinni verður Tím- inn ber að fréttafölsun- um, þegar hann getur um skýrslu bankastjórnarinnar. Fimm dálka fyrirsögn blaðs- ins hljóðar svo: „Furðulegar hótanir í skýrslu bankastjómar Seðla- bankans. — Er verið að boða gengisfall og vaxtahækkun?" Síðan er að því vikið, að bankastjómin sé handbendi ríkisstjórnarinnar og aðvör- un þá, sem fram kemur í skýrslu bankastjórnarinnar um að ekki megi þróast hér ofþensla, beri að skoða sem einhvers konar hótun af rík- isstjórnarinnar hálfu. Auðvitað á bankastjórnin ekki að gera sér leik að því að reka þveröfuga efnahags- málastefnu við það, sem rík- isstjóm á hverjum tíma æsk- ir, en hins vegar hefur banka stjómin heimild til að lýsa skoðunum sínum og ágrein- ingi við ríkisvaldið. Banka- stjómin telur nú ástæðu til að vara við því, að hér geti orðið ofþensla í efnahags- lífinu. Engum réttsýnum manni dettur í hug, að bankastjórn Seðlabankans láti frá sér fara annað en það, sem hún telur þjóðinni fyrir beztu. Þass vegna em dylgjur og brigzl Tímans fyrir neðan allt vel- sæmi og á slíkur málflutn- ingur hvergi heima nema í kommúnistamálgögnum. Ástæða er líka til að vekja athygli á því, að ekki em nema fáir dagar síðan Tím- inn birti ritstjórnargrein, þar sem að því var vikið, að hér væri of mikil þensla í efnahagslífinu og talið, að verðbólga ógnaði þjóðarhag. Þannig lýsti blað Framsókn- arflokksins því yfir, að nauð- synlegt væri að gera ráðstaf- anir til að stemma stigu við þeirri þróun. Stjórn Seðlabankans varar við því að verðbólga fáí að þróast í efnahagslífinu á sama hátt og Tíminn gerði. Það er hennar eina „sök“. Sir Winston Churchill heiðursborgari USA (AP-NTB). SIR Winston Churchill var í dag gcrður að heiðursborgara Banda ríkjanna við hátíðlega athöfn í Washington. Var athöfninni út- varpað og sjónvarpað um öll Bandaríkin og um Telstar-gervi- hnöttinn til Evrópu. Sir Winston gat ekki sjálfur verið viðstaddur athöfnina, en hann er nú 88 ára. Sendi hann í sinn stað son sinn, Randolph Churchill. Kennedy forseti stjórnaði at- höfninni í garði Hvíta hússins í Washington, en viðstaddir voru ýmsir helztu leiðtogar Banda- rikjanna. Ávarpaði Kennedy sir Winston og Randolph Churchill las upp ávarp föður síns. Einnig flutti sir David Ormsby-Gore, sendiherra Breta, ávarp og þakkir frá brezku stjórninni. í ávarpi sínu segir Churchill m. a. að hann hafi hlotið margar heiðursviðurkenningar frá Bandaríkjunum, en enga sem þessa. „Ég tek við heiðursborg- araréttindunum með miklu þakk læti. Vinátta okkar og bræðra- lag á stríðsárunum á ekki sinn líka. Við stóðum saman og þetta leiddi til þess að hinn frjálsi heimur er enn við líði.“ dæmi, og er það rétt. Aldrei fyrr í sögu Bandaríkjanna hefur út- lendingur verið gerður að heið- ursborgara í Bandaríkjunum, en engan útlending hafa Banda- ríkjamenn heldur dáð jafn mikið og sir Winston Ghurehill. Oscarverðlaun- in afhent Hollywood, 9. apríl. — AP —* GREGORY Peck og Anne Bancroft hlutu Oscar-verð- launin fyrir beztan kvik- myndaleik á árinu 1962. Voru verðlaunin afhent í gær- kvöldi við hátíðlega athöfn í Santa Monica. Bezta kvikmynd ársins var kjörin „Lawrence of Arabia“, en beztu aukaleikarar voru kjörin Ed Begley og Patty Duke. Gregory Peck fékk verðlaunin fyrir leik sinn í myndinni „To kill a mockingbird“. Leikur hann þar lögfræðing í borg einni 1 Suðulríkjunum, sem tekur að sér að verja negra sakaðan um líkamsárás. Anne Bancroft féklc verðlaunin fyrir hlutverk Annie Sullivan í kvikmyndinni „The miracleworker“, en myndin fjall- ar um ævi Helen Kelier. Anne Bancroft var ekki við- 'stödd verðlaunaafhendinguna, og tók Joan Crawford við Oscar- verðlaununum fyrir h e n n a r hönd. 20 bílar með um 240 manns í Úræfin Churchill sagði að heiður sá, er honum var sýndur, væri eins- Flugumferðar- stjórar á alþjóða mót HINN 24. marz 8.1., var hald- inii aðalfur.—. í Félagi íslenzkra flugumferðarstjóra. Þar voru kjörnir í stjóm fé- l'agsins þeir, Valdimar Ólafsson, sem er formaður og hefir verið það samfelilt frá stofnun þess ár- ið 1955, Jens Guðmundsson vara- formaður, Kristinn Sigurðsson ritari, Ólaifur H. Jónsson gjald- keri og Kristján Símonarson sem er meðstjórnandi. Félagið er í alþjóðasamtökum flúgumferðarstjóra, sem munu halda annað ársþing sitt í Lund- únum um naestu mánaðamót og munu tveir íslenzku flugum- ferðastjóranna sitja þingið fyrir hönd félags síns. EINS OG venjulega um páskana streymir ferðafólk austur í Ör- æfasveit, en á þessum tíma eru árnar austur á söndum oftast fær ar góðum fjallabílum. Er Mbl. kunnugt um 20 bíla, sem munu fara austur með eitthvað um 240 manns. Þessar tölur eiga þó e.t.v. eftir að breytast fram á fimmtu dag. Auk þess fer ferðafélagið í Þórsmörk. Guðmundur Jónasson, fjalla- bílstjóri, mun ætla austur með um 100 manns í 5—6-bílum. Úlfar Jacobsen fer með 3 bíla með um 70 manns, og bætir sennilega ekki við fjórða bílnum. Farfuglar munu ætla með 16 manns á einum bíl. Ferðasktífstofan Saga fer með farþega í einum bíl og tveir bílar koma með líklega um 45 manns úr Reykholti. Auk þess rnunu nok’krir Weaponbílar með ferða- fólk vera samferða þessum vönu ferðamönnum yfir árnar. Ferðafélagið efnir til ferðar 1 Þórsmörk. Verður farið með 41 manns í tveimur bílum á fimmtu dagsmorgun og um 20 manns í bíl á laugardag. Einnig hafði verið á formað að fara að Hagavatni, en þar er of blautt. Jafntefli í 8. ' skákinni Moskvu, 9. apríl (AP): Áttunda skák þeirra Mikhail Bot vinniks og Tigran Petrosjans 1 keppninni um heimsmeistaratitil inn lauk með jafntefli eftir 55 leiki. Staðan er nú þannig að Pet rosjan hefur 414 vinning en Bot- vinnik 314. RÓGSIÐJAN BER ÁRANGUR ITm langt skeið hefur Tím- inn tönnlast á því, að þeir stjórnmálamenn, sem fara með umboð fyrir meiri- hluta þjóðarinnar væru fúsir til að veita Bretum undan- þágur til veiða í íslenzkri fisk veiðilandhelgi, þegar samn- ingurinn við Breta rennur út eftir tæpt ár. Framsóknarmenn vita full- vel, að ekki er nokkur fótur fyrir þessum fullyrðingum. Þeir vita líka að ekkert bend ir til þess, að brezku stjórn- inni hafi komið til hugar að fara fram á slíkar undanþág- ur. Hins vegar eru ákveðnir hagsmunahópar í Bretlandi, sem vafalaust mundu vilja gera slíka kröfu. Það er við þessa hópa, sem Tíminn er í bandalagi. Hann ýtir vísvitandi undir kröfur þeirra um ásælni við íslend- inga, þegar hann heldur því fram, að íslenzkir stjórnmála menn vildu fallast á slíka málaleitun. Þessi iðja Framsóknar- manna er tekin að bera árang ur erlendis —■ eins og til er stofnað. Þannig hrósar Tím- inn happi yfir því í gær, að Erlendur Patursson lætur hafa það eftir sér í blaðinu, að Færeyingar séu áhyggju- fullir af því að þeir viti ekki „hvaða menn halda þá um stjórnvölinn hjá íslending- um“ (þ.e.a.s. þegar samkomu lagið við Breta rennur út). Ef Tíminn hefur ekki falsað þessi ummæli Erlendar Pat- urssonar, er ljóst, að rógsiðja blaðsins er farin að bera árangur utan íslands og það svo, að þessi erlendi stjórn- málamaður lætur sér sæma að dylgja um það, að íslenzk- ir stjórnmálaleiðtogar sitji á svikráðum við þjóð sína. Þessi iðja Framsóknar- manna er sannarlega fordæm anleg, enda eiga þeir eftir að finna það, að þjóðin mun í komandi þingkosningum sýna þeim, hvað þeir menn uppskera, sem einskis svífast í málflutningi, heldur ekki þess að stofna dýrmætustu réttindum í voða, í von um að ná flokkspólitískum ár rangri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.