Morgunblaðið - 11.04.1963, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 11.04.1963, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 11. apríl 1963 MORGUNBLAÐ1Ð 13 Framkvæmdaáætiun 1963-66 ÞJÓÐHAGS- og fram- kvæmdaáætlanir fyrir ár- in 1963—1966 var birt í gær, í skýrslu ríkisstjórn- arinnar til Alþingis. Skýrslan skiptist í þrjá meginkafla, en auk þess eru birt fimm fylgiskjöl, ásamt ítarlegum töflum. Við lestur skýrslunnar kemur í ljós, að hún hefur í senn að geyma mikinn fróðleik um efnahagsþró- im undanfarins hálfs ann- ars áratugs, auk þess, sem hún hefur að geyma upp- lýsingar um það, hvers er að vænta um þróun þjóð- arbúskaparins á næstu ár- um. Á það einkum við vöxt þjóðarframleiðslunn- ar, neyzlu og fjárfesting- ar. — Aðdragandi í fyrsta meginkafla skýrsl- unnar er gerð grein fyrir þjóðhags- og framkvæmda- áætlunum, almennt, og að- draganda þess, að nú hefur verið í það ráðizt hér að hag- nýta almennar þjóðhagsáætl- anir. Á árinu 1961 beitti Banda- ríkjastjórn sér fyrir því, að aðildarríki Efnahags- og fram farastofnunarinnar í París, OECD, ákváðu að setja sér það markmið, að þjóðarfram leíðsla þeirra ykist um 50% á áratugnum 1961—1970, en það jafngildir um 4% meðalvexti á ári. Er ætlunin, að löndin miði stefnu sína í efnahags- málum við þetta. Enda þótt ekki beri nauðsyn til þess, að áætlanir séu notaðar sem hag stjórnartæki til að ná þessu markmiði, má þó gera ráð fyrir, að svo verði I æ fleiri löndum. Ríkisstjórn íslands hafði þegar á árinu 1959 lýst því yfir, að hún myndi taka upp samninga þjóðhagsáætlana, er vera skyldu leiðarvísir stjórnvalda og banka um markvissa stefnu í efnahags- málum. Ari síðar leitaði ríkisstjóm in til Efnahags- og framfara- stofnunarinnar, og fór þess á leit, að stofnunin veitti að- stoð við undirbúning þjóð- hags- og framkvæmdaáætlun- ar. Við þeirri ósk var orðið, og fyrir aðstoð norsku ríkis- stjórnarinnar komu hingað til lands þrír hagfræðingar á árinu 1961, til að vinna að á- ætlanagerðinni. Sú skýrsla, sem norsku hagfræðingarnir luku við um áramótin 1961/1962, hafði ekki að geyma endanlegar þjóðhags- og framkvæmda- áætlanir, en íslenzkir embætt ismenn gátu stuðzt við þær I áframhaldandi starfi að þess- um verkefnum. IVIiklar framkvæmdir á flestum sviðum athafnalífsins framundan í stórum dráttum má segja, að um þrjár tegundir áætlana geti verið að ræða hér á landi: • í fyrsta lagi almennar þjóðhagsáætlanir. Þær gera grein fyrir því, hver þróun þjóðarbúskaparins geti orðið á ákveðnu tímabili, hve mik- ið þjóðarframleiðslan geti vaxið, hve mikið neyzla geti aukizt, og hversu miklu fjár- festing geti numið. • í öðru lagi sérstakar, sund urliðaðar áætlanir um fram- kvæmdir opinberra aðila og fjáröflun þeirra. Slíkar áætl- anir eru yfirleitt tengdar al- mennum þjóðhagsáætlunum. • í þriðja lagi sérstakar, sundurliðaðar áætlanir um framleiðslu og framkvæmdir hverrar atvinnugreinar og jafnframt tengdar almennri þj óðhagsáætlun. Þjóðhagsáætlanir tímabærar Ríkisstjórnin telur, að tíma bært sé að hagnýta hér á landi þá tegund áætlanagerð- ar, sem fyrst var nefnd, þ. e. almennar iþjóðhagsáætlanir. Er Framkvæmdabanki íslands lauk á sl. sumri við gerð þjóð hagsreikninga fyrir tímabilið 1945—1960, var fenginn not- hæfur grundvöllur áætlunar- gerðar. í öðrum kafla skýrslunnar er vikið að þróun þjóðarbú- skaparins á árunum eftir styrjöldina, og er sú þróun borin saman við þróunina í nágrannalöndunum. í skýrsl- unni eru helztu atriði þessa yfirlits dregin saman: 1. Þjóðarframleiðsla og þjóð- artekjur jukust mikið á styrjaldarárunum. Þessi aukning byggðist að mestu á sérstökum og tímabundn um aðstæðum, en átti sér ekki eðlilega stoð í sjálfu efnahagslífi landsins. 2. Aherzla var á það lögð f styrjaldarlokin að búa landið nýjum framleiðslu- tækjum, þannig að unnt væri að halda hinum háu tekjum styrjaldaráranna við nýjar og erfiðar að- stæður. Aflaleysi og verð- fall útflutningsafurða drógu úr árangri þessarar viðleitni, og það var ekki fyrr en um það bil tíu ár- um eftir styrjöldina, að þjóðarframleiðsla og þjóð- artekjur á mann höfðu aft ur náð fyrri hámarki. 3. Eftir að þessu marki var náð, hafa þjóðarfram- leiðsla og þjóðartekjur haldið áfram að vaxa. Þessi vöxtur hefur verið skrykkjóttur og flest ár- anna ekki miklu hraðari en sem svarar fjölgun fólks. Þau ár, er aflabrögð hafa verið bezt og við- skiptakjör hagstæðust, hef ur vöxturinn þó verið all- miklu hraðari. Eru þetta einkum árin 1955, 1958 og 1962. Meðaivöxtur þjóðar- framleiðslu á ári frá 1954 til 1962 var 4,1% og með- alvöxtur á mann 2%. Þar sem viðskiptakjör hafa far ið batnandi, þegar yfir allt tímabilið er litið, uxu þjóðartekjur nokkru meira en þjóðarframleiðsla, eða um 4.6% á ári að meðal- tali, og um 2.5% á mann. 4. Efnahagsþróun íslands er á svipuðu stigi og iðnaðar- landanna í Vestur-Evrópu og þjóðartekjur á mann svipaðar og þar. Þess er því ekki að vænta, að hag- vöxtur á íslandi sé hrað- ari en- yfirleitt gerist í þessum löndum, eða frá 2 til 4% á mann á ári. Á þeim árum, sem hér um ræðir, 1955—1962, var hag vöxtur á íslandi þó hæg- ari en í flestum þessara landa, og svipaður því, sem gerðist í þeim þeirra, sem minnstan vöxt sýndu. 5. Tiltölulega hægur vöxtur þjóðarframleiðslunnar á ekki rætur sínar að rekja til þess, að fjárfesting hafi verið minni hér á landi en annars staðar. Þvert á móti var fjárfesting á Islandi tiltölulega meiri á þessum árum en í nokkru öðru landi Vestur-Evrópu, að Noregi undanteknum. Hin mikla fjárfesting stend ur fyrst og fremst í sam- bandi við miklar bygging- ar íbúðarhúsa og miklar opinberar framkvæmdir. Sú fjárfesting í skipum, vélum, tækjum og bygg- ingum, sem stendur í beinu" sambandi við framleiðsl- - una, er þó einnig heldur meiri en víðast hvar ann- ars staðar. Ekki er heldur ástæða til að ætla, að þeir erfiðleikar, sem fámenni landsins veldur, séu nein meginskýring þess, hversu tiltölulega hægur hagvöxt urinn hefur verið á því tímabili, sem hér um ræðir. 6. Skýringarinnar á því, að hagvöxtur hér á landi hef ur verið tiltölulega hæg- ari en í nágrannalöndun- um, er fyrst og fremst að leita í því, sem mest hef- ur skilið ísland frá þess- um löndum á árunum eftir styrjöldina, en það er sú almenna stefna, sem fylgt hefur verið í efnahagsmál- um. í nágrannalöndunum hefur verið fylgt þeirri stefnu að viðhalda jafn- vægi í efnahagsmálum samfara fullri atvinnu. — Jafnframt hefur verið dreg ið mjög úr hvers konar vernd og höftum, og verð- kerfið hefur verið leiðrétt eftir aflögun styrjaldarár- anna. Á íslandi hefur á hinn bóginn lengst af ríkt jafnvægisleysi í efnahags- málum árin eftir styrjöld- ina, halli á viðskiptum út á við og verðbólga innan- lands. Jafnframt hefur tollvernd og höftum og margvíslegri aflögun verð kerfisins, sem upphaflega kom til á kreppu- og styrj ald'arárum, verið haldið við líði að miklu leytL Þetta hefur leitt til þess, að þróun atvinnulífsins hefur beinzt inn á aðrar brautir en heppilegast hefði verið, miður hag- kvæmar framkvæmdir hafa oft á tíðum setið í fyrirrúmi fyrir þeim, sem þýðingarmeiri voru, og dregið hefur úr áhuga at- vinnurekenda og starfs- fólks fyrir umbótum í rekstri. Þjóðarbúskapurinn 1963—’66, horfur og stefna í þriðja meginkafla skýrsl- unnar er vikið að þjóðarbú- skapnum árin 1963—66, horf- um og stefnu. Rætt er um þjóðarframleiðslu, ráðstöfun hennar, gjaldeyrisstöðu, neyzlu, fjárfestingu og loks sjálfa' þjóðhagsáætlunina og framkvæmd hennar. Allítarlegar skýringar er að finna í skýrslunni um áætl- unina, en helztu atriði henn- ar eru þau, sem hér greinir: 1. Þjóðarframleiðsla vaxi um 4.0% á ári að meðaltali eða um 2.2% á mann. Gert hefur verið ráð fyrir, að eng- in breyting verði á viðskipta- kjörum á tímabilinu, og þjóð- artekjur vaxi því jafnmikið og þjóðarframleiðsla. 2. Útflutningur og innflutn ingur vaxi nokkru hraðar en þjóðarframleiðsla. Fram- leiðsla útflutningsvöru vaxi um 5% á ári að meðaltali og sömuleiðis flestar greinar þjónustuútflutnings. 3. Einkaneyzla á mann vaxi lítið eitt hægair en þjóðar- framleiðsla á mann eða um 2.0% á ári að meðaltali. Með þessu móti skapist grundvöll- ur fyrir tiltölulega mikinn vöxt sparnaðar og fjármuna- myndunar, og þar með traust ari og örari hagvöxt, þegar fram í sækir. Jafnframt yrði almenningur jafnóðum aðnjót andi árangurs hagvaxtarins í bættum lífskjörum. 4. Samneyzla ykist örar en þjóðarframleiðsla eða um 5.7 % á mann. 5. Stefnt sé að því, að fjár- festing aukist á næstu árum. Þetta mundi, ásamt aukningu samneyzlu, stuðla að örari og traustari hagvexti, þegar fram í sækir, og hjálpa til að full- nægja miklum sameiginleg- um þörfum þjóðarinnar. Fjár festing verði þó ekki meiri en jafnvægi í efnahagslífinu inn á við og út á við leyfir og í mesta lagi um 26% þjóð- artekna á öllu tímabilinu að meðaltali. 6. Innan þessara marka sé fyrst og fremst lögð áherzla á aukningu fjárfestingar í rafvæðingu, samgöngum og opinberum byggingum, svo sem skólum. Á þessum svið- um sé stefnt að aukningu fjár festingar um rúmlega 60% miðað við árin 1957—1961. 7. Stefnt sé að því, að um 1300 íbúðir verði byggðar á árinu 1963 og um 1500 íbúðir að meðaltali á ári hverju ár- in 1964—1966. Svarar þetta til þess, að fjárfesting í íbúð- arhúsum verði svipuð og hún var árin 1957—1961 að með- altali, og hægt sé að fullnægja þeim þörfum, sem aukin fjöl- skyldumyndun skapar, auk þess sem húsnæðisástandið gæti haldið áfram að batna með líkum hætti og það gerði sl. áratug. 8. f atvinnuvegunum sé stefnt að verulegri aukningu fjárfestingar á sumum svið- um jafnhliða bættum rekstri og bættum vinnubrögðum. Á öðrum sviðum sé ekki stefnt að aukningu, þannig að aukn- ing fjárfestingar í atvinnulíf- inu í heild verði 13% miðað við árin 1957—1961. 9. Stefnt sé að því, að gjald eyrisforðinn haldi áfram að vaxa til þess að treysta fjár- hagsöryggi landsins og bæta skilyrði fyrir heilbrigðri efna hagsstarfsemi. Vegna þess mikilvæga áfanga, sem náðst hefur i þessu efni á undan- förnum árum, er hins vegar ekki þörf hraðrar aukningar, og gerir þjóðhagsáætlunin því ekki ráð fyrir meiru en um 100 millj. kr. aukningu gjald- eyrisforðans á ári að meðal- tali. 10. Aflað sé erlendra lána á næstu árum að upphæð um 600 millj. kr. að meðaltali á ári. Þessi lán séu að mestu leyti til tiltölulega langs tíma, þannig að þau íþyngi ekki greiðslugetu þjóðarinnar um of, og gangi fyrst og fremst til að greiða erlendan kostn- að við þær framkvæmdir, sem í áætuninni felast.' Fylgiskjöl skýrslunnar eru fimm, eins og áður greinir. Fjalla þau um þjóðhagsáætl- un 1963—66, fjárfestingu og fjáröflun á árinu 1963, þróun Þjóðarbúskaparins 1954—62 og fjármunamyndun árin 1957—62. Öllum skjölunum fylgja ná kvæmar töflur, þar sem þró- unin á hverju einstöku sviði er sýnd. — Alþingi Framhald af bls. 8. azt verði við að setja sanngjarn- ar reglur um beitingu Verkfalls- og verkbannsréttarins og stefnt að því að minnka það tjón, sem þjóðarbúið hefur einatt orðið fyrir og yfir því hefur vofað vegna deilna um kaup og kjör. Reglur þessar verði grundvall- aðar á þeim skilningL sem aðilar vinnumarkaðarins munu al- mennt viðurkenna, að verkfalls- og verkbannsrétturinn sé neyð- arréttur og skuli aðeins beitt sem slíkum. Sýnist ekki óeðli- legt að tryggja, að þessum rétti verði beitt þannig, að fórnað sé minni hagsmunum fyrir aðra meiri, eins og gildif' almennt um neyðarrétt. Hagstofnun launþega og vnnuveitenda Þá skuli stefnt að því að setja fastari reglur um hagstofnun launiþega og vinnuveitenda. En upplýsingar þær, sem slík stofn- un gæfi, gætu haft mikil áhrif í þá átt, að til verkfalls og verk- banns þyrfti miklu sjaldnar að koma. Þá skuli settar reglur, er fyrir- byggja að þjónusta við börn og sjúklinga verði hindruð með verkfalli eða verkbanni. Settar skuli ákveðin fyrirmæli til að koma í veg fyrir eyðileggingu þegar framleiddrar vara eða framleiðslutækja af völdum verk falla og verkbanna. Tryggja skal ríflegan tíma milli kröfugerðar og verkfalls eða verkbannsboð- unar, svo að sáttaumleitanir geti farið fram með nægilegum fyrir- vara. Einnig skuli settar nánari reglur um það, á hvern hátt til slíkrar stöðvunar skuli koma inn an viðkomandi félaga og félaga- samtaka. Loks skuli nánari reglur sett- ar um félög launþega og félaga- samibönd svo og félög og félaga- sambönd vinnuveitenda. Þess verði gætt sérstaklega, að leik- reglur lýðræðisins verði ekki fyrir borð bornar og pólitísk mis- notkun útiiokuð. 25 farast í bílslysi Amman, Jordaníu, 9. apríl (NTB): Langferðabifreið með 27 manns lenti út í á einni í Suðvestur Jordaníu, sem var í örum vexti. Farþegarnir voru franskar konur í hópferð og franskur biskup, sem var fylgdarmaður þeirra. Öku- maðurinn var frá Líbanon. A8- eins tvær konur komust lífs af, en 23 konur, biskupinn og öku- maðurinn fórust í strauminum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.