Morgunblaðið - 11.04.1963, Side 20
20
MORCVNBLAÐtÐ
nnrmtudagur 11. aprll 1963
O
DUNKERLEYS
— Það veit ég vel, en öll bók-
in er eins og hann hafi spýtt
benni úr sér, engu að síður. I>ú
getur sett þig upp í háan hest,
eins og þú vilt, en meðan þú ert
!hjá mér, gerirðu svo vel að
halda þig sem lengst frá þeirri
saurugu klíku. Ég man ekki bet-
ur en náunginn hafi verið kaf
færður, strax á Oxfordárum sín-
um.
— Ojæja, sagði Alec beizk-
léga, — það er minnsta kosti
engin hætta á, að miðlungur
eins og hann sonur þinn verði
fyrir neinu siíku. Auk þess er
þetta nú lygi.
Nú kom við hjartað í sir
Daniel og hann stökk á fætur,
svo að teppið datt á gólfið. Hnén
á honum skulfu af reiði. — í tíu
ár er ég búinn að þola þér sitt
af hverju, Dillworth, og ég er
farinn að efast um, hvort það
borgi sig að hafa verið svona
meinlaus. Ég hélt, að þú hefðir
hæfileika sem bókmenntamaður.
Nú er ég efeki einu sinni viss
um það. I>ú hefur hlegið að á-
hiugamálum mínum og lífsstarfi,
á bak og brjóst. En lofðu mér
að benda þér á, að óg hef að
minnsta kosti komið þeim í
framkvæmd. Og hverjum hefur
þú komið í framkvæmd? Ekkert
annað en það að látast vera hátt
upp hafinn yfir það, sem gefur
þér að éta. í>ú þykist ofgóður til
að snerta við þessum skít mín-
um. í>ú ert rithöfundur! Jú, ætli
maður hafi ekki fengið að heyra
það. Þú ert skáld. Ju, að eigin
sögn! Og hvað hefur komið út
úr þessu tvennu á tíu árum? Fá-
ein kvæðakorn í blaðadruslum,
sem enginn les, og nú kórónar
þú það með því að skrifa í
þessa aumu blaðtusku! Ég aumka
þig! Snáfaðu burt. Farðu til þess
ara vina þinna, hvort sem þeir
heita Wilde eða Beardsley og
allra hinna, og vittu hvort þeir
fóðra þig eins vel og ég hef gert!
Alec var náhvítur í framan, en
hann lofaði hinum að ljúka ræð-
unni.. Þegar Dan hafði hlamm-
að sér aftur í stólinn, og teygði
lappirnar afkácalega að eldinum
og tifaði tánum, tók Alec teppið
og breiddi það yfir nekt hans.
— Jæja, úr því að þú ert nú
klæddur, sagði hann rólega, —
enda þótt þú sért tæpast með
öllu viti, þá ætla ég með þínu
leyfi að halda álíka ræðu yfir
þér, eins og þú ert búinn að
halda álíka ræðu yfir þér, eins
og þú ert búinn að halda yfir
mér. Þú ætlar mér að fara að
stjórna bókaútgáfu — en það er
hlutur, sem ég er algjörlega ó-
hæfur tii. Og ég afsegi það, áf
því að ég viðurkenni ekki rétt
þinn né neins annars manns til
að þvæla mér hingað og þangað,
rétt eins og mínar eigin óskir
og tilhneigingar væru alls ekki
fil. Það var nú eitt. Og svo er
hér annað. Mér hefur tekizt að
selja sö.guna hennar Hesbu Lewi-
son, af því að mér líkar vel við
stúlkuna og vildi gjarna gera
henni greiða. Þú kallar þetta að
fara bak við þig. Því svara ég
þannig, að þú ert lygari og það
vísvitandi. Þú talar með fyrir-
litningu um það, að ég skuli tjá
mig á minn eigin hátt. Nú, jæja,
ég ætla nú ekki að fara neitt að
kvarta yfir þvi, vegna þess að
þitt álit á svona hlutum er ekki
túskildings virði. Svo að við
skulum sleppa því. Þú skipar
mér að fara til manna eins og
Wilde og Beardsley. Ég hef hvor-
ugan þeirra augum litið. Ég
vildi, að ég hefði hitt þá, en ég
er bara ekki nógu mikill maður
fyrir þeirra samfélag, og aúk
þess hefur þetta velsiðaða fólk
í landinu, sem þú varst að t-ala
um, sett Wilde út fyrir garð. Þú
vonar, að þessir menn fóðri mig
eins vel og þú hefur gert. Það
gætu þeir gkki þó þeir vildu.
Þeir vaða ekki í peningum, eins
og þú. Og þeir mundu heldur
ekki vilja það. Eins og rétt er,
mundu þeir vilja láta mig fóðra
mig af eigin rammleik, enda hef-
ég gert það, alla þá stund, sem
ég hef verið við blöðin þín. Loks
ferðu að vorkenna mér. Allt í
lagi með það. Ekki skal ég fara
að taka frá þér það, sem,nauð-
synlegt er til að halda uppi
sjálfsvirðingu þinni. En þú ætt-
ir að vorkenna sjálfum þér það,
sem þú skilur ekki og hefur eng-
in skilyrði til að skilja. Þú skalt
’því eiga vorkunnina þína sjálfur.
Og þá hef ég víst lokið máli
mínu.
Hann hafði talað í tilbreyting-
arlausum tón og smámsaman
orðið rólegri meðap á ræðunni
stóð. Þegar hann var þagnaður,
varð þögn í herberginu, andar-
tak. Dan lét höfuðið síga niður
á bringu og hugsaði mál sitt,
órólegur. Ef Alec hefði látið eins
og óhemja, hefði þetta verið
auðveldara, en það þýddi ekki
að fara í neinn ofsa, eftir þessa
rólegu ræðu, sem hann hafði
hlustað á. Loksins hreyfði hann
sig órólega og sagði: — Jæja,
Alec, ef til viil hef ég misskilið
þig.
— Nei, svaraði Alec, jafn ró-
lega og áður, — hér hefur ein-
mitt enginn misskilningur verið
á ferðinni. Ekki eftir það, sem
ég hef nú sagt. Ég trúi ekki, að
það sé hægt að leggja málið
fyrir, greinilegar en ég hef gert.
Hann rétti fram höndina.
■ Vertu þá sæll, Dan!
En þá hljóp sir Daniel á fæt-
ur og aftur datt teppið á gólfið.
Láttu ekki eins og bölvaður
asni, æpti hann. — Þú veizt
ósköp vel, hvernig ég get þotið
upp og líka, hvernig ég jafna mig
aftur. Ef þú ætlar að móðgast
af hverju smáorði, sem ég segi..
Alec hafði ekkert meira að
s©gja. Hann hélt hendinni enn
fram, en Dan vildi ekki líta á
hana. — Farðu að hátta, sagði
hann. ’— Ég tala betur við þig
á morgun.
— Dan, sagði Alec. — Þú ert
alveg sérstakiega laginn á að
blekkja sjálfan þig. En gerðu
það bara ekki í þessu máli. Ég
verð ekki til viðtals á morgun.
Ég er að kveðja. Þú ættir að
fá einhvern til að taka við
,,Dunkerleys“ og vera fljótur að
því, ef febrúarblaðið á að koma
út. Þú getur sjálfsagt kært mig
fyrir samningsrof. Það skaltu
hafa eins og þú vilt.
Sir Daniel hafði þotið yfir að
nátfcborðinu. Hann leit snöggt
við þegar hann heyrði í hurð-
inni. Alec var farinn.
Jæja, lofum honum að fara.
Það var engin lest til borgarinn-
ar, og auk þess var svo kalt, að
enginn færi að fara út í þann
kulda. Alec mundi vitkast þegar
hann væri búinn að sofa þetta
úr sér. Hann gæti fundið ,eitt-
hvert ráð til að láta Izzy ekki
’koma til morgunverðar og þá
gætu þeir Alec komizt að sam-
komulagi, sem báðir gætu við
unað. Dan settist aftur, ánæ.gð-
ur við hugsunina um, að hans
eigin lagni væri venjulega ár-
angursrík. Hann hafði tekið
kolamola í tengurnar og snar-
stanzaði á leiðinni að arninum.
Það heyrðist dynkur um allt
húsið — það var framdyrahurð-
in, sem var skellt í.
aiíltvarpiö
Fímmtudagur 11. apríl
(Skírdagur)
9.00 Fréttir.
9.10 Morguntónleikar. (10.10 Veð-
urfregnir).
11.00 Messa í Elliheimilinu Grund
(Prestur: Séra Sigurbjörn Á.
Gíslason. Orgartleikari: Gúst-
af Jóhannesson).
12.15 Hádegisútvarp.
12.45 „Á frívaktinni": sjómanna-
þáttur í umsjá Sigríðar Haga-
lín.
14.00 Miðdegistónleikar.
15.30 Kaffitíminn (tónleikar).
16.30 Veðurfregnir. — Færeysk
messa (Hljóðr. í Þórshöfn).
17.00 Erindi: Ónáttúra, flókin sam-
setning og orðaleikir í drótt-
kvæðum og tízkulist Picassos
(Stefán Einarsson prófessor).
18.00 Fyrir yngstu hlustendurna
(Margrét Gunnarsdóttir og
Valborg Böðvarsdóttir).
18.20 Samson Francois leikur píanó
lög eftir Debussy.
19.00 Tilkyningar. — 19.20 Veðurfr.
19.30 Fréttir og íþróttaspj all
/ frá skíðalandsmóti á Sigiu-
firði (Sigurður Sigurðsson).
20.00 „Paganini", söngleikur í 3
þáttum, eftir Paul Knepler og
Bela Jenbach. — Tónlist eftir
Franz Lehar. Þýð. Þorsteinn
Vadimarsson.
22.00 Fréttir og veðurfregnir .
22.10 Svipast um á suðurslóðum:
I. (Séra Sigurður Einarsson).
22.25 Kvöldtónleikar.
23.35 Dagskrárlok.
Föstudagur 12. apríl
(Föstudagurinn langi)
9.00 Morguntónleikar. 10.10 Veður
regnir.
11.00 Messa í Hallgrímskirkju.
Prestur: Séra Þorsteinn
Björnsson. Organleikari: Sig
urður ísólfsson.
15.15 Miðdegistónleikar.
18.00 „Þeir gerðu garðinn frægan":
Guðmundur M. Þorláksson
talar um Matthías Jochums-
son.
18.30 Miðaftanstónleikar.
19.20 Veðurfregnir. — 19.30 Fréttir.
20.0 Erindi: Trúarbrögð og trúar-
hugmyndir í ljósi nýrra við-
horfa á 20. öld; I. — Ólíkur
hugsunarháttur aldamóta-
í manna og nútjmamanna (Guð
mundur Sveinsson skólastj).
20.30 Dr. Páll ísólfsson leikur á
orgel Dómkirkjunnnar verk
eftir gamla ítalska meistara.
20.55 í ljóði. — „Trú, von og kær-
leikur" (Þáttur í umsjá Bald
urs Pálmasonar).
— Pöntuðuð þið tveggja manna herbergi. Jæja, þá næ ég í einn
kodda til viðbótar.
21.20 Dietrich Fischer-Dieskau syng
ur andleg lög úr „Spænskri
ljóðafeók eftir Hugo Wolf.
21.40 Upplestur: „Einn af fjórum“
smásaga eftir Julio Baghy
(Hulda Runólfsdóttir).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Kvöldtónleikar.
23.10 Dagskrárlok.
Laugardagur 13.
8.00 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 Óskalög sjúklinga (Ragnheið-
ur Ásta Pétursdóttir).
14.40 Vikan framundan: Kynning
á dagskrárefni útvarpsins.
15.00 Fréttir. — Laugardagslögin.
16.30 Veðurfregnir. — Danskennsla
(Heiðar Ástvaldsson).
17.00 Fréttir. — Æskulýðstónleikar
kynntir af dr. Hallgrími
Helgasyni.
18.00 Útvarpssaga barnanna: „Börn
in í Fögruhlíð" eftir Halvor
Floden; VIII. (Sigurður Gunn
arsson).
18.30 Tómstundaþáttur barna og
unglinga (Jón Pálsson).
19.00 Tilkynningar. — 19.20 Veður-
fregnir. — 19.30 Fréttir og
íþróttaspjall frá skíðalands-
móti á Siglufirði.
20.00 Leikrit: „Liliom" eftir Ferenc
Molnar. Þýðandi: Ragnar E.
Kvaran. — Leikstjóri: Bald-
vin Halldórsson.
22.10 Lestri Passíusálma lýkur (50).
Lesari: Séra Bjarni Sigurðs-
son.
22.20 Skemmtiþáttur í umsjá Haf
steins Hannnessonar.
22.55 Frá kvöldskemmtun í Há-
skólabíói 5. þ.m. Delta Rythm
Boys. Kynnir: Jón Múli Árna
son.
23.30 Dagskrárlok.
Sannudagur 14. apríl
(Fáskadagur)
8.00 Messa í Dómkirkjunni (Prest
ur: Séra Óskar J. Þorláksson.
Organleikari: Páll ísólfsson.
9.15 Morgunhugleiðing um músík:
„Johann Sebastian Bach, líf
hans og list“ eftir Nikolas
Forkel; VI (Árni Kristjáns-
son).
9.40 Morguntónleikar.
11.00 Messa í hátíðasal Sjómanna-
skólans (Prestur: Séra Jón
Þorvarðsson. Organleikari:
Gunnar Sigurgeirsson).
12.15 Hádegisútvarp.
13.10 Dagskrá um Biblíuna. —
Kristilegt stúdentafélag hefir
séð um undirbúning dagskrár
innar.
14.10 Miðdegistónleikar: Frá auka-
tónleikum Sinfóníuhlj ómsveit
KALLI KUREKI
* -
Teiknari: Fred Harman
'ÆIU L00kRI6tiTS,WT
!W MVCLOTHeS/ WHEM
■TH'SHEEIFF COMES IW '
SI&HT, you WALK OUT
AW'TALk TO HIM'
YOU FISöRE HE’LL
| THIMKI’M YOU?
1 WHAT’LL THAT
&ET YOU ?
PULLTH WECkEECHIEFOVEE YOUR FACE
LlkE I DID IM TH’EOBBEEY' HE’S EXPECTIN’
T’SEE ME.-’ HE WON’T BE LOOklKl’FOE A
SHOT FROM TH’ SlDE' I’LL BUSHWHACk
HIM WITHOUT NO RlSk'
Y0U AIW’T G-OTMUCH CHOICE.
NOW BUCkLEON THAT EMPTY
6-UW' I WON’TTELLYOU A6AIW
— Fötin mín fara þér bara alveg
prýðilega. Þegar lögreglustjórinn
kemur ferð þú og talar við hann.
— Þú heldur að hann taki mig
i fyrir þig. Hvað gagnar það þig?
— Settu klútinn fyrir andlitið á
þér eins og ég gerði 1 ráninu. Hann
býst við að sjá mig, og á ekki von
á að verða skotinn niður aftan frá.
Ég get lagt hann af velli fyrirhafnar-
laust.
— Ég á þá að vera tálbeita.
— Þú hefur ekki um margt
velja. Settu nú á þig þetta belti.
segi þér það ekki oftar.
að
Ég
ar íslands í Háskólabíói 23.
febrúar s.l.
16.30 Veðurfregnir. — Endurtekið
efni: Sagan af dátanum eft-
ir Igor Stravinsky.
17.40 Barnatími: (Skeggi Ásbjam-
arson) a) Börn úr Hlíðaskóla
í Reykjavík syngja og lesa
upp. Stjórnandi: Guðrún Þor
steinsdóttir. b) Leikrit:
„Skessan í Útey“ eftir Ólöfu
D. Árnadóttur. Leikstjóri
Klemenz Jónsson.
18.50 Miðaftantónleikar.
19.20 Veðurfregnir.
19.30 Fréttir og íþróttaspjall ftá
skíðalandsmótið á Siglufirði.
20.00 „Messias" eftir Q.F. HándeL
Kórinn „Filharmönia" og Siu
fóníuhljómsveit íslands
flytja. Stjórnandi: Dr.í Rób-
ert A. Ottósson.
Mánudagur 15. april
(Annar páskadagur)
8.30 Létt morgunlög.
9.10 Morguntónleikar: Músik úr
borgum og hirðsölum Evrópu
á 18. öld.
11.00 Messa í Hallgrímskirkju.
(Prestur: Séra Sigurjón
Árnason. Organleikari: Páll
Halldórsson).
12.15 Hádegisútvarp.
13.15 íslenzk tunga; VT. erindi: ís-
lenzkt mál að fornu og nýju;
II. (Dr. Hreinn Benedikts-
son).
14.00 Miðdegistónleikar.
15.30 Kaffitíminn.
16.30 Veðurfregnir. — Endurtekið
efni: Leikrit: „Mömmudreng-
ur“ eftir Harold Pinter. —
Leikstjóri: Gunnar Eyjólfs-
son. (Áður útvarpað 27. jan.
1962). V
17.30 Barnatími; efni frá fyrri ár-
um.
18.30 „Fífilbrekka gróin grund“;
gömlu lögin sungin og leikin.
20.00 Smásaga „Mixtura Cham-
phorata" eftir Rósberg G.
Snædal (Höfundur les).
20.15 Gamlar gamanvísur: Soffía
Karlsdóttir og Árni Tryggva-
son syngja með hljómsveit
Bjarna Böðvarssonar.
21.50 Spurninga- og skemmtiþátt-
ur Svavars Gests.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Danslög, þ.á.m. hljómsveit
Renalds Brauners — og
hljósveit Magnúsar Péturs-
sonar og Haukur Morthens
leika og syngja íslenzk dans-
lög.
02.00 Dagskrárlok.
Þriðjudagur 16. apríl
8.00 Morgunútvarp
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 „Við vinnuna": Tónleikar.
14.40 ,Við, ,sem heima sitjum: (Sig-
ríður Thorlacius).
15.00 Síðdegisútvarp.
18.00 Tónlistartimi bamanna (Jón
G. Þórarinsson).
18.30 Þingfréttir.
19.20 Veðurfregnir.
19.30 Fréttir.
20.00 Einsöngur í útvarpssla: Olaf-
ur Þ. Jónsson syngur. Við
píanóið: Árni Kristj ánsson.
20.20 Þriðjudagsleikritið „Ofurefli"
eftir Einar H. Kvaran; II.
kafli.
21.00 Pólskir listamenn leika fjör-
leg pólsk lög.
21.15 Erindi: Þrælahald og hvíldar
dagar til foma; fyrri hluti
(Hendrik Ottósson).
21.40 Tónlistin rekur sögu sína;
XII: í blóma (Þorkell Sigur
björnsson).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Lögn unga fólksins (Bergur
Guðnason).
23.00Dagskrárlok.