Morgunblaðið - 19.05.1963, Page 1
II
48 síönr (I og II)
ef fylgt yrði stefnu kommúnista og Framsóknarmanna
MBL. BIRTIR hér mynd af
'biðröð frá hafta- og skömmt-
unartímabilinu. Slíkar biðrað
ir fylgja ávallt í kjölfar haft-
ann. Ef ný „vinstri" stjórn
verður mynduð, þá munu
skömmtunarseðlar og biðrað-
ir koma í stað vöruvalsins
og vörugæðanna. Verðbólgan
mun á ný ógna launum fólks
og verðgildi íslenzks gjald-
eyris í erlendum bönkum. Þá
mun tími valdboða, banha og
náðarsamlegra leyfa renna
upp á ný. Þá verða það stjórn
arherrarnir og skrifstofustjór-
arnir, sem skammta borgar-
anum úr hnefa.
Viðreisnin hefur fært ís-
lendingum meiri velmegun,
en áður hefur þekkst í sögu
þjóðarinnar. Viðreisnin hefur
jafnframt, um leið og efna-
hagur landsins var reistur úr
rústum eftir „vinstri“ stjórn-
ína, lagt grundvöllinn að á-
framhaldandi og hraðari
framförum til þess nútíma-
þjóðfélags, sem skapar þegn-
um sínum FRELSI, ÖRYGGI
og FRAMFARIR.
Stjórnarandstæðingar hafa
hinsvegar barizt hatramm-
lega gegn viðreisninni og leit-
azt við að rífa niður, það
sem upp hefur verið byggt.
í stað frelsis og framfara boða
þeir haftastefnuna, þá stefnu
„vinstri“ stjórnarinnar, sem
leiddi þjóðina að hrún hengi-
flugs verðbólgu og gjaldþrots.
Framsóknarmenn og komm
únistar munu taka stefnu
hafta og ófrelsis upp á ný,
ef þeim endast atkvæði til
þingmeirihluta. Sú stjórn
þeirra mun óhjákvæmilega
leiða á ný til sama öngþveitis
og verðbólgu og áður, þegar
stefna þeirra hefur verið ráð-
andi. Haftastefna þeirra mun
leiða af sér ófrelsi og skömmt
un á neyzluvörum. Vöru-
skorturinn, sem leiða mun af
stefnu þeirra og höftum, ger-
Ir það óumflýjanlegt.
Nú er valið milli ófrelsis,
hafta og skömmtunar eða
uppbyggingar og framfara
viðreisnarinnar. Hvernig
verða lífskjörin á íslandi og
möguleikar til nútímalifnaðar
hátta, ef snúið verður við á
braut viðreisnarinnar aftur til
baftanna og ófrelsis. Þetta er
spurning, sem hver einn ís-
lendingur ætti að hugleiða
þcnnan mánuð.
Valið er milli viðreisnar og
velmegunar eða hafta og
skömmtunarhúskapar stjórn-
arandstæðinga, sem snúa mun
við allri framþróun til kyrr-
stööu, skorts og ófrelsis.
Myndin var tekin af biðröð, er verzlun Egils Jacobsen opnaði á ný