Morgunblaðið - 19.05.1963, Side 6

Morgunblaðið - 19.05.1963, Side 6
6 M O R C V /V B L 4 Ð 1 Ð Sunnudagur 19. maí 1963 Sr. Benjamin Kristjánsson: Andinn frá Worms Hverju hvíslaði Óðinn í eyra Baldri? VORTlZK AN 1963 VOR ■’r. & * - GEFJIM KIRKJUSTRÆTI ÞAÐ er leiðinlegt að þuría að leiðrétta sama mann oftar en einu sinni. Þó verður stundum ekki hjá því komizt til glöggv- unar á réttu máli. í Mbl. nýlega hefst Sigurður A. Magnússon handa um að leggja út af sleggju dómum sínum í trúmálum, og verður sú útlegging sem vænta má því verri sem orð hans eru fleiri. Ég sé eftir pappírnum, sem í þetta fer. Reyndar þarf ekki að eyða mörgum orðum að þessu skvaldri hans, því að það er ekki annað en útmálun á sömu fjarstæðum, sem áður var búið að hrekja. En ef það mætti verða einhverjum til skilnings- auka á andlegum málum, má fullvel nota S. A. M. sem dæmi- gerðan fulltrúa guðfræðilegs aft- urhalds og hleypidóma, sem heldur virðist fara vaxandi í landinu, eins og oft á sér stað á efnishygg.jutímum. Hugsunarvilla númer 1. Sú er hans fyrsta hugsunar- villa (og koma margar á eftir), að hann telur sig engan áhuga hafa fyrir að troða skoðunum sínum upp á mig eða aðra. Þetta stenzt ekki. Ef svo væri, færi hann ekki að stökkva með þessa fávizku sína í blöð, heldur geymdi hana þar sem betur hæfði í fylgsnum sálar sinnar. Auðvitað ætlast hann til, að mark verði á sér tekið, en ekki litið á orð hans eins og ábyrgð- arlaust gaspur. Gæta verður hann líka þess, að það voru ekki aðeins skoðanir, sem hann lét í Ijós. Hann bar fram ósvífnar og ástæðulausar sakir á hendur íslenzkri prestastétt og krafðist þess, að prestar yrðu sviptir hempunni. Sjálfur kveinkar hann sér undan, að þessum firr- um skuli hafa verið svarað. Hann virðist ímynda sér, að sjálf ur eigi hann einkarétt á að ganga forugum fótum yfir em- bættisheiður íslenzkra presta, en þeir mega helzt ekki opna sinn munn, til að bera af sér óhráð- urinn. Og þegar honum er sýnt fram á, að ásakanir hans eru byggðar á einskærri vanþekk- ingu, hefur hann ekki mannrænu til að biðjast hreinlega afsökun- ar, heldur gerir hlut sinn enn verri með málrófi, sem engin heil brú er í. Sjálfs sín vegna geta íslenzkir prestar svo sem látið þennan -ógburð eins og vind um eyrun þjóta, en það er ekki hægt málefnisins vegna. Þegar Sókrates og Jesús voru ákærðir fyrir að afvegaleiða lýð- inn svöruðu þeir fyrir sig. Ákær- endur, sem á ýmsum tímum hafa hamast gegn víðsýni í andleg- um efnum, hafa sjaldan fengið gott eftirmæli. Klassískt dæmi um það er dómur sá um Faríse- ana, sem ég benti S. A. M. á í fyrri grein minni, í von um að verða mætti honum til viðvör- unar. Er bókstafurinn form? Eins og sýnt hefur verið fram á hér á undan, skilur S. A. M. ekki sjáifan sig, og er þá ekki þess að vænta, að honum sé það gefið að þekkja leyndardóma guðsríkis. Er það nánast sagt spaugilegt að heyra slíka menn tala um hugtakarugling, sem hvorki skilja sjálfa sig eða aðra. Virðast þeir helzt halda, að þetta sé eitthvert handhægt töfraorð, sem nota megi til að breiða yfir fátæklegan málflutn- ing, þegar röksemdir þrýtur. S. A. M. kallar það hugtakarugl- ing, að Jesús, Páll og Lúther hafi barizt gegn bókstafsþrældómi, því að þeir hafi aðeins barizt gegn gömlum trúarformum, ekki gegn inntaki trúarinnar. Er þá bókstafurinn bara form, er hon- um ekki ætlað að fela í sér ein- hverja hugsun? Annars eru það nýjar trúarlegar upplýsingar, að Kristur hafi gert sér tíðara um form en efni trúarkenninganna. En hvað sem því líður: Bókstaf- urinn getur orðið að eintómu formi, þegar menn eru hættir að skilja hann, eða hann er ekki framar samrýmanlegur þekkingu tímans. Þá er þörf á nýjum spá- manni til að blása lífi í bókstaf- inn. Jesús var slíkur spámaður. Hann vakti dýpri skilning á ýms- um trúarhugtökum <Jyðinga. Enginn neitar því, að ýmsar kenningar kristindómsins eiga rót sína í gyðingdómi. Þó var kenning Jesú svo ný, að Faríse- arnir viðurkenndu hana ekki og dæmdu hann dauðasekan villu- trúarmann. Þeir voru bókstafs- þrælar. Þegar kaþólskir menn telja mótmælendur vera villutrúar- menn, sem ekki trúa í dag eins og menn gerðu á siðaskiptaöld, þá er það sams konar bókstafs- þrældómur. Þetta fólk gætir ekki þess, að sömu orð og at- burði er hægt að skilja á ólíkan hátt. Ef til vill skilja engir menn nokkurn hlut alveg eins. Víst er um það, að þúsundir guðfræðinga hafa á liðnum öld- um skilið orð Jesú og ævistarf sinn með hverju móti, og hvernig er þá hægt að tala um játning- arnar sem kenningargrundvöll, sem allar kirkjudeildir hafi á öllum öldum sameinast um? Meira að segja trúarjátningarn- ar eru sprottnar upp úr áköfum deilum guðfræðinga, og fer því fjarri, að þær geti skoðast vera hið síðasta orð um þessi efni: Eru t. d. sumar þeirra komnar úr kaþólsku, og játa lútherskir menn með þeim trú sína á „kaþólska kirkju“! Lúther vildi breyta þessu 1 „kristilega kirkju“, en vaninn varð skyn- þykir sumum það nauðsynlegt I seminni yfirsterkari. Á sama hátt dag að kenna kirkjuna frekar við Lúther en meistarann sjálf- an, sem er hneyksli út af fyrir sig. En hér er það sljór og hugs- unarlaus vaninn en ekkert ann- að sem ræður. Þetta gerði þó í rauninni ekki svo mikið til, ef ekki fylgdi sú fásinna, að frem- ur bæri að fylgja Lúther en Kristi. Andinn frá Worms Lúther var án efa ágætur mað ur á sinni tíð og mest fyrir það, að hann hafði andlegan dug til að hugsa fyrir sjálfan sig. Hann sagði meðal annars: „Það er bæði erfitt, skaðsamlegt og háskasam- legt, að breyta gegn samvizkunn ar röddn.“ Þessi hugsunarháttur er það, sem kallað hefur verið andinn frá Worms, og við þetta var átt, þegar íslenzkum prest- um var boðið að kenna í „anda vorrar evangelisku lúthersku kirkju.“ Merkilegt er það, að menn, sem þykjast vera lúthersk ir umfram allt, skuli ekkert kannast við þennan anda, en telja hann muni gera þjóðkirkju vora að undri. S.A.M. þykir það firn mikil, ef prestar heita því einu að kenna kristindóminn eins og skilningur þeirra, vit og samvizka býður þeim. En þetta er einmitt sú hreinlútherska stefna. Án efa hefði Lúther litið öðru vísi á marga hluti nú en hann gerði á sinni tíð. En þá fylgdi hann fram því, er hann hélt vera rétt og gat ekki ann- að. Enn í dag getur enginn mað- ur gert betur en fylgja þvi, er hann veit sannast. Það væri í fyrsta lagi óheiðariegt og í öðru lagi gagnslaust að fara öðru vísi að. Lifandi trú verður aldrei til nema fyrir persónulega reynslu. Það væri andlegur dauði að vera að þylja fram kenningar, sem menn hefðu enga sannfæringu fyrir. Þá fyrst væru prestar orðnir atvinnutrúmenn. Meinlokan mikla Að guð hafi opinberað sann- leikann með einstæðum hætti í eitt skipti fyrir öll, er ekkert annað en guðfræðileg meinloka, sem furðulegt er að nokkur menntaður maður skuli geta lát- izt trúa á þessari öld. Einmitt þegar bent er á, að ýmis trúar- brögð önnur en kristindómur- inn gera kröfu til að vera talin hin fullkomnasta opinberun, þá er ályktunin auðveld: Ekki geta öll haft rétt fyrir sér, öllum kann að skjátlast. Réttara mundi vera að kalla þau „tilraunir með sannleikann,“ eins og Gandhi nefndi sjálfsævisögu sína. I sínu dæmalausa skrifi um ís- lenzka presta segir S.A.M. að þeir séu ekki fyrst og fremst þjónar fólksins eða rikisins, held ur þess sannleiks, sem kirkj- unni hefur verið trúað fyrir kyn slóð fram af kynslóð. Hvers kon- ar sannleikur er það, sem eng- um þjónar, eða enginn vill heyra? Höfundurinn liggur ekki á því: Það eru kreddur þær, sem Danakonungar tróðu upp á ís- lendinga fyrir fjórum öldum. Hvernig urðu þær kreddur til? Þær voru settar saman af mönn- um, sem engin ástæða er til að halda að hafi verið á nokkurn hátt vitrari en menn gerast nú, en margfalt fáfróðarL En segjum nú svo, að sannleik urinn í sáluhjálparefnum hefði verið opinberaður í eitt skipti fyrir öll og höggvinn á stein, mundu menn samt sem áður ekki halda áfram að skilja hann með frábrigðilegu móti, allt eftir vits munum sínum? Hafa ekki orð Krists verið túlkuð á ýmsan veg? Jafnvel þó að Guð almátt- ugur hvíslaði sannleika sínum í eyra S.A.M. hefi ég enga trú á, að hann mundi skilja hann, því að til þess þyrfti hann hvorki meira né minna en skilning Guðs almáttugs. Það var af þess- ari ástæðu, sem enginn vissi nokkru sinni, hvað Óðinn mælti í eyra Baldri. Nú hyggur S.A.M. sig vita meira en aðrir um þessi efni og vandinn sé ekki annað en þylja skilningslaust kreddur miðaldaguðfræðinga. Slíkur naglaskapur yfirgengur allan annan, og getur ekki byggzt á neinu öðru en hreinni vanþekk- ingu. Hinn sanni kristinðómnr Hvernig er þá þessi játninga- kristindómur, sem S.A.M. telur eiga að vera hinn eina kristin- dóm, sem leyfast skuli í Iandi voru? Hér verður aðeins drepið á fátt eitt til að bregða birtu yfir trúarlíf þessa trúvilludóm- ara. Því var trúað, að Jesús hefði verið einkasonur Guðs í þeim skilningi, að hann hefði engan jarðneskan föður átt; hann hafi risið í jarðneskum líkama úr gröf sinni og farið þannig upp til himna og sitji þar við hægri hönd Guðs almáttugs og muni þaðan koma að dæma lifendur og dauða. Vel væri nú hægt að skilja sumt af þessu á táknlegan hátt, en upprunalega var allt þetta skilið bókstaflega og mundu trúmenn slíkir sem S.A. M. telja það sáluhjálparatriði að trúa þannig. í samræmi við þetta trúðu menn einnig á upp- risu holdsins á efsta degi, þegar rétttrúaðir menn einir yrðu hólpnir, en heiðingjar og villu- trúarmenn, einkum endurskír- endur og hvítvoðungar, sem ekki náðu skím, yrðu sendir til hel- vítis og látnir brenna þar um alla eilífð á glóandi eldi. Sá meistari, sem brýndi það fyrir mönnum að elska óvini sína og biðja fyrir þeim, er í Ágsborgarjátningu gerður að grimmlyndum heimsdómara, sem stendur fyrir steikingu ung- barna og hræðilegri misþyrming alls þorra mannkyns í eilífri út- skúfun. Þó að S.A.M. sé þetta vel að skapi og geti ekki hugsað sér ánægjulegri kristindóm handa íslendingum, þá segi ég það fyrir mitt leyti, að mér finnst drottinn kristinna manna lítt vera vegsamaður með svo ofboðslegum getsökum, enda heyrast þær nú sem betur fer sjaldan í íslenzkri kirkju. Fyrir mörgum árum kallaði eitt bezta sálmaskáld og velgerðarmaður íslenzkrar kirkju þetta: kenn- inguna ljótu. Hann fékk að vísu biskupsáminning, en seinna gerði Háskóli íslands þennan prest að heiðursdoktor í guð- fræði, og þá ákvörðun studdi þjóðin heils hugar. Það er von mín, að aldrei verði svo dimmt í salarkynnum þessarar æðstu menntastofnunar íslands, að hún sæmi nokkurn mann doktorsbót, sem trúir á eldinn og brenni- steininn og gerir Gúð að kval- ara mannanna. Einkasonurinn og upprisa holdsins Hvað yrði nú um öll rétt- trúuðu „guðsbörnin“, ef Guð hefði aldrei annað barn átt en Jesú? Sjálfur talaði Jesús um Guðs syni, sem með sér mundu öðlast hlutdeild í upprisunni, og Páll talaði um Jesús sem frum- burð meðal margra bræðra. Af þessu sést, að ekki er unnt að líta á Jesú eins og gert er í játn- ingunum. Hann gerði enga kröfu til þess sjálfur. 1 orðinu felst upprunalega heldur ekki annað en Messíasarhugmyndin: hinn útvaldi konungur, sem smurður var anda og krafti drottins og er í innilegu sambandi við hann. Þar sem játningarnar urðu til á löngum tíma gætir þar bæði frábrigðilegs orðalags og við- bóta, sem smám saman hefur verið skotið inn í textann. Menn sem standa á líku þekkingarstigi og S.A.M. gera sér aldrei grein fyrir því, að misjafn skilningur kemur fram í ýmsum gerðum kreddunnar, og hver þeirra á þá að teljast réttur ,eða teljast allir réttir, þó ólíkir séu? Nikeu-játn- ingin talar aðeins um „upprisu dauðra“ og Aþanasíusar-játning- in um „upprisu líkamans'*. Er þetta sennilega sömu merkingar og þarna farið eftir skilningi Páls, sem ávallt hélt því fram, að hold og blóð geti ekki erft guðsríki. Þetta var í fullu sam- ræmi við reynslu Páls, sem gerði sér grein fyrir því, að hann hefði einungis séð Krist í sýn, og kall- aði hinn upprisna Jesú: andann. Seinna kom upp í kristninni sú skoðun í samræmi við upprisu- hugmyndir Farisea, að Jesús Framhald á bls. 19.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.