Morgunblaðið - 19.05.1963, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 19.05.1963, Qupperneq 15
Sunnudagur 19. maí 1963 MORCVISBL4Ð1Ð 15 Höfuðstaður Breíða- fiarðar fyrr og nú I>AÐ mun hafa verið um árið >1600 sem Stykkishólms er fyrst .getið sem verzlunarstaðar, og á næstu árum mun verzlun hafa aukizt að miklum mun, og er þá á sautjándu öld mesti verzlunar- staður við Breiðafjörð. Jafn- framt verzluninni hófst nokkur útgerð til fiskveiða frá Stykkis- thólrni, þótt ekki væri í stórum . stíl til þess að byrja með, en semsagt fyrstu sagnir um nokk- urn útveg í Stykkishólmi eru í sarobandi við danska kaupmann- inn Diðrik Hölter, sem rak verzl- un og útgerð í Hólminum eftir •1780 eða þar í kring. >á koma til sögunnar Jón kaupmaður Kol- Ibeinsson og Pétur sonur hans, sem ráku verzlun og útgerð í IHólminum um nokkurt skeið. INæsti athafnamaður er svo Ól- afur Thorlacius kaupmaður, sem Ikaupir Hölters verzlun og rekur Ihana til dauðadags. Allir þessir ikaupmenn ráku nokkra útgerð ésamt verzlunum sínum, enda iþótt í smáum stíl væri, hefur þó þessi atvinnurekstur orðið til þess að bæta lífskjör Hólmara Iþeirra tíma. Um þilskipaútgerð úr Hólminum, sem nokkru nem- ur er ekki að ræða, fyrr en breið firzki höfðinginn Árni Thorlaci- us kaupmaður kemur til sög- unnar. Þessi fjölhæfi heiðurs- maður hafði mikla útgerð í Stykkishólmi eftir þeirra tíma mælikvarða, eða fjögur þilskip samtímis, og mun þessi mikla út- gerð hafa stuðlað að talsverðri velmegun fólks í Hólminum á þeim tíma. Árna verður því ávallt minnzt með virðingu og sem brautryðjanda bættra lífs- kjara og aukinnar menningar í Stykkishólmi. Næstu útgerðarmenn £ Hólm- inum eru svo Níels Christían Gram og Bjarni skipstjóri Jó- hannsson, sem tekur við af Gram og gerir út þrjú þilskip á tímabili, en því miður alltof stutt an tíma því Bjarni skipstjóri dó á 47. aldursári. Ýmsir aðrir ráku nokkra úgerð í Stykkishólmi, svo sem Hjálmar Sigurðsson, Arni Imundar frá Narfeyri vegna P. Jónsson, Jón Guðmundsson og fleiri, en munu hafa staðið í stuttan tíma. >á kem ég að þeim manninum sem mestur athafnamaður hefur verið í Stykkishólmi bæði fyrr og síðar, sem er heiðursmaðurinn Sæmundur Halldórsson kaup- maður í Stykkishólmi, gerði hann út 5 þilfarsskip samtímis, og rak um leið eina hina um- fangsmestu verzlun sem rekin hefur verið við Breiðafjörð. >að voru einmitt menn eins og Sæm- undur í Stykkishólmi, sem settu svip á landið með brautryðjanda starfi sínu í verzlunar- og út- gerðarmálum þeirra tíma. Ég hefi nú með nokkrum orð- um rakið þróunarsögu útgerðar- mála fyrri tíma í Stykkishólmi, og kem þá næst að hinum lands- kunna leiðtoga breiðfirzkrar al- þýðu, heiðursmanninum Guð- mundi Jónssyni frá Narfeyri, sem vann talsvert að útgerðar- málum, meðal annars stjórnaði 'hann útgerð i sambandi við Kaupfélag verkamanna í Stykkis hólmi. >á hafði hann forgöngu um Samvinnuútgerð Stykkis- hólms, sem á krepputímum varð til þess að efla og auka atvinnu sem ekki var vanþörf á, því erf- iðir tímar voru í Stykkishólmi eins og víðar á landinu á tíma- bilinu 1930—40. Alþýða þessa lands mun lengi minnast Guð- brautryðjandastarfs hans, ekki einungis í útgerðarmálum heldur og fyrir baráttu hans fyrir auk- inni menningu og bættum lífs- kjörum íslenzkrar alþýðu. Nokkur útgerð í sambandi við fólks- og vöruflutninga hefur verið og er rekin úr Stykkis- hólmi, má í því sambandi nefna Tang & Rús sem gerði út tvö skip vegna þessarar starfsemi, Breiðafjarðar Svanur, sem flutti fólk og vörur um Breiðafjörð um lengri tíma, ennfremur Baldur Guðmundar Jónssonar frá Narf- eyri sem annazt hefur fólks- og vöruflutninga um Breiðafjörð svo áratugum skiptir og er ennþá í fullum gangi undir stjórn Lár- usar Guðmundssonar skipstjóra. Tvö togarafélög hafa starfað í Stykkishólmi, Búðanes hf og Þórólfur Mostrarskegg hf. Tog- arar þessara félaga sem báðir voru keyptir gamlir og með lé- legar vélar, reyndust illa og urðu til lítillar upphyggingar atvinnu- lífi í Stykkishóimi- Hins vegar má benda á, að Stykkishólmur er vel í sveit settur hvað snertir aðstöðu til togaraútgerðar, og myndi slík útgerð með góðu skipi verða mikil lyftistöng at- vinnulífinu og efla og auka efna lega, andlega auðlegð Hólmara í ríkum mæli. Síðastliðna þrjá áratugi hefur hinn landskunni athafnamaður Sigurður alþingismaður Ágústs- son starfað að útgerðar- og verzlunarmálum meira og minna og verið annar og stundum jafn- vel sá eini aðalatvinnurekandinn í Stykkishólmi. Eins og að líkum lætur hefur Sigurður Ágústsson •átt við ýmsa örðugleika að etja í sambandi við útgerð sína, enda var svo komið málum ekki sízt á meðan Framsóknarflokkurinn fór með völd, að stórtap var á allri útgerð og útgerðarmenn flestir á heljarþröm. Það var því ekki eftirsóknarvert oft og tíðum að vinna að útgerðarmálum gegn skilningsleysi Framsóknar- valdhafanna og annarri óáran sem Framsóknarmönnum fylgdi bæði fyrr og síðar. Að síðustu mætti nefna Kaup- félag Stykkishólms, sem rekið hefur allmikla verzlun og haft forgöngu um nokkra útgerð sér- staklega hin síðari árin, enda hafa þessi tvö aðalfyrirtæki í Hólminum, Sigurður Ágústsson og kaupfélagið, góða aðstöðu til vinnslu fiskafurðanna, þar sem bæði fyrirtækin reka myndarleg hraðfrystihús ásamt fiskimjöls- verksmiðju. Fyrrnefnd verksmiðja er að sjálfsögðu um leið síldarmjöls- verksmiðja, og er nú mjög að- kallandi að verksmiðja þessi verði stækkuð allverulega, vegna hinna miklu síldveiða á breið- Framhald á bls. 22. 13 R1D Ca E S T O N EF,á japan MEST SELDI) HJÓL BARÐAR Á ÍSLANDI AÐRIR ÚTSÖLUSTAÐIR: Söluumboð Reykjavík: GÚMBARÐINN Brautarholti 8, sími 17984. Söluumboð Akureyri: BRIDGESTONEUMBOÐIÐ. llafnarstræti 19, sími 1485. Kaupfélag Suður-Borgfirðinga, Akranesi. Hjalti Benónýsson, Akranesi. Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi. Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. Kaupfélag Borgnesinga, Borgarnesi. Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki Kristján Imsland, Hornafirði. Verzlunin Skemman, Ólafsvík. Vélsmiðjan Neisti, Siglufirði. Kaupfélag Vestur-Skaftfellinga, Vík Mýrdal. Kaupfélag Króksfjarðar, Króksfjarð- arnesi. Verzlunarfél. Austuriands, Egilsstöðum. Kaupfélagið Þór, Hellu. Vélsmiðjan Logi, Patreksfirði. Verzlun Björns Bjarnasonar, 1 Kaupfélag Vestntannaeyja, Neskaupstað V estmannaey jum. Kjartan R. Guðmundsson, ísafirði. Verzlun Elíasar Guðnasonar, Eskifiði. Kaupfélag Suðurnesja, Keflavík. Kaupfélag Steingrímsfjarðar, Hólmavík. Verzlunin Framsókn, Reyðarfirði. Jón Guðmundsson, Hafnarfirði. Einkaumboð á íslandi UMBOÐS* & HEILDVERZLUN Reykjavíx

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.