Morgunblaðið - 19.05.1963, Side 19

Morgunblaðið - 19.05.1963, Side 19
Sunnudagur 19. maí 1963 MORCVNBLAÐIB 19 — Sr. Benjamín Framh. af bls. 6. hefði risið upp í jarðneskum líkama og farið þannig til him- ins. Sagan um tómu gröfina á að styðja þessa hugmynd og sagan um, að Jesús hafi látið læri- sveina sína þreifa á naglaförun- um í lófum sér, neytt máltíðar með þeim og svo framvegis. Þessar sagnir eru þó bæði rugl- ingslegar og mótsagnakenndar, þar sem jafnframt er frá því skýrt, að Jesús hafi gengið inn um læstar dyr, birzt þeim og horfið skyndilega. En það er í samræmi við þessa seinni hug- mynd, sem „postullega“ trúar- játningin tók upp orðalagið: upprisa holdsins. Það er efalaust þessi síðari hugmynd, sem S.A.M. trúir, svo illa sem honum er við andana, og er það hin einstæða sérkristi- lega kenning, sem hann. telur að ekki megi víkja frá. En gallinn á henni er bara sá, að enginn nútímamaður, sem nokkuð hugs- ar, getur trúað henni. Það jarð- neska Messíasarríki, sem menn héldu að væri að hefjast, þegar þessar hugmyndir urðu til, kom ekki. Jesús kom heldur ekki í skýjum himinsins með tíu þús- undum engla næstu daga eins og haldið var. Hvað getur maður þá hugsað sér að yrði um hinn jarðneska líkama hans? Trúar- játningin segir, að hann stigi Upp til himins. Svona gátu menn trúað fyrir þúsundum ára, þeg- ar menn héldu að himinninn væri bara nokkur hundruð faðma fyrir ofan jörðina. En ef menn tryðu nú á slíkt efnislegt himnaríki, yrði að leita þess mörg ljósár úti í geimnum. Mundi nokkur jarðneskur lík- ami þola slíkt ferðalag óvarinn fyrir frosti og bruna, matarlaus og súrefnislaus, f heljarauðnum Ginnungagaps? Og þó að bjarga ætti málinu við með því að líta á þetta sem eitthvert stórkost- legt kraftaverk, sem enginn skildi, þá sýndist það vera á- stæðulaust kraftaverk. Kenning Páls um dýrðarlíkamann er miklu aðgengilegri. Hver mundi kæra sig um, sem sálaðist gam- all og hrumur, að ganga þannig aftur? Römmustu draugasögur vorar segja að vísu frá slíkum afturgöngum, en fáir nú til dags nema þá S.A.M. mundu byggja vonir sínar um framlíf á slíkum hugmyndum. Forfeður vorir trúðu því, að jafnvel goðin köst- uðu ellibelg öðru hverju. Og í Heilagri ritningu eru Guði lögð þessi orð í munn: Sjá, ég geri alla hluti nýja! Newton og eplið Til er saga um það, að eitt sinn er Isaac Newton sá epli detta til jarðar hafi honum í einu vetfangi orðið það ljóst, að hér væri sami kraftur að verki og sá, sem héldi himintunglun- um á braut sinni. í framhaldi af þessari athugun, kom hann síð- ar fram með kenningu sína um þyngdarlögmálið, sem hann varð heimsfrægur fyrir. Þannig hafa vísindaleg afrek verið unnin af mönnum, sem skynjað hafa sam hengið í tilverunni og skilja, að samband kann að vera milli fyr- irbrigða, sem í fljótu bragði kunna að virðast óskyld. Hin minnstu fyrirbæri geta bent til stórra staðreynda. f fyrstu útgáf- unni af Encyclopædia Britannica var t. d. fullyrt,, að rafmagn mundi aldrei geta komið að nokkru raunhæfu gagni. Það gæti aldrei orðið notað til ann- ars en loddarabragða til gam- ans. Þessi fullyrðing hljómar einkennilega í eyrum nú. En engu viturlegri eru fullyrð ingar þeirra, sem skella skoll- eyrunum við rannsókn svokall- aðra „dularfullra fyrirbrigða", af því að þau falla ekki inn í þá heimsmynd, sem náttúruvísiíid- in hafa gert sér um hríð, og telja þau bábilju eina. Miklu nær hinu sanna mundi hitt, að þegar þau hafa verið gaumgæfð til hlítar, yrðu menn mikils til fróðari um heiminn eins og hann raunverulega er og nær því að ráða gátu rúms og tíma. Þá mundu menn vita meira um lífið og ódauðleikann. Þeir sem takmarkaðan skiln- ing hafa á andlegum efnum undr ast það mjög, ef í umræðum um trúmál er minnzt á fleira en gamalkristna dogmatik. Óllu er þar hrært saman, segja þeir: þjóðtrú, kristnum fræðum, guð- speki, fræðum öndunga, ind- verskri hjátrú og íslenzkri, fyr- irbærin ekki flokkuð og greind, svikið og ósvikið hvað innan um annað. Þetta getur nú litið vísinda- lega út í fljótu bragði, enda mjög tíðkað af fræðimönnum að flokka ýmis fyrirbæri náttúrunn ar til að reyna að átta sig bet- ur á þeim. En á þessu stigi enda lika vísindin fyrir mörgum. Þeir horfa ráðalausir á flokkunina og gefast svo upp, reyna ekki að finna leyndardóminn á bak við. En það skiptir mestu máli í trú- arbrögðum. Hvaða gagn er svo sem í því að flokka sundur heiðna miðla og kristna miðla? Vísindin byrja fyrst, er menn koma auga á, að það eru alveg sams konar fyrirbrigði, sem ger- ast hjá báðum. Enn meiri vís- indi væru það að gefa viðhlít- andi skýringu á, af hverju þessi fyrirbrigði stafa, hvort þarna eru að verki einhver ókunn öfl í manninum eða utan við hann. Þetta er ekki hægt að gera nema með rannsóknum. En hvernig er unnt að framkvæma þær rannsóknir, ef þorri manna er haldinn þeim hleypidómum, að rannsóknirnar séu óguðlegar, eða neitar því að óathuguðu máli, að fyrirbrigðin gerist, eða ætlar alveg að brjálast, þó ekki sé gert annað en minnzt á þetta mál blátt áfram? Enn eimir eftir af menningaranda þeirrar ald- ar, sem brenndi Bruno, vegna þess að hann hélt því fram, að jörðin væri hnöttótt, og að til væri fleiri sólkerfi en það, sem jörðin tilheyrði. En þó að ösku hans væri dreift út í veður og vind, var það hann, sem vann sigur. Komast hrímþursar til himins? Svo segir í Gylfaginning, að upp á himininn mundu ganga hrímþursar, ef öllum væri fært á Bifröst, sem fara vilja. Margir staðir eru á himni fagrir og þar er allt guðleg vörn fyrir. Tröll- in hrapa af himinbrúnni. Hún er ekki fær öðrum en Einherj- um, sem hraustlega höfðu barizt á jörðinni. í þeirri trú, sem S.A.M. vill láta íslenzka presta kenna, er reyndar gert ráð fyrir, að allir menn hafi frá falli Adams fæðzt gerspilltir og guði fjandsamleg- ir með tilhneigingar til ills eins, enda fari þeir yfirleitt til helvít- is í eilífri glötun. Þó séu aðeins fáeinir af þessum görmum tekn- ir til náðar, ekki fyrir neina verðskuldun, heldur einungis, þegar þeir trúa því, að syndirn- ar séu þeim fyrirgefnar vegna dauða Krists á krossinum. Ann- að nauðsynlegt skilyrði fyrir því, að menn geti bjargazt, er að þeir hafi verið skírðir. Með öðrum orðum, því er haldið fram, að alls konar ill- virkjar og aumingjar muni setj- ast til borðs ipeð englum og út- völdum, ef þeir aðeins eru rétt- trúaðir, trúa því eða látast trúa, að Guð hafi fórnað syni sínum saklausum þeirra vegna. Af öll- um trúarkenningum hefur end- urlausnarkenningin tekið á sig margbreytilegast form í aldanna rás. Segja má, að sá sé endur- lausnari, sem með viturlegum keningum og öðru fordæmi vísar veginn fram á við og frels- ar menn undan harðstjórn grimmdar og heimsku. Þessir endurlausnarar eru venjulega grýttir eða krossfestir af blind- ingjum sinna tíma og má þann- ig segja, að þeir gefi líf sitt til lausnargj alds fyrir marga. En það er ekki þess konar endur- lausnarhugmynd, sem liggur að baki játningakristindóminum, heldur hin upphaflegasta og villi mannlegasta blóðfórnarkenning, sem búið var að hafna löngu fyrir daga Krists aí spámönnum Gamla testamentisins, sem spurðu: Hvað hefur Guð að gera með mör og blóð? Algengt var í fornum trúarbrögðum, að menn fórnuðu ekki aðeins skepnum, heldur mönnum og jafnvel börn- um sínum, á altari grimmlyndra guða í því skyni að blíðka þá. Þessi kenning var leidd inti í kirkujna, og hugðu menn að Guð mundi ekki geta fyrirgefið þeim syndir þeirra, nema sak- laus maður og þá helzt einka- sonur Guðs yrði drepinn fyrir þá. Með þessu móti mundu þeir hólpnir verða. Engum datt í hug að brjóta heilann um, hvaða er- indi fólk með þessum hugsunar- hætti ætti inn í himnaríki, né hvort siðirnir mundu ekki fljótt spillast uppi þar með tilkomu hrímþursanna, sem ekki gátu hugsað öðruvisi en 1 manndráp- um. Jesús hafði allt aðrar hug- myndir um þetta en þessir guð- fræðingar. Hann sagði, að ekki mundu aðrir ganga inn í himna- ríki en þeir, sem gerðu vilja föð- ur síns, sem væri á himnum, enda væri guðsríki ekki hér eða þar, heldur væri það hið innra með mönnunum. Það væri fyrst og fremst nauðsynlegt að taka sinnaskiptum, breyta um hugar- far, og þá væri guðsríkið í nánd. Þetta er í samræmi við alla skyn Framhald á bls. 20. 4 LESBÓK BARNANNA Sagan af Vellýgna - Bjarnc 13. Þorláksmessukvöldið kemur Snælaug að máli við bónda sinn og segist una því illa, að hafa ekkert nýmeti um jólin. Nú væri gaman að hafa blautan fisk, því að á honum væri þeim mest ný- Hæmi. Bjarnl tók lítt undir mál hennar, en samt gekk hann uð heiman, svo að enginn Vissi. Hann gengur nú sem mest má hann, og kemur vest ur á Mýrar, aðfangadags- morguninn. Þar fær hann sér skip og menn. Bjarni vildi koma heim í tækan tíma; var hann því svo ákafur, að þeg- ar hann ýtti, spyrnti hann bjargið upp að öklum. 14. Þeir sigla nú á djúpmið og renna færum. Ekki líður á löngu, áður en þeir hafa dregið átján í hlut af löngu. Þá fer að hvessa, svo Bjarni heldur í land. Loksins varð svo mikið brim, að skipinu hvolfdi undir þeim. Bjarni lét sér ekki bilt við verða. Hann snýr upp skipinu og tínir upp í það skipverja sína og allan fiskinn. Sezít hann því næst undir árar, því að hinir voru slæptir mjög, og spyrnir fast í hlunna 15. Þegar þeir eru komnir undir land, sér Bjarni svarta flygsu í loftinu. Hann nær henni og kippir henni niður ( skutinn, en flygsan var hvorki meira né minna en hestasteinninn frá Hólum í Hjaltadal, og voru bundnir við hann tóif hestar. Þeir fcomast nú á land, bera af •kipi og setja það upp í uaust, en þegar það ir um garð gcngið, finnst Bjarna sér verða eitthvað bumbult. 16. Hann hélt fyrst, að það væri af þreytu, en þá varð honum litið út á sjó, og sér hann, að þar flýtur svolítið blóðrautt hnoða, á þriðju báru frá landi. Hann þekkti, að þetta var sálin úr honum. Hann náði hnoðanum og gleypti það þegar í stað. Eftir það var hann miklu hressari en áður. Bjarni tekur nú hlut sinn leggur hann á bak sér og labbar af stað, en þegar hann er kominn upp í Norðurár- dal, gerir logndrífu svo mikla að hann getur rétt aðeins rek ið staf sinn upp úr á hæstu hólum. Skautakeppni n Það var sunnudagur, sólin skein í heiði,, þó það væri hávetur. Alls staðar glitraði á snjó og svell. Bræðurnir Áki og Snorri á Hóli bjuggu sig til að fara á skauta. Fyrir neðan bæinn Hól var tjörn, sem nú var ísilögð. Flest ungt fólk úr sveit- inni var þar saman komið, því nú átti að fara fram skautakeppni. Þegar bræðurnir voru að labba niður eftir, slóst strákur af næsta bæ í för með þeim. En strák- urinn, sem hét Björn, ætlaði líka að keppa og þóttist hann viss um sigurinn. Alla leiðina var hann að gorta af skauta- list sinni. Er þeir komu niðureftir, voru flestir komnir og var öllum raðað upp við annan endann á tjörninni. Áttu þeir að fara yfir tjörn- ina. í miðri tjörninni var hólmi, og voru allir á- minntir um að fara ekki mjög nálægt honum, því ísinn gæti verið ótraust- ur þar hjá. Nú blés dóm- arinn í flautu, og allir brunuðu af stað. f fyrst- unni var Björn lang- fyrstur, en Áki næst á eftir, og þar næst Snorri, sem þó var nokkuð langt á eftir hinum tveim. Smátt og smátt breikk- aði bilið á milli þeirra. Allt í einu tók Áki eftir að Björn stefndi mjög nálægt hólmanum, og kallaði Áki aðvörunar- orð til hans, en Björn lét það sem vind um eyru þjóta. Áki dró nú á hann og var loks kominn fram úr honum. Allt í einu heyrðist skvamp, og er Áki leit til baka, sá hann Björn vera hálfan ofan í tjörninni. Hann gat enga björg sér veitt, en allir hinir voru langt á eftir. Strax og Áki sá þetta, sneri hann við og fór til Björns og togaði hann upp úr. En í því slitnaði ólin á öðrum skautanum, því að þetta voru gamlir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.