Morgunblaðið - 31.05.1963, Qupperneq 5
r
Fðstudagur 31. maf 1983
MORGUNBLAÐIÐ
5
Listasafnið fær málverkeftir hann
f DAG eignast Listasafn rík-
isins nokkur málverk eftir
franska málara, sem fyrir
milligöngu Listasafns félags-
ins og M. Raymondes Oliver
og sendiráðsins franska gefa
safninu myndir eftir sig. Einn
þessara frönsku manrna er
Mathieu, sá aJ ungu málur-
unum sem sjálftagt á verk
sín á flestum sýningum um
þessar mundir, en myndir
hans eru sýndar í 40 söfnum
víðs vegar um heim. Mathieu
er vafalaust jafnframt einn
af þeim skrýtnustu í öllum
háttum.
George Mathieu er 42ja ára
gamall, fæddur 27. janúar
(fæðingardag Mozarts) í Bou-
logne-sur-Mer í Frakklandi, en
faðir hans er bankamaður.
Hann hefur háskólapróf í
ensku og byrjaði ekki að mála
fyrr en hann var orðinn 22ja
ára gamall. En hann er talinn
faðir nýs málverkastíls, sem
nefndur er „Ijóðræn abstrak-
sjón“, og hefur að kjörorði
„merkið á undan merking-
unni“.
Hann er bæði í andstöðu
við raunsæisstefnuna í listum
og það sem hann kallar „ge-
ometriska abstraktlist“ og er
einn mest umdeildi listamað-
ur vorra tíma.
Nýlega birti Pravda eitraða
grein um síðustu bók hans
(því hann skrifar líka), þar
sem sagt var með háði „Mat-
hieu vinnur sér fyrir brauði
og smjöri." En þegar rithöf-
undurinn Malraux sá í fyrsta
skipti mynd eftir hann, hróp-
aði hann upp: „Loksins höf-
um við eignast skrautdráttar-
listarrnann, kallligraf, á Vest-
urlöndum," en sem kunnugt
er hefur það verið talin sér-
grein Austurlandabúa. 40
söfn víðsvegar um heim eiga
annars myndir eftir hann,
sem taldar eru ca 250—450
þús. kr. virði hver. Ein var
nýlega seld til Bandaríkjanna
fyrir um hálfa aðra milljón.
Nýlega hafði Mathieu stóra
sýningu í Moderne-safninu í
París, þar sem hann sýndi 95
oliumálverk og 27 vatnslita-
myndir, en það þykir óvenju-
legt að sýna svo margar mynd
ir þar eftir núlifandi lista-
mann.
En Mathieu þurfti auðvitað
að fara öðruvísi áð en aðrir
listamenn, sem einfaldlega
koma með myndir sínar til-
búnar og hengja þær upp.
Hann kom með stranga af
lérefti, sem verkamenn settu
á 6x2,50 m. ramma, einhver
ósköp af penslum og 180 lita-
túbur í sportbílnum sinum af
gerðinni Mercedes J.934. Bíll-
inn er næstum safngripur,
með 8 strokka hreyfil og
þrýstidælu, hraðinn upp í
170 km. og hann eyðir %1. af
Söfnin
Mlnjasafn Reykjavíkurbæfar. Skúu
túm 2. opið dag ega frá kJL. 2—4 # 1a
Dema mánudaga.
BORGARBÓKASAFN Reykjavík-
lir. sími 12308. Aðalsafnið Þinghoits-
Stræti 29a: tlánsdeild 2—10 alla virka
tíaga nema laugardaga 1—4. Lesstofa
10—10 alla virka daga nema laugar-
tíaga 10—4. Útibúið Hólmgarði 34 opið
6 til 7 alla virka daga nema laugar-
tíaga. Útibúið Hofsvallagötu 16 opið
5.30 til 7.30 alla vlrka daga nema
laugardag. tibúið við Sólheima 27.
opið 16—19 alla virka daga nema
laugardaga.
Ameríska bókasafnið, Hagatorgi 1.
er opið mánudaga. miðvikudaga og
föstudaga, kL 10—21. priðjudaga og
fimmtudaga kl. 10—18. Strætisvagna-
ferðir: 24,1,16,17.
Þjóðminjasafnið er opið þriðjudaga
fimmtudaga, laugardaga og sunnu-
tíaga frá kl. 1.30 til 4 e.h.
Tæknibókasafn IMSÍ. Opið alla
virka datg frá 13-19 nema laugardaga
frá 13-15.
Listasafn íslands er opið þriðju-
tíaga, fimmtudaga, laugardaga og
sunnudaga frá kl. 1.30 til 4 e.h.
Listasafn Einars Jónssonar er opið
á sunnudögum og miðvikudögum kl.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræði 74, er
opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtu
tíaga frá kL 1.30—4 ek.
+ Gengið +
21. maí 1963.
benzíni á klst. Að innan er
hann fóðraður með rauðu
flaujeli. Af þessan gerð eru
aðeins til 2—3 bilar í veröld-
inni. En Mathieu safnar bil-
um. Hann á líka tvo Rolls
Royce, frá 1938 og 1939.
Svo fór Mathieu að mála
og hamaðist í 2 klst. og 15
mín. þá var myndin til. Hann
byrjaði að mála grunninn á
gólfinu, eins og sést á með-
fylgjandi mynd og hengdi
myndina síðan upp. Hann
kreisti úr túbunum beint á lé-
reftið, notar langa pensla,
stekkur upp á borð og bekki
Kaup Sala
1 Enskt pund 120,28 120,58
1 Bandaríkjadollar . 42.95 43,06
1 Kanadadollar 39.89 40.00
100 Danskar krónur 621,56 623,16
100 Norskar kr. _ 601,35 602,89
100 Sænskar kr _ 827,43 829,58
i<r Finnsk mörk ._ 1.335,72 1.3394-
100 Fransklr £r. _ 876,40 878,64
100 Svissn. frk. .... „ 992,65 995,20
100 Vestur-þýzk mörk 1.078,74 1.081,50
100 Gyllinl 1.195,54 1.198,60
100 Belgiskir £r. _...^ .._ 86.16 86,38
100 Pesetar „ 71,60 71,80
100 Tékkn. krónur ..... .... 596.40 598,00
í Keflavík
í Sondgerði
Umboðsmaður Morgunblaðs
I ins í Sandgerði er Einar Axels
I son, kaupmaður í Axelsbúð
I við Tjarnargötu. Þar i búð-
1 inni fæst blaðið i lausasölu.
"^ Barngóð
j unglingsstúlka óskast til
t barnagæzlu og fl. Uppl. í
síma 36423.
Notað mótatimbur
2x4 og 1x6 til söl'U. Uppl.
að Vegamótastíig 7 eða í
síma 14202.
fyrir framan myndina, málar
ofan í með stuttum penslum
og lýkur verkinu gjarnan
með fingrunum. Áhorfendur
gera hann bara enn æstari og
„betri“.
Mathieu þykir jafn skrýt-
inn í daglegu lífi. Hann er
safnari og býr í þnggja hæða
húsi, byggðu 1925, og inni er
allt í miðaldastíl og renesan-
stíl og á veggjum myndir af
Lúðvík 16., enda dáir hann
tíma konungsveldisins í
Frakklandi, því þá kunnu
menn að njóta lífsins. Hann
sefur í heljarmiklu skrautlegu
miðaldarúmi, skrifar með
strútsfjöður og tekur gjarnan
á móti gestum klæddur kín-
verskri skikkju og með staf
frá tímum Lúðvíks 16. i hendi.
Hann er mikill sundurgerðar-
maður í klæðnaði, á 350 bindi,
sum ofin fyrir hann einan, 100
pör af skóm og álíka mikið
af vestum úr damaski og flau-
jeli, oft myndskreytt af hon-
um sjálfum. Sem sagt maður-
inn er hinn furðulegasti og
myndir hans renna út eins og
heitar lummur.
Læknar fjarverandi
Arinbjörn Kolbemsson verður fjar-
verandi frá 3. mai um óákveðinn tima.
Staðgengill: Bergþór Smári.
Friðrik Einarsson verður fjarver-
andi til 12. júní.
Gunnlaugur Snædal, verður fjar-
verandi þar til um miðjan júlí.
Kristinn Björnsson verður fjarver-
andi þessa viku til 1. júní. Staðgeng-
ill: Andrés Ásmundsson.
Ólafur Ólafsson, verður fjarver-
andi mánuð vegna sumarleyfa. Stað-
gengill er Haukur Jónasson, Klappar-
stíg 25, síma 11-22-8.
Skúli Thoroddsen verður fjarver-
andi 24. þm. til 30 júní. Staðgenglar:
Ragnar Arinbjarnar, heimalæknir og
Pétur Traustason, augnlæknir.
Jón Nikulásson fjarverandi júnímán-
uð. Staðgengill er Ólafur Jóhannsson.
Kristjana Helgadóttir fjarverandi frá
3. júní til 3. ágÚ9t. Staðgengill er Einar
Helgason Lækjargötu 2, sími 20442.
Tekið á móti
tilkynningum
trá ki. 10-12 t.h.
Stúlka
vön smurbrauði og bakstri óskast á
Hótel Bifröst. Upplýsingar í síma 14733.
Koimnn heim
' r *
Ofeigur J. Ofeigsson, læknir
Reyðarvatn Uxavatn
Stangaveiði hefst í Reyðarvatni og Uxavatni 1. júni
Veiðileyfi verða seld á skrifstofu minni Austur-
stræti 14, 3. hæð og einnig hjá varðmanni, sem að-
setur hefur við Reyðarvatn. Farseðlar með Norður-
leið á staðinn eru seldir á skrifstofunni, sem einn-
ig gefur allar nánari upplýsingar.
Guðmundur Agnar Ásgeirsson.
Fyrir telpnno í sveitino
Teygjubuxur fyrir aðeins
kr. 395.—
teddij
loOtöir^
Aðalstræti 9. — Sími 18860.
Hiís til solu í Saitdgcrði
íbúðarhúsið Tjörn í Sandgerði er til sölu. —
Verðtilboð í húsið ásamt eignarlóð og öðru er því
fylgir sendist undirrituðum fyrir 15. júní 1963.
ÓLAFUR VILHJÁLMSSON, Sandgerði.
Sími 7440 og 7470.
Starfsstúlkur óskast
Starfsstúlkur óskast til sumarafleysinga í eldhús
Vifilsstaðahælis. Upplýsingar gefur matráðskonan
í síma 15611 og 50332.
Reykjavík, 29. maí 1963.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Gisti og veitingahúsið, Grundarfirðí
Gisti- og veitingahúsið í Grafarnesi, Grundarfirði,
tekur tli starfa þann 1. júní. Það býður upp á þægi-
leg gistiherbergi, mat og hverskonar veitingar. _
Allir sem ferðast um Snæfellsnes ættu að leggja
leið sína í Grundarfjörð. — Verið hjartanlega
velkomin.
Sigrún Pétursdóttir.