Morgunblaðið - 19.06.1963, Blaðsíða 1
24 síður
Geim-
fararnir
enn á lofti
Manngrúinn á Arnarhóli um kl. þrjú á hjóðhátíðardaginn. Ein n pilturinn hefur klifrað upp á h»fuð styttunnar af Ingólfi Am-
arsyni. — Ljósm. Mbl. Sveinn Þormóðsson.
Aukinn afsláttur á útsvörum án
þess að draga úr framkvæmdum
Hækkun á fjárhagsáætlun til þess að mæta hækkuðum launum
borgarstarfsmanna og aukins átaks við gatnagerðina
MOSKVU, 18. júní AP
• Tass-fréttastofan skýrði frá
því síðdegis i dag, að geimfar
Valerí Bykovskís, Vostok 5. væri
nú farið að nálgast jörðu. Hefði
braut geimfarsins breytzt nokk-
uð á siðustu sólarhringum. í gær
hefði jarðnánd minnkað um 6
km og jarðfirð um 9 km og í dag
hefðu fjarlægðimar enn minnk-
að um 2 og 3 km.
• Kl. 10.22 í morgun hafði By-
kovski slegið met fyrirrennara
síns, Nikolajev, sem var þrjá
sólarhringa, 22 klukkustundir og
22 mínútur úti í geinyjum og var
]>að lengsta geimferð til bessa.
• Á hádegi hafði geimkonan
Valentina Teresjkova, fyrsta
konan sem fer slíka ferð, farið
34 hringi umhverfis jörðu Oig lagt
að baki 1,4 milljón kilómetra.
Tass birti í dag yfirlit yfir
ferð Bykovskís frá byrjun og
var það talið vísbending um, að
hann færi senn að lenda. Einnig
er búizt við, að breytingin á
braut geimfarsins stuðli að því,
að hann lendi fyrr en fyrst var
talið. Hafinn er undirbúningur
að miklum hátíðahöldum í
Moskvu á sunnudag og má vænta
þess, að geimfararnir eigi að
verða heiðursgestir þar.
Jafnframt skýrði Tass-frétta-
stofan frá því, að í gær hefði
Bykovskí sótt um inngöngu í
kommúnistaflokkinn, sem full-
gildur meðlimur. Var umsókn
hans samþykkt skömmu síðar og
hefur geimfarinn, að sögn Tass,
heitið því að reynast verður þess
trausts, er honum er þar með
sýnt.
í dag voru sýndar sjónvarps-
myndir af geimförunum. Kom í
Ijós, að Bykovskí var allskeggjað
ur orðinn eftir ferðina, enda
sagði þulur sjóvarpsins: „Við
sendum upp Valerí Bykovskí
en það lítur út fyrir að við fáum
Fidel Castro til baka“.
í dag var frá því skýrt í Lond-
©n, að heyrzt hefði til Teresj-
kovu, er hún tilkynnti, að hún
væri tilbúin að taka við skip-
unum um að taka sjálf við stjórn
geimfarsins og lenda Stuttu síð-
ar kvartaði hún yfir því að hafa
Framhald á bls. 2
AFSLÁTTUR á útsvörum skv.
útsvarsstiganum mun nú enn auk
inn. í ár má gera ráð fyrir að af
slátturinn nemi 17 af hundraði.
Afslátturinn var 15,5 af hundr-
aði sl. ár, en 11 árið 1961. Þrátt
fyrir þetta mun nú unnt að auka
enn framkvæmdir við gatnagerð.
Jafnframt er sett til hliðar fé til
þess að mæta fyrirsjáanlegum
kauphækkunum borgarstarfs-
manna.
Þetta kom fram í ræðu Geirs
Hallgrímssonar, borgarstjóra í
gær, þegar hann flutti framsögu
ræðu fyrir tiliögu um 30 millj.
kr. hækkun fjárhagsáætlunar.
Þetta fé mun renna til hækkaðra
launagreiðslna til borgarstarfs-
manna og til gatnagerðarfram-
kvæmda skv. áætlun borgar-
stjórnar. Tillagan hafði verið sam
þykkt í borgarráði með 3 atkv.
gegn einu atkv. kommúnista. Hún
var samþykkt í borgarstjóm með
10 atkv. gegn 3.
Ekki komu fram andmæli gegn
nauðsyn þessarar hækkunar á
borgarstjórnarfundinum í gær,
en kommúnistar lögðu til að
fjárins yrði aflað með aukanið-
urjöfnun útsvara á borgarbúa
næsta haust. Meiri furðu vakti
afstaða Framsóknarmanna í borg
arstjórninni. Þeir sátu hjá við
atkvæðagreiðsluna, og þorðu
ekki að taka afstöðu. Þegar
borgarfulltrúi Alþýðuflokksins
óskaði greinagerðar gáfu þeir
loðin svör. Hinsvegar töldu þeir
sig ekki mótfallna aukaniðurjöfn
un samkvæmt tillögu kommún-
ista, þegar borgarstjóri spurði þá
um það í fundarlok.
Borgarstjóri kvað að hafa yrði
Rómaborg, 18. júní AP
í KVÖLD sagði Pietro
Nenni af sér stöðu formanns
ítalska Sósíalistaflokksins, eft
ir að miðstjórn flokksins hafði
neitað að ganga til samstarfs
við Aldo Moro framkvæmda-
stjóra flokks Kristilegra
demokrata um stjórnarmynd-
un. Skömmu áður hafði Moro
tilkynnt Antonio Segni, for-
tvö sjónarmið í huga sem endra-
nær. Að halda uppi sem fullkomn
astri þjónustu og sem mestum
framkvæmdum í þágu borgar-
búa. Hinsvegar yrði jafnan að
miða þjónustu og framkvæmdir
við gjaldþol borgarbúa.
seta, að hann hefði orðið að
gefast upp við tilraunir sín-
ar til þess að leysa stjórnar-
kreppuna sem verið hefur frá
þvÁ Amintore Fanfani sagði
af sér. Nenni er 72 ára að
aldri.
Aldo Moro hefur í þrjár vikur
haldið uppi sleitulausum við-
ræðum við ítalska stjórnmálaleið
toga í von um að geta myndað
Framh. á bls. 23
Mynd þessi af geimförunum V alentínu Teresjkovu, fyrstu
konunni, sem send er í geim ferð, og Valery Bykovsky, sem
verið hefur iengst allra geim fara á lofti, var tekin á Rauða
torginu í Moskvu.
Framhald á bls. 10.
Nenni segir af sér
formennsku ítalska
Sósíalistaflokksins