Morgunblaðið - 19.06.1963, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.06.1963, Blaðsíða 24
134. tbl. — Miðvikudagur 19. júní 1963 SGÖGM STERKog STÍLHREI Fundir um kjaramál Iðju og Dagsbrúnar í GÆR sátu fulltrúar iðnrek- enda og fulltrúar Iðju, fund um kaup og>,kjör verksmiðjufólks. Var búizt við að samkomulag mundi názt og munu stjómirnar halda fundi í dag. Einnig sátu fulltrúar vinnuveit enda og fulltrúar Dagsbrúnar fund um kjaramál. Er aftur boðaður viðræðufund- ur i dag. ------------------------------3, r ■■ Lárus Gíslason Bondi ferst í Olfusá ^SELFOSSI, 18. júní. — Síðdegis á laugardag voru bændur frá Stóru-Sandvík og Litlu-Sandvík ásamt bóndanum í Stekknum að setja út laxakláfa í Ölfusá og voru 9 saman. Um 3 leytið höfðu þeir nærri lokið verkinu og voru staddir í ánni á móts við Sand- vik, skammt fyrir neðan Sel- foss. Þá vildi svo til að Lárus Gíslason, bóndi í Stekknum, datt aftur yfir sig og hvarf í ána. Mikill straumur er í ánni þarna. Sáu mennirnir Lárusi að- eins skjóta upp, en gátu ekkert að gert. Líkið hefur ekki fund- izt. Lárus.Gíslason lætur eftir sig konu og tvo syni, 7 ára og 12 ára. — O. J. Hefi minni löngun til að fara til ísraeis segir Ólafur Thors forsætisráðherra DAVID Ben-Gurion tilkynnti 17. júní sl. að hann hefði hafn að þeirri ósk flokks síns, sósíal demókratíska Mapei-flokks- ins, að hann tæki aftur lausn- arbeiðni sína sem forsætisráð- herra fsraels, en skýrði aftur á móti frá því, að hann mundi halda áfram þingmennsku sinni vegna ákveðinna óska um það. Áður hafði hann til- kynnt, að hann mundi um leið og hann léti af störfum forsætisráðherra, hætta af- skiptum af stjórnmálum. Eins og áður hefur verið skýrt frá í fréttum kom Ben- Gurion í opinbera heimsókn til fslands ásamt frú sinni um miðjan september sl. haust, og hafa þau hjón notið mik- illa vinsælda hér á landi eftir heimsóknina. Þau höfðu mikil og djúp áhrif á alla þá, sem þeim kynntust, og hefur heim- sókn þeirra orðið flestum ís- lendingum minnisstæður at- burður. f lok heimsóknar sinn ar bauð ísraelski forsætisráð- herrann Ólafi Thors, forsætis- ráðherra, að koma í opinbera heimsókn til ísraels, en nú þeg ar Ben-Gurion hefur sagt af sér embætti forsætisráðherra í ísrael, þótti Morgunblaðinu rétt að spyrja Ólaf Thors, hvort hann hyggðist fara í heimsókn til ísraels eða ekki. Ólafur Thors svaraði spurn- ingu Morgunblaðsins á þessa leið: • „Eg var staðráðinn í að þiggja elskulegt boð þeirra hjóna, Ben-Gurions og frúar, til ísraels og hef nú nýlega rætt um það við ambassador ísraels á íslandi, að rétt væri að ég færi þangað austur n.k. nóvember. En nú þegar ég heyri að Ben-Gurion hefur sagt af sér, hef ég minni löng- um til að fara í þessa heim- sókn. Vona ég að enginn mis- skilji þessi orð.“ Sjá grein á bls. 2 í blað- inu í dag. Indriði Waage látinn INDRIÐI WAAGE .leikari, lézt aðfaranótt 17. júní á Borgarspít- alanum eftir nokkra sjúkralegu. Indriði var liðlega sextugur að aldri er hann lézt, fæddur i Reykjavík 1. desember 1902, son ur Eufemiu Indriðadóttur og Jens B. Waage. Voru foreldrarn ir báðir ágætir leikarar og helg- aði Indriði leiklistinni krafta sína alla ævi. Hann stundaði leik listarnám erlendis, einkum í Þýzkalandi og eftir að heim kom að námi loknu tók hann að starfa hjá Leikfélagi Reykjavík ur, bæði sem leikari og leik- stjóri og var um hríð formaður félagsins. Eftir stofnun Þjóðleik- hússins réðist hann þangað. Hef ur vart nokkur annar íslending- Framhald á bls. 23. Lík fimdið LÍK BJÖRNS BRAGA MAGNÚS SONAR, sem týndist ásamt Jóni Björnssyni, rak nýlega á Akra- nesi. Hafa lík þeirra beggja þá fundizt. Verkföllum afstýrt noröanlands Samið um 7,5% kauphækkun Vinnuveitendur og launþegar lýsa yfir vilja sínum til að taka þátt í rannsókn á því, hve mikil kauphækkun geti orðið launþegum að gagni AÐFARANÓTT 17. júní náð- verkalýðsfélaganna á Akur- izt samkomulag milli vinnu- veitenda annars vegar og 6 laxar kostuðu 39,000 krónur Elliðaárnar nær ördeyða - en menn vona að úr rætist 1 næstu viku ÞAÐ er heldur dapurt hljóðið i veiðimönnum við Elliðaárnar þessa dagana. Á þeim 13 dögum, sem liðnir eru af veiðitímanum, hafa aðeins sex laxar veiðzt, eða varla hálfur lax á dag. 1 gær voru aðeins sex laxar komnir upp fyrir teljarann við rafstöð- ina. Er þetta mjög óvenjulegt ástand, og segir veiðimálastjóri, Þór Guðjónsson, að helzt verði að álíta að eitthvert óhapp hafi hent þann árgang, sem nú átti að skila sér. Of snemmt væri þó að segja nokkuð ákveðið um mál ið, og vel gæti rætzt úr þótt dræmt gengi í byrjun. í næstu viku væri hinn kunni Jónsmessu straumur, og ætti þá fiskur að ganga í árnar. Veiðimálastjóri benti á að mjög hafi verið kalt í vor og ekki hlýnað fyrr en um hvíta- sunnu. Gæti þetta haft sín áhrif á laxagöngurnar. Þá yrði einnig Framh. á bls. 23 Dregið Allir, sem fengið hafa miða senda, eru beðnir að gera skil STRAX Happdrœtti Sjálfstœðisflokksins eyri og Siglufirði hins vegar um 7.5% hækkun á öllum kauptöxtum, og var þar með aflýst verkfalli, sem félögin höfðu boðað. Gildir samkomu lag þetta til 15. október nk., en fellur þá úr gildi án upp- sagnar. Einnig hefur nú ver- ið aflýst verkfalli, sem verka- lýðsfélögin á Húsavík og Raufarhöfn höfðu boðað, og tókust þar samningar á sama grundvelli og á Akureyri og Siglufirði. Má gera ráð fyrir, að önnur félög launþega, sem nú hafa lausa samninga, muni semja við vinnuveitendur á svipuðum grundvelli. í samræmi við tilmæli rík- isstjórnarinnar í orðsendingu hennar sl. laugardag til sam- taka vinnuveitenda og laun- þega um athugun á því, hve mikil kauphækkun megi verða til þess að hún komi launþegum að gagni, sam- þykktu vinnuveitendur fyrir sitt leyti að taka þátt í slíkri athugun og samninganefnd verkalýðsfélaganna mælti með því við miðstjórn Alþýðu sambands íslands, að samtök launþega vinni einnig að henni. Sagði Hannibal Valdi- Framh á bls. 10 Happdrætti^ skíðadeildar ÍR D R E G IÐ hefir verið í happ- drætti skíðadeildar ÍR. Vinn- ingsnúmerið er þó ekki hægt að birta þegar í stað þar sem skil hafa ekki enn borizt frá sölu- mönnum út um land. Skilaðirifflumim UM HELGINA var brotizt inn I verzlunina Goðaborg á Freyju- götu. Var sýningargluggi brot- inn með steinkasti og tveimur for láta riffþam stolið. í fyrrakvöld gaf sig fram maður sá, sem vald ur var að verknaðinum. Skilaði hann rifflunum til lögreglunnar og gaf þá skýringu á framferði sínu að hann hefði verið ölvaður. Kvöldfagnaður Fyrir starfsfólk D-listans Miðar afgreiddir í dag og á morgun FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík eftir til kvöld- fagnaðar í Sjálfstæðishúsinu, Hótel Borg, Þjóðleikhúskjallaranum og Glaumbæ nk. föstudagskvöld kl. 20.30 fyrir starfsfólk D-listans við alþingiskosningarnar. Stutt ávörp verða flutt á öllum stöðun- um. 1 Sjálfstæðishúsinu og Hótel Borg mun Kristinn Hallsson syngja einsön,g og Jón Gunnlaugsson skemmta með eftirhermum. t Þjóðleikhúskjallaranum og Glaumbæ mun Ómar Ragnarsson og Savannahtríóið skemmta. Loks verður stiginn dans til kl. 1 eftir miðnætti. Aðgöngumiðar verða afhentir á skrifstofu Sjálfstæðis- flokksins í Sjálfstæðishúsinu milli kl. 9—7 í dag og á morgun, fimmtudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.