Morgunblaðið - 19.06.1963, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.06.1963, Blaðsíða 22
22 MORCVNBLAÐIÐ Miðvikudagur 19. júní 1963 2 m. stökk Jóns gefur forsetabikar Glæsileg íþróttahátíð i Laugar- dal 17. júni 17. JÚNÍ mót frjálsíþróttamanna var veglegur þáttur í þjóðhátíð- inni að vanda. íþróttakeppnin stóð í 2 daga og á þjóðhátíðar- daginn fóru fram glímu-, fim- leika-, júdó og þjóðdansasýning- ar auk íþróttakeppninnar. Sýn- ingunum og íþróttakeppninni var mjög vei tekið, þúsundir manna voru viðstaddir er íþróttafólkið á öllum aldri sýndi kunnáttu sína og getu og þáttur íþrótta- fólksins í hátíðahöldunum var hæði mikill og góður að ailra dómi. Á 17. júní mótum um land 'allt er keppt um Forsetabikarinn svonefnda fyrir bezta afrek í frjálsum íþróttum. í Reykjavík var lang stigahæstur Jón Þ. Ól- afsson, ÍR, fyrir 2.00 m í há- stökki. Hafi ekki náðst betra afrek annars staðar á landinu, sem ekki hafa borizt fregnir af og fremur ólíklegt má telja, þá hefur Jón hlotið bikarinn í ár. Jón hefur á undanförnum mót- um sýnt og sannað að hann er mesti afreksmaður frjálsíþrótta- manna nú. Samt skeður það mót eftir mót — jafnvel 17. júní mót — að hann er látinn bíða og bíða læti á sleggjukasti. En hitt vita kannske færri að báðir eru þeir Jón og Þórður sérstakir sóma- menn og hafa innan íþrótta ekki áunnið sér lakari einkunnar en þeir gerðu er þeir hurfu frá stúd entsprófi með ágætiseinkunn — og báðir efstir af sínum árgangi. Mættu íþróttirnar eignast fleiri slíka fjölhæfa menn. Eftir 17. júní mótin er útlitið fyrir landskeppnina við Dani því miður heldur svart. Hins er að gæta að margir okkar manna geta magnast margfaldlega þegar á reynir. Við skulum vona að svo verði en lítt hyggja að spádóm- um sem eru okkur í óvil. Sýningar glímu-, júdó og fim- leikamanna tókust mjög vel og voru lofaðar af áhorfendum. — Einnig sýndu stúlkur úr Ár- manni akrobatik og félagar úr ÞR þjóðdansa. Þjóðdansasýning in var góð í alla staði, en of lang dregin fyrir íþróttamát og ætti betur heima á Arnarhóli í kvöld- dagsskrá. Laugardalsvöllurinn var fögur umgjörð um þessa glæsilegu sýningu íþróttaæskunnar. Allt var þar undirbúið á bezta máta Úrslitin I 100 m hlaupi. Valbjörn sigrar og er greinilega 3 metrum á undan næsta manni. Samt eru dæmdir 2/10 úr sek. milli Valbjarnar og Einars Frímannssonar. Þriðji maður (hvítklæddur annar frá vinstri) Einar Gíslason er ekki nem a um 30 sm á eftir naína sínum Frímannssyni, en fær samt sekúndubroti verri tíma. Engar klukkur mæla slíkt — slíku er úthlutað af mannavöld- um. Hér sigrar Halldóra Helgadóttir í 100 m hlaupi kvenna, en Sigríður Sigruðardóttir er nr. 2. Myndin sýnir að ekki er meters bil milli þeirra. Eigi að síður „ÁÆXLUÐU“ tímaverðirnir 2/10 úr sek. milli þeirra. Ef þessi mynd er borin saman við úrslitin hjá körlum sést hvert handahóf rikir um tímavörzlu á ísl. mótum. Annars vegar eru þriggja m millibil látið gilda 2/10. Hins vegar er tæpl. metersbil látið gilda sama. Skeiðklukkurnar eru slæmar, tímaverðir óreyndir og happa- og glappaaðferðin ræður hver nær góðum tíma. ' ' / ..... •X:V,.:. > : mmm ■ Jk.: .. Jón Þ. Ólafsson yfir 2 metra, með sína aðalgrein jafnvel svo klukkustundum nemur. Það má með sanni segja að hann er vel að æðstu verðlaunum kominn. Honum hefur að minnsta kosti ekki verið gert auðveldara fyrir að vinna þau. Valbjörn Þorláksson KR vann allar þær greinar, sem hann tók þátt í og voru þær margar að vanda. En afrek Valbjarnar hafa ^ett niður í einstökuim greinum í hlutfalli við það sem hann hefur fjölgað keppnisgreinum sínum. ValbjÖrn gæti án efa verið stang arstökkvari á Evrópumælikvarða eins og hann var. En það er hann því miður ekki lengur. Hann gæti án efa náð góðum árangri sem spretthlaupari (ef hann beitti sér að því) eða sem spjótkastari, ef hann beitti sér að því. En Val björn er ná eins og lítil fluga í . öllum greinum en gæti víða kitl að ef hann einbeitti sér). Sleggjukastið sáu sárafáir menn enda fór það fram á Melavellin- um en allar aðrar greinar á Laug ardalsvellinum. Þórður B. Sig- urðsson vann enn einu sinni sig- ur, en keppnin var næsta hörð. Athygli mína vakti að í hringn- um stóðu nú tveir stúdenta „dúx- ar“. Þórður varð dúx við stúd- entspróf í Verzlunarskólanum 1949 og Jón Ögmundur Þormóðs son varð dux við stúdentspróf í máladeild MR nú í vor. Það virð ist eins o£ dúxar hafi sérstakt dá og höfðu margir vaskir sveinar undir góðri forustu Baldurs Jóns sonar vallarstjóra lagt þar gjörva hönd að verki. Ef ekki er vel unnið af vallarstarfsmönnum, fer gott mót 1 handaskolum, en nú sem oft áður áttu vallarstarfs- mennirnir þátt í að lyfta mótinu. — A. St. Helztu úrslit: Fyrri dagur: 400 m grindalilaup: 1. Helgi HóLm, .R. ........ 58,5 sek. 2. Sigurður Lárusson, Á. ... 62,7 sek. 200 m hlaup: 1. Valbjörn Porlákssoh, K.R. 22,6 sek. 2. Ólafur Guðmundsson, K.R. 23,6 sek. 3. Sævar Gunnarsson, H.S.K. 24,4 sek. 8000 m hlaup: 1. Halldór Guðbjörnss, K.R. 2.02,0 mín 2. Valur Guðmundss, K.R. 2.02,8 mín 3. Páll Pálsson, K.R. .... 2.21,0 mín 500 m hlaup: 1. Kristl. Guðbjörnss., K.R. 15:44,6 mín 2. Halld. Jóhanness, K.R. 16:28,0 mín Langstökk: 1. Úlfar Teitsson, K.R. ------ 7.09 m 2. Einar Frímannsson, K R.....6.86 m 3 Gestur Einarsson, H.S.K.....6.75 m Spjótkast: 1. Kjartan Guðjónsson, K.R. 60.48 m 2. Björgvin Hólm, Í.R........ 57,37 m 3. Valbjörn Þorláksson, K.R. 57,02 m Sleggjukast: 1. Þórður B. Sigurðsson, K.R. 48,75 m 2. Friðrik Guðmundsson, K.R. 46,28 m 3. Birgir Guðjónsson, Í.R.... 45,67 m 4. Jón Ö. Þormóðsson, Í.R. .... 45.06 m Kringlukast kvenna: 1. Sigrún Einarsdóttir, K.R.. 27,47 m 2. Dröfn Guðmundsd. Breiðab. 27,43 m 3. Hlín Torfadóttir, Í.R..... 22,95 m 4. Árdís Björnsdóttir, Breiðab 22,68 m 80 m grindahlaup kvenna: 1. Sigríður Sigurðard., Í.R. ....^ 15,5 sek 2. Guðrún S. Svavarsd., K.R.* 17,5 sek 3. Jytte Mostrup, Í.R. —..... 18,4 sek 4x100 m boðhlaup: 1. A-sveit K.R. 46,0 sek Síðari dagur: 100 m hlaup: 1. Valbjörn Þorláksson, K.R. 10,9 sek 2. Einar Frímannsson, K.R... 11,1 sek 3. Einar Gíslason, K.R. 11,2 sek 400 m hlaup: 1. Kristján Mikkelsson, Í.R. 52,2 sek 2. Helgi Hólm, Í.R.......... 53,5 sek 3. Valur Guðmundsson, K.R. 54,8 sek 4. Sævar Gunnarsson, H.S.K. 55,00 sek 1500 m hlaup: 1. Kristl. Guðbjörnss, K.R. 4:09,6 min 2. Agnar Leví, K.R...... .. 4:11,0 mín 3. Jón Guðlaugsson, K.R... 4:49,4 min Hástökk: 1. Jón Þ. Ólafsson, Í.R. ........ 2,00 m 2. Sigurður Ingólfsson, Á ... 1,75 m 3. Halldór Jónsson, Í.R........... 1,70 m Stangarstökk: 1. Valbjörn Þorláksson, K.R .... 4,25 m 2. PáU Eiríksson, F.H......... 3,81 m Þrístökk: 1. Bjarni Einarsson, H S.K. 13,98 m 2. Ólafur Unnsteinsson, ..R. 13,26 m Kúluvarp: 1 Jón Pétursson, K.R......... 15,25 m 2. Guðm. Hermannsson, K.R. 15,22 m 3. Artur Ólafsson, Á........ 14,55 m 100 m hlaup kvenna: 1. Halldóra Helgadóttir, K.R. 13,3 sek 2. Sigríður Sigurðard., Í.R. 13,5 sek 3. María Hauksdóttir, Í.R... 13,8 sek 110 m grindahlaup: 1. Valbj. Þorláksson, K.R. .... 16,6 sek 2. Kjartan Guðjónss, K.R..... 16,3 sek 3. Sigurður Lárusson, Á. ........ 16,3 sek Kringlukast: 1. Jón Pétursson, K.R........ 45,99 m 2. Hallgr Jónsson, Tý, Ve.... 45,22 m 3. Friðrik Guðmundsson, K.R. 44,21 m 4. Jón Þ. Ólafsson, Í.R...... 42,74 m HEIMSMEISTARAKEPPNIN i bridge hófst um sl. helgi í St. Vincent á Ítalíu og mun standa til 23. þ. m. Þátttakendur að þessu sinni eru: Ítalía, Frakk- land, Bandaríkin og Argentína. í hverjum leik verða spiluð 144 spil. Að loknum 32 spilum í leiknum milli Ítalíu og Bandaríkjanna er staðan 69—58 fyrir Ítalíu. Leikur inn var mjög jafn og spennandi og bendir allt til, að þessar sveit- ir munu berjast um heimsmeist- aratitilinn. Að loknum 48 spilum í öðrum leikjum var staðan þessi: Frakkland — Argentína 110 —71. ftalía — Frakkland 127—34. Bandaríkin — Argentína 151 —119. Reiknað var með, að leikurinn milli Ítalíu og Frakklands yrði jafn og spennandi, en það fór á annan veg. Spilaðar voru þrjár 16 spila lotur, og urðu úrslitin, sem hér segir: 49 — 5, 45 — 12 og 33 — 17. Leikurinn milli Bandaríkjanna og Argentínu var jafnari en bú- izt var við, úrslit í lotunum urðu þessi: 62—49, 50—33 og 39 —37. Núv. heimsmeistarar eru ítal- ir, sem hafa sigrað fimm sinn- um í röð. Keppnisstjóri að þessu sinni er hinn kunni sænski bridge spilari Eric Jannersten.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.