Morgunblaðið - 19.06.1963, Side 6

Morgunblaðið - 19.06.1963, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 19. júní 1963 Kveð juávarp frá Vestur-lslendingum Yaldimar J. Líndal ,dómari frá Winnipeg-, flutti kveðju frá Vestur-íslendingum á Arn arhóli að kvöldi hins 17. júní. Kveðjuávarpið fer hér á eftir: Heilir og sælir allir kærir ís- lendingar! í>að er heiður fyrir Vestur-ís- lendinga, að hátíðanefndin skyldi bjóða þeim að taka þátt í há- tíðahöldunum á þessum merkis- degi, og ég er nefndinni afar þakklátur fyrir að hún valdi mig til að flytja þetta ávarp. Það er auðvelt fyrir okkur í Kanada að meta þá frelsisbar- áttu, sem þjóðin háði, og það án þess að beita nokkurn tíma vopna valdi, er lauk á þann farsæla hátt, að árið 1944 varð ísland ó- háð og fullvalda ríki. Það á vel við og sæmir þessum mikla við- burði í sögu íslands að hátíða- höld skuli haldin á þessum minn ingardegi. Þannig endurtekur þjóðin þakklæti sitt ár frá ári. Þótt ég hafi alið aldur í ann- arri heimsálfu finnst mér að á einkennilegan hátt ég sé kominn heim. ísland er mitt draumaland. Draumarnir hafa verið mjög skír- ir, næstum raunverulegir, og nú finnst mér, að ég ætti að benda á sumt af því, sem mér hefur fundizt svo afar fagurt og göfugt í þessum drauma-heimi mínum. Svo er sjálfsagt að bæta við sumt af því aðdáanlega, sem ég hefi séð með eigin augum þessa fáu daga síðan ég kom til íslands. Nú gæti ég bent á hinar fornu bókmenntir íslands, sem reynd- ust hinn andlegi fjársjóður Is- lendinga um aldaraðir. En þær eru ekki það sem hefur mest vakið aðdáun mína. Svo gæti ég bent á, að þjóðin hefur varðveitt þennan forna fjársjóð og gert hann að dýrmætri almennings- eign, og hefur tekizt, öld eftir öld, að bæta við þennan andlega arf, svo að hægt er að segja, að frá alda öðli hafi menningar- og bókmenntasagan verið órofin þróunarsaga. Það er afar mark- vert og hefur hrifið mig mikið. En það sem er undramest er að þjóðinni heppnaðist þetta allt þrátt fyrir geysimikla og marg- víslega örðugleika. Allt virtist hafa lagzt á eitt að gera þetta ómögulegt, jafnvel eyða þjóðinni sjálfri. Hafís og sjóar; eldgos víða um land og hraun sem lagðist yfir blómlegar byggðir; drepsóttir geisuðu yfir fámenna þjóð; útlend einokun dró kjark og dáð úr þjóðinni; mjög oft hungursneið, sem þetta hlaut að hafa í för með' sér. En því meir, sem þrengdi að, því betur var barizt; því nær sem eyðileggingardrekinn dró, því fastar tók þjóðin saman hönd um um að varðveita hina and- legu fjársjóði. Sagan ykkar er lifandi sönnun þess, að ykkar einkunnarorð eru „Sækjum ætíð fram“. Móðuharðindin voru varla gengin yfir, þegar ný gullöld ís- lenzkra bókmennta hefst, og er hún enn ekki liðin, langt frá því. Og nú eftir heimsstríðin, hafa næstum óskiljanlegar þjóðmeg unarframfarir átt sér stað á ís- landi; þar sér maður dugnað, áræði og tæknisnilld. Þetta hefur verið mitt drauma- land. Nú er ég staddur á íslandi og get horft í kring með mínum eigin augum. Raunveruleikinn staðfestir allt sem mig hefur dreymt, jafnvel bætt við fegurð og skrúða draumalandsins. Á að- eins tvö dæmi skalt bent. Fyrir nokkrum dögum var ég staddur á hinum helga stað, Þingvöllum. Eitt greip mig snögglega. Rúmum þúsund ár- um síðan völdu forfeður vorir þennan stað þar sem Alþingi þeirra skyldi sett. Fegurðartil- finning landnemanna var eins næm og hrein og hún er þann dag í dag, og hún sést allt í kring- um mann í hinni nýju Reykjavík ur — borg. Annað dæmi; Maður horfir á höggmynd Einars Jónssonar „Frelsið". Önnur hönd brautryðj- andans bendir þangað sem stefna skal, til frelsisins, en í hinni hendinni er sverð. En það er ekki reitt til höggs; til þess á ekki að grípa fyrr en í síðustu lög. Lagt til samans, það sem ég hefi séð í mínu draumalandi, og nú hér í kringum mig, gefur mér dálitla hugmynd um íslands „tímanna safn“. En það sem er veigamest og þyngst í metum í þessu tím- anna sfifni er tungan. íslenzk tunga! Það var ísland og eingöngu ísland, sem varð- veitti hina gömlu norrænu tungu og þar engu síður en á öðrum sviðum, hefur þjóðin fágað og fegrað sinn eiginn arf. Við að vestan komum hing- að og heilsum. Við endurtökum með ykkur; „Sækjum ávallt fram“. Þá mun á íslandi ríkja, „gróandi þjóðlíf með þverrandi tár, sem þroskast á guðsríkisbraut“. Valdimar J. Lindal. Menn dottuðu kannski íj 10-15 mínútur í stdlunum jLercgsti samningafundur stóð 76 eða 78 tíma SAMNINGAR tókust milli verkalýðsfélaganna á Akur- eyri og Siglufirði og Vinnu- veitendasambands íslands að- faranótt 17. júni eftir samn- ingafund, sem stóð í 36 klukkustundir samfleytt. — Mörgum þykir fundur sá hafa verið langur, en samkvæmt viðtölum Morgunblaðsins við sáttasemjara og tvo af for- ystumönnum deiluaðila kem- ur í Ijós, að samningafundir hafa iðulega verið mun leng- ur í einni striklofcu. Viðtölin fara hér á eftir: Torfi Hjartarson, sáttasemj- ari ríkisins, sagði: — Það er langt frá því, að þessi fundur hafi verið sá lengsti. Þeir hafa verið tvö- faldir á við þetta að minnsta kosti. Hins vegar man ég ekki hver sá lengsti hefur verið. — SamnirLganefndarmenn- irnir fá ekkert að sofa, en þeir sem eru svo rólegir að geta sofnað í stólunum fá það. Menn fá ekki að fara í mat, en þeim er gefið kaffi og með þvL — Sáttasemjari h e 1 d u r fundi með samninganefndun- um sitt á hvað, sameiginlega Torfi Hjartarson og í smáhópum, svo hann get- ur lítið hvílzt heldur. — Annars er ég ánægður að samniagar hafa tekizt nú eins og reyndar ætíð, hverjar sem niðurstöðurnar eru. Það er mitt hlutverk að sjá um að samningar takizt. Annað ekki. Rjörgvin Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambands íslands, sagði eftir- farandi: þess sem deilt er verða menn að velta fyrir sér fram og aftur möguleikum og leiðum til samkomulags. Enginn fær að fara af staðnum nema með leyfi sáttasemjara. Björn Jónsson, formaður Verkalýðsfélagsins Einingar á Akureyri, sagði: — Ég hef nú verið á lengri fundi en þetta. Það var árið 1947 í deilu verkalýðsfélag- anna á Norðurlandi og Dags- brúnar við síldarverksmiðjurn ar. Þá var samningafundur hjá sáttasemjara sem stóð í 47 tíma. — Á þessum fundi held ég að okkar menn hafi borizt vel af og hinir líka. Menn dott- uðu kannski í 10—15 mínútur í stólum sínum og vöknuðu hressir með öll skilningarvit í lagi. — Fundir sem þessir geta verið nauðsynlegir og átt full- an rétt á sér. Menn verða stundum sáttfúsari en ella og þessi vinnubrögð geta jafnvel é flýtt fyrir samningum, þótt þau hafi sín takmörk. — Viðræðurnar nú fóru fram í mikilli vinsemd og höf- um við allt gott að segja um hlut Sáttasemjaranna. n l|l 1 ' 1 — Þessi fundur var alls ekki sá lengsti, sem haldinn f ^ ÉniKaL % m W * / 'á hefur verið í einni striklotu. Að því ég bezt man var það / fundur í farmannadeilu árið . 8|pF ' Y?'' 1955. Þá var verið að semja m \jp við Sjómannafélag Reykjavík k, |j ur og var samningafundur í 76 eða 78 tíma í einu. — Þótt lokafundurinn nú i. <&%£&&&&*, : : 1 hafi staðið í 36 tíma má ekki > ' S’ý. gleyma því, að fundir voru y^..; ■ ■ >>. • Vjfoy s&t •:$ V ■ ' ý- -.. -hC •' 4, haldnir sex nætur í röð, oft- vv ” j ast til kl. 4 og 5 á morgnana og byrjað aftur um kl. 4 á daginn. — — Eftir allt þetta þóf voru menn orðnir anzi þreytt- m ir. Það er ekki aðeins að 9 '■ v menn fái ekki að sofna., Vinn- ff-rn ■■ '■ - « Velvakanda hefur borizt eft- irfarandi bréf og telur það í harðorðasta lagi, en þeim, sem kynnu að vilja mótmæla því, er heimilt rúm í dálkum hans. • HÚSDÝRAPLÁGAN VIÐ ÞJÓÐVEGINA „Hvað er hægt að gera til að losna við það umferðarvanda mál, sem stafar af húsdýrum sem í algeru hirðuleysi ráfa um þjóðvegi og jafnvel í miðri Reykjavík? Svo virðist sem eig endur þessara dýra skeyti ekk- ert um öryggi þeirra enda eiga þeir vísar háar skaðabætur ef einhver er svo óheppinn að aka á dýrin og stórskemma bíl sinn og sakavottorð. • STUÐLAÐ AÐ SLYSI í vetur stökk hestur á bíl kunningja míns, er hann ók um Laugarnesið í náttmyrkri; við DAS mætti ég mörgum rollum sem löbbuðu um garða og göt- ur, við Brúarland voru 8 kind- ur í reiðileysi á þjóðveginum, nýlega er ég ók til Þingvalla, auk þess voru hundruð kinda og fjöldi hesta á eða við þjóðveg- inn. Oft hef ég séð bændur í Mosfellssveit reka kýr og aðrar skepnur út á veginn og loka hliðum á eftir þeim. Hve lengi á þessi ómenning að líðast á íslandi einu? Þarna er stuðlað • i ~JT> V að slysum og slysavaldurinn er oft eigandi dýranna, sem treyst- ir á snarræði og örugga hemla bílstjóranna. Oft er ekki hægt að koma í veg fyrir slys, þótt varlega sé ekið á góðum bíl, t.d. í dimmu, og oft, sofa þessar skepnur á þjóðveginum og eru oft furðu samlitar. • GERIÐ EITTHVAÐ STRAX Það er ástæðulaust að bíða, þetta verður að leysast fyrr eða síðar. Það mætti t. d. bæta úr ef bílstjóri sé ekki án undan- tekningar gerður ábyrgur fyrir slysum, sem nefnd voru, og hin- ir hirðulausu eigendur dýr- anna sem hrinda þeim vísvit- andi út í opinn dauðann verði eftir atvikum dæmdir til a3 greiða það tjón sem af dýrun- um hlýzt. íslendingar skilja ekki annað en fjárútlát, til að framkvæma ýmiss framfaramáL Fyrirspurnir sýna, að fjáreig- andi fær 350—550 kr. fyrir væna kind sem slátrað er, trygg ingafél. greiða um 500 kr. fyrir lamb sem ekið er á svo tap hins hirðulausa fjáreigenda er lítið, jafnvel gróði. Um þetta má deila og um leiðir til úr- bóta, þarna er verðugt verkefni fyrir bílklúbba og aðra sem með umferðarmál hafa að gera, en byrjið sem fyrsL V. O.*4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.