Morgunblaðið - 23.06.1963, Side 1
24 slður og tesbók
:'S5?ð¥
Mr. Friedmann við hlið hins ný ja isotopatæki, sem verið fer að setja upp í gömlu loftskeyta-
Btöðvarhúsiuu.
Eðlisfræöistofnunin
fær millj. kr. tæki
til rannsókna á vatnsrennsli og heitu vatni
UM Jvessar munðir er unnið að
|>ví að setja upp fyrir Eðlisfræði-
stofnunina merkilegt vísindatæki,
scm Alþjóða kjarnorkustofnunin
í Vín gefur íslendingum. Þetta
tæki nefnist massa spectrometer,
og mun vera um 25 þús. dollara
virði eða yfir 1 millj. ísl. króna.
Tækið er notað til almennra vís-
indastarfa, en má einnig nota í
hagnýtum tilgangi m. a. við leit
að heitu vatni og við virkjunar-
starfsemi.
Undanfarinn mánuð hefur ver-
ið hér staddur bandarískur mað-
ur, Friedmann að nafni, en tæk-
ið hefur verið smíðað eftir fyrir-
sögn hans og hefur hann unnið
að uppsetningu þess, sem er nokk
uð á veg komin. Elektroniskur
útbúnaður tækisins er smíðaður
hér í fyrirtækinu Raflagnatækni.
Aðgreinir ógeislavirka ósoiopa
Tækið er notað til að skilja
sundur ógeislavirka isotopa og
mun það verða notað hér á landi
við rannsóknir á vatnsrennsli og
við ákvörðun á borstöðum fyrir
heitt vatn að því er Bragi Árna-
son, efnafræðingur tjáði Mbl.
Byggist þetta á því að í rigning-
arvatni , sem fellur á mismun-
andi stöðum á landinu, er mis-
munandi hlutfall milli þungs og
venjulegs vatns. Má síðan við
jarðboranir eftir heitu grunn-
vatni ákveða skv. þessu hlutfalli,
hvar vatnið sem úr holunni fæst
hefur fallið til jarðar.
Lokatakmarkið á rannsóknum
þeim, sem þetta tæki verður eink
um notað við hér á landi, er að
gera kort yfir flutning grunn-
vatnsins undir landinu.
Ný sfjórn mynduð
á Italíu í aær
Fyrsti boðskap-
ur Páls páfa VI
Hoim mun fylgíci stefnu Jóhannesar XXIII
Vatikan, 22. júní. (AP-NTB)
PÁLL páfi VI flutti heimin-
um í morgun fyrsta boðskap
sinn frá Sixtusarkapellunni.
Var honum útvarpað.
Páfi vék að verkefnúm
þeim, er hans bíða. Kvaðst
hann mundi starfa í anda Jó-
hannesar páfa XXIII. Lagði
hann fyrst og fremst á-
herzlu á:
t að sameina alla kristna
menn,
t að vinna að framgangi
réttlætis,
j að bæta þyrfti lífskjör í
vanþróuðum löndum.
Páll páfi vék að "kristnum
mönnum í þeim löndum, þar sem
trúarbrögð eru andstæð skoðun-
um valdhafanna. Færði hann
þeim mönnum, kaþólskum, er í
þeim löndum búa, kveðju sína,
og bað þá að vera hughrausta.
Páfinn vék mikið að því, hve
margar þjóðir búa við bág kjör.
Hvatti hann til samstarfs til
þess að bæta kjörin, sem víða
væru ekki sæmandi fólki.
Þá vék páfi að geimferðum og
rannsóknum á himingeimnum.
Lýsti hann blessun á því starfi,
svo framarlega, sem menn gætu
komið sér saman um að vinna
eins og bræður — en ekki eins
og keppinautar.
„Friðurinn er ekki aðeins á-
stand án bardaga, heidur endur-
speglar hann Guðs vilja“, sagði
Páll VI.
Páfi var vongóður í ræðu sinni
og sagði marga góða og fram-
sýna menn í heiminum hafa sýnt
merki þess, að þeir vildu vinna
að framgangi þýðingarmikilla
mála.
Að lokum tóku áheyrendur
postullegri kveðju páfa.
Rannsókn vegna
Svalbarðaslyssins
Osló, 22. júní — NTB
FBÁ því var skýrt í Oslo í dag
að réttarrannsókn hafi verið á-
kveðin, vegna upplýsinga þeirra,
sem fram hafa komið um náma
slysið á Svalbarða í fyrraliaust.
Mun rannsóknin fara fram á
vegum lögreglu og saksóknara,
eu rannsóknarnefndin mun hafa
aðalstöðvar sínar í Osló.
Saksóknari ríkisins, Andreas
Aulie, skýrði fréttamönnum frá
þessari ákvörðun. Lýsti hann því
yfir, að þrír lögfræðingar, sem
starfa á vegum saksóknara-
embættisins, muni stjórna rann-
sókninni. Formaður nefndarinnar
verður einn úr þeirra hópi, Karl
Lous.
Þegar réttarrannsókninni er
lokið, þá mun verða ákveðið,
hvort höfðað verður mál á hend
ur einhverjum, fyrir vanrækslu
þá, sem talið er að hafi valdið
dauða námamannanna, 21. tals-
ins, í nóvember á sl. ári.
Málið er enn rætt í öllum blöð
um í Oslo í dag, enda hefur ekk
ert komið slíku róti á stjórnmái
í landinu, allt frá stríðslokum, og
skýrsla nefndar þeirrar, seno
send var til Svalbarðaa.
Róm, 22. júní — AP/NTB.
Ný stjórn hefur verið mynduð
á ítaliu. í henni eiga sæti 22
kristilegir demokratar, en for-
sætisráðherra er Giovanni Leone,
fyrrverandi þingforseti.
Forseti landsins, Antonio Segni
^Har0iuiUaAsiii«
fylgir blaðinu í dag og er efni henn-
ar sem hér segir:
Bls. 1 Skírnir, elzta tímarit á Norð-
urlöndum, eftir prófessor Hall
dór Halldórsson
2 Svipmynd, Bob Hope
— 3 Bréf tii Guðs, smásaga eftir
Gregorio López y Fuentes
Dauði, kvæði eftir Grétar
Fells
— 4 Hugurinn þarfnast örvunar,
eftir Dr. Arvid Ás
*— S Bókmenntir: lllasko snýr
aitur
Rabb, eftir SAM
— 1 Lesbók Æskunnar: l>að lóðar
á hann
— S Kafbátar, öflugasta varnar-
vopn Vesturveldanna, eftir
HjáJmar Sveinsson
— 10 Fjaðrafok
— 13 Göngur fiskanna II: Er það
eðlishvöt?
— 15 Krossgáta
•— 10 Umferðar-galdramaðurinn.
hefur þegar samþykkt ráðherra-
lista Leone.
Er þar með lokið stjórnar-
kreppu, sem staðið hefur í 36
daga, eða frá því þingkosningar
fóru fram.
Ekki er talið, að stjórn Leone
geti orðið starfsöm, eða hrundið
í framkvæmd meiriháttar mál-
um, enda eru Kristilegir demo-
kratar í minnihluta á þingi.
Nokkrir þeirra ráðherra, sem
áttu sæti í stjórn Fanfanis, sitja
nú í stjórn Leones. Af þeim má
nefna Attilio Piccioni, sem verð-
ur áfram varaforsætisráðherra
og utanríkisráðherra, og Giulio
Andreotti, sem gegmr enn starfi
varnarmáiaráðherra. Af öðrum
ráðherrum má nefna Emilio Col-
ombo. Hann var áður viðskipta-
málaráðherra, og hafði með
höndum málefni, er snertu Efna-
hagsbandalag Evrópu. Colombo
verður nú fjármálaráðherra.
Mariano Rumor tekur við em- 1
bætti innanríkisráðherra, en Giu-
seppe Togni við embætti við-
skiptamálaráðherra. Flestir aðr-
ir ráðherrar hafa lítið eða ekkert
orð getið á alþjóðasviði.
Nýja stjórnin átti að vinna
embættiseið sinn kl 17.00 í dag,
eftir isl. tíma.
m. breitt bannsvæoi
a-þýzku landamærin
500
við
— er 100 m. breitt við Berlínarmúrinn. Ný
hernaðarráðstöfun a-þýzku stjórnarinnar
Berlín, 22. júní. — (AP-NTB)
AUSTUR-ÞÝZKA stjórnin
hefur tilkynnt, að sakir und-
irróðursstarfsemi í Vestur-
Þýzkalandi, hafi orðið að
grípa til þess ráðs að gera
„öryggisbelti“ við landamær-
in. Er hér um að ræða 100
m breitt belti við Berlínar-
múrinn, en 500 m breitt belti
annars staðar meðfram landa
mærunum.
Fréttamenn í V-Berlín og
V-Þýzkalandi telja bins veg-
ar, að hér sé um að ræða enn
eina tilraun austur-þýzkra yf-
irvalda til þess að hindra
flótta A-Þjóðverja vestur á
bóginn.
Þrátt fyrir þessa áfcvörðun,
m-un uimtferð um hilið þau, 8
talsin.s, sem eru á Berlínarmúrn
uim, halda áfraim, eins og verið
heftur.
I morgun tókst þó austur-
þýzkum herlögreglumanni, „Vo-
po“, að flýja til V-Berlínar. —
Komst hann óséður vestur yfir,
í herklæðum og með alvæpni.
Eins og komið heifur fraim I
fréttuim undantfarna mánuði, þá
hefur tlRlsverðuim fjöilda fóllks
tekizt að flýja til frelsis, þrátt
fyrir Berlínarmúrinn cvg aðrar
„ öry gg isaðg erði.r, sem austiur-
þýzk stjórnarvöld haia gripið
tii. —
Ráðstafanirnar nú eru fyrslt
og fremst taldar gerðar í því
skyni að koma í veg fyrir flótita
Austur-Þjóðverja. Þá munu
þær einnig miða að því að
hindra, að fólk geti kallazit á
milli borgarhluta, eða sfcipztf á
upplýsingum á þanin hátt.
Mikil skil'ti hafa verið reist
meðfram bannsvæðinu, og ÖQI-
um þeim heitið þyngstu retfls-
ingu, sem reyna að hreyfa við
skiltunum. Barnnað hetfur verið
Óaínifitomt að taika rnyndir atf
banins-væðinu.