Morgunblaðið - 23.06.1963, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 23.06.1963, Qupperneq 15
Sunnudagur 23. júní 1963 MORGVNBLAÐ1Ð 15 Þær frönsku skiptu um húninga á þremur mín. — Fötin flest úi striga og olsilbi ÞÆR voru margar konurnar — og raunar karlmenn líka — sem komu til að sjá frönsku sýningarstúlkurnar Michele og Dominique sýna Parísartízk- una á Hótel Sögu á föstudags- kvöldið. Þær sýndu 50 alklæðn aði, eins og áður hefur verið skýrt frá hér í blaðinu. Kynnir sýningarinnar var frú Ragna Ragnars, sem komst svo að orði, að einkenni Parísartízk- unnar í ár væri látleysi og vönduð vinna. Þröng pils væru ekki vinsæl og mittið mætti helzt ekki sjást. Við birtum hér nokkrar Gluggar á bakinu virðast njóta vinsælda lun þessar mundir í Paris. Gluggakjóll- inn hennar Michele var blá- grænn úr strigaefni, með grábrúnum leggingarbönd- um í hálsmáUð. Xvær slauf- ur prýði kjólinn að aftan, eins og sjá má af myndinnL Sýningarstúlkumar Michele (L v.) og Dominique, báðar i fallegum alsilkikjólum, ermalausum og teknir saman með mjóu bandi í mittið. Kjóll Michele er svartur og hvítur, en kjóll Dominique gulur og appelsínubleikur. (Ljósm. Mbl. Ól.K.M.) Michele var ákaft klappað lof í lófa þegar hún birtist í þessum klæðnaðL Strigi og alsilki virðast ekki skyld efni, en engu að síður er pilsið úr striga og blússan úr silki. Hún er doppótt og skreytt pífu að neðan. Mitt- islínan er rétt fyrir ofan mittið. myndir frá tízkusýningunni fyrir þá, sem ekki eiga þess kost að sjá hana með eigin aug um. Aðalliturinn var allskon- ar afbrigði af bleikrauðum og fjólubláum lit, ennfremur svart og hvítt, en við og við skaut upp margvíslegum öðr- um litum, gult, grænt og blátt; Sýningin tók nokkuð langan tíma og þótti mörgum hún ekki nógu fjölskrúðug. Sýning arstúlkurnar gengu hornanna á milli í Súlnasalnum og skiptu um búning á mettíma, eða um það 3 mínútum. All* skiptu þær um 25 sinnum hvor og þurftu jafnan að gæta þess að vera í skóm og méð hatta í viðeigandi litum. Eins og venja er á tízku- sýningum erlendis var hægt að panta fötin sem sýnd voru, en þau voru öll frá Galeries Lafayette vöruhúsinu í París. Þær voru ekki ófáar er hurfu bak við tjöldin til að skoða kjólana og spyrja um verð Dominique í kjól úr ullarefni, með tvöfaldri hnapparöð að framan. Pilsið er af klukkugerðinni, víkkar út að neðan, eins og flest tízkupils. Hún heldur á köflóttri kápu í hendinni. Kápan er með ísettum ermum, tvíhneppt og hornakraga. Michele gengur um saiinn í sægrænni ullarkápu. Kápan er hneppt stutt niður og undir henni er samlitt pils. Smurt braud og snittur Opið frá kl. 9—11,30 e.h. Sendum heim. Brauðborg Frakkastig 14. — Simi 18680 GUSTAF A. SVEINSSON hæstaréttarlögmaður Simi 11171. Þórshamri víð Templarasund Malflutningsstofa Guðlaugur Þorláksson, Einar B. Guffmundsson, Guðmundur Pétursson. Aðalstræti 6, 3. hæð. fnji Ingimundarson hæstaréttarlögmaður Klapparstíg 26 IV. hæð Sími 24753 Síldarsöltunarstúlkur Stúlkur óskast til síldarsöltunar á Siglu- fii’ði. Fríar ferðir. Gott húsnæði. Upplýsingar í síma 24754.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.