Morgunblaðið - 23.06.1963, Síða 12

Morgunblaðið - 23.06.1963, Síða 12
12 MORCUNBLAÐ1Ð Sunnudagur 23. júní 1963 Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík. EVamkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur Matthías Johannessen, Eyjólfur Kom'áð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Að».lstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 4.00 eintakió. HEILBRIGT STJÓRNARFAR jT'lokksráð Sjálfstæðisflokks ins lýsti því yfir á fundi sínum sL föstudag, að það teldi það rökrétta afleiðingu kosningaúrslitanna, að stjórn arsamstarfið haldi áfram á sama grundvelli í meginatrið- um og lagður var á síðasta kjörtímabili. Yfirlýsing þessi er ítrekun á því, sem báðir stjórnar- flokkarnir lýstu yfir fyrir kosningarnar. íslenzkir kjós- endur vottuðu viðreisnar- stefnunni ótvírætt traust í kosningunum 9. júní. Sigur ríkisstjómarinnar var stærri en margir gera sér ef til vill ljóst í fljótu bragði. Ríkis- stjórn sem hlýtur nær 56% atkvæða hefur ekki sigrað með neinum naumindum. Hún hefur unnið stórsigur. Það er vitanlega starf og stefna Viðreisnarstjórnarinn- ar á síðasta kjörtímabili, sem hefur skapað henni þetta mikla fylgi meðal þjóðarinn- ar. Þessi kosningaúrslit sýna mikinn þroska kjósenda. Við- reisnarstjórnin varð að vinna ýmis verk í upphafi starfs- tímabils síns, sem ekki voru vinsæl. Hún varð að segja þjóðinni sannleikann um hinn hörmulega viðskilnað vinstri stjórnarinnar og gera róttæk- ar ráðstafanir til þess að af- stýra því hruni, sem yfir vofði. Stjórnin hikaði ekki við að gera þessar ráðstaf- anir, enda þótt henni væri Ijóst, að þær voru ekki allar til vinsælda fallnar. En íslenzkur almenningur hefur gert sér ljóst, að Við- reisnarstjórnin gerði aðeins það, sem gera þurfti. Þess- vegna hikaði fólkið ekki við að framlengja valdatímabil hennar og votta henni ótví- rætt og mikilsvert traust. Sú staðreynd, að viðreisn- arstjómin situr áfram a.m.k. það kjörtímabil, sem nú er að byrja, gefur fyrirheit um heilbrigt og öruggt stjórnar- far. Stjórnarflokkarnir hafa xrnnið saman af drengskap og heilindum. Þeir hafa lagt meg ináherzlu á að ráða hinum vandasömu málum til lykta, en stillt sig um að ástunda lítilmótlegan meting um það, hvorum þeirra beri fyrst og fremst að þakka framgang einstakra þjóðnytjamála. Af þessum ástæðum m.a. varð kosningabaráttan af hálfu stjómarflokkanna mennilegri en oft áður, þegar samsteypu stjómir hafa gengið til kosn- inga, og flokkar þeirra hafa borið hver aðra brigzlum um svik og pretti Það sem mestu máli skiptir nú er að framkvæmd þróun- arstefnunnar heldur áfram. Þjóðin hefur með kosningaúr- slitunum tryggt sér öruggt og heilbrigt stjómarfar næstu fjögur árin. Þeirri staðreynd ber vissulega öllum lýðræðis- sinnuðum íslendinga að fagna. VONBRIGÐI FRAMSÖKNAR F'ramsóknarflokkurinn bað 1 um „stöðvunarvald“ í kosningunum. Til.hvers ætl- aði hann að nota það vald? Auðvitað til þess að braska sig inn í ríkisstjóm að nýju. En Framsóknarmenn fengu hvorki meirihluta með komm únistum til þess að mynda nýja vinstri stjórn né „stöðv- unarvald" til þess að brjóta Viðreisnarstjórnina á bak aft- ur og braska sig inn í nýja samsteypustjórn. Það urðu hinni gömlu maddömu mikil vonbrigði. Framsóknarflokk- urinn verður nú að horfast í augu við þá staðreynd, að hann verður að minnsta kosti utan dyra stjórnarráða fram til loka þessa kjörtímabils. Hann hefur þá verið utan rík- isstjórnar frá því að vinstri stjórnin sáluga lagði upp laupana haustið 1958 og fram til ársins 1967, eða í samtals 9 ár. Þessar horfur eru leiðtog- um Framsóknarflokksins þung raun. Framsóknarflokk- urinn hefur allt frá því hann var stofnaður lengstum verið í ríkisstjórn. Á því hefui hann lifað og í skjóli þess hefi ur honum tekizt að skapa sér margs konar sérstöðu og for- réttindi. Yfirgnæfandi méirihluti ís- lenzku þjóðarinnar fagnar því áreiðanlega að vera um skeið laus við sérréttinda- brask Framsóknarmanna í stjórn landsins. Um framtíð- ina verður að sjálfsögðu ekk- ert fullyrt, en margt bendi-r til þess að fylgi forréttinda- stefnu Framsóknarflokksins muni fara rénandi, þegar þjóðin hefur átt þess kost að búa um áratugs skeið við heilbrigt stjórnarfar og eðli- lega þróun og uppbyggingu. NÝR PÁFI lVrýr páfi hefur verið kjör- -*■ ’ inn. Montini erkibiskup í í FREGNUM þeim, sem Tass fréttastofan hefur birt, um geimferðir Valentínu Teresh- kovu og Valerís Bykovsky, segir m.a., að þau hafi bæði gengið um gólf í geimförum sínum. Þessar fregnir staðfesta hugmyndir, sem vestrænir geimferðasérfræðingar hafa gert sér um Vostok geimför Sovétríkjanna. Eru hugmynd MERCURY 4—a.OSm^ CEMINI e..7om—► YOSTQK. Tereshkova og Bykovsky gengu um í geimfðrunum irnar byggðac á þeim fáu myndum, sem Sovétríkin hafa sýnt af geimförunum á Vestur löndum. Það eru þó ekki Ijós myndir, heldur kvrkmyndir, önnur um geimferð Gagaríns og hin um geimferð Titovs. Hafa þessar kvikmyndir að- eins verið sýndar á örfáum stöðum vestan járntjalds. Vestrænir geimferðasérfræð ingar hafa látið í ijós þá skoð un sína, að Vostok geimförin séu miklu stærri en geimför Bandaríkjamanna, Merkury og Gemini, og sést stærðarmun urinn á meðfylgjandi mynd. Sem kunnugt er, eru geim- farár Bandaríkjanna fast skorðaðir í geimförunum og geta aðeins hreyft hendurnar. Sovézku geimfararnir geta hins vegar eins og áður segir, gengið um í sínum geimförum. Talið er, að klefar geimfar anna í Vostok geimförunum séu stærri en stjórnklefar í venjulegúm flugvélum og súr efniskerfi þeirra sé mun full- komnara, en súrefniskerfi bandarísku geimfaranna. , Vísindamenn á Vesturlönd- um telja, að Vostok 6, geim- far Tershkovu, hafi verið af sömu gerð og geimfar Gaga ríns og Títovs, en geimfar Bykovskys töluvert stærra og þyngra. Þegar bandarísku geimför- unum er skotið á loft, losa þau sig við öll þrep eldflauganna, áður en þau fara á braut um- hverfis jörðina. Hins vegar er efsta þrep sovézku eldflaug- anna, sem notað er við geim skot, föst við geimförin og þar af leiðandi eru þau mörgum sinnum lengri en hin banda- rísku. Þetta efsta þrep er not að til þess að skjóta geimfar- inu á braut, en síðan starfar það ekki fyrr en komið er að lendingu. Áður en geimförin lenda, er þeim snúið. og eld- flaugaþrepið notað sem brems ur. Bremsurnar eru settar á 30 mínútum áður en geimfar- ið lendir. Geimfarinn getur ráðið því hvort hann lendir í geimfarinu, eða stekkur út úr því áður en það lendir og svífur í fallhlíf til jarðar. Ekki hefur verið skýrt frá því hvorn háttinn þau Bykovsky og Tereshkova höfðu á, er þau lentu. Sem kunnugt er ætla Banda ríkjamenn ekki að senda fleiri geimför af gerðinni Mercury umhverfis jörðina. Næst ætla þeir að senda Gemini geimfar með tveimur mönnum innan borðs. Talið er, að það verði í árs lok 1964. Gemini geimfar Bandaríkjan na. Af teikningunni, sem fylgir, sést hve miklu stærri Vostok geimförin eru. Mílanóborg varð hlutskarp- astur, þegar kardínálar kaþólskra komu saman til páfakjörs. Hefur Montini tek- ið sér nafnið Páll VI. Hefur hann lýst því yfir að hann muni í aðalatriðum fylgja stefnu síðasta páfa, Jóhann- esar XXIII, sem reyndist einn af mikilhæfari páfum síðari alda. Páfakjör vekur að jafnaði heimsathygli. Páfinn í Róm er andlegur leiðtogi 500 millj- óna kaþólskra manna um all- an heim. Á hann er litið sem einn áhrifamesta leiðtoga heimsins í andlegum efnum. Margir afburðamenn hafa á liðnum tíma setið á páfastóli. Páll páfi VI er talinn mikl*- hæfur og gáfaður kirkjuhöfð- ingi og í hópi frjálslyndari manna innan kaþólsku kirkj- unnar. Munu því margir byggja miklar vonir á páfa- dómi hans.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.