Morgunblaðið - 24.07.1963, Síða 12

Morgunblaðið - 24.07.1963, Síða 12
12 ÍUORCVISBLAÐIÐ MiðvikudagUr 24. júlí 1963 Hjartanlega þakka ég börnum mínum, tengdaböm- um og barnabörnum og öllum vinum mínum og vanda- mönnum nær og fjær og nágrönnum mínum fyrir höfð- inglegar gjafir, blóm og heillaskeyti á áttræðis afmæli mínu 20. júlí sl. og bið ég algóðan Guð að launa ykkur fyrir mig. Með kærri kveðju. — Guð blessi ykkur öll. Pálína Elíseusardóttir. Eiginmaður minn og faðir ÞORSTEINN JÓNSSON Hverfisgötu 104, Rvík, lézt að sjúkradeild Hrafnistu þann 23. þ.m. Ólafía Eiríksdóttir og böm. Jarðarför mannsins míns og föður okkar ERLENDAR EINARSSONAR Langagerði 20, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 25. júlí kL 1,30 e.h. Helga I. Helgadóttir, Guðmundur E. Erlendsson, Sigríður Erlendsdóttir. Jarðarför GUÐMUNDÍNU MARGRÉTAR SIGURÐARDÓTTUR fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 26. júlí kl. 1,30 e.h Blóm afbeðin, en þeim er vildu minnast hinnar látnu er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Eyjólfur Finnbogason, börn, tengdaböm og barnabörn. Konan mín HALLDÓRA SIGURÐARDÓTTIR verður jarðsungin frá Stokkseyrarkirkju fimmtudag- inn 25. þ.m. kl. 1,30. — Kveðjuathöfn fer fram frá Dómkirkjunni kl. 10,30 árd. Athöfninni verðúr útvarp- að. Blóm vinsamlegast afbeðin. Þeim er vildu minnast hinnar látnu er bent á líknarstofnanir. Eftir athöfnina í Dómkirkjunni verður bílferð til Stokkseyrar. Fyrir hönd vandamanna. Jón Magnússon frá Stokkseyri. Útför GÍSLA SIGURÐSSONAi; fisksala, Jófríðarstaðavegi 9, Hafnarfirði, er lézt 20. júlí sl. fer fram frá Þjóðkirkjunni, Hafnar- firði, fimmtudaginn 25. júlí kl. 2 e.h. Vandamenn. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför dóttur okkar AUÐAR Sara Ólafsdóttir, Bergur Arinbjörnsson. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa VIGFÚSAR GUÐBRANDSSONAR klæðskerameistara. Kristín Ólafsdóttir, Rósa Vigfúsdóttir, Frímann Jónsson, Þorbjörg Sigurjónsdóttir, Friðrik Vigfússon, Ólöf Sigurjónsdóttir, Haukur Vigfússon og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð við andlát og jarðarför mannsins míns og föður EYSTEINS AUSTMANNS JÓHANNESSONAR hótelstjóra á Laugarvatni. Ella Jóhannesson, Sólveig Jóhannesson. ÞÖkkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför GÍSLA KRISTINS AÐALSTEINSSONAR Norðurgarði Vestmannaeyjum. Eigninkona, böm, tengdabörn og bamaböm. Við þökkum innilega auðsýnda vináttu og samúð við andlát rg jarðarför BALDVINS JÓNSSONAR Ingibjörg Benónýsdóttir og böm. Islenzk myndlisltursýning veknr nthygli í Þýzknlnndi ÍSLENZKA myndlistarsýningin, sem haldin hefir verið á undan- förnu ári í ýmsum borgum í Þýzkalandi hefir vakið mikla athygli og hlotið góða dóma í þýzkum blöðum. Þetta kom fram í skýrslu formanns félagsins Germanía á aðalfundi félagsins, sem haldinn var nýlega. Dr. Jón E. Vestdal, formaður Germaníu, skýrði frá því að sýn- ingin hefði verið haldin fyrst í sambandi við Kielar-vikuna fyrir um það bil ári. Síðan hafa mynd- irnar verið sýndar í eftirtöldum borgum: Hamborg, Harb,< g, Lubeck, Köln, Giesen, Goszlar og Bielefeld. Ráðgert er að sýna myndirnar víðar í Þýzkalandi, en þær verða að líkindum fluttar hingað heim í lok þessa árs. Á sýningunni eru myndir eftir þessa listamenn: Ásgeir Bjarn- þórsson, Ásgrím Jónsson, Bar- böru Árnason, Braga Ásgeirsson, Eggert Guðmundsson, Finn Jóns son, Guðm. Einarsson, Gunnlaug Blöndal, Hafstein Austmann, Jón Engilberts, Pétur Fr. Sigurðsson, Ragnar Pál Einarsson, Sigurð Sigurðsson, Svein Þórarinsson og Veturliða Gunnarsson. Sýndar ení 77 myndir og er helmingur þeirra til sölu. Til þessa hafa 15 myndir selzt. í fallegri sýningarskrá er rak- inn stuttlega ferill listamann- anna, en Birgir Kjaran ritar inn- gang um íslenzka myndlist. Sýningarinnar hefir verið get- ið í ýmsum stærstu dagblöðum Vesfur-Þýzkalands, einnig í þýzk um listtímaritum, og yfirleitt mjög vinsamlega. Félagið Germanía vinnur kapp samlega að málum, sem varða ís- land og Þýzkaland sameiginlega. M.a. annast félagið heimsókn dr. Max Adenauers, borgarstjóra í Köln, en hann kemur hingað í boði félagsins eftir nokkra daga og mun ferðast um landið ásamt dóttur sinni næstu vikur. Árlega kemur út á vegum félagsins í samvinnu við íslenzk- þýzk félög í Þýzkalandi ritið ÍSLAND, stórt og mikið rit, rit- að af nafnkunnum mönnum, ís- lenzkum og þýzkum. Innan skamms er væntanlegt aukarit þýzka blaðsins „Das Parlament, sem fjallar um ís- land. Blað þetta er gefið út á vegum þýzku ríkisstjórnarinnar, en í íslandsritinu verður grein eftir dr. Alexander Jóhannesson prófessor, skrifuð að beiðni Germaníu. Starfsemi félagsins Germaníií Féll 5 metra niður of Keflu- víkurvegi KLUKKAN 4,10 aðfaranótt sunnu dags var lögreglunni í Hafnar- firði tilkynnt að „pick-up“ bíl hefði verið ekið út af hinum nýja Keflavíkurvegi á 5—6 metra uppfyllingu hjá Steypustöð aðal- verktaka á Hvaleyrarholti. í bíln um voru fjórir menn, en mega lögum samkvæmt vera þrir, og er talið að þeir hafi verið undir áhrifum. Ökumaðurinn missti meðvitund og var fluttur í Slysa- V'rðstofuna. Dregið í bíl- happdrætti DREGIÐ hefur verið í happ- drætti félagsheimilissjóðs Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar. Vinningurinn, Simca-bifreið, kom upp á miða nr. 677. Vinnings ins má vitja í skrifstofu félags- ins í Tjarnargötu 12. er þróttmikil, margar kvikmynda sýningar haldnar á árinu á veg- um félagsins og skemmtifundir haldnir, sem yfirleitt eru mjög vel sóttir. Dr. Jón E. Vestdal var endur kjörinn formaður félagsins, en með honum í stjórn Germaníu eru Lúðvig Siemsen, Þóra Limm- ermann, Þorvarður Alfonsson og Pétur Ólafsson. — Þórður á Láfrum Framh á bls. 11 það að taka þetta magn sem tek- ið er með dragnót. Á þessari tviræðu yfirlýsingu fiskifræðinganna í „Morgunblaðs greininni“ virðast veiðarnar byggjast í ár. Borgarstjóri og borgarráð Reykjavíkur byggja sina ákvörðun, að mæla með veið um með dragnót í Faxaflóa á þessu sumri, á ummælum Jóns Jónssonar, að því er „Morgun- blaðið“ segir 7. maí. „En þá er allt hvað þrennt er“. Það skeði svo á þessu herrans vori, hinu IV. á núverandi tíma- bili dragnótar, og þess vísinda- lega eftirlits sem henni fylgir, að Aðalsteinn fiskifræðingur lýsir því yfir, í útvarpsviðtali við Stefán Jónsson fréttamann, úti á miðum margnefnds Faxaflóa, að úr þeim gögnum sem safnað hef- xir verið við hið vísindalega eftir- lit með dragnót, sé óunnið ennþá, og óvíst hvenær unnið verði vegna manneklu. Þetta kom vist mörgum á ó- vart, en ekki mér. Ég hef alltaf litið svo á, að vísindalega eftir- litið með dragnótaveiðunum væri óframkvæmanlegt með þeim mannafla og aðstöðu sem fiskifræðingar okkar hafa, miðað við það, að það geti varað við um skaðsemi dragnótarinnar í tæka tíð, nema þá að leggja allar aðrar sjávarrannsóknir til hliðar, og þó varla fyrir það. Ekki má þó taka þetta svo, að ég vilji gera lítið úr okkar ágætu fiskifræð- ingum og störfum þeirra, nei, öðru nær. Ég hef mikinn áhuga á þeim störfum þeirra, en veit þó, að þeir eru aðeins menn, sem ekki geta afkastað ótakmörkuðu verki, þótt segja megi að þeir hafi nálgazt það, en stjórnmála- mennimir virðast reikna með að þeir geti það, hvað sem aðstöð- unni líður. Eftir þær upplýsingar, sem frá fiskifræðingunum hafa komið, og hér að framan er getið, verða þau rök stjórnmálamannanna léttvæg fundin, að skáka í því skjóli að fiskifræðingarnir geta ekki sagt dragnótaveiðarnar skaðlegar, og byggja leyfisveitingar á því eins og nú er gert. Þeir ættu einnig að hafa það í huga, að sömu menn geta heldur ekki sagt þær óskað- legar. Þess vegna væri stytting veiðitímans að þessu sinni sjálf- sögð varfærni af hendi stjórn- málamannanna, helzt að stöðva veiðarnar þar til hinn vísindalegi úrskurður liggur fyrir, sam- kvæmt þeim óunnu gögnum sem sögð eru liggja fyrir. Ef við erum öll minnug þess, hversu lífsafkoma þjóðarinnar allrar byggist að miklu leyti á sjávarafla, þá hlýtur sú spurning að leita á hug okkar allra: Er okkur nauðsynlegt að tefla svona djarft í þessu máli? Er fjárhags- afkoma þjóðar og einstaklinga þannig að hún réttlæti það? Er það eðlilegt og sanngjarnt, að taka ekkert tillit til þeirra fjöl- mörgu smábáta og mannanna sem á þeim eru, og sem drag- nótaveiðarnar byggja út af Mkf' miðum, sem eru við þeirra nfcfi, og þeim æskilegust, og flæma þennan veiðiflota, út til hafs eða upp í naust? Ég leyfi mér að efast um, að það séu margir sem með góðri samvizku geta svarað þessum spurningum játandi. T<átrum, 20. 6. 1963. Þórður Jónsson. í 5. UMFERÐ á Evrópumótinu í bridge tapaði Island fyrir Frakk landi með 73 stigum gegn 104. Úrslit í 5. umferð urðu þessi: Líbanon — Sviþjóð 6—0 Frakkland — Island 6—0 írland — Danmörk 4—2 Finnland — Egyptaland 6—0 England — Noregur 5—1 Holland — Spánn 6—0 ítalía — Aunturríki 6—0 Pólland — Þýzkaland 6—0 Sviss — Belgía 5—1 Úrslit 1 3. umferð í kvennafl.: Svíþjóð — Danmörk 5—1 England — Spánn 6—0 Egyptaland — Líbanon 6—0 Frakkland — Finnland 6—6 Belgia — Noregur 5—1 Sviss — Holland 6—0 írland — Þýzkaland 6—0 I kvennaflokki er staðan þessi: 1. England 18 stig 2. Sviss 18 — 3. Egyptaland 17 — 4. Svíþjóð 13 — 5. Líbanon 12 — 6. írland 12 — 7. Belgia 11 — 8. Austurríki 10 — 9. Frakkland 10 — 10. Noregur . 6 — 11. Spánn 6 — 12. Danmörk 2 — 13. Holland 2 — 14. Finnland 1 — 15. Þýzkaland 0 — í opna flokknum er 5. umferðum loknum staðan að þessi: 1. England 29 stig 2. Ítalía 27 — 3. Pólland 21 — 4. Finnland 20 — 5. Frakkland 19 — 6. Þýzkaland 16 —. 7. Spánn 14 — 8. Belgia 13 — 9. Svíþjóð 13 — 19. írland 13 — 11. Holland 13 — 12. ísland 12 — 13. Líbanon 12 — 14. Austurrík. 12 — 15. .Sviss 12 — 16. Noregur 9 — 17. Egyptaland 8 — 18. Danmörk 7 — Bruni á .Hofsósi BÆ, Höfðaströnd, 22. júli. Á laugardaginn varð eldur laus í þakhæð gamla kaupfélagshússins á Hofsósi, sem er gamalt timbur- hús. Þrátt fyrir norðan rok tókst að ráða niðurlögum eldsins í tæka tíð, en geymsluskúrar standa nærri húsinu og hafði verið borið út úr þeim af ótta við að eldurinn kynni að breið- ast út í þá. Nægur mannafli var til slökkvistarfsins og vatn á næstu grösum. Enginn býr í hús- inu, en talið er að börn hafi kom- izt í þakhæðina og valdið íkveikju. — Björn. LJ0SMYNDASTOFAN LOFTUR ht. Ingólfsstræti 6. Pantið tima í sima 1-47-72.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.