Morgunblaðið - 24.07.1963, Page 19
19
Miðvikudagur 24. julí 1363
MORGVNBLAÐ1Ð
Minna um skógarþröst
og hrossagauk í ár
vegna kuldans í Evrópu
í vetur
ÞEGAR KULDAKASTH) mikla
gekk yfir Evrópu í veíur, féllu
margar fuglategundir þar unn-
vörpum. MorgunblaðiS átti þá tal
við dr. Finn Guðmundsson, fugla
fræðing, og kvaðst hann búast
við, að þessa mundi gæta á ís-
landi í sumar, þannig að minna
yrði um varpfugla hér í ár, sem
vetursetu hafa í þeim löndum,
þar sem kuldakastið kom harðast
niður.
í gær spurði Mbl. dr. Finn,
hvernig útkoman hefði svo orðið.
Hann sagði, að áhrifanna frá hin
um kalda vetri í Evrópu hefði
greinilega orðið vart hér. Miklu
minna væri um skógarþresti í
ár en venjulegt væri, og hefði
sú fuglategund orðið harðast úti.
f>ar næst kæmi hrossagaukur
(mýrisnípa), en báðir þessir fugl
ar hafa vetrardvöl á Bretlands-
eyjum. Minna bæri á þessari
fækkun hjá fuglum, sem halda
lengra suður á vetrum, en eðli-
Síldarmjöl
M.s. Langá lestar hér í dag 300
tonn af síldarmjöli frá Síldar-
og fiskimjölsverksmiðju Akra-
ness. — Oddur.
— Nasser
Framhald af bls. 1.
Um samning þann, er gerður
var miili Egyptalands, Sýr-
lands og írak 1 apríl s.l. um
sambandsmyndunna, sagði for-
setinn: „Samningurinn er enn
í gildi — þó ekki hvað viðvíkur
Baath-fasistum í Sýrlandi.“
Síðan fór Nasser nokkrum orð
Um um heildarhagsmuni Araba-
ríkja, og nauðsyn þess að „frelsa“
Palestínu.
Alls talaði forsetinn í tvær og
hálfa klukkustund. Hann ræddi
m.a. heimsvaldasinna, en varði
meginhluta ræðutímans til for-
dæmingar ráðamanna . Sýrlandi.
í dag, þriðjudag, var síðan efnt
til opinberra hátíðarhalda í
Egyptalandi til að minnast þess,
að 11 ár eru liðin frá því Far-
ouk, Egyptalandskonungi, var
velt úr sessi.
Eitt vakti sérstaka athygli og
gífurlegan fögnuð almennings, er
hátíðarhöldin hófust: Tilkynnt
var, að egypzkum sérfræðingum
hefði tekizt að fullgera fyrsta
kafbátinn, sem smíðaður hefur
verið í Arabaríkjunum.
Yfirmaður égypzka hersin^,
Abdel Hakim, marskálkur, upp-
lýsti þetta í ræðu, sem hann hé'lt.
Fylgdi það fréttinni, að bátur-
inn yrði sendur í fyrstu reynslu-
ferð innan tveggja vikna.
Þá voru í dag sýndar í Kaíro
nýjar eldflaugar, og nýjar, sovézk
ar orustuþotur flugu í fyrsta
skipti yfir borgina.
Ljóst er af ræðum egypzkra
ráðamannaí dag, að þeir hyggjast
búa flota landsmanna fullkomn-
um vopnum. Eldflaugar verða
þýðingarmikill þáttur alls vopn-
búnaðar, bæði á landi og sjó.
í fréttum frá Tei-Aviv og
Kairo í dag er skýrt frá því, að
egypzkar og ísraelskar orustu-
þotur hafi í dag háð loftorustu
yfir Nitzana-héraði í ísrael. Frá
þessu var skýrt í báðum lönd-
unum, nær samtimis. í Kaíró-
fréttum segir, að ein ísraelsk
þota hafi verið skotin niður. Er
ísraelsmönnum kennt um að hafa
rofið lofthelgi Egyptalands. Þeir
kenna aftur Egyptum um sama
brot.
Nokkrir mánuðir eru nú frá
því, að til slíkra tíðinda hefur
dregið í samskiptum landanna.
Flugstöðvarbyggingin í Færeyj um. Flugturninn er ekki full-
geröur enn, en þar fær F. í. aöstöðu.
legt væri, að hún bitnaði mest á
þeim, sem stytzt fara. T.d. mundi
engu minna um máríuerlu (márí
ötlu) og spóa, en hann færi líka
alla leið til Afríku.
— Tilraunabann
Framh. af bls. 1
millan, að mestamáli skipti aðná
samkomulagi í Moskvu nú.
Einn úr stjórnarandstöðunni
beindi þeim tilmælum til Mac
millans í dag, að hann héldi til
aðalstöðva S.Þ. í haust til fundar
við æðstu menn. Þar gætu Mac
millan, Kennedy og Krúsjeff, for
sætisráðherra Sovétríkjanna,
ræðzt við, án þess, að þeim fundi
fylgdi mikil auglýsingastarfsemi
í blöðum. Forsætisráðherrann
svaraði því til, að enn væri of
snemmt að ræða um slíka ákvörð
un, hún yrði að bíða síns tíma.
Fregnir frá Washington í
kvöld herma, að Kennedy hafi
ekki enn viljað skýra frá því,
hvort hann muni senda Dean
Rusk til Moskvu til undirritunar
samnings um tilraunabann.
í fregnum fréttastofunnar
„Nýja Kína“ sagði enn fremur í
dag: „ætlunin (með banni) er að
koma í veg fyrir, að önnur ríki
sérstaklega sósíalistisk ríki —
nema Sovétríkin — fái yfir að
ráða kjarnorkuvopnum, svo að
Bandaríkin geti styrkt kjarnorku
her sinn, og kúgað þjóðir heims“.
— Fullskipað
Framh. af bls. 24
6—7 farþega. — Flugfélag ís-
lands notar hins vegar DC-3, eins
og kunnugt er.
Þetta er enn sem komið er til-
raunaflug hjá báðum félögunum,
en Færeyingar binda miklar von-
ir við, að það takist vel og borgi
sig. Var mikil ánægja ríkjandi í
Færeyjum í gær vegna flugsins.
Það kostaði um eina milljón
danskra króna, að koma flug-
vellinum í lag, en Bretar gerðu
hann á styrjaldarárunum.
Hvar er SAS?
Færeysku blöðin spyrja um
þessar mundir, hvers vegna hið
„samnorræna" SAS hafi ekki
viljað íhuga Færeyjaflug. T.d.
spyr „Dimmalætting" þannig á
laugardag í leiðara blaðsins:
„Hvorfor glimrer SAS ved sit
fravær?“
Láta vel af flugvellinum
Samkv. skeyti frá fréttaritara
Mbl. í Færeyjum voru allir á-
nægðir með ferðina. Flugstjór-
inn, Jón Ragnar Steindórsson,
sagði allt hafa gengið eftir áætl-
un, og flugvöllurinn væri allgóð-
ur. Jóhann Gíslason frá Flugfé-
I lagi fslands, sem var með í för-
inni, lét svo um mælt, að flug-
völlurinn á Vágum væri betri en
margir, sem notaðir væru á ís-
landi og Grænlandi. Hann væri
ágætur fyrir ferðamannaflug.
— 100 milljónir
Framhald af bls. 1
lagi niðurgreiðslna. Gerðu menn
sér vonir um að unnt væri að
lækka þessi útgjöld verulega, en
það reyndist ekki fært.
f öðru lagi var í fjárlögum
reiknað með 4% launahækkun
frá 1. júní 1962, eins og stéttar-
félög höfðu þá samið um. En
vegna frekari almennra kaup-
hækkana fengu ríkisstarfsmenn
7% launahækkun til viðbótar.
Kostnaður við þær launahækk-
anir, sem fjárlögin höfðu ekki
gert ráð fyrir, hefir numið yfir
20 millj. kr.
f þriðja lagi urðu framlög til
samgöngumála, þ.e. vega, brúa,
flugvalla og samgangna á sjó,
rúmlega 20 milljónir yfir áætl-
un. —
Nokkrir útgjaldaliðir fjárlag-
anna urðu undir áætlun. Einn
þeirra skal nefndur hér. Það eru
vaxtagreiðslur ríkissjóðs. Áætlað
var í fjárlögum, að vaxtabyrðin
yrði rúmar 9 millj. Hún varð
aðeins 2,8 millj. eða rúmlega 6
millj. lægri en áætlað var. Staf-
Grnsa- og steinosöfnunarferð
Litla ferðoklóbbsins um helgina
LITLI ferðaklúbburinn hefur haf
ið samstarf við Æskulýðsráð um
kynnisferðir unglinga. Nk. sunnu
dag verður farin grasa- og steina
söfnunarferð í nágrenni Reykja-
víkur. Lagt verður af stað kl.
10 f.h. frá Lindargötu 50. Nokkr-
ir stúdentar verða fararstjórar
og leiðsögumenn. Öllum er heimil
þátttaka, og eru unglingar beðn
ir að hafa meðferðis hníf og plast
poka. Þátttaka tilkynnist Æsku-
lýðsráði Reykjavíkur (sími
1-59-37) fyrir laugardag.
Næsta ferð Litla ferðaklúbbs-
ins verður um verzlunarmanna
helgina. Þá verður haldið í Þórs
mörk, þar sem margt verður
unglingum til skemmtunar.
ar þetta einkum af hagstæðari
stöðu ríkissjóðs gagnvart Seðla-
bankanum en áður. Lausaskuld-
ir voru engar í árslok 1962, ann-
að árið í röð.
Auk tekna og gjalda samkv.
fjárlagaliðum, eru ýmsar útborg-
anir og innborganir hjá ríkis-
sjóði, sem hafa áhrif á greiðslu-
jöfnuðiinn. Það eru hreyfingar
á geymslufé, aukið rekstrarfé
ríkisstofnana, veitt lán, fyrir-
framgreiðslur og fleira. Þegar öll
þessi atriði eru uppgerð, er
greiðsluafgangur ríkissjóðs á ár-
inu 162 millj. kr. 39 millj. af
greiðsluafganginum hefur þegar
verið varið til þess að greiða
upp gamla skuld ríkissjóðs við
Seðlabankann.
Eins og nú er ástatt í efna-
hagsmálum, framkvæmdir mikl-
ar, atvinnulíf blómlegt og viða
skortur á vinnuafli, er ekki rétt
að verja neinu af greiðsluaf-
gangi ríkissjóðs til aukinna fram
kvæmda nú.
| VitnaÖ enn gegn
dr. Stephen Ward
London, 23. júlí — NTB:
Réttarhöldin í máli brezka
læknisins, Dr. Stephen Ward,
héldu áfram í dag. Aðalvitnið
að þessu sinni var Marilyn
(Mandy) Rice-Davies, sem tel
ur sig m.a. vera „lafði Hamil-
ton 20. aldarinnar". Gerði hún
réttinum grein fyrir því, sem
á daga hennar hefur drifið
þau 18 ár, sem liðin eru frá
fæðingu hennar. Kom fram,
að hún hefur átt marga elsk
huga, og tók vitanleiðslan
tvær klukkustundir.
Rice-Davies var róleg, er
hún skýrði frá því, að hún
hefði átt ástarsamband við
Aston lávarð, Douglas Fair-
banks, jr. og „Pólska-Pétur“
Rachman.
Þá kom fram I réttinum í
dag önnur ung stúlka, Mar-
garet Ricardo. Hún hefur ver
ið riðin við mál Dr. Ward.
Lýsti ungfrúin því fyrir rétt
inum, að hún hefði gefið rang
ar upplýsingar við yfirheyrslu
fyrr í mánuðinum. Hún hefur
áður hlotið dóm fyrir vændi.
í framburði Rice-Davies
kom fram, að hún hefði sæng
að með Fairbanks, jr. Hins veg
ar neitaði hún því að hafa
nefnt hann í þessu sambandi
til að vekja athygli á sér. Að
auki gerði „Mandy“ grein fyr
ir því, hvernig hún hefði þýðst
marga ónafngreinda menn, og
þegið af þeim gjafir og fé.
Tvö önnur vitni, ónafn-
greind, voru leidd fyrir rétt-
inn í dag. Kom þar mikið við
sögu spegill sá, sem sagður er
hafa verið í íbúð Wards. Hafði
hann þá náttúru, að gegnum
hann mátti sjá öðrum megin
frá, aðeins. Virðist spegillinn
hafa skipt miklu í veizlum
þeim, sem haldnar voru í íbúð
læknisins.
Framburðurinn í dag mun
ekki hafa vakið minni athygli
en fyrri framburður í málinu.
Fyrir rúmum þrem tugum ára
voru sett lög um jöfnunarsjóð
ríkisins. Samkvæmt þeim lögum
skal leggja í þann sjóð tekjuaf-
gang ríkissjóðs þegar hann fer
fram úr tiltekinniupph. Féúr þess
um sjóði má aðeins nota til þess
að lækka skuldir ríkisins, mæta
tekjuhalla ríkissjóðs, ef svo ber
undir, en fyrst og fremst skal
nota fé jöfnunarsj óðsins til þess
að auka atvinnu og framkvæmd
ir, þegar atvinnubrestur verður
og afturkippur í framkvæmd-
um. Þessi lög hafa aldrei verið
framkvæmd, en þau standa enn
í góðu gildi.
Ríkisstjórnin vill nú láta þessi
merku lög koma til framkvæmda
og hefir því ákveðið að leggja
í jöfnunarsjóð ríkisins 100 millj.
af greiðsluafgangi ríkissjóðs á ár
inu 1962.
GUSTAF A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmaður
Sími llia
Þórshamri við Templarasund
— Húsöndin
Framhald af bls. 24.
var við fjóra stráka við girð
inguna, sem tóku til fótanna, þeg
ar hann nálgaðist. Þótti honum
það undarlegt, svo að hann elti
þá uppi. Kváðust þeir þá hafa
verið við andarhreiður að „hjálpa
ungunum að komast úr eggjun
um“. Höfðu þeir brotið gat á egg
in með hníf í því skyni og eyði-
lagt með því hreiðrið. í vor hefðu
náðst 11—12 ára drengir, sem
játuðu að hafa brotið gæsaegg
og drepið skógarþrastarunga
uppi í kirkjugarði. Hélt gæsin
einu eggi eftir heilu í vor, eins
og fyrra. Annars kvað Sigurður
minna um það nú en í fyrra, að
hreiður væru eyðilögð innan girð
ingar.
— íbróttir
Framh. af. bls. 22.
að venju við slík tækifæri. Og
ásýnd hans varð grimm áður
en hringt var til leiks.
Og ekki liðu margar sek. áð
ur en sást fyrir endan á keppn
inni. Liston laust Patterson
þungu hægri handar höggi í
skrokkinn. Patterson kom lausu
vinstri handar höggi á Liston.
Og svo sótti Patterson sig og
kom öðru af tveimur góðum högg
um sem hann kom á Liston,
vinstri handar kjálkahöggi.
Sonny deplaði ekki augum, en
sótti á móti og Patterson hengdi
I ig á hann. Liston sló hann
nokkrum höggum í maga og síð
an nokkur í höfuðið og Patterson
hné úr faðmi hans í gólfið. Hann
staulaðist á fætur þegar dómar
inn taldi: „tveir“. En samkvæmt
núgildandi reglum verður dómari
að telja upp að átta áður en
keppendur megi aftur ráðast
hvor að öðrum.
AFTUR f GÓLFIÐ
Þeir hengdu sig aftur hvor á
annan og Patterson sleit sig laus
an og kom allgóðu hægri handar
höggi á Liston. Áhangendur Patt
erson sem voru fjölmennir í hús
inu fögnuðu vel, enda var þetta
þeirra síðasta tækifæri og eina.
Áhrif höggsins voru engin. Og
án umsvifa var Floyd í gólfinu
aftur eftir vel úti látið högg.
Hann reis á fætur við: „fjórir“.
— En varð að taka talningu að
átta samkv. reglum.
Liston sagði eftir á að hann
hefði orðið æstur við þessa var
úðartalningu upp að átta. Taldi
sig missa góð tækifæri til að gera
út um leikinn.
TALINN (JT
Lokaátökin voru létt. Sonny
tuktaði Floyd eins og fullorð-
inn maður tuktar dreng. Hann
gaf honum þrjú vinstri handar
„húkk“ og síðan eitt með hægri
hendi á hökuna. Flloyd lá á bak
inu, velti sér á grúfi, staulaðist
upp og hafði tekizt það sekúndu
eftir að dómarinn sagði „tíu“.
Liston ætlaði að ráðast að hon
um og Flloyd að verjast. Hvorug
ur gerði sér grein fyrir að keppn
inni var lokið — og þetta var
heldur aldrei nein keppni, segja
sumir fréttamenn, og þeir sem
áhorfendur eru mjög óánægðir.
UMMÆLI
— Eg hitti hann sérlega vel,
sagði Liston eftir á. Hann fékk
að vísu mýkri högg nú en síð
ast vegna þess að hann var á
undanhaldi nú gegn höggum
mínum. En þau dugðu samt.
— Gætirðu barizi við hann
með annarri hendi? spurði
einn fréttamanna.
— Já, ég held ég myndi
vinna Patterson þannig, sagði
Liston hinn alvarlegasti.
Patterson var daufari. Sagði
það trú sína að hann gæti bet
ur. Kvaðst ekki hafa verið
hræddur og sagði það vissu
sína að hann gæti unnið sig
upp aftur, og mætt Liston —
og unn1*'