Morgunblaðið - 16.08.1963, Page 20
20
MORGUNBLAÐID
i
Föstudagur 16. ágúst 1963
William Drummond: MARTRÖÐ
11
Tony andvarpaði eins Og leik-
ari, sem er að sýna þolinmæði
sína og uppgjöf gagnvart ósann-
girni konu. — Sjáðu nú til, Kisa
mín. Eg hef verk með höndum,
mikilvægt verk á sinn hátt —
enda þótt það sé ekki stórt í sam
anburði við Colemans Kornvörur
í>ú villt væntanlega ekki eiiga á-
byrgðarlausan eiginmann?
— Nei, svaraði Kit. — En ég
vil bara eiga eiginmann.
Henni fannst það ótrúlegt, að
fyrir fáum minútum skyldu þau
hafa verið svo innileg, en nú
snúast hvort gegn öðru, eins og
fjendur, sem ætluðu að fara að
berjast um völdin.
Tony lyfti höndum með von-
leysissvip. — Það rekur alltaf að
þessu sama hjá okkur. Fyrr eða
seinna.
— Þú ættir að hafa fataskipti,
svaraði hún kuldalega. — Þau
fara rétt að koma.
Hirgsunin um Beu minnti hana
á ráðleggingar gömlu konunn-
ar, áður en hún giftist. — Þetta
verður eins og rósabeð, Katrín.
Alsett þyrnum. Allir verða að
komast í þetta fyrstu mánuðina
í hjónabandinu, hugsaði hún, um
leið og síminn tók að hringja, og
hver kona hélt í einfeldni sinni,
að hennar hjónaband væri ólíkt
ölium öðrum. Hún tók símann.
Haiió. Þetta er Grosvernor 33824.
Hún var svo niðursokkin í hugs
anir sínar, að hreyfingin og orð
in komu eins Og ósjálfrátt. En
þá kom sönglandi röddin eins og
eiturör. Hún skalf. Greip hendi
yfir trektina og kallaði: — Tony
Þetta er hann!
Tony stóð fyrir neðan stigann.
Hann leit á andlit hennar, sem
var orðið náfölt. — Láttu hann
taia! sagði hann. — í guðs bæn
um láttu hann haida áfram að
tala. Svo hljóp hann upp stigann
og tók tvö þrep í einu.
Hún hélt frá sér heyrnartólinu
rétt eins og það væri álíka saur
ugt og orðin, sem komu gegn
um það. Samt herti hún sig upp
í að tala. — Haldið, þér áfram,
hver sem þér eruð. Eg hlusta.
Hún gat heyrt fótatak Tonys uppi
í svefnherberginu.
Og um leið steinþagnaði sím-
inn.
Hún heyrði smell þegar Tony
tók upp heyrnartólið á aukasím
anum.
— Halló! sagði hún. — Halló!
Halió!
Ekkert svar.
— Þetta þýðir ekkert, Tony. —
Hann hringdi af. Hún lagði sím
ann og neri hendinni við stólbak
ið, rétt eins og hún væri að
strjúka af henni óhreinindi.
— Hvað var þetta? spurði
Tony, og kom fram úr svefnher-
berginu. — Til hvers var hann
að hringja af?
— Það veit ég ekki, sagði hún.
— Kannski hefur hann heyrt til
okkar.
— Það er einkennilegt. Þú
hélzt hendinni yfir trektina.
Hann getur ekki hafa heyTt neitt.
Tony kom hægt niður stigann.
— Þú veizt þá, að minnsta
kosti að þetta er eitthvað sagði
hún.
— Aðvitað er þetta einhver,
sagði hann. — Siminn hringdi og
þú svaraðir.
— En heyrðir þú alls ekki rödd
ina?
— Á þessu færi? Eg heyrði
ekki annað en eitthvert skrjáf.
Það hefði getað verið hvað sem
var. Eins og skakkt númer.
— Hún leit á hann tortryggin.
— Hvað áttu við með skökku
númeri?
— Eg á ekki við, að það hafi
verið það, útskýrði hann, — en
mín vegna hefði það getað verið
hvaða rödd sem var. Hann greip
símann og valdi 99. — Scotland
Yord, takk sneri sér að Kit. —
Hafðu engar áhyggjur, Kisa mín,
nú verða þeir að hafast eitthvað
að.
Lögreglustjórinn tók símann.
— Byrnes hér.
— Þetta er hr. Newton. Eg
hringi til yðar vegna þess, að
nú hefur þetta sama komið fyrir
enn. Fyrir fáum mínútum. Og
þér verðið eitthvað að hafast að
Konan mín þolir ekki meira en
það sem komið er.
— Og þér voruð sjálfur í rbúð
inni í þetta sinn, hr. Newton?
— Já, það var ég. Eg var á
leiðinni upp að hafa fataskipti,
nánar til tekið.
—- Heyrðuð þér kannski sjálf-
ur röddina?
— Nei. ég þaut upp til að
hlusta í hinn símann. En þá var
búið að hringja af.
— Var þetta ekki mjög stutt
samtal? Eg á við, borið saman
við hin fyrri?
— Jú, það var það. En konan
mín er alveg sannfærð um, að
þetta var sami maðurinn. Það var
eins og Newton væri að verja sig,
og yrði síðan reiður, er Byrnes
kom með svo augljósa spurn-
ingu. Hefði maðurinn getað heyrt
hvað frú -Newton sagði við hann?
Hefði hann þá nokkra tilgátu
um það, hversvegna maðurinn
hringdi af? Hvað um frú New-
ton, hafði hún nokkra getgátur
um þetta?
Newton var reiður, ef til vill
vegna þess, að þessi hringing í
viðbót benti til þess, að konan
hans væri með ímyndanir. New
ton hafði orðið mjög reiður þeg
ar Byrnes gaf í skyn í símann
þá um morguninn.
— Þetta hefur að minnsta kosti
verið hringing, hr. Newton. —
Það vitum við. Þér heyrðuð
bjölluna hringja?
— Guð minn góður! Eg er að
minnsta kosti ekki heyrnalaus.
— En það af því sem þér heyrð
uð, hefði getað verið hringing í
skakkt númer?
— Já, en það var það ekki,
sagði Newton.
— Eg er heldur ekkert að
halda því fram, ég vil bara kom
ast að staðreyndum. Þér heyrð-
uð símann hringja. Konan yðar
tók hann og sagði, að það væri
þessi maður, en sjálfur heyrðuð
þér ekkert sem gæti hjálpað til
að þekkja röddina.
— Það er alveg rétt, samþykkti
Newton. — Og nú viijið þér
k .nnski segja mér, hvað þér
ætlið að gera í málinu.
— Mér virðist það skásta, sem
hægt er að gera, sé að fá númer
inu yðar breytt og fá leyninúm
er. Þér ættuð að lofa mér að
tala við umsjónarmann sjmans
á morgun. Eg gæti fengið þetta
gert fljótar en þér getið. Og svo
ættuð þér að setja vandlega á
yður, hverjum þér gefið númer-
ið.
— Það væri ágætt ráð, sagði
Newton.
— Og svo er eitt, hr. Newton
Eg mundi í yðar sporum ekki
láta konuna yðar vita neitt um
þetta, heldur hálda hpnni uppi á
einhverjum almennum huggun-
arorðum.
— Eg held, að ég skilji, hvað
þér eigið við.
— Við getum ekki strikað yfir
þennan möguleika, sem ég var
að tala við yður í mórgun. Eg
veit, að hann kom yður dálítið
út úr jafnvæginu, og það var
ekki nema eðlilegt, Betur að
gáð, held ég, að þér ættuð að
vita einn um númerið, rétt í bili.
Umsjónarmaðurinn mun hringja
í skrifstofuna til yðar og segja
yður, hvað það er. petta held ég
yrði bezt.
— Eg skil þetta ekki almenni-
lega.
— Jú, þetta er ósköp einfalt
mál, sagði Byrnes. — Ef konan
yðar segist hafa fengið hringingu
eftir að númerinu hefur verið
breytt, er ekkert um að villast
— finnst yður ekki?
9. kafli
Frú Beatrice de Witt hafði
átt mörg skemmtilcgri kvöld í
fimmtíu og fimm ára langri ævi
sinni. Charles Manning var þeg-
ar orðinn dálítið kenndur, þegai
hann kom til Claridge-hótelsins
þar eð nann hafði, að eigin sögn
unnið dalaglega upphæð á Rauða
Skóinn í hlaupinu kl. 3.10. End-
urminnmg hans um það, hvar
hai.n heíði hitt frúna 1 Ameríku-
ferð sinni var ofurlítið þoku-
kennd 'g enda þótt hún minnti
hann aítur og aftur á, að bað
hefði ve.'ið i skrautíbúð Fleisch-
manns é Long Island, þá var
hann re;ðubúinn að sverja, að
þau hefðu verið saman annað-
hvort á Keniucky-veðhlaupunum
eða veðhiaupabrautinni í Sanla
Anna. Þetta var þreytandi og
hálfgert hneyksli í þokkabót, af
því að Bea'var eins og svo marg
ir spákaupmenn á kauphöllun-
um með það að telja hestaveð-
mál ósiðleg. Hún kornst að þeirri
niðurstóöu, að hr. Manning væn
óheppil. gasti félagsskapunnn
sem hún l.efði getað lent í.
Og svo þegar þau komu heim
til Newtonhjónanna, var Tony
enn * h'. ersdagsfötunum og að
Ijúka v.ð eitthvert símtal. Hann
brá sér upp til að hafa fata-
skipti, meðan veslings Katrín,
sem va.' nægilega guggin til þess
að vera ófrísk („skyldi hún ven
það?“ hugsaði Bea) var að hella
í vermútglösin hjá þeim, sem var
með ofmiklu vatni í og oflitlum
ís. Nei, það var ekkert vistlegt
þarna hjá þeim hjónakornunum.
Og veitingastaðurinn, Chez
Francois, hafði líka breytzt til
hins verra. Verðið hafði hækkað
og maturinn versnað, síðasta ár-
ið. Þarr.a var allt fullt af grá-
hærðum kaupsýslumönnum, sem
voru að skemmta hvorir öðrum
og glæsilegum skrifstofustúlkum,
á kostnað fyrirtækjanna. Hljóm-
sveitin var svo nærri manni, að
það mátti með sanni kalla ósvíf-
ið og sætin höfðu þrengt svo að
dansgólfinu, að dansfólkið gat
sig varla hreyft. — Mér þykir
leitt, að ég skyldi fara hingað
sagði hun í afsökunarskyni, með-
an húa var að velja úr hinum
hversdagslegu réttum, sem þarna
voru á boðstólum. — Viljið þið
ekki spyrja þá, hvort þeir hafi
slátur? sagði hún. — Það búa
það ekki aðrir almennilega til en
færustu matreiðslumenn.
Þetta var nú kannski ekkert
frumlegt, en varð þó til þess,
að Charies gamli Manning .ak
upp tróllahlátur, sem endaði í
hóstakasti. Beatrice de Witt
sneri sé>- unaan. — Það er leið-
inlegt, að hér skuli ekki vera
neinir hrákadallar, sagði hún við
Tony.
JPorgtmMítðtð
Hafnarfiörður
Afgreiðsla Morgunblaðsins
í Hafnarfirði er að Arnar-
hrauni 14, simi 50374.
Kópavogur
Afgreiðsla blaðsins í Kópa-
vogi er að Hiiðarvegi 35,
simi 14947.
Garðahreppur
Afgreiðsla Morgunblaðsins
fyrir kaupendur þess í Garða-
hreppi, er að Hoftúni við
Vífilsstaðaveg, sími 51247.
Þetta var daufleg máltíð og
viðræðurnar jafn dauflegar og
maturinn. — Það er eins og Lond
on sé að verða þetta, sem kallað
er í augiýsingunum „iieimili að
heimau" sagði Bea írænka. —
IlVýjar hljómplötur
koma í tikunni
Einnig
úrval af möppum og kössum
til góðrar geymslu á piötu-
safninu. — Beztu plötur.
HV ERFITÓNAR
Hverfisgötu 50.
Sflíltvarpiö
Föstudagrur 16. ágrúst.
8:00 Morgunútvarp.
12:#0 Hádegisútvarp.
13:15 Lesin dagskrá næstu viku.
13:25 „Við vinnuna": Tónleikar.
15:00 Síðdegisútvarp.
18:30 Harmonikulög. — 18:50 Tilkynn-
ingar. — 19:20 Veðurfregnir.
19:30 Fréttir.
20:00 Efst á baugi (Björgvin og Tómas
Karlsson).
20:30 Ungversk fantasía fyrir píanó og
hljómsveit, eftir Liszt. — Shura
Cherkassky og Fílharmoníusveit
Berlínar leika. Herbert von
Karajan stjórnar.
20:45 Erindi: Julianus trúvillingur
(Jón K. Hjálmarsson skóla-
stjóri).
21:10 Rita Streich syngur þjóðlög frá
ýmsum löndum.
21:30 Útvarpssagan: „Herflötur" eftir
Dagmar Edquist; V (Guðjón
Guðjónsson þýðir og flytur).
22:00 Fréttir og veðurfregnh*.
22:10 Kvöldsagan: „Dularilmur" eftir
Kelly Roose; III. (Halldóra Gunn
arsdóttir þýðir og les).
22:30 Menn og músík; VII. þátturj
Ýerdi (Ólafur Ragnar Gríms-
son hefur umsjón með höndum).
23.15 Dagskrárlok.
Laugardagrur 17. ágúst.
KALLI KÚREKI
Teiknori: FRED HARMAN
— Þetta var kórónan á ófarirnar.
Ég fótgangandi og Kalli kemur á
hverri stundu, fjúkandi reiður.
.— Jæja, þarna kemur vagn. Ég
verð að taka hann þótt sjálfur kölski
haldi í taumana,
— Þegar ég næ í hnakkadrambið
á þeim gamla, þá mun hann harma
þann dag, er hann fæddist. — Hvað
er þetta? Er einhver í felum inni í
runnimum?
8:00 Morgunútvarp.
12:00 Hádegisútvarp.
13:00 Öskalög sjúklinga (Kristín Anna
Þórarinsdóttir).
14:30 Úr umferðinni.
14:40 Laugardagslögin. — 15:00 Fréttir.
16:30 Veðurfregnir.
Fjör í kringum fóninn: Úlfar
' Sveinbjörnsson kynnir nýjustu
dans- og dægurlögin.
17:00 Fréttir. — Þetta vil ég heyraj
Helgi Hafliðason velur sér hljóm
plötur.
18:00 Söngvar í léttum tón.
18:55 Tilkynningar. — 19:20 Veðurfr.
19:30 Fréttir.
20:00 Skemmtiþáttur með ungu fólkl
(Andrés Indriðason og Markús
Örn Antonsson hafa umsjón með
höndum).
20:50 Kátir þýzkir músikantar leiku
marsa, valsa, skottísa og polka,
21:15 Leikrit: „Anderson**, útvarps*
leikrit eftir samnefndri sögu
Einars H. Kvarans. — Ævar R,
Kvaran færði I leikritsform og
er jainframt leikstjóri.
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Danslög. <— 24:00 Dagskrárlok.