Morgunblaðið - 16.08.1963, Side 23
Föstuda^ir 16. ágðst 1968
MORGUNBLAÐIÐ
23
1
1
Atkvæöamikil! forseti
Afríkuríkis segir af sér
FULBERT YOULOU, forseti
Kongó-lýðveldisins, (fyrrum
franska Kongó), sem nú hefur
sagt af sér embætti, hefur all-
mikið látið til sín taka í mál-
um Afríkuríkja á undanförn-
um árum, ekki hvað sízt i
sambandi við deilurnar innan
nágranna ríkis hans Kongó
(fyrrum belgisku Kongó).
Ferill Youlou, forseta, sem
stjórnmálamanns er ekki lang
ur. Hann er fæddur í júní
1917 í Madibou, rétt hjá höfuð
borginni, Brazzaville, og telst
til Lari-settflokksins, sem er
annar tveggja höfuðættflokka
landsins. Youlou ákvað
sneimma að ganga í þjónustu
kristinnar kirkju. Hann var
settur í skóla í Brazzaville 12
ára gamall, og síðan sendur í
skdla til Akono í Camerún.
Hann stundaði síðar nám í
heimspeki og var meðal beztu
vina hans og skólafélaga
Barthélemy Boganda, sem síð-
ar varð forsætisráðherra Mið-
Afríkulýðveldsins.
Um hríð stundaði Youlou
kennslu í M’ bamou í Kongó-
lýðveldinu, en sneri þá aftur
til náms, og lærði guðfræði
í Libreville og Brazzaville.
Hann var vígður prestur róm-
versk-kaþólsku kirkjunnar í
júní 1946 og varð aðstoðar-
prestur St. Francis kirkjmjnar
í Brazzaville.
— O —
Stjórnmálastarfsemi í lýð-
veldinu var þá í fæðingu, að
segja má. Arið 1946 var stofn-
aður flokkurinn Mouvement
Socialiste Africain (M.S.A.),
sem deild úr franska sósia-
listaflokknum. Stofnandi
flokksins var franskur Caz-
aban-Mazerolles, að nafni, en
helzti forystumaður Afríku-
manna sjálfra í flokknum
varð Jacques Opangault. Flest
ir forystumenn flokksins
komu á næstu árum frá norð-
urhluta landsins og þar var
fylgi hans sterkast.
Eftir prestsvígslu starfaði
Youlou af áhuga í ýmsum
æskulýðssamtökum og varð
sálusorgari sjúklinga á stóru
sjúkrahúsi í Brazzaville. Varð
hann brátt þekktur maður og
vel metinn og svo fór árið
1956, að hann lét til leiðast að
vera í framboði til franska
þingsins, gegn Félix Tchicaya
og Jacues Opangault. í kosn-
ingunum fóru úrslit svo, að
Youlou beið ósigur, en áhugi
hans á stjórnmálum var vak-
inn, svo um munaði, og í suð-
urhluta landsins var hann
hvarvetna hylltur sem foringi
Lari-ættflokksins. Sama ár
stofnaði hann nýjan stjóm-
málaflokk, er hann nefndi
Union Démocratique de la
Défense des Intéréts Africains
(U.D.D.I.A.) og kom á fót
vikublaði „Cette Semaine". í
bæja- og sveitastjórnarkosn-
ingum í nóvember 1956 vann
hann allmikinn sigur og varð
borgarstjóri í Brazzaville.
Nánasti samstarfsmaður hans,
Stéphane Tchichellé var um
leið borgarstjóri hafnarborgar
innar Pointe Noire.
í marz 1957 voru kosningar
til heimaþingsins í Franska-
Kongó og unnu flokkarnir
tveir M.S.A. og U.D.D.LA. þá
hvor um sig tuttugu og eitt
þingsæti af fjörutíu og fimm.
Þeir, sem unnu hin þrjú þing-
sætin voru óháðir, en tveir
þeirra gengu í lið með Op-
angault og gerðu honum þar
með kleift að mynda stjórn.
Youlou varð landbúnaðarráð-
herra þeirrar stjórnar. í ágúst
sama ár breytti hann nafni
flokks síns og kallaði hann
upp frá því Rassemblément
Démocratique Africain (R.D.
A.) og ^næsti liður hans í
stjórnmálabaráttunni var að
berjast fyrir sjálfstæði innan
franska samveldisins og gegn
þeim, er vildu ná algerum sam
bandsslitum við Frakkland.
Þegar ákveðið var að stofna
lýðveldi í Kongó snerist einn
af stuðningsmönnum Opan-
gault yfir til Youlou, sem
fékk við það eins sætis meiri
hluta i þinginu og var kjörinn
forsætisráðherra.
UTAN ÚR HEIMI
Kongó lýðveldið, sem nær
yfir 129.000 fermílna svæði er
fátækt af náttúrugæðum. —
Norðurhluti landsins er þak-
inn þéttum skógi, námur eru
þar engar og landið fremur
ófrjósamt, þegarfrá er talinn
Niari-dalurinn. Reynt hefur
verið að koma á fót ýmiss
konar iðnaði í suðurhlutan-
um, en margar af þeim til-
raunum misheppnast. íbúar
landsins eru um það bil 800
þúsundir og lífæð þeirra eru
fljótin Kongó og Olangui.
Þriðji hluti þjóðarinnar býr
í smáþorpum í skógarrjóðrun-
um í norðri og telst að mestu
Fulbert Youlou, forseti.
til M’Boohi ættflokksins. Lari-
ættflokkurinn, sem Youlou til-
heyrir, er hinsvegar í suður-
hlutanum og telst afkomandi
Bakongo-ættflokksins forna,
en austurhluta Belgísku-
Kongó fyrrum.
Þessir tveir ættflokkar hafa
löngum eldað grátt silfur og
— í janúar 1959 — kom til
blóðugra óeirða þeirra í milli.
Um tvö hundruð manns biðu
bana en átökunum lyktaði svo,
að stjórnin lýsti sök á hendur
stjórnarandstöðunni og Opan-
gault og nánustu samstarfs-
menn hans voru fangelsaðir.
í kosningum í júní 1959
vann flokkur Youlou fimmtíu
og eitt af sextíu og einu þing-
sæti og þá varð hann forseti
lýðveldisins. Opangault var
einnig kjörinn á þing, þótt
hann sæti þá í fangelsi og gæti
ekki tekið þátt í stjórnmála-
baráttunni og áður en sjálf-
stæði landsins var formlega
lýst yfir 15 ágúst 1960 hafði
hann gert samkomulag við
Youlou; hann varð forsætis-
ráðherra og flokkur hans rann
saman við flokk forsetans. Síð
ar varð Opangault vara-
forseti landsins.
— O —
Youlou forseti barðist fyrir
því, að stofnað yrði samiband
Mið-Afríku-lýðveldanna, er áð
ur voru franskar nýlendur, en
sú viðleitni strandaði á. Gab-
on, er stóð ríkjunum fremst
um efnahagslegan styrkleika
og vildi í engu hætta þeirri
aðstöðu. í deilunni í fyrrum
Belgísku-Kongó kom Youlou
oft við sögu. Hann var ill-
skeyttur í garð Patrice Lum-
umba og studdi Kasawubu
gegn honum með ráðum og
dáð. En þegar deilan var farin
að standa milli þeirra Kasaw-
ubus og Tshombe, fylkisstjóra
í Katanga, studdi Youlou hir.n
síðarnefnda ákaft og var
ástæðan sögð sú, fyrst og
fremst, að hann hefði átt von
efnahagsaðstoðar frá Katanga
en jafnframt hefði komið til
samkeppni milli hans og
Kasawubus um forystu fyrir
afkomendum Bakongo ætt-
flokksins.
• Youlou hafði ennfremur
forgöngu um að ráðstefna tólf
fyrrverandi franskra ný-
lendna var haldin í Brazza-
ville í desember 1960 og voru
þátttökuríkin í þeirri ráð-
stefnu jafnan nefnd Brazza-
ville ríkin upp frá því.
Þess má að lokum geta, að
Youlou forseti hefur jafnan
skrýðzt prestsklæðum í em-
bættistíð sinni og kallar sjálf-
an sig ávallt Abbé Fulbert
Youlou, en hann var þegar
árið 1956 sviptur preststign
og honum b a n n a ð að
starfa, sakir stjórnmálastarf-
semi sinnar fyrir kaþólsku
kirkjuna.
:
— Illa horfir
Framh. af bls. 1
hann komst til valda í fyrra-
hausL
Fréttamaður AP-fréttastofunn-
ar skýrði frá því í dag, að fari
svo, að ráðherrar B. B. segi af
sér, þá kunni ný alda óstjórnar
að fara um landið. Af þeim ráð-
herrum, sem óánægðastir eru
sagðir, eru fjármálaráðherrann,
Ahmed Francis, dómsmálaráð-
herrann, Amar BentoumL og
„endurreisnarráðherrann“, Ah-
med Boumendjel.
Ástandið í Alsír hefur verið
mjög bágborið undanfarna mán-
yði, og fer sízt batnandi. Er fjár-
hagskerfið nær úr skorðum geng-
Verkfræðingar
sækja til Iðnað-
ardeildarinnar
Ýmsar ríkisstofnanir eru um
þessar mundir að auglýsa eftir
verkfræðingum. Búið var að
ráða 4 verkfræðinga til Vegagerð
•r ríkisins, sem kunnugt er. Iðn-
aðardeild Atvinnudeildarinnar
hefur auglýst 6 stöður byggingar
og efnaverkfræðinga lausar, og
eru komnar umsóknir um flestar
þeirra, en ekki endanlega búið
að ganga frá ráðningu.
Þá auglýsa Raforkumálaskrif-
stofan og Póstur og sími eftir
verkfræðingum. Er umsóknar-
fnestur hjá síðarnefndu stofnun-
inni ttl 25. áigúsfc.
ið, en Ben Bella hefur með degi
hverjum hallazt meir og meir að
einræði. Hann hefur lýst yfir fyr-
irlitningu sinni á störfum þings-
ins, en sjálfur gegnir hann for-
mennsku eina flokksins, sem
leyfi hefur til að koma fram opin-
berlega.
Stjórnarandstæðingar hafa
haft fá tækifæri til að láta í ljós
skoðanir sínar, og gagnrýnL á
venjulegan hátt, og því orðið að
grípa til róttækra aðgerða. Hefur
stjórn B. B. þrisvar sinnum orðið
að grípa til valds til að bæla nið-
ur uppreisnartilraunir, undan-
farna 8 mánuði.
Á miðvikudag í þessari viku
lýsti stjórn B. B. því yfir, að enn
hefði komizt upp um nýtt tíl-
ræði við haldhafana. Að þessu
sinni var sökinni skellt á ísrael,
og flugumenn þess. Jafnframt
var þó tilkynnt, að herða yrði allt
eftirlit með stjórnarandstæðing-
um í landinu sjálfu.
Helztu stjórnarandstæðingarn-
ir hafa fyrir nokkru flúið land til
þess að komast hjá fangelsun.
Meðal þeirra eru fyrrverandi ráð-
herrar útlagastjórnar landsins, s,
s. þeir Belkacem Krim, Moham-
med Khider og Abdelhafid Bous-
souf. Aðrir fyrrverandi ráðherr-
ar eru í fangelsL þeirra á meðal
Mohammed Boudiaf. Einn harður
andstæðingur B. B., Hocit Ait
Ahmed, býr einn til fjalla, og hef
ur um sig lífvörð.
— Krúsjeff
Framh. af bls. 1
ar fylli ekki lengur flokk þeirra
ráðamanna, sem berjast fyrir
friði. Hafi sú afstaða þeirra enn
komið fram, er þeir lögðust gegn
samkomulaginu um tilrauna-
bann.
„Helzta áhyggjuefni kín-
verskra leiðtoga", segir blaðið,
„er, hvernig réttlæta skuli þá
stefnu þeirra að taka þátt í kjarn
orkukapphlaupinu“.
Þá er því vísað á bug, að það
sé stefna Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna að hafa einokun á
gereyðingarvopnum. Vísað er í
stefnuskrá sovézkra friðarsinna,
og sagt: „Við höfnum þeirri hug-
mynd, að bezt verði unnið að efl-
ingu friðarins með því að fjölga
þeim þjóðum, sem slík vopn hafa
undir höndum".
í grein „Pravda“ er vikið að
þeim fullyrðingum kínverskra
ráðamanna, að þeir vinni nú að
því að fullgera kjarnorkuvopn.
„Sovézkur almenningur hefur
ekki fyrr fengið að heyra um
þessa óheillavænlegu þróun“,
segir blaðið.
Yfirlýsing albönsku ráðamann
anna, sem gefin var út í Tirana í
dag, felur í sér fulla andstöðu við
samkomulag um tilraunabann.
Segir, að Albanía geti ekki orðið
aðili að slíku samkomulagi, þótt
landið heyri til Varsjárbanda-
laginu. Albanía hefur ekki átt
fulltrúa á fundum bandalagsins
undanfarin tvö ár.
í yfirlýsingunni er því vikið
að Krúsjeff, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, að hann hafi raun
verulega miðað að því að leysa
upp Varsjárbandalagið með því
að semja um tilraunabann nú. Er
lagt tiL að þegar verði efnt tU
fundar allra meðlima Varsjár-
bandalagsins, og verði þar sam-
þykktar ávítur á Krúsjeff.
Þá er því haldið fram í Tirana-
yfirlýsingunni, að sovézkir ráða-
menn hafi gerzt aðilar að sam-
særi gegn kínverskum ráðamönn
um, og sé því stjórnað af ind-
versku stjórninni. Séu landa-
mæradeilur Kína og Indlands
hafðar að yfirskyni í því máli.
Það hefur vakið nokkra furðu,
hve harðorðir kínverskir ráða-
menn hafa verið síðustu daga, og
þá einkum í umræðum sínum
um kjarnorkumálin. í því sam-
bandi er á það bent, að Krúsjeff
hafi fallið frá loforði sínu um
kjarnorkuvopn til handa Kín-
verjum, er hann kom til Peking
að lokinni Bandaríkjaheimsókn
sinni.
Er Averell Harriman dvaldist í
Moskvu nú fyrir skömmu, skýrði
Krúsjeff honum svo frá, að Kín-
verjar myndu ekki hafa yfir
kjarnorkuvopnum að ráða næstu
10 árin, a.m.k. ekki vopnum af
því tagi, sem hættuleg gætu tal-
izt, miðað við eyðingarmestu
vopn í dag. Þá skýrði Krúsjeff og
frá þvL að Sovétríkin myndu
halda óbreyttri afstöðu til her-
væðingar Kína.
Jónu Sigríðnr mnn
hnldn sig við byggð
JÓNA Sigríður Jónsdóttir,
hestakona, sem landsfræg
er orðin fyrir ferðalag sitt
um Arnarvatnsheiði og
Stórasand, hringdi til okk-
ar í gær og kvartaði yfir að
ekki væri rétt farið með
nafn sitt. Það væri Jóna
Sigríður og hefði verið
skipt um og hið síðara nafn
fært fram.
Jóna Sigríður sagði það
skakkt að hún hefði með
glöðu geði farið með lögreglu-
mönnum úr Hvítárnesi, en við
verði laganna þýddi ekki að
deUa, það vissum við. Hún
hefði hins vegar haft samband
við lögreglumann hér í
Reykjavík og lofað honum að
láta hann vita um ferðir sínar.
Hefði hún gert áætlun um
ferð úr Borgarfjarðardölum
og austur og farið Kaldadal í
49. sinn nú fyrir skemmstu og
legið þar úti sér að meinlausu.
Lét hún vita er hún fór úr
byggð og í Hvítárnes og ætl-
aði að vera komin 15. ágúst á
Hveravelli og láta vita af sér
þaðan. Ætlaði hún að leita far
angurs síns og reiðvera, er
voru að hún taldi í Seyðisár-
drögum, og fá sér til hjálpar
til þess menn á Hveravöllum.
Ætlaði hún síðan niður að
Galtafelli í Hreppum og kals-
aði það við lögreglumennina
frá Selfossi að flytja sig þang-
að, en þeir vildu ekki.
Jóna Sigríður sagðist ekki
myndu leggja upp á fjöll á
næstunni, en kvaðst myndu
fara um byggðir á Ljóma sín-
um sem fyrr, enda taldi hún
sig hefði komizt til byggða frá
Arnarvatni án hjálpar.
i!