Morgunblaðið - 23.08.1963, Page 14
14
MORGUNBLADID
Wstudfagur 23. ágúst 1963
Ásbjörn Úlafsson
stórkaupnuftður — Sextugur
SXJMUM mönmun tekst að
verða smiðir örlaga sinna þann-
ig, að saga verður af. í>egar þeir
eru komnir á efri ár, er nafn
þeirra búið að fá sterkan hljóm,
gefur hugmynd um ákveðinn
persónuleika með sínu sérstaka
marki, er orðið að tákni. Margir
vildu svo lifað hafa og náð þess-
ari stöðu 1 yitund samferðamann-
anna — en tekst ekki. I>að er
oftast af því að þeir eru aðeins
fjölritað eintak af meðallagi
þess vits Og þess vilja og þeirr-
ar skapandi ímyndunar, sem okk
ur almennt hlotnast. Af hinum
er oftast nær aðeins til eitt ein-
tak í sinni kynslóð.
Ásbjörn Ólafsson stórkaup-
maður, sem nú er sextug-
ur í dag, er einn þess-
ara sráafáu einstaklinga. Það
er í sjálfu sér enginn við-
burður að Ásbjörn verði sextug-
ur, og einhverntíma verður hann
allur. En maðurinn Ásbjörn Ólafs
son er sjálfur viðburður og hef-
ur eiginlega alltaf verið það
allt frá því, er hann fór að spíg-
spora stuttstígur, hnellinn og
kvikur á götunni fyrir framan
æskuheimili sitt á Grettisgötu 26,
og til þess er hann situr nú sem
örn í hreiðri sínu í kastalanum
á Grettisgötu 2.
Það er ekki langur spölur þar
á milli, enda hefur Ásbjörn
gert marga útúrdúra og langa um
lönd og höf á þeirri leið. En
ferðasnið Ásbjarnar hefur alltaf
verið með sama hætti. Það fór
alltaf eitthvað að snúast og hreyf
ast og gerast, þar sem hanri fór.
Hann sneri strákaþvögunni á
Grettisgötunni í kringum sig
eins og skopparakringlu, þegar
hann var dálítill patti, og það
var mikið um kæti, ærsl og uppá-
finningar og ekki lögð guðs-
blessun yfir þæa- allar af eldri
kynslóðinni. Gömlum og ráðsett-
um borgurum, sem áttu leiki
sína með þessari sveit, vöknar
enn um augu af hrifningu, er
þeir minnast þessara daga. Þeir
voru óviðjafnanlegir og ekki
sízt, Ásbjörn, foringinn.
Var hann svona skemmtilegur?
spurði ég einu sinni harðdug-
legan alvörumann, sem verið
hafði í hirð Ásbjarnar 10 ára gam
all.
Vertu blessaður! Ég er nú
hræddur um það! Þú getur ekki
ímyndað þér, hvað honum gat
dottið í hug — og hvað hann
þorði að gera. Og sveik aldrei.
Aðdáunin leyndi sér ekki og
varminn í röddinni sagði til um
hugarþelið.
Hér má bæta við sérkennandi
drætti í persónugerð Asbjarnar
Ólafssonar. Öllum sem orðið hafa
félagar eða góðkunningjar As-
bjarnar Ólafssonar þykir vaent
um hann þaðan af. Það er kaliað
að hafa mannheill. Ásbjörn hefur
átt marga vini, og valið þá mjög
að eigin vild — en engum týnt
í leiðinni.
★
Asbjörn Ólafsson stórkaupmað-
ur í Reykjavík er fæddur í Kefla
vík 23. ágúst 1903. Foreldrar
hans voru Ólafur Ásbjörnsson, þá
verz’ xnarmaður í Keflavík og
kona hans Vigdís Ketilsdóttir út-
vegsbónda í Kotvogi í Höfnum,
K ilssonar, er mikill var rausn-
armaður og atorku og þeir feðg-
ar í Kotvogi, Ketill Jónsson, faðir
hans. Ólafur Asbjörnsson, er síð-
ai gerðist kaupmaður í Reykja-
vík var sonur Ásbjörns útvegs-
bónda og hreppstjóra í Innri
Njarðvík, Ólafssonar útvegs-
bonda í Xnnri Njarðvík og verzlun
arstjóra í Keflavík. Ásbjörn eldri
var bróðir Egils, föður Svein-
bjarnar skálds og rektors. Eru
þetta þjóðkunnar og ríkar
stórbændaættir hvorttveggja,
athafnamenn og umsvifa og
mjög í fararbroddi á sinni
tið. Kotvogsmenn einkennd-
xist af rausn og höfðings-
skap, en í Njarðvikingum kem-
ur Oig fram skáldskapargáfa, orð
snilli og skapandi hæfileikar. As-
björn Ólafsson hefur í ríkum
mæli erft þessa eiginleika for-
feðra sinna. Það er meira að
segja ekki allskostar auðveH ð
skilja hann, nema vita nokkur
deili á þessum ættmönnum hans
Og orlögum þeirra. Þessi stór-
bændaaðall suður með sjó var
mikið manndómsfólk hvar sem
það tók hendi til, stórbrotið í
gerð og engan veginn undanþeg-
ið breyzkleika sinnar samtíðar,
en bar þá með reisn og karl-
mennsku, án þess að láta 9ér fat-
ast um að skila lífsverki sinu
fullu.
Ásbirni Ólafssyni er eins farið.
Mér finnst reyndar að í persónu
hans séu flestir drættir stærri
og dýpra markaðir, þeirra sem
einkenndu feður hans. En vera
má að það stafi af því, að ég
sé hann í minni samtíð en þá í
fjarlægð. Og þó — ég er ekki
viss um það.
★
Ólafur Ásbjörnsson, kaupmað
ur, var mikill sæmdarmaður og
heimili þeirra frú Vígdísar og
hans jafnan mikilsvirt. En þeg
ar á leið tók efnahag hans mjög
að halla, sakir margvíslegra ó-
happa og viðskiptaerfiðleika.
Og þegar Ásbjörn Ólafsson var
orðinn vaxinn maður, ætla ég
að faðir hans hafi verið orð-
inn alveg eignalaus. Ásbjörn
hafði engan hug haft á lang-
skólagöngu og nám hans orðið
nokkuð slitrótt. Og Reykjavík
var þá hvorki rúmgóður stað-
ur né gestrisinn fyrir unga menn
sem höfðu stórt í huga en ekk-
ert í höndunum. Hér var því
ekki margra kosta völ, og sízt
þeirra, sem hæfðu skaplyndi og
fyrirætlunum Asbjarnar Ólafs-
sonar. Hann brá því á það
ráð að hverfa af landi brott,
fór fyrst til Noregs og síðan til
Vesturheims, allslaus með öllu
og reynslulaus. En það skyldi
enginn ætla, að hann hafi ver-
ið fararefnalaus. Hann hafði með
sér stálþrek sinna kynsmanna,
sína hvössu greind, sín glöggu
augu, sitt ódrepandi lífsfjör og
þennan dularfulla hörkuneista
sálarinnar, sem heitir vilji og
einn kann að segja hið skapandi
orð: Verði! Ég veit ekki gjörla
hvar né hversu víða vegir As-
bjarnar lágu á þessum útivist-
arárum, en ég veit að þeir voru
ekki blómum stráðir. Einstöku
sinnum bregður fyrir hjá As-
birni kátbroslegum og grátbros-
legum frásögum af baráttu þess
ara ára, lituðum af karlmann-
legri gamansemi og hnittnum
snjallyrðum. Annars er það hátt
ur Ásbjarnar, að vera málreif-
ur og orðglaður, en draga tjald-
ið frá því einu, er honum sjálf-
um sýnist.
En þessi útivistarár urðu há-
skóli Ásbjarnar og viðskipta-
skóli. Hann var allt of glöggur
til þess að skynja ekki fimi
og verksnilli Vestmanna í við-
skiptamálum, harðfylgna atorku
þeirra í framkvæmd og djarf-
mannlegt áræði þeirra. Þessir
hlutir voru honum vel að skapi,
þó að ýmsir aðrir hlutir í þjóð-
lífi Vestmanna og persónulegum
háttum yrðu honum næsta ógeð
felldir og vektu nánast hjá hon-
um bros eða fyrirlitningu. En
mér er ekki grunlaust um, að
andspænis stórum athafnasvið-
um og svigrúmi mikilla tæki-
færa, sem þarna blöstu við aug
um, hafi Asbirni orðið það endan
lega ljóst, hvern fjársjóð hann
átti í skapandi ímyndun sinni,
tengigáfu og skipulagshæfileika.
Sú uppgötvun hefði trúlega vaf-
izt lengur fyrir honum í litlu
Reykjavik þeirra ára. Eitt er
víst, að þegar Asbjörn Ólafsson
kemur heim 1930, þá er hann
fulmótaður maður, brynjaður,
fullfær og ótrúlega slyngur.
Reynsla útivistaráranna, fjöl-
breytileg og stundum bitur og
sár, hefur brýnt ættarstálið í
viljanum, en ekkert bugað,
hvorki lífsþrek, glaðværð né
nærri drengjalega gleði yfir líf-
inu og tilverunni. Ég er hand-
viss um, að áður en Asbjörn
fór af landi, hafði hann dreymt
um það að verða auðugur mað-
ur og umsvifamikill, sníða sér
stakkinn stóran og alfarið með
eigin sniði. Asbjörn Ólafsson
var nógu hygginn tí.1 þess að
bera ekki þá drauma í tal, enda
hefði þá vísast verið hlegið um
aila Reykjavik ofan frá Skóla-
vörðu vestur í Ánanaust. En það
glitraði stundum á þá í glað-
værum kunningjahópi yfir skáL
Og þegar Ásbjörn kom heim
1930 var draumurinn orðin
alvara — harðbeitt alvara.
★
Eftir heimkomu sína gerðist
Ásbjörn Ólafsson fyrst sölumað
ur og verzlunarmaður hjá
Smjörlíkisgerðinni Svanur, og
vann því fyrirtæki þangað til
fram á ár 1933. Þá stofnaði hann
Heildverzlun Ásbjarnar Ólafs-
sonar og hefur rekið hana síð-
an. Og þá fór að koma líf í
tuskurnar og draumurinn um
auðsæld og umsvif fór að ræt-
ast. Framan af stóð það fyrir-
I tæki Ásbjörns nokkuð fyrir þrif
um að hann varð að búa við
þröng og óhentug húsakynni.
Það tók líka sinn tíma að afla
sér nauðsynlegs fjármagns og
trausts og velja sér trúa, dug-
andi og hentuga samstarfsmenn,
ala þá upp að sínum hætti, skapa
þeim áhuga, starfsgleði, kenna
þeim að bera ábyrgð. En þetta
gekk. Það gekk svo ótrúlega
vel, að sumum þótti nóg um»
Og sumir létu sig ekki muna
um nokkrar velmeintar hrak-
spár um, að brátt mundi allt
fara á, hausinn. En það fór
ekki á hausinn. Fyrirtækið stóð
og dafnaði, óx úr smárri byrj-
un í stórfyrirtæki.
Árið 1941 keypti Ásbjörn hús
eignina Grettisgötu 2, umbyggði
hana og endurbætti og rekur
þar fyrirtæki sitt síðan. Nú
voru ekki þrengslin tíl íyrir-
stöðu og sást það brátt á. Öllu
var smekklega og mjög hagan-
lega fyrirkomið, þjónusta lip-
ur og nákvæm, afgreiðslur skjót
ar, áreiðanleiki óhagganlegt boð
orð. Og viðskiptamennirnir
streymdu að. Góðvilji og fyrir*
greiðsla varð hið ósýnilega lög
mál daglegra starfa. Og fyrir-
tækið blómgvaðist. Það er á
hvers manns vitorði að Heild-
verzlun Asbjarnar Ólafssonar
er nú orðin eitt traustasta
og stærsta viðskiptafyrirtæki
sinnar tegundar í landinu. Og
það er heldur ekkert leyndar-
mál að eigandinn, Ásbjörn Ólafs
son, sem skapaði þetta fyrir-
tæki með tvær hendur tómar,
er orðinn stórauðugur maður.
Æskudraumurinn um auð og
umsvif hefur fyrir löngu ræzt.
En hann hefur aðeins ræzt af
því, að Ásbjörn gaf þessu fyr-
irtæki frábæra hæfileika sína
óskipta, tendraði þrotlaust yfir
því þann dularfulla hörkuneista
sálarinnar, sem heitir vilji og
einn kann að mæla sköpunar-
orðið: Verði!
Ég spurði Ásbjörn einu sinni
eftir að hann var orðinn fjáður
maður, hvort hann hefði aldrei
gerzt hluthafi í öðrum fyrirtækj
um.
Svarið var stutt og laggott:
Nei, ég hef aldrei viljað koma
nálægt neinu, sem ég get ekki
ráðið aleinn.
Svarið var Ásbirni líkt og
ákaflega satt.
★
Forn speki og ný reynsla
kenna það, að margur verður
api af aurum. Ekki hefur það
sannast á Ásbirni Ólafssyni, en
er jafnsatt fyrir því. Ásbjörn var
að minnsta kosti eins mennskur,
hispurslaus og hégómalaus þegar
hann fór að telja eigur sínar 1
milljónum, eins og áður á meðan
hann taldi þær í tíköllum. Hann
veit allra manna bezt hvers virði
peningar eru og er mann fjöl-
kunnugastur um það, hvermg
þeirra skal afla, en hann hefur
aldrei kunnað að beygja lund
sína fyrir jafnvel svo göfugum
Drottni, sem gull er, — og mátt-
ugum. Hann þekkir þessvegna
manna bezt allan tónastigann um
það hvernig losna megi við pen-
inga og er leikinn í því að spila
á hann upp og ofan. Hann getur
verið eyðslukló, fádæma rausn-
armaður, stórgjöfull hjálpari em
staklinga og góðra málefna, allt
eftír því, hvað honum finnst við
eiga í hvert sinn, og óbrigðull
í raun að brjóstgæðum og trygg-
Framh. á bls. 23 ,
Af heilum hug þakka ég öllum skyldum, tengdum og
vandalausum, er færðu mér gjafir og blóm og sendu
mér heillaskeytí á afmælisdaginn 8. ágúst og svo öll
hlýju handtökin og vinahótin sem stöðugt mæta mér.
Allt þetta er tákn þess góða. — Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Sigurðardóttir, Akranesi.
Hjartanlega þakka ég börnum mínum, vinum og ætt-
ingjum, sem heiðruðu mig og glöddu á 90 ára afmæli
mínu með gjöfum og skeytum. Sérstaklega þakka ég þá
hugulsemi og rausn að bjóða mér í ferðalag til Veiði-
vatna. Það verða mér ógleymanlegar stundir, sem ég
átti þar á gömlum, kærum slóðum í glöðum vinahópi.
Heill og hamingja fylgi ykkur öllum.
Jón Þorsteinsson, Holtsmúlx.
Kærar þakkir sendi ég öllum þeim, sem sýndu mér
vinsemd og virðingu á sjötugs afmæli mínu. Lifið heil.
Sigurlás Þorleifsson,
Reynisstað, Vestmannaeyjum.
Beztu þakkir fyrir góðar gjafir og kveðjur á sextugs-
afmæli mínu 16. þ.m.
Þorgerður Vilhjálmsdóttir,
Múla, Vestmannaeyjum.
Litla dóttir okkar
KRISTRCn
andaðist 19. þ. m. — Jarðarförin hefur farið fram.
Kolbrún Kristjánsdóttir, Valdimar Ásgeirsson,
Karlagötu 6.
Móðir okkar
AMALÍA RÖGNVALDSDÓTTIR M
frá Uppsölum
verður jarðsett frá ísafjarðarkirkju laugardaginn 24.
ágúst og hefst athöfnin með húskveðju frá heimili dótt-
ur hennar að Túngötu 5, kl. 11 f.h.
F. h. okkar systkinanna og annarra vandamanna.
Hrefna Samúelsd. Tynes.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við
fráfall og jarðarför
ÞORVARÐAR H. GUÐJÓNSSONAR
Brekkustíg 5.
Halldóra Guðjónsdóttir,
og börn.
Innilegar þakkir færum við öllum okkar sveitung-
um — ættingjum og vinum, nær og fjær, er sýndu okkur
samúð og margvíslega hjálp og aðstoð, við andlát og
jarðarför mannsins míns og föður okkar
ÍVARS KR. JASONARSONAR
Vorsabæjarhól,
sem léz'. í Landakotsspitala 30. júlí sL
Guð blessi ykkur ölL
Guðmunda Jónsdóttir
og börn.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför
SIGURÐAR ÓLAFSSONAR
frá Mjóanesi.
Börn, tengdabörn og barnabörn.