Morgunblaðið - 24.08.1963, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 24.08.1963, Blaðsíða 3
Laugardagur 24. ágúst 1963 MORGUNBLAÐIÐ 3 A í GÆRMORGUN kom til | . Reykjavíkur þýzka skólaskip- ið Graf Spee, sem reyndar er lítið skip þótt það beri stórt nafn. Skipið mun standa við hér í Reykjavík fram til þriðjudagsmorguns, og í dag verður það almenningi til sýn is kl. 3—5. Ef aðsókn verður mikil mun það aftur verða til sýnis á sama tíma á morgun. Þýzki sjóherinn er ekki ýkjamikill, en þó eru nú í honum um 30 þúsund manns og þar er enginn hörgull á sjóliðsforirigjaefnum, þótt krafizt sé af þeim að þeir hafi stúdentsmenntun. Piltarnir um borð hafa þegar lokið fyrstu áföngum náms síns, sem tekur um þrjú ár. Skólaskipið Graf Spee viff Battaríisgarff. Liffsforingjaefni drógu strax fram veiffisteng- I ur og fengu vænan afia úr höfninni (L jósm.: Mbi. Sv. Þ.) STAKSTEiniAR Að „maskera“ grímuna Fyrir nokkrum áratugum lék frægur trúffur á hverjum sumar- degi á ómerkilegum útileikvangi í Skandinavíu, þar sem margir ís lendingar komu og koma sjálf- sagt enn. Sá hafffi Ijóta grímu á andliti. Einhverju sinni var þaff aff haustlagi, aff gestir, sem aff meirihluta voru börn í foreldra- fylgd, fengu leið á andliti trúðs ins og létu þaff álit sitt óspart i Ijós tvo daga í röð. Á þriffja degi har svo viff, að trúffurinn frægi, sem allar hunda kúnstir kunni, bar ókunna grímu fyrir andliti, en kunni þó ekki Lítið skip — stórt naht skipi þýzka flotans, Gonch Fock, sem kemur til Akur- eyrar í næstu viku. Héðan fer skipið til Vigo á Spáni. Rohwer skipherra sagði, að þegar skipið kæmi í erlenda höfn væri þeim allsstaðar tek ið af mestu vinsemd, og eins væri það með áhafnir á her- skipum annarra þjóða, sem þeir hefðu samstarf við. „Bláu fötin tengja sjóliða allra þjóða vináttuböndum á friðartímum“. að taka á móti honum, en fyrsti yfirmaður á skipinu fylgdi fréttamönnum um vist arverur skipsins. Tvær brýr eru á skipinu, önnur er notuð þegar skip- ið er á venjulegri siglingu og er vandlega yfirbyggð. Hin er undir beru lofti, ofan á þaki hinnar, og þaðan er stjórnað öllum meiriháttar aðgerðum, þar á meðal sjóorr ustum. Þar stendur háfætt- ur stóll við hliðina á stýris- hjólinu, og yfirmaðurinn sagði okkur, að úr þeim stóli hefðu fjórir þýzkir kaf- bátar verið skotnir niður í síðasta stríði. Meðan fréttamenn stoðu við kom Max Adenauer, son- ur kanzlarans, sem hér er á ferðalagi, í heimsókn um borð, svo skipherrann fór Klaus-Jiirgen Rohwer, skipherra. (Ljósm. Studio Gests). Þjálfunin fer fram bæði á landi og sjó. Þeir ganga í tækniskóla flotans og á sjó- vinnunámskeið og á sjó fara þeir bæði á seglskipum og freigátum. Fréttamenn skoðuðu Graf Spee í gær í boði skipherr- ans, Klaus-Júrgen Rohwer, sem einu sinni áður hefur komið hingað til lands. Það var árið 1937, þegar hann nam á skólaseglskipi þriðja ríkis- ins og ferðaðist hann þá til Þingvalla. Hann tók síðan þátt í seinni heimsstyrjöld- inni og í lok hennar var hann kominn í röð vfirmanna. Rohwer skipherra sagði fréttamönnum sögu skipsins. Það er byggt í Bretlandi, éitt skipanna, sem Bretar byggðu síðustu árin fyrir heimsstyrj- öldina, þegar þeim var farið að standa stuggur af upp- gangi nazismans. í stríðinu var það lengstum í Rauða haf- inu og Inllandshafi og lenti oftsinnis í skærum við þýzka kafbáta. í ársbyrjun 1959 tóku svo Þjóðverjar við skipinu og var þá farið að nota það sem skóla skip. Voru þá smám saman gerðar ýmsar breytingar á skipinu, meðal annars var vopnabúnaður þess minnkað- ur á síðasta ári, þannig að á skipinu eru nú fallbyssur af sömu ferð og á hraðbátum flotans. Á fyrra misseri þessa árs var skipið ' fimm mánaða ferð og kom þá við víða í Evrópu, fór gegnum Panamaskurð og á þrjár hafnir á vesturströnd Norður-Ameríku. Að þessu sinni verður ferðin styttri, því í haust er ráðgert að skipið fari í klössun. Skipið kemur hingað frá Tromsö í Noregi og hja Bjarn- arey mættu þeir skólasegl- *+•«**» „Ur þcssum stóli voru fjórir þýzkir kafbátar skotnir niður í síðasta stríffi“. (Ljósm. Studio Gests). JÞfóðaratkvæði um stjórnarskrá JUsír Algeirsborg, 23. ágúst — (AP) — BLAÐIÐ „The Alger Republic- an“ hafði í dag eftir áreiðanleg- um heimildum, aff þjóðarat- kvæffagreiðsla um stjórnarskrá lýffveldisins Alsír yrði látin fara fram 8. sept. n. k. Ennfremur segir blaðiff, að önnur þjóðaratkvæffagreiðsla fari fram í landinu 15. sept. og yrði þá kjörinn fyrsti forseti lýff- veldisins samkvæmt hinni nýju stjórnarskrá. Blaðið bætir því við, að dag- inn eftir forsetakosningarnar haldi Ben Bella, forsætisráðherra Alsír, til New York og sitji þar fund Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Fregnir blaðsins hafa ekki verið staðfestar opinber- lega. Umræður um hina nýju stjórn- arskrá Alsír hefjast í þingi lands ins á morgun. Verður stjórnar- skráin í 74 greinum og greiða þingmenn atkvæði um hverja grein fyrir sig. aff leika nýjar listir. Sumir blekktust, unz barn eitt hrópaði: Pabbi, hann er búinn að „mask era“ grímuna! Þ.e.: Hann hefur dulbúið grímuna. Þá varð al- mennur hlátur, þangað til trúð- fíflið tók hina yfirmáluðu grímu ofan og sýndi bert andlitið. — Þá kom í ljós hræðilega afskræmt og Ijótt andlit mannsins, sem enga atvinnu átti aðra en grímu búins trúðs. Það var andlit á bak við Þessi trúðleikur minnir óneft- anlega og ónctalega á framkomu Framsóknar í olíugeymamálum Olíufélagsins og Hvalfjarffar- málum „íslenzkra“ kommúnista. Framsóknarblöðin, affallega „Dagur“ á Akureyri og „Tími- inn“, sem halda mætti án land fræðilegra ástæðna, aff væri meira að marka en hið fyrra, þar sem það er nær hugsjónasam- steypustöff Framsóknaríhaldsins, notuðu tækifærið til þess að skella salti í þau sár, sem þau höfðu sjálf valdiff markalínu- kommúnistum. — Framsókn veit, sem er, að kommúnistabúkurinn er eifct rotiff hræ, — því ekki aff fá sér bita? En ekki má gogga of djúpt niður í hræ án þess að smitast. . t . Framsókn þarf líka að hugsa um þann meirihluta í sveitunum, sem styffur hana, áður en farið er að stela frá vesalings komm- nnnm. Hefur Framsókn ekkert andlit? Því spyrja menn: Er hægt aff treysta Framsókn? Hvar stend ur hún í NATO-málum? Er hún með vegavilltum, hugsjónablind- um Moskvukommúnistum í hverri gönguför? Látum vera atkvæffabetl bitl ingaþyrstra Reykjavíkur-hálf- komma-framsóknarmanna. Þeir mega labba og aka frá Hvalfirði til Reykjavikur, eins og Sigurvia atvinnurekandi Einarsson! Er Framsókn með eða móti NATO? Sú tíð kann að koma, að í staðinn fyrir að finna ljótt and- lit, finni menn ekkert andlit. Andlit Framsóknar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.