Morgunblaðið - 24.08.1963, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 24.08.1963, Blaðsíða 21
Laugardagur 24. ágúst 1963 MORGUNBLAÐIÐ 21 Minningm um Bjarna frá Vogi Herra ritstjóri! Vegna frásagnar um vígsiu minningarlundar um Bjarna Jónsson frá Vogi 11. þ.m. í biaði yðar í dag, leyfi ég mér að biðja yður að láta í ljós koma þá leið- réttingu, að ég lagði blómsveig að minnismerki um Bjarna ekki í nafni neins félags listamanna, heldur sem þakklætisvott ýmissa listamanna, einkum þeirra, sem báru hann til grafar sumarið 1926. Leyfið mér að endurtaka það, sem ég sagði við vígsluna: — Ég hefi engan stjórnmálamann þekkt, og raunar engan íslend- ing, sem hefir barizt eins fyrir viðgangi lista og vísmda eins og Bjarna frá Vogi. Reykjavík, 22. ágúst 1963. Jón Leifs. Skemmtiierð þökkuð HINN 6. júlí, bauð Bindindisfé- lag ökumanna, skammstafað B. Ö., vistmönnum og starfsliði vistheimilisins Víðines, Kjalar- nesi, í dásamlega skemmtiferð um fagrar og gróskuríkar sveitir Suðurlands. Stjórn B. ö. og með limir lögðu til farkosti og óku sjálfir. Var ekið, með stuttri viðstöðu á Kambabrún, að Selfossi. Þar var öllum boðið í kaffi og veitt vel og rausnarlega. Þaðan var ek ið áfram hina skemmtilegu leið upp Flóann, Skeiðin, Biskupstung ur, Grímsnesið og Sogsveginn til Þingvalla og víða staldrað við. Síðan sem leið liggur, Mosfells- sveitina, Kjalarnes og komið að Víðinesi kl. 10 um kvöldið. .' Þessi þurra upptalning segir lítið af því, er við vildum sagt hafa. Þetta er ekki ferðasaga. Þetta stutta bréf á aðeins að skila hugheilum kveðjum og inni legu þakklæti til forráðamanna og einstaklinga B. Ö., fyrir ó- gleymanlega skemmtiför um feg urstu og gróskuríkustu sveitir þessa lands, er geyma sterka sögu forfeðranna við hvert fótmál. Vistmenn i Víðinesi, sem af sjálfsdáðum afsala sér frjálsræði og fara í háifs árs einangrun, til þess að öðlast andlega og líkam lega lækningu, að þeir megi sigr ast á áfengisböli sínu, kunna sannarlega að meta hið fórnfúsa og kærleikslundaða boð B. Ö., ekki sízt fyrir það, að við feng um um leið að njóta persónu- legra kynna af sönnum dreng- skaparmönnum, sem skilja bar- áttu okkar. Vænt þótti okkur og um orð hr. ^Ásbjörns Stefánssonar lækn is, framkvæmdastjóra B. Ö., er hann sagði í hreinlundaðri ræðu við sameiginlega máltíð í ferða lok, „að B. ö. fyndi til skyldleika með þeim mönnum, er .stefndu að bindindi". Jafnframt viljum við vekja at hygli á hinu stórmerka starfi og baráttu Bindindisfélags Öku- manna. f hinni öru og fyrirferðar miklu vélvæðingu þessarar þjóð- ar, sivaxandi fjölda ökutækja og stórvirkra flutninga og vinnu- tækja, sívaxandi umferðar og um ferðarörðugleika, þá kallar þessi þróun á aukna athygli í umferð, dómgreind, gætni, tillitssemi, krefst bindindis. Starf B. ö. er því ekki aðeins gott, vökul bar átta þessara manna er samfélag inu lifsnauðsyn. * Blessun fylgir starfi ykkar, megi ávöxtur þess verða sem mestur. Fyrir hönd starfsfólks og vistmanna að Víðinesi, kærar þakkir. uörur K.artöflumús -- Kakómalt Kaffi — Kakó Grensáskjör Grensásvegi Garðyrkjumenn athugið Tilboð óskast í ca. 10 hektara tún til ofanafristu. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 29. þ.m., merkt: — ,,Túnþökur — 5157“. Verzlunarstjóri Kjöt og nýlenduvöruverzlun vantar verzlunar- stjóra. Hátt kaup. Tilboð sendist afgr. Mbl, merkt: „5154“. DANSLEIKUR að ARATUNGU í kvöid Nú þarf enginn að leita, því þar verður fjörið mest. Sætaferðir frá BSÍ kl. 8,30 og Hveragerði og Selfossi kl. 9. LÚDÓ-sext. og STEFÁI - Bezf ab auglýsa 1 Morgunblablnu — Matvöruverzlun Vil taka á leigu eða kaupa matvöruverzlun eða húsnæði fyrir verzlun. Tilboð sendist afgr. Mbl., merkt: „Matvara — 5155“. til leigu. Afkastamikil ámokstursskófla og krani >! — Sími 33318. V. GUÐMUNDSSON. Viljum kaupa 3ja—4ra herb. í búð í nýju eða nýlegu húsi, helzt á 1. hæð. — Góð út- borgun. — Tilboð óskast send afgr. Mbl. fyrir mánu dagskvöld, merkt: „Þrennt fullorðið — 5146“. Rörsteypan hf. í Kópavogi óskar eftir nokkrum góðum mönnum strax. — Þurfa helzt að vera úr Kópavogi. Afgreiðslustarf Sérverzlun í Miðbænum óskar að ráða afgreiðslu- stúlku hálfan eða allan daginn. Tilboð sendist afgr. Mbl., merkt: „Afgreiðslustarf — 5156“. Vélvirkjar og rafsuðumenn óskast Mikil vinna. — Ákvæðisvinna. — Ennfremur getum vér tekið nokkra nema. Vélsmidjan Klettur hf. Hafnarfirði — Sími 50139 og 50539. Fasteign til sölu Leita kauptilboða í fasteignir mínar, Aðalgata 28A og B, Siglufirði. Tilboðum sé skilað fyrir 1. október n.k. — Nánari upplýsingar veitir; A. Schiöth — Sími 128 — SiglufirSi Veiðileyfi Vegna veikindaforfalla eru til sölu veiðileyfi í Laxá í Leirársveit 27. ágúst fyrir 3 stengur. — Upplýsingar í síma 14601. Þekkt umboðs- og heildsölufyrirtæki Til sölu Umboð fyrir heimsþekkt vörumerki. Félagsskapur við mann, sem gæti tekið að sér reksturinn kæmi til greina. Lítill vörulager. — Þeir, sem hefðu áhuga að fá nánari upplýsingar, sendi nöfn sín með upp- lýsingum til afgr. Mbl. merkt: „Framtíð —- 5388“. Til sölu er 5 herb. glæsileg efri hæð í smiðum við Hamra- hlíð. Allt sér. Hagstæð kjör. Málflutningsskrifstofa VAGNS E. JÓNSSONAR Austurstræti 9. — Símar 14400 og 20480. Hafnarfjörður Garðahreppur Afgreiðslustulku vantar frá 1. sept. í sælgætisverzlunina SÓLEY, Strandgötu 17, Hafnarfirði. 5 tíma vaktir koma til greina. — Upplýsingar í síma 51280 og 51281 eða í verzluninni. S. 'M. L

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.