Morgunblaðið - 24.08.1963, Blaðsíða 23
Laugardagur 24. &gúst 1963
MORCUNBLAÐIÐ
23
Síldaxsoltun á Vopnafiröi
346 hvalir höfðu
veiðzt í gœrdag
AKRANBSI, 23. ágúst — 346
h.valir eru veiddir núna kl. 18 í
kvöld á hvaLbáta hvalstöðvar-
innar.
Humarveiðin helzt og er enn
í góðu gildi. í dag komu 5 bátar
inn og öfluðu samtals 6 tonn
af humar. Ásbjörn AK var hæst-
ur með 4 lestir, Ásmundur 3,5
og Fram 3,5, Bjarni Jóhannes-
son 3 og Ólafur Magnússon 2
lestir. Óhemju vinna er við
humarinn, sem er að langmestu
leyti leyst af hendi af 11—17 ára
unglingum.
Fjórir síldarbátar lönduðu í
dag, alls 2840 tunnum. Höfrung-
ur H 900 tunnum, Haraldur 900,
Skírnir 600 og Fiskaskagi 440,
allt í bræðslu.
Aflahæst af línutrillum £ dag
var Vonin með f lestir. Einn
hinna fjögurra dragnótatrillu-
báta vissi ég að fiskaði 1 lest og
Seldi í Rykjavík. — Oddur.
Öryggisráðið ræðir deilur
Israels og Sýrlands
New York 23. ágúst (NTB).
f KVÖL.D kom öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna saman til þess
Forsetinn
Framh. af bls. 1
ákveðið tíma heimsóknarinn-
ar, sem yrði væntanlega um
eða upp úr miðjum nóvember
mánuði næstkomandi. Hins
vegar hefði enn ekki verið
opinberlega tilkynnt hvaða
daga heimsóknin stæði. Það
yrði gert samtímis í Reykja-
vík og Lundúnum.
Ambassadorinn sagði, að for
setinn kæmi í opinbera heim
sókn í boði ríkisstjórnarinnar
en ekki drottningar. Þetta
væri svipuð heimsókn og
þegar Kekkonen Finnlands-
forseti kom í opinbera heim-
sókn til Lundúna.
Enn væri ekki búið að á-
kveða dagskrá heimsóknar-
innar. Að því væri unnið hjá
utanríkisráðuncytinu. Telja
mætti víst, að forsetinn heim-
sækti Elisabetu drottningu,
t.d. snæða hjá henni hádegis-
verð.
Ambassadorinn sagði, að
ekki hefði enn verið mikið
skrifað um heimsóknina í
brezk blöð. Times hefði skrif-
að um hana í marzmánuði,
þegar hún var tilkynnt, og
bent á, að þetta væri kærkom
ið tilefni til að undirstrika að
búið væri að leysa hin erfiðu
deilumái ríkjanna. Það hefðu
verið mjög vinsamleg skrif.
Að Iokum sagði Henrik Sv.
Björnsson, að allt gott væri
að frétta af íslendingum í
London, þar væri mikið um
ferðamenn, einkum skáta
þessa dagana, sem væru á
heimleið frá Jamboree í
Grikklandi og einnig hefði
verið í London skátahópur frá
Akranesi.
— Vilja ekki
Framh. af bls. 1
senda fulltrúa til þess að fylgjast
með störfum rannsóknarnefndar-
innar. Bretar og Filippseyingar
hafa nú fallizt á að hver aðili
fái að senda fjóra fulltrúa til
nýíendanna og með þeim verði
fjórir aðstoðarmenn. Vonast
stjórnir þessara landa nú til þess,
að stjórnir Malaya og Indónesíu
geti sætt sig við þennan fjölda
fulltrúa.
Óvíst er hvenær rannsóknar-
nefnd. SÞ lýkur störfum á
Borneó, en Abdul Rahman for-
saetisráðherra Malaya er þeirrar
skoðunar, að ekki sé rétt að
stofna Malaysíu fyrr en niður-
Stöður nefndarinnar liggi fyrir.
Sem áður segir vilja hin ríkin,
*em aðild munu eiga að ríkja-
sambandinu, ekki fresta stofn-
uiunm.
að ræða kærur ísraels og Sýr-
lands vegna atburðanna á landa
mærum ríkjanna að undanförnu.
Fyrstur tók til máls fulltrúi
ísraels, Michael Comay. Sagði
hann, að stjórn landsins væri
þess fullviss, að ástandið á land
mærunum ógnaði heimsfriðinum.
Hann sagði, að með yfirgangi sín
um hefðu Sýrlendingar rofið sátt
mála Sameinuðu þjóðanna. ísra-
elsmenn vildu lifa í sátt og sam-
lyndi við Arabaríkin, en ef á
landið yrði ráðizt myndi þjóðin
sýna, að hún væri fær um að
verja hendur sínar.
Eftir að Comay hafði lokið
máli sínu ákvað öryggisráðið að
fresta fundum til þriðjudags, en
þá liggja væntanlega fyrir skýrsl
ur vopnahlésnefndarinnar um á-
standið á landamærunum.
Syndið 200 metrana
— Úraþjófnaðurinn
Framh. af bls. 24
greitt með ávísun, en þó þannig
að gefa varð honum til baka í
peningum. Mun hann hafa fals-
að a.m.k. 15—16 ávísanir.
STÚLKAN ÞEKKTI HANN
AFTUR.
Handtöku piltsins bar þannig
að, að afgreiðslustúlka í verzl-
un, sem hann hafði greitt með
falskri ávísun, sá hann á götu,
þekkti hann aftur og gerði lög-
reglunni aðvart.
Við yfirheyrslur á piltinum hjá
rannsóknarlögreglunni beindist
grunur að honum um að vera
viðriðinn úraþjófnaðinn. Við hús
leit heima hjá honum í fyrra-
kvöld fundust nokkur úr og í
gærmorgun viðurkenndi hann
innhrotið.
ÞÝFIB UNDIR GÓLF-
FJÖLUNUM.
Pilturinn vísaði lögreglunni á
staðinn, sem hann faldi úrin á,
en það var undir gólffjölum í
herbergi hans. Þar voru nýju úr-
in og armböndin.
Úrin, sem voru til viðgerðar,
hafði hann hins vegar falið í
þröngri gjá við Vatnsvík við
Þingvallavatn. Er nokkuð erfitt
að komast að gjánni og í henni
er um 1% feta vatn. Rannsókn-
arlögreglan fór með piltinn í
gær til Þingvalla til að sækja
úrin og höfðu. þau legið í vatn-
inu allan tímann. Búast má við,
að þau séu meira eða minna
skemmd af þvi að vera í vatn-
inu.
Allt þýfið til skila
Rannsóknarlögreglan telur, að
þýfið hafi allt komið til skila.
Pilturinn hafði ekki selt neitt
af því, að því er hann segir.
Hann mun hins vegar hafa haft
í huga, að komast til útlanda
með úrin og selja þau þar.
Hafði komið víðar við
Pilturinn viðurkenndi einnig,
að hafa stolið úr sýningaglugga
hjá Guðmundi Þorsteinssyni,
Bankastræti 12, dýrum stein-
hring (2,985 kr. virði) og úr
glugga Gevafoto við Lækjar-
torg tveim kvikmyndatökuvél-
um, 8 mm af Carena-gerð. Sam-
anlagt verðmæti vélanna er um
20 þúsund krónur.
Rannsókn skammt á veg komin
Að þvi er Ingólfur Þorsteins-
son, varðstjóri hjá rannsóknar-
lögreglunni tjáði Morgunblaðinu
í gær, er rannsókn málsins
enn skammt á veg komin. Sagði
hann, að lögreglan hefði ekki
áður þurft að hafa afskipti af
pilti þessum. Vildi hann ekki
láta birta nafn hans að svo
stöddu a.m.k.
Stjórnmálamenn á Norðurlöndum
um fall stjórnar Gerhardsen
Spá því, að hin nýja stjórn vsrði ekki
lengi við völd
Osló, 23. ág. — NTB.
HÉR FARA á eftir ummæli
stjórnmálamanna í Dan-
mörku, Svíþjóð og Finnlandi
um fall stjórnar Einars
Gerhardsens:
Jens Otto Krag, forsætisráð-
herra Danmerkur sagði, að fall
stjórnar Gerhardsens myndi
hafa áhrif á sósíaldemókrata-
flokka á Norðurlöndum, og þess
yrði sérstaklega minnzt að það
var sósíalískur þjóðarflokkur,
sem felldi hana. Forsætisráð-
herrann hélt áfram: „Við Danir
minnumst með þakklæti hinnar
jákvæðu afstöðu stjórnar Ger-
hardsens til norrænnar sam-
vinnu og með aðdáun minn-
umst við atorku Halvards Lange
er hann kom fram á alþjóða-
vettvangi sem fulltrúi þjóðar
sinnar“.
Utanríkisráðherra Dana, Per
Hækkerup, sagði: „Það er skoð-
un mín, að afstaða Norðmanna
til norrænnar samvinnu breytist
ekki, þó ný stjórn taki við völd-
um, en ég mun sakna þess að
hitta ekki fyrir Halvard Lange,
er ég ræði við utanríkisráðherra
Noregs.“
Erik Eriksen, fyrrv. forsætis-
ráðherra Dana, sagðist gleðjast
yfir því, að borgaraflokkar Nor-
egs hefðu gleymt gömlum vær-
ingum og gengið til samstarfs.
Stjórn þeirra yrði ekki sterk í
fyrstu, en skrefið, sem stigið
hefði verið, væri í rétta átt.
Aksel Larsen, formaður Sósíal-
íska þjóðarflokksins í Danmörku,
kvað augljóst, að stjórn borgara-
flokkanna í Noregi yrði ekki
lengi við völd. Verkamannaflokk
urinn gæti fellt hana hvenær sem
væri og þá væri aðeins einn
möguleiki, ný stjórn Verka-
mannaflokksins.
Tage Erlander, forsætisnáð-
herra Svíþjóðar sagðist hafa
fylgzt furðu lostinn með um-
ræðunum um Kings Bay-málið
í norska Stórþinginu. Kvaðst
hann telja þær hinar furðuleg-
ustu, sem farið hefðu fram í
þingræðislandi. „Stjórn Ger-
hardsens var aðdáunarverð",
hélt Erlander áfram, „og síðustu
atburðirnir varpa engum skugga
á hana í okkar augum. Ger-
hardsen hefur verið leiðtogum
verkamannaflokka hinna Norður
landanna góð, fyrirmynd og óg
er sannfærður um, að hann sezt
við stjórnvölinn á ný áður en
langt um líður.“
Formaður sósíaldemókrata-
flokks Finnlands, Rafael Passio,
sagði, að hin óvenjulega langa
stjórnartíð verkamannaflokksins
í Noregi hefði haft í för með sér
stjórnmálalegan vöxt og fastmót
aða stefnu. Nú benti hins vegar
allt til þess, að framundan væri
jafnvægisleysi í stjórnmálum
landsins. Fullljóst væri, að hin
borgaralega stjórn yrði ekki lang
líf, og verkamannaflokkurinn
tæki við völdum á ný.
— S-Viet Nam
Framh. af bls. 1
Utanríkisráðherra S.-Viet-Nam,
Vu Van Mau, sem sagði af sér
í gær í mótmælaskyni við að-
gerðir stjórnarinnar, en stjórn-
in hefur ekki tekið lausnarbeiðni
ráðherrans til greina. Hefur hann
nú rakað höfuð sitt að sið Búdda
trúarmunka og sótt um leyfi
stjómarinnar til að fara píla-
grímsferð til Indlands. Tran
Choung, sendiherra S.-Viet-Nam
í Bandaríkjunum og kona hans,
sem er fastafulltrúi lands síns
hjá Sameinuðu þjóðunum, báð-
ust einnig lausnar í gær í mót
mælaskyni. Utanríkisráðuneyti
S.-Veit-Nam skýrði frá því 1
kvöld, að lausnarbeiðnir hjón-
anna hefðu verið teknar til
greina. Sagði talsmaður ráðu-
neytisins, að stjórnin hefði sam-
þykkt einróma að veita hjón-
unum lausn frá störfum, enda
væri hún þeirrar skoðunar, að
þau hefðu ekki sýnt forseta
landsins eins mikla virðingu og
skyldan byði þeim.
★
Áreiðanlegar heimildir herma,
að óánægja sé mikil meðal em-
bættismanna stjórnar S.-Viet-
Nam og sumir eru þeirrar skoð
unar, að einnig ríki óánægja
innan hersins og gera megi ráð
fyrir stjórnarbyltingu á næst-
unni.
í dag mótmæltu stúdentar i
Saigon aðgerðum stjórnarinnar,
en ekki kom til átaka. Sagt er
að margir prófessorar í' Saigon
hafi látið af störfum í mótmæla
skyni. í Hue sögðu 47 prófess-
orar embættum sínum lausum
í gær af sömu orsökum og I
dag voru 17 þeirra handteknir.
★
Ríkisstjómir Kambodia og
Malaya hafa báðar fordæmt að-
gerðir stjórnar S.-Viet-Nam.
Leiðtogar Búddatrúarmanna í
Suður-Kóreu hafa lýst vanþókn
un sinni og reynt að fá stjórn
landsins til þess að gera slíkt
hið sama, en hún hikar við.
Náið stjórnmálasamband er
milli S.-VietNam og S.-Kóreu.
— ísafjarðarkirkja
Framh. af bls. 6
Þá barst og frá Kveníélaginu
Ósk fagur útsaumaður altaris-
bræðrum hennar Ágústi og
frú Elísabet Hálfdánardóttur, og
Jónsdóttur frá Kirkjubæ, og frá
dúkur, saumaður af frú Maríu
Ólafi, sem eru sonarsonarböm
sr. Hálfdáns prófasts, 28 sálma-
bækur og peningagjöf í píanó-
sjóð kirkjunnar.
Þá gaf Friðrik Bjamason,
málarameistari, alla málningu á
kirkjuna að utan.
Ennfremur bárust blóm og
heillaskeyti frá ýmsum.
Kirkjunni bárust margar aðrar
góðar gjafir í tilefni af aldar-
afmælinu.
í tilefni af aldarmælinu hefur
sr. Sigurður Kristjánsson prófast
ur tekið saman bækling, ágrip af
sögu kirkjunnar og starfi hennar
og jafnframt æviágrip þeirra
presta, sem hafa verið þjónandi
við kirkjuna þessa öld, en þeir
eru: Séra Hálfdán Einarsson,
séra Árni Böðvarsson, séra Þor-
valdur Jónsson, séra Magnús
Jónsson, síðar prófessor, séra
Sigurgeir Sigurðsson, síðar
biskup íslands, séra Marinó
Kristinsson og núverandi sókn-
arprestur, séra Sigurður Krist-
jánsson prófastur.