Morgunblaðið - 18.09.1963, Page 8
8
MOaoIÐ
Miðvikudagur 18. sept. 1963
Sr. Finnur Tulinius
sjötugur
SÍRA Finnur er íslenzlcur í föð-
urætt. Það ætti vel við að vagga
hans hefði verið á íslandi. En
þó að hann fæddist í öðru landi
hefir hann ávallt getað sagt: „Svo
traust við ísland mig tengja
bönd, ei trúrri binda son við móð-
ur“. Sterk eru böndin, sem halda
honum fast við föðurlandið.
Til góðra á hann að telja.
Margir eru þeir, sem muna hinn
dugmikla, sístarfandi atorku-
mann, sem var stórvirkur braut-
ryðjandi í öllu, sem hann tók sér
fyrir hendur. Þannig var Þórar-
inn Erlendur Tulinius, faðir síra
Finns. Má rekja ætt síra Finns
til síra Þórarins Erlendssonar að
Hofi í Álftafirði. Var síra Þórar-
inn um nokkurt skeið aldursfor-
seti lærðra manna á íslandi, enda
varð hann 98 ára.
Síra Finnur fæddist í Kaup-
mannahöfn 18. sept. 1893, og
hlaut hið bezta uppeldi hjá for-
eldrum sínum. Thor E. Tulinius
og frú Helgu, er ættuð var frá
Árósum. Stúdentsprófi lauk hann
1912, og á námsárunum stundaði
hann kennslustörf af miklum
Hafnarfjörður
Kona óskast annan hvern dag. — Stuttar vaktir.
Brauðstofan, Reykjavíkurvegi 16.
AfgreiBslustúlka
Stúlka óskast til afgreiðslustarfa í skóverzlun. —
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf,
sendist afgr. Mbl,- fyrir 21. þ.m., merkt: „Skó-
verzlun — 5222“.
HATT KAUP
Stúlkur vanar afgreiðslu óskast strax. Upplýsing-
ar í síma 19457.
„ÞÖLL“ auglýsir
Heitar pylsur, tóbak, öl, sælgæti, ís, ávextir í úr-
vali o. m. fl.
Þ Ö L L , Veltusundi 3,
gengt Hótel íslands-bifreiðastæðinu.
Jítlcis Copco
Loftþjöppur og hverskonar loftverkfæri
fyrirliggjandi eða útveguð með stuttum
fyrirvara.
Einkaumboð fyrir:
JltlasCopcc
LAIMÐSSMIÐJAIM
Sími 20680
áhuga, og er hann tók embættis-
próf, hafði hann þegar stofnað
æskulýðsskóla, er bar nafn hans.
Veitti hann skólanum forstöðu
um allmörg ár, og gekk að því
starfi með miklum dugnaði.
Sóknarprestur hefur hann verið
síðastliðin 24 ár, og margir eru
þeir íslendingar, sem kannast við
hinn brosandi prest, sem fagn-
andi tekur á móti íslendingum,
er þeir láta hann gifta sig og
skíra börnin, og margar minning-
arræður hefir hann flutt um
látna íslendinga. Þá heyrist ís-
lenzkan og þá er hlustað eftir
tónunum, er íslenzki þjóðsöngur-
inn beinir huganum heim.
Síra Finnur og frú Úlla, kona
hans, hafa fagnað mörgum héðan
að heiman. Það er öllum kunn-
ugt, að síra Finnur er prestur Is-
lendinga á danskri grund.
Síra Finnur lætur sér ekki
nægja að heyra eða lesa um ís-
land. Oftsinnis hafa hin ágætu
hjón og dætur þeirra komið hing-
að. Auðvitað var síra Finnur á
Skálholtshátíðinni í sumar. Skál-
holti hefir hann sýnt mikla vin-
áttu og lengi mun nafn hans
geymast vegna þeirrar íslands-
vináttu, sem gjafir hans bera
vitni um.
Er hægt að hugsa sér betri
landkynni en síra Finn? Hann
talar oft um ísland, og segir iðu-
lega nákvæmar fréttir af starfi
íslenzku kirkjunnar. Margar bæk
ur hefir hann ritað og víða má
sjá í ritum hans, að það er horv-
um sönn nautn að hylla ísland.
Það er því eðlilegt, að hann og
hin ágæta kona hans eigi marga
vini hér heima, og margir eru
þeir, sem með þakklæti hafa
hlustað á hinar bjartsýnu, hvetj-
andi ræður hans. Að verðleikum
hefir. hann verið sæmdur ís-
lenzku heiðursmerki, og margir
munu ásamt mér telja hann bæði
danskan og íslenzkan prest.
Nýlega hefir síra Finnur látið
af embætti, og búa þau hjónin
nú í Gersonsvej 26, Hellerup.
Frá mér og heimili mínu ber-
ast þakklátar kveðjur til hinna
tryggu vina. Það veit ég með
vissu, að margir íslendingar
hugsa með þakklæti um hið ó-
metanlega starf, er síra Finnur
hefir af hendi leyst íslandi til
heilla.
Sönn farsæld fylgi hollvini Is-
lands.
Bj. J.
Veitingaskálinn
v/ð Hvitárbrú
Heitur matur allan daginn.
Tökum á móti terðahópum
Vinsamlegast pantið með fyr-
irvara. — Simstöðin opin kl.
8-24.
Óska eftir láni
til 8—9 ára 50—60 þús. kr.
Góð fasteign í Miðbænum í
veði. Tilboð sendist afgr.
Mbl. fyrir kl. 12 á laugardag,
merkt: „3244“.
4ra herb. hœð
til sölu við Laugarásveg.
MÁLFLUTNINGS- og FASTEIGNASTOFA
Agnar Gústafsson, hrl.
Björn Pétursson, fasteignaviðskipti.
Austurstræti 14, símar 22870 og 17994.
Utan skrifstofutíma 35455.
Atvinna
Kona, sem er vön að smyrja brauð óskast, einnig
drengur til sendiferða og annarra starfa á aldrin-
um Í2—16 ára. lippl. á skrifstofu
Sæla - café
Brautarholti 22 í dag og næstu daga frá kl. 10—12
fyrir hádegi og kl. 2—5 eftir hádegi.
5 herb. íbúð
við Álftröð í Kópavogi til sölu. Stór lóð. Bílskúrs-
réttindi. — Laus strax. — Uppl. á skrifstofu
EINARS SIGURÐSSONAR,
Ingólfsstræti 4. — Sími 16767.
Heimasími kl. 7—8: 35993.
Röskur sendisveifin
óskast nú þegar hálfan eða allan daginn.
ORKA hf.
Laugavegi 178.
Verkamenn óskasf
Verkamenn óskast í fasta vinnu. Uppl. hjá verk-
stjóranum : síma 15212.
LÝSI ht.
Vigfús Guðbrandssson
& Co hf.
Vesturgötu 4.
• Klæðskerar
hinna
vandiátu.
Fataefni
TOREADOR-efnin
eftirsóttu nýkomin.
Fáein sýnishorn
í glugga
V. B. K.