Morgunblaðið - 18.09.1963, Side 24

Morgunblaðið - 18.09.1963, Side 24
Auglysingarábffa Utarihussaugtysmciar aliskonarskilti ofl EKKI hefur enn tekizt samkomu lag um verðlagsgrundvöll land- búnaðarafurða á fundum sex- anannanefndarinnar. Enn ber mikið í milli sjónarmiða fram- Jeiðenda og neytenda og mun nú Drakk formalín KLUKKAN 12,45 í gær var lögreglan kvödd að rannsókn- arstofum Fiskifélags íslands við Skúlagötu, en þar hafði forfallinn drykkjumaður kom izt yfir formalinvökva og drukkið. Er vökvi þessi hið mesta eitur og var farið með manninn þegar í stað í Slysa- várðstofuna, þar sem dælt var upp úr honum. Var hann síðan fluttur í Landspítalann. yfirnefnd ákveða verðlagsgrund- völlinn. — 1 yfirnefndinni eiga sæti þrír menn, þeir Gunnar Guðbjörnsson, fulltrúi framleið- enda, Sæmundur Ólafsson, full- trúi neytenda, og Klemenz Tryggvason, hagstofustjóri, er kallar nefndina saman. Mun yfirnefndin greiða at kvæði um ágreiningsatriði sex- mannanefndarinnar og er ' ú skurðar hennar að vænta næstu daga. Mun sexmannanefndin þá ókveða skiptingu útgjaldaupp hæða á einstakar afurðir og á- kveða vinnslu- og dreifingar- kostnað. HINN nýi sendiherra Argentínu, herra José Rodolfo Antonio Saravia afhenti í dag forseta ís- lands trúnaðarbréf sitt við há- tíðlega athöfn á Bessastöðum, að viðstöddum utanríkisráðherra. Reykjavík, 12. sept. 1963. Skrifstofa forseta íslands. Kunar Guðrnundsson lögregluþjónn Rússnesko skipið með slcsoðnn mnnn EINS og skýrt var frá í Mbl. í gær var talið að rússneskt skip væri í nauðum statt á haf inu langt sunnan íslands, og væri farþegaskipið „Empress- of Britain“ á leið til aðstoð- ar. Fregnir voru mjög óljósar af atburði þessum vegna fjar- lægða, en samkvæmt einka- skeyti til Mbl. í gær var hér um að ræða rússneskan tog- ara, Svetskaja Rodina, en einn skipsmanna hafði skorizt illa á hendi. Herskip frá bandarísku Strandgæzlunni, sem var að veðurathugunar störfum, heyrði neyðarkall skipsins, og beindi „Empress of Britannia" á staðinn. Fóru iæknar um borð í togarann og gerðu að meiðsium rússneska sjómannsins. Á æfingu Gísls. Frá vinstri. Arnar Jónsson, Helga Valtýsdóttir, Valur Gíslason, Thomas Mac- Anna og Herdis Þorvaldsdóttir. Gísl“ fr umsýnt LEIKRITIÐ Gísl (Hostage) eftir Brendan Behan verður frum- sýnt í Þjóðleikhúsinu næstkom- andi laugardag. írskur leikstjóri, Tomas MacAnna, frá Abbey leikhúsinu hefur verið ráðinn tíl að setja Gíslinn á svið. MacAnna er þaulkunnugur Behan og verk- um hans. Aðalhlutverkin leika Helga Valtýsdóttir og Valur Gíslason, en alls eru leikendur 16 auk 9 aukaleikara. Aðstoðarleikstjóri er Baldvin Halldórsson. Þýðing- una gerði Jónas Árnason eftir tveim textum, sem notaðir voru á sýningum í London, en nokkr- ar breytingar hafa verið gerðar á leikritinu síðan það var frum- sýnt á keltnesku í Dublin. Tveir nýir leikarar á A-samning Þjóðleikhússtjóri, Guðlaugur Jón Sig urbjörnsson til Stokkhólmsóperunnar JÓN Sigurbjörnsson, leikari og söngvari, hefur verið ráð- inn til að syngja við Stokk- hólmsóperuna frá næstu ára- mótum. Fer hann með hlut- verk í óperunum Aida, Tann- háuser og Brúðkaup Figaros. Jón er staddur erlendis um þessar mundir, en eiginkona hans, Þóra Friðriksdóttir, leik kona, tjáði blaðinu í gær, að Jón hefði hringt til hennar frá Stokkhólmi á laugardag- inn og sagt henni þessar frétt ir. Er hér um að ræða árs- samning við óperuna. Jón Sigurbjörnsson fór með I fyrsta skipti, sea ég hef ekki getað eit uppi ökuf ant hlutverk Ferraudos í II Trova tore i Þjóðleikhúsinu í vor, en Lars Runsten frá Stokkhólms Rósinkranz, skýrði fréttamönn- um svo frá í gær, að tveir leki- arar hafi verið ráðnir til Þjóð- leikhússins á svokölluðum A- samningi. Eru það Helga Valtýs- dóttir og Benedikt Árnason. Helga hefur leikið nokkur stór hlutverk í Þjóðleikhúsinu, t. d. í Djúpið blátt, Skálholt og Ætlar konan að deyja, en aldrei verið þar fastráðin. Benedikt hefur sett mörg leikrit á svið í Þjóð- leikhúsinu, en hefur að undan- förnu unnið við leikstjórn í Dan- mörku. Minningarathöfn um Benedikt Bjarklind MINNINGARATHÖFN um Bene- dikt S. Bjarklind, stórtemplar, sem lézt í Kaupmannahöfn 6. þ. m., fer fram í Dómkirkjunni á morgun, fimmtudag, og hefst kl. 10.30. Athöfninni verður útvarp- að. — Rúnar Guðmundsson, lögregluþjónn, segir frá hœttulegum eltingarleik ■ LÖGREGLAN í Reykjavík komst í kast við einn versta ökuníðing, sem sögur fara af hér á landi, aðfaranótt sunnu dags. Ók hann svo hratt, að lögreglan komst ekki einu sinni svo nærri að hún sæi númerið. Næsta kvöld var ökuníðingurinn þó handtek- inn. Eltingarleikurinn hófst í hjarta borgarinnar, á Hverfis götu. Sá er ók lögreglubílnum var Rúnar Guðmundsson. Morgunblaðið hefur beðið hann að skýra fra eftirförinni um nóttina. Rúnari sagðist svo frá: — Við vorum þrír að fara út í kall um kl. 2 aðfaranótt " sunnudags í einum lögreglu- bílnum og ætluðum að beygja suður Lækjargötu. — Sáum við þá lítinn Skoda sportbíl bláleitan, aka á ofsa- hraða úr Lækjargötu og upp Hverfisgötu, án þess að hugsa um rétt annarra bila. — Ég ók lögreglubílnum og ákváðum við að halda strax á eftir Skodabílnum og ók ég eins hratt og billinn komst upp Hverfisgötu. Sett var á rautt ljós og „sírena“. Héldum við að ökuþórinn myndi stanza við það eins og menn gera yfirleitt, en svo fór ekki. — Þess í stað jók Skoda- billinn hraðann enn og var sýnilegt, að hann ætlaði að „stinga af“. Hófst eltingarleik- urinn nú fyrir alvöru. Skoda- bílinn beygði upp Barónsstíg án þess að draga verulega úr hraðanum og vorum við nú komnir allnálægt, en þó ekki nægilega til að geta séð númerið. Ekið var svo niður Laugaveg og niður Frakka- stíg. Hvein og söng í hjólbörð unum á gatnamótunum og var Skodabíllinn eins og blátt strik. — Við Frakkastig er blint horn og stöðvunarskylda en ökuþórinn lét sig það engu skipta. Var guð^ mildi, að ekki skyldi neinn bill koma eftir Hverfisgötunni, þegar sá blái geystist inn á hana aft- ur. — Eftir Hverfisgötu var ek- ið á ofsahraða og sýndi mæl- irinn hja okkur 100 km. hraða. Framh. á bls. 23 óperunni annaðist þá leik- stjórn. Vildi hann fá Jón til að syngja fyrir forstöðumenn Stokkhólmsóperunnar sem og Jón gerði nú á dögunum. Frá Svíþjóð heldur Jón Sigurbjörnsson suður til Köln ar, en honum bauðst þýzkur styrkur til að taka þar þátt í söngmóti. Sýningii Nínu lýkur í kvöld ii YFIRLITSSYNINGUNNI á lista- verkum Nínu Tryggvadóttur lýk ur kl. 10 í kvöld. Sýningin hefur nú staðið í 17 daga. Átti hennl að ljúka sl. sunnudagskvöld, en vegna mikillar aðsóknar var hún framlengd um þrjá daga. Megnið af þeim málverkum, sem voru til sölu, hefur selzt og geysimikil aðsókn hefur verið að sýning- unni. HERAÐSMOT í Bolungarvík, sunnud. 22. sept. HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Norður-ísafjarðarsýsla verður haldið í Bolungarvík sunnudaginn 22. sept. kl. 9 síðd. Ingólfur Jónsson, landbún- aðarráðherra og Sigurður Bjarnason, alþingismaður, nZ gÆÍ Til skemmtunar verður L einsöngur og tvísöngur. — i Flytjendur verða óperusöngv- ■ ararnir Kristinn Hallsson og ■Bt |gj Sigurveig Hjaltested, undir- leik annast Skúli Halldórsson, píanóleikari. — Ennfremur skemmtir Brynjólfur Jóhann- esson, leikari. Dansleikur verður um kvöldið. Sigurður Bjarnason Ingólfur Jónsson Yfirnefnd sker úr um ágreiningsatriði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.