Morgunblaðið - 16.11.1963, Síða 20

Morgunblaðið - 16.11.1963, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 16. nóv. 1963 BRJALADA HÚSIÐ ELIZABETH FERRARS Það gerðist þannig. Eitt vorið fékk ég hettusótt og varð alvar lega veikur, eins og fullorðnir verða oft, af þessum hvimleiða sjúkdómi. Meðan ég lá, tók ég að lesa glæpareyfara. Eg hafði aldrei lesið þá áður, þar eð ég hélt að þeir hæfðu ekki manni með menningarlegt hugarfar. En ég fann, að þeir hrifu mig. Þessi sniðuga og slynglega samsetn- ing þeirra hreif mig, svo að ég gleypti þá í mig. Það var aðal- lega vélræni þátturinn í þeim, sem vakti áhuga minn. Eg fór að hugsa um, hvort það væri nú í rauninni mögulegt að nota þess ar gildrur og veiðibrellur með árangri — þessar byssur, sem hægt var að hleypa af, langt í burtu, sjálfvirkar eitrunarað- ferðir, eiturloft, sem hægt var að leiða gegn um pípur, o.s.frv. Var það virkilega hægt að nota þessar brellur, eins og þeim var lýst? Loksins tók ég að gera tilraunir. Eg gerði þær í laumi, af því að ég hélt, að konan mín. með sitt strang-menningarlega hugarfar, mundi sennilega ekki skilja þennan áhuga minn. Allt til þessa dags, hefur hún enga hugmynd um tilraunir mínar, því að ég hef varðveitt leyndar málið vandlega. Þegar ég svo hafði prófað ýmsar morðaðferð ir, sem ég hafði lesið um, tók ég að finna upp nýjar sjálfur, eins og eðlilegt var. Aðferð mín við þessar prófanir var sú að útbúa áhldið nákvæmlega eftir lýsing- unni, en þó þannig, að það var algjörlega skaðlaust. Svo kom ég því þannig fyrir, að einhver annar en ég sjálfur skyldi ýta á hnappinn, taka í gikkinn, eða hvað það nú var, sem gert var til að láta áhaldið verka, þannig að hann sjálfur varð fyrir því. Ekki veit ég hversu oft konan mín er búin að verða fyrir þess- uim gervimorðum mínum. Ég segi „morð“, en annars hef ég búið til áhöld til íkveikju og þjófnaðar; ég hef fundið upp að ferðir til að læsa tómum her- bergjum innan frá, og ég hef æft ímyndunarafl mitt á öllum sviðum glæpastarfsemi. Eg held mér hafi ekki dottið í hug, fyrr en nú alveg síðustu dagana, að neitt illt væri í þessum æfingum mínum. Þessi leynd mín var að- eins til þess gerð að hafa næði við þær. Eg áttí ekki nema einn félaga við þessa dægradvöl mína — og hann óafvitandi. En hið illa liggur að baki öllum skemmt unum mannsins . . . Hér greip Toby fram í, en hann hafði verið fljótari að lesa en Vanner: — Þú getur sleppc næsta blaði, það er bara um upp runa syndarinnar. Hann hlýtur að hafa verið með sektarkennd frá fyrsta fari, úr því að hann var að fara bak við konuna sína. En hérna fer það að skána aft- ur. Fry hafði haldið áfram; Svo kom þá refsingin mín: Eg myrti án þess að vita af því. Þeg ar ég hafði áður gert tilraunir með eitur, notaði ég ekki raun- verulegt eitur, heldur eitthvað meinlaust, jafnvel meðöl. Samt átti ég birgðir af eitri, sem ég hafði hnuplað í tilraunaskyni í Hildebrandstofnuninni, nokkru áður. Einu sinni notaði ég fyrir handvömm, eina af þessum eitur tegundum í staðinn fyrir venju lega gerviefnið. Handvömm? Já, það var mín handvömm, en ekki ihins mikla vilja, sem hafði á- kvarðað refsingu mína. Eg myrti — og ég myrti það, sem var kært. Og svo varð ég að myrða aítur og aftur. Þið munuð finna í skúffunni vinstra megin í skrif borðinu, litla vasabók, þar sem getur um hin mörgu skemmti- legu morð, sem ég held, að mætti fremja án þess að upp kæmist. tryggni í augnaráðinu. — Aðferðin, sem ég notaði við að ©nigu að síður En myrða Lou Capell og Roger Clare, stendur þar skrifuð. En að ferðin, sem ég notaði til að myrða sjálft uppáhaldið mitt, hana Vanessu, er leyndarmál og verður það að eilífu. Enginn fær nokkru sinni að vita, hvernig ég fór að því eða hvernig ég faldi elskaða litla líkamann hennar. Eins og er — og ég bið ykkur að trúa hreinskilni minni — er það jafnvel mér hulið. Eg mun einhverntíma komast að sann- leikanum, draumurinn og raun- veruleikinn munu koma saman, og þá fæ ég að vita allt. En svo gæti ég dáið fyrr og þá fær eng inn, ekki einu sinni ég sjálfur, nokkurn tíma að vita það. Það er skelfilegt og þá skelfingu ætla ég ekki að opinbera neinum manni, heldur reyna að hugleiða þetta hræðilega verk mitt, svo að dauðinn er mér nauðsynleg- ur. Hver gæti þol'að slíka refs- ingu og lifað það af? Adolphus Fry. Vanner leit á Toby. Morðæði, sagði hann. Toby svaraði: — Eg bjóst meira eða minna við þessu, en það var þó bara tilgáta, því ég hafði svo fátt við að styðjast, en ég var farinn að halda, að þetta gæti verið eina skýringin. Og þess vegna vildi ég fá þig hingað, Vanner — ég ælaði mér aldrei að fara að rabba rólega við Adolphus Fry. Vanner var að fitla við hök- una á sér og hleypa brúnum, og leit svo á handritið með tor- — Heyrið þið mig, sagði Georg rólega, úr glugganum. — Það er manneskja í talsverðri lífshættu núna. Ef við brygðum nógu fljótt við, gætum við ef til vill bjargað hennL 14. KAFLI. Þeir litu á hann, án þess að skilja, hvað hann var að fara, en þá æpti Toby upp: — Frú Fry! Það er einhver af þessum bannsettu vítisvélum einhvers- staðarl Hvar er hún? Hvert er kerlingin farin? Georg svaraði: — Eg held að þú ættir að lofa fulltrúanum að gera skyldu sína við gamla manninn, og koma með mér. Eg veit, .hvert við eigum að fara. Vanner sagði: — Svo þú ert þá búinn að fá heyrnina aftur? — Við ættum að flýta okkur, sagði Georg. — Gott og vel, farðu bara með honum, sagði Vanner, við Toby. — Verið þið að minnsta kosti ekki fyrir mér hérna. Er nokkur sími hér í húsinu? Hann fór út, að leita að síma. Toby og Georg hittust úti við hliðið. Á veginum stóð bíll Max Potters. — Hvernig náðirðu í hann? spurði Toby. — Stal honum, hvaraði Georg og þeir stigu báðir inn í bílinn. — Halló, sagði Toby, þegar bíllinn fór af stað. Hvert erum við að fara? Til Wilmers End? Georg hristi höfuðið. — Hvert þá? En athygli Georgs var öll við — Sláðu ekki hana móður þína. fornbílinn. Hann var óþolinmóð ur og önugur við hann, og reyndi að pína hann upp í meiri hraða, en hann hafði náð á undaníörn um árum. Allt í einu æpti Toby: — Hilde brandstofnunina? Georg hristi höíuðið. — Mér líkar þetta ekki, sagði Toby. — Hvað erum við að fara? Og hvað hefur þú verið að haf- ast að síðan í gærkvöldi? — Það sem mig langar nú mest að vita, sagði Georg, — er, hvernig þú komst að því, að það væri gamli maðurinn? Þú sagð ir mér aldrei, hvað þú gizkaðir á. — Eg hefði sagt þér það ef þú hefðir ekki horfið út í myrkr ið. — Hvernig fannstu þetta út? Georg straukst fram hjá hjól- reiðamanni. Toby sagði: — Það var ekki fullnægjandi. Of miklar getgát- ur. Og ég er meira að. segja enn ekki viss um, að hann sé eins brjálaður og hann lætur i þessu skrifi sínu, eða hvort eitt hvert vit liggur að baki brjál seminni. Þú skilur, ef hann hef ur gert sömu vitleysuna og Eva, að halda, að eitthvert ástarævin- týri væri á ferðinni hjá Lou og Roger, og þau váeru í þann veg inn að giftast, þá hafði hann ærna ástæðu til að reyna að hindra það. Ef þau hefðu gifzt, hefði Vanessa orðið áfram i fóstri hjá Fry-hjónunum. En Lou og Vanessu þótt vænt hvorri um aðra. Lou hefði áreiðanlega orð ið bezta stjúpa. Og það þýddi sama sem, að Fryhjónin hefðu misst af álitlegri fjárupphæð. Það var eitthvað skrítið í bros inu á Georg. — Ef svo hefur verið, Tobbi, hversvegna kálaði han.n þá ekki Clare, blátt áfram, og lét Lou í friði? Skýrsla Dennings um Profumo-máliö (V) Rannsókn háyfirdómarans Miðvikudaginn 29. maí 1963, átti forsætisráðherrann fund með siðameistaranum og háyfir dómaranum (Lord Chancellor) og þar bað forsætisráðherrann háyfirdómarann að hefja sjálfur rannsókn á gögnum þeim, er mál ið snertu, og 30. maí ritaði for- sætisráðherrann bréf til hr. Wil sons, til að tilkynna honum þetta: „Eg hef verið að hugleiða samtal okkar á mánudaginn. Eg er persónulega sannfærð- ur um, að öryggisþátturinn í Wardmálinu hefur verið und ir nægilegu og vandlegu eft irliti, en ég tel mikilvægt, að þér þurfið ekki að vera í nein um vafa um það. Því hef ég beðið háyfirdóm arann að athuga vandlega skýrslur öryggisþjónustunnar og önnur gögn, sem mér hafa borizt í sambandi við mál þetta og gera hverja þá rannsókn, sem hann telur nauðsynlega með hjálp ör- yggisþjónustunnar og lögregl- unnar, og tjá mér, ef hann tel ur að frekari aðgerðir séu æskilegar". Háyfirdómarinn hóf rannsókn sína 30. maí 1963, og gaf skýrslu 13. júní 1963. En á meðan á því stóð, hafði margt gerzt, 15. KAFLI. Afsögn hr. Profumos. Öryggisþátturinn, sem hr. Wil son hafði vakið máls á og heila brotin, sem átt höfðu sér stað hjá blöðunum í Fleet Street höfðu sín áhrif. í vikunm, frá 27.—30. maí, hittu siðameistar- inn og einkaritari forsætisráð- herrans Profumo að máli, hvor í sínu lagi. Profumo var tjáð, að svo virtist sem rannsókn mundi fara fram. Ef nokkur veila væri í frásögn hans, mundi það skaða ríkisstjórnina ósegjan- lega. Hann var alvarlega áminnt ur um, að ef nokkuð væri ósatt í yfirlýsingu hans í þinginu, ætti hann að játa það ótilkvaddur. Hann neitaði enn, að nokkuð sem hann hefði sagt, væri ósatt. Honum var sagt, að háyfirdómar inn mundi vilja tala við hann í næstu viku. Föstudaginn 31. maí var þing- inu frestað sökum sumarleyfis ins. Forsætisráðherrann fór í stutt frí til Skotlands. Profumo hjónin fóru í stutt frí til Fen- eyja, til fimmudags 6. júní. Blöð in bjuggust við, að nú mundi eitt hvað gerast. Á flugvellinum í London voru Profumohjónin að sótt af blaðamönnum og Ijós myndurum. Þau komu til Fen- eyja um kvöldið. Profumo sagði mér, að hann hefði þá ákveðið það með sjálfum sér, að hann gæti ekki lengur gengið með þessa hræðilegu sök á samvizk- unni. Hann ákvað að segja konu sinni alla söguna. En fyrst borð- uðu þau kvöldverð í ró og næði Eftir kvöldverðinn sagði Pro- fumo konu sinni alla söguna — í fyrsta sinn — að hann hefði átt óleyfilegt samband við Christ ine Keeler. Hann sagði henni frá öllum smáatriðum. Þau töluðu um þetta fram eftir allri nóttu Profumo sagði: „Elskan mín, við verðum að fara heim nú, eins fljótt og við getum og horfast í augu við málið“. Og það gerðu þau. Þau töldu það of áberandi ef þau færu fljúgandi, svo að þau fóru daginn eftir með nætur lest og komu heim með ferjunni. Svo vildi til (eftir að þau höfðu ákveðið heimferðina), að um kl. 9,30 á laugardagsmorg- un, komu talsímaboð til gisti- hússins í Feneyjum, um að hann þyrfti að koma heim einum degi á undan áætlun. Það var satt. Háyfirdómarinn var að •hefja rannsókn sína og vildi tala við Profumo á miðvikudag, 5. júní. En þau höfðu þegar á- kveðið heimförina. Profumohjénin komu til Eng- lands á hvítasunnudag, 3. júní, og snemma næsta dag fóru þau í bíl til Summolk til Hare-hjón- anna, (sem voru miklir vinir þeirra). Profumo sagði Hare sannleikann. Eftir að hafa feng ið ráðleggingar hjá honum, sneri hann aftur til Londo«n og 4. júní hitti hann siðameistarann og einkaritara forsætisráðherr- ans. Hann sagði formálalaust: „Eg verð að segja ykkur, að ég svaf raunverulega hjá ungfrú Keeler og yfirlýsing mín um það efni var ósönn“. Vitanlega lá það í augum uppi, að hann gat ekki lengur setið í ríkisstjórn- inni. Hann varð að segja af sér Þá fóru þessi bréf á milli: „Kæri forsætisráðherra. Þér munuð minnast þess, að ég gaf persónulega yfirlýs- ingu í þinginu, 22. marz, í tilefni af tilteknum ásökun- um. Um þær mundir hafði al- mannrómurinn, sakað mig um að hjálpa til við hvarf vitnis og jafnvel að hafa gerzt sekur um brot gegn öryggi lands- ins. Svo alvarlegar voru þess ar ásakanir, að mér varð á að halda, að persónulegt sam- band mitt við þetta vitni, sem einnig hafði orsakað sögu- sagnir, væru hlutfallslega lít ilvægari. í yfirlýsingu minni sagði ég, að engin ósiðsemi hefði verið samfara þessu sam bandi. Mér þykir mjög fyrir því að játa, að þétta var ekki sannleikanum samkvæmt, og að ég hefði blekkt yður og starfsbræður mína, og svo þingið. Eg bið yður skilja, að ég gerði þetta til þess að vernda konu mína og börn — að ég sjálfur hélt — sem voru blekkt á sama hátt — svo og lögfræðilegir ráðunautar mín ir. Mér hefur orðið það ljóst, að með þessum blekkingum hef ég orðið sekur um alvar- legt misferli, og þrátt fyrir það, að hinar ásakanirnar eru ósannar, get ég ekki hald ið áfram að vera í ríkisstjórn yðar, né heldur í neðri mál- stofu þingsins. Eg get ekki lýst fyrir yður innilegri iðrun minni eftir þau vandræði, sem ég hef kom ið í bæði yður og starfsbræðr um mínum í ríkisstjórninni, kjósendum minum og flokkn um, sem ég hef þjónað í und anfarinn aldarfjórðung. ^ Yðar einlægur Jack Profumo. Til háttv. Harold Macmillan, forsætisráðherra".

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.