Morgunblaðið - 16.11.1963, Qupperneq 22
22
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 16. nóv. 1963
5 þátttakendur í vetrar-OL í Innsbruck?
Sennilegt að það verði
3 svigmenn og 2 í göngu
ÞAÐ LIGGUR í ’oftinu að það fari 5 íslenzkir skíðamenn á Vetr-
arolympíuleikana í InnsOruck í Austurríki sem hefjast 29. janúar
n k. Það er einnig rætt manna á meðal að fyrir valinu verði 3
svigmenn og 2 göngumenn. Þetta sagði Stefán Kristjánsson, vara-
formaður SKÍ í samtali við blaðið I gær, en Stefán tók það fram,
að Olympíunefndin ætti <*ftir að ákveða fjölda þátttakendanna og
fyrr en sú ákvörðun lægi fyrir, væri ekkert hægt að segja með
vissu.
*ÓBLÍÐ VEÐUR
Stefán sagði Mbl. einnig,
að það hefði ætíð verið von
Skíðasambandsins að geta
sent væntanlega þátttakend-
ur utan um áramótin svo að
þeir fengju einn mánuð til
æfinga við þær aðstæður sem
keppt verður við. En það er
heldur svart útlit fyrir að sá
draumur rætist vegna fjár-
skorts.
* TVÖ ÞJÁLFUNAR-
NÁMSKEIÐ
SKÍ hefur nú efnt til tveggja
þjálfunarnámskeiða. Hið fyrra
var í ágúst í Kerlingafjöllum og
tókst skínandi vel. Hið síðara
var á Siglufirði og hófst 5. nóv.
s.l. eh lauk með móti 12. nóv.
Tókst það einnig vel, nægur
snjór og bæði þátttakendur, sem
voru 10 talsins, og kennarar, þeir
Baldur Ólafsson í göngu og
Hjálmar Stefánsson í alpagrein-
um voru hinir ánægðustu með
árangurinn.
Nægur snjór var í Siglufirði
en veður heldur ill og óblíð við
skíðamennina. En á mótinu í
lok námskeiðsins urðu úrslit
þessi.
SVIG — 9. nóv.
Farnar 4 ferðir í brautinni og 3
þær beztu taldar í samanlögðum
tíma.
sek.
1. Jóh. Vilbergsson, Sigl. 141,7
2. Samúel Gústavss., ísaf. 141,7
3. Árni Sigurðsson, ísaf. 149,4
4. Hafst Sigurðsson, Isaf. 152,6
5. Krjst. Benediktss., Isaf. 157,2
SVIG — 10. nóv.
Farnar tvær ferðir og báðar
taldar.
1. Krist. Benediktss., Isaf. 103,2
ARSÞING KKI
ÁRSÞING Körfuknattleikssam-
bands íslands verður haldið í
KR-úúsinu við Kaplaskjólsveg
sunnudaginn 17. nóv. kl. 10 f.h.
Þar fara fram venjuleg aðalfund
arstörf o^kosning stjórnar fyrir
næsta ár.
2. Árni Sigurðsson, ísaf. 104,6
3. Samúel Gústavss., ísaf. 106,5
4. Jóh. Vilbergsson, Sigl. 107,5
5. Hafst. Sigurðsson, ísaf. 113,8
STÓRSVIG — 11. nóv. 1 ferð.
1. Jóh. Vilbergsson, Sigl. 52,0
2. Árni Sigurðsson, ísaf. 54,4
3. Samúel Gústavsson, ísaf. 55,6
4. Hafsteinn Sigurðss., ísaf. 57,6
Kristinn Ben. var ekki með
vegna smávegis meiðsla.
GANGA 15 km, 10. nóv.
mín.
1. Birgir Guðlaugss., Sigl. 58.04
2. Þórhallur Sveinss., Sigl. 58,54
3. Sv. Sveinsson, Sigl. 60,41
4. Gunnar Guðm.s., Sigl. 61,12
5. Kristj. R. Guðm. ísaf. 62,40
20 km GANGA — 12. nóv.
Birgir 76,25
Zfffí&VZSffl «9v»/ AA y. - » V ' " ' í w swVWVA ,v<.>/ y>,vy X--
Hér eru nokkrir þeirra sem hafa sótt námskeiðið. Frá vinstri: Samúel Gústafsson,
son, Jóhann Vilbergs, Kristinn Benediktsson, Hafsteinn Sigurðsson og þjálfarinn
fánsson.
Ámi Sigurðs-
Hjálmar Ste-
Beztu göngumennirnir, Siglfirðingamir Birgir Guðlaugsson (tv)
og Þórhallur Svensson eftir spe nnandi keppni.
Körfuknattleiksmót
Rvíkur hefst í kvöld
> r >
IR og Armann leika á morgun
Körfuknattleiksm.ót Reykjavík-
ur hefst í kvöld að Hálogalandi
og annað leikkvöld er annað
kvöld. Helgin verður því „körfu
knattleikshelgi“ fyrir íþrótta-
unnendur. Á leikkvöldum móts-
ins um helgina er blandað saman
leikjum hinna eldri og 1 meist-
arafloksleikur er hvort kvöld.
Núverandi Reykjavíkurmeist-
arar — og reyndar íslandsmeist-
arar einnig — eru iiðsmenn ÍR.
Þeir lenda þegar í stað gegn
sterkum andstæðingi sem eru
Ármenningar. Annars ryðja nú
ungir og góðir leikmenn sér rúm
og valt er að byggja spádóma á
því sem skeði á s.l. vetri
Fyrstu leikirnir í kvöld og á
morgun em þessir:
Laugardag kl. 8.15.
KR - ÍR b-lið í 3 flokki
Ármann - ÍR í 2 flokki
KFR - KR í meistarafl karla
Sunnudagur kl. 8.15
Ánm. A-lið - KFR 3 flokki
KR - ÍR í 3 flokki
Ármann - ÍR í m.fl. karla
Þórhallur
Sveinn
Gunnar
Kristján R.
76,45
78,05
80,58
81,14
Molar
UTflN ÚR
HEIMI
Knattspymukappleikurinn
milli Júgóslavíu og „heims-
liðs“ verður leikinn í Belgrad
8. apríl n.k. — Ágóði leiks-
ins rennur, eins og við áður
höfum skýrt frá — til þeirra
sem misstu eigur sínar í jarð
skjálftunum í Skoplje.
Leikurinn verður leikinn á
▼ígsludegi nýs leikvangs sem
rúmar 100 þús. manns.
Enska unglingalandsliðið í
knattspyrnu beið ósigur við úr-
▼al unglinga í Las Palmas 2-1.
Þetta var annar leikur Englend-
inganna þarna, þann fyrri unnu
þeir 3-2.
Líklegt er talið að Brazilíu-
maðurinn frægi Garrincha und-
irriti samning við Milan á Ítalíu.
Hann er 28 ára og kaupverðið
sagt vera um 27. millj. ísl. kr.
Japanska Olympíunefndin hef-
ur ákveðið að Olympíulið frá
Formósu megi ekki opinberlega
nota nafnið „Kínverska lýðveld-
ið“. Hið opinbera nafn verður að
vera „Taiwan“.
I Þjó&verjar koma ekki ]
— 3 Svíar í staiinn?
SUNDMENN Ármanns hafa
nú fengið skeyti þess efnis að
Austur-Þjóðverjamir, sem
Mbl. sagði í gær að myndu
koma í heimsókn á afmælis-
mót Ármanns, muni ekki
koma í heimsókn á afmælis-
mót Ármanns, muni ekki
um vegabréfsáritun. Fengju
Austur-Þjóðverjar eftir sem
áður að koma hingað til Iands,
án þessarar áritunar, yrði það
pólitískt deilumál milli ís-
lendinga og Vestur-Þjóð-
verja.
Heimsókn austur-þýzku
sundmannanna er því afskrif
uð með öllu.
En Ármenningar eru ekki
hættir við tilraunina til að fá
hingað gott sundfólk til
keppni. Þegar er þeir höfðu
neitunarskeyti Þjóðverjanna
sendu þeir boð til Svíþjóðar
og buðu eftirtöldu fólki á
mót sitt.
Jan Lundin, sem er einn
fremsti sundmaður Svía.
Hann syndir 100 m skriðsund
á 56,0 sek. og 200 m á 2.02,7,
400 m á 4.23,0 og eru allir
tímarnir miðaðir við 50 m
laug, svo hér yrðu sprettir
hans sennilega þeir glæsileg-
ustu er hér hafa sézt, ef ráða
má af líkum.
M. Wehlander er ein af
beztu sundkonum Svía og
syndir 100 m skriösund á
1,05 mín. og er einnig góð
bringusundkona þó það sé
hennar aukagrein.
Olle Ferm er unglingur að
aldri en mjög efnilegur. Hann
syndir 100 m skriðsund undir
mínútu og 100 m baksund á
1.08 min.
Það væri ekki ónýtt fyrir
sundfólk hér að fá þessa gesti,
en svar við boði Ármenninga
til þeirra hefur ekki borizt.