Morgunblaðið - 16.11.1963, Blaðsíða 23
f Laugardagur 16. nóy. 1963
MORGUNBLAÐID
23
— Gosið
Kvöldvaka leikara
FÉLAG íslenzkra leikara efndi
til leikarakvöldvöku í Þjóðleik-
húsinu mánudaginn 4. þ.m, en
sú viðleitni félagsins til söfnun-
ar í félagssjóð hefur legið niðri
um nokkurra ára skeið. Kvöld-
vaka þessi reyndist hin vinsæl-
asta, og hafa færri en vildu kom-
izt á þær þrjár sýningar, sem
verið hafa til þessa. Þarna koma
fram flestir af þekktari fé'lags-
mönnum F.Í.L., ýmist á leiksviði
eða utan þess, og vekja óskipta
kátínu áhorfenda.
Að öðrum atriðum kvöldvök-
unnar ólöstuðum vekur leikara-
hljómsveitin sennilega mestan
hlátur, enda er hér um mjög ó-
venjulegt og sérstætt skemmti-
atriði að ræða. Og einsöngur
Framh. af bls. 24
Þórarinsson á varðskipinu Al-
bert um 9 leytið í gærkvöldi.
Hann sagði að gosið væri svipað
að styrkleika og verið hefði, en
eftir að eyjan myndaðist þeytt-
ist glóandi hraun miklu lengra
upp, líklega í nokkur hundruð
metra hæð. Einnig væri í mekk-
inum talsvert af eldingum, sem
benti til að í honum væri aska.
Hann sagði að eyjan nýja, sem
vísindamennimir nefna Séstey
með tilliti til þess að hann megi
kalla Séstei ef á þarf að halda,
sjáist stöku sinnum í mekkinum.
Glóði það mikið inn í mekkin
um að þar sé greinilega hraun
að ná upp.
Gjall sáldrast niður. Og sagði
Sigurður að stöku flugvél færi
óþarflega nærri, því slettur gætu
orðið stórar. En gjallið sekkur
jafnóðum.
— Annars er það eitt af okkur
að frétta, að við gægjumst öðru
hverju upp á mökkinn, og snúum
meira lóðrétt en lágrétt, sagði
Sigurður. Unnsteinn hefur á orði
að bezt sé að skjóta landhetjun-
um í land í kvöld, við séum bara
fyrir. Hann og aðstoðarmenn
hans ætla að taka kerfisbundin
sýnishorn allt í kringum gosstað-
inn í alla nótt. En ég óska þess
bara að ég fái að bjóða honum
upp á eldgos á Vatnajökli, svo
ég geti látið hann liggja á ís
er eitt mesta vandamál Vest-
mannaeyinga.
Mbl. hafði samband við Veður
stofuna og ræddi málið við Jón
Eýþórsson. Hann sagði að norð-
austan blástur hefði verið á gos-
staðnum, 7 vindstig og 8 stiga
frost í gærkvöldi. Og spáð væri
að hvessti á austan, svo ekki
ætti að vera ástæða til að óttast
þetta í dag.
Áhorfendur og vísíndamenn
á staðinn.
í gær og fyrradag var stöð-
ugur flugvélastraumur yfir gos-
stöðvunum, allar flugvélar á
lofti. Flugfélagið flaug yfir, Björn
Pálsson með sínar vélar og all-
ar einka- og leiguvélar.
Gosmökkurinn sást alla leið á
Snæfellsnes, og var greinilegur
í Reykjavík. Fjöldamargir óku
á Kambabrún til að sjá hann.
Vísindamenn eru á varðskip-
inu Albert á Gosstöðvunum. —
Þar eru dr. Sigurður Þórarins-
son við athuganir, dr. Guðmund-
ur Sigvaldason, jarðefnafræðing
ur, dr. Þorleifur Einarsson, jarð
fræðingur, dr. Unnsteinn Stefáns
son, haffræðingur, Svend Aage
Malmberg, haffræðingur o.fl.
Árna Tryggvasonar með undir- a v*rð að
það að gos eru miklu huggulegn
á landi.
Arnfinnssonar er
leik Róberts
bráðsmellinn.
Leikarar hafa fá tækifæri til
að halda þessa kvöldvöku sína,
því flest kvöld er leikið í leik-
húsunum, en þó eiga þeir venju-
lega frí á mánudögum. Er þess
vegna ákveðið að endurtaka
kvöldvökuna á mánudagskvöld,
og verða þá tvær sýningar, kl.
átta og ellefu.
— / landhelgi
Framh. af bls. 24
Fyrir réttinn komu svo þrír
stýrimenn varðskipsins og háset-
arnir tveir, sem höfðu farið um
borð í togarann. Staðfestu yfir-
mennirnir skýrslu skipherra. —
Magnús Emilsson, 2. stýrimaður,
kvaðst hafa beðið hásetana tvo
að athuga togvírana þegar komið
var um borð í togarann. Voru þá
báðir endarnir niðri í netalest og
voru þar þrír menn að búa sig
undir að splæsa saman vír-
ana. Voru þeir stöðvaðir við
það verk og síðan höfð gæzla á
vírunum.
Togaramenn höfðu náð í nýja
vörpu, sem lág í hrúgu á fram-
þilfarinu, en voru ekki búnir að
slá undir. Hásetar báru það, að
vírarnir hefðu greinilega verið
höggnir.
Að loknum eiðfestum fram-
burði varðskipsmanna kvaddi
dómurinn til tvo sérfróða menn
til að athuga togvírana á James
Barrie og sérstaklega enda
þeirra.
Var síðan gert réttarhlé til kl.
18, en þá var kominn til ísafjarð-
ar Gísli ísleifsson, hrl., verjandi
skipstjórans. Kom þá fyrir rétt-
inn Richard Taylor, skipstjóri.
Var honum lesin skýrsla skip-
herrans á Þór og gerði hann
nokkrar athugasemdir við hana.
Sagði Taylor, að þegar togar-
lnn hefði snúið við með Þór að
ná í dufl, sem varðskipið hafði
sett út, þá hefði hvorki togara-
menn né 2. stýrimaður á Þór, sem
var um borð í togaranum, séð
varðskipið taka upp neitt dufl.
Þrátt fyrir þetta kvaðst Taylor
ekki neita því, að hafa verið fyr-
ir innan fiskveiðitakmörkin.
Hann sagðist ekki hafa gert stað-
arákvörðun og því vel hafa getað
verið nokkrum milum fyrir inn
an, en hélt fast við, að hann
hafi ekki verið að veiðum. Sagði
hann, að nokkrir skipverjar
hefðu verið að störfum í lest, en
aðrir á þilfari að undirbúa að
setja undir nýja vörpu. Hann
hefði leitað inn fyrir fiskveiði-
mörkin vegna veðurs, þar sem
þungur sjór hefði verið fyrir
utan en sléttari sjór nær landi.
Skipstjórinn kvaðst hafa misst
vörpu sína fyrr um daginn um
16.2 mílur NV af Galtarvita, tæp-
ar 3 mílur utan markanna.
Kvaðst hann hafa sett þar út
lítið dufl og tveir eða þrír togar-
ar frá Grimsby hafi ætlað að
slæða eftir henni. Hefði afturvír-
inn slitnað fyrst og forvírinn 10
mínútum síðar. Hann sagði, að
höggvið hefði verið á vírendana
á þilfari til þess að búa þá undir
splæsingu.
Skipstjórinn var spurður um
þá staðhæfingu varðskipsmanna,
að þeir hafi séð tvo togvíra aftur
af skipinu. Svaraði hann því til,
að varðskipsmenn hlytu að hafa
mjög góða sjón, því skyggni hafi
verið svo slæmt, að þeir hefðu
ekki getað séð neina víra, jafn-,
vel þótt þeir hefðu verið í tog-
blökkinni. Sjálfur kvaðst hann
hafa beint kastljósi sínu á Þór
og ekki þekkt varðskipið fyrr en
það var komið alveg að skips-
hliðinni og haldið að þarna væri
flutningaskip. Hann kvaðst ekki
hafa heyrt né séð merki frá varð-
skipinu vegna veðurs. Grimsby-
togari hefði kallað sig upp í
talstöð og sagt að Þór væri að
kalla og hafði hann þá strax sam-
band við varðskipið.
Taylor skipstjóri sagði, að þeg-
ar hann hefði kennt varðskipið
hefði sín fyrstu og eðlilegu við-
brögð verið að taka á rás og hafi
hann sett á fulla ferð og stefnt
til hafs. Þegar varðskipsmemn
komu um borð í togarann hefði
ekkert það verið á þilfari sem
bæri vott um að hann hafi verið
að veiðum og vörpurnar verið
niðri í netalest. Skipstjóri óskaði
að lokum eftir því, að stýrimað-
ur og bátsmaður yrðu kvaddir
sem vitni.
Að þessu loknu var lögð fram
skýrsla dómkvaddra manna sem
athugað höfðu togvírana og kem-
ur þar fram, að vírarnir hafi ver-
ið höggnir. Var rétti þá frestað
til kl. 9.
Þegar réttarhöldunum var
haldið áfram í kvöld komu fyrir
réttinn stýrimaður og bátsmaður
togarans. Staðfestu þeir með eið-
festum framburði framburð skip-
stjóra um það hvar og hvernig
togarinn hefði misst vörpu sína.
Að réttarrannsókn lokinni var
málið sent til saksóknara ríkis-
ins. — Högni.
—- 30 ár
Framhald af bls. 1.
Kennedy sagði stjórnina hafa
mótmælt því harðlega , að pró-
fessorinn hefði ekki fengið að
ræða við sendimenn Bandaríkj-
anna í Moskvu. Varðandi frekari
umræður um menningartengslin
sagði Kennedy augljóst, að til-
gangslaust væri að hefja viðræð-
ur um menningarmál, ef sambúð
ríkjanna væri slík, að maður, sem
aldrei hefði nærri njósnum kom-
ið, væri handtekinn og ekki gef-
inn neinn kostur á að bera hönd
fyrir höfuð sér.
♦ Mistök — telur Steinbeck
John Steinbeck, rithöfundur,
sem um þessar mundir er stadd-
ur í Moskvu, sagði á fundi með
fréttamönnum í bandaríska sendi
ráðinu í gær, að Sovétstjórnin
hefði með meiri rétti getað hand-
tekið hann en Barghoorn, því að
hann hefði spurt sovézka embætt
ismenn margra óþægilegra spurn
inga. Kvaðst hann þeirrar skoð-
unar, að prófessorinn hefði verið
handtekinn fyrir mistök lágt-
settra embættismanna og málið
myndi leysast innan skamms.
— 4/jb/ng/
Framihald af bls. 6
Á GÍSLI Guðmundsson (F)
o.fl. hafa lagt fram tillögu til
þingsályktunar um endurskoðun
laga um aflatryggingasjóð sjáv-
arútvegsins.
Á Frumvarp um heftingu sand
foks og græðslu lands hefur ver-
ið lagt fram í Neðri deild. Flutn-
ingsmenn eru Björn Fr. Björns-
son (F) og Gísli Guðmundsson
(F).
SIGRÚN SVEINSSON MIR
löggiltur dómtúlkur og
skjalaþýðandi i þýzku.
Simi 1-11-71.
Vestmannaeyingar hafa verið
að hafa af því áhyggjur, að átt
kunni að breytast og þeir fái vik-
urgjall yfir sig, og bera þá mest-
an kvíðboga fyrir að fá það á
>ök sín og í vatnsból, en það
Tennurnar
stóðn í honum
Messina, 1S. nóv. AP
„SOS — falskar tennur standa
manni“ — Svohljóðandi
neyðarskeyti barst í gær-
kveldi frá rússneska kaup-
skipinu „Faisabad", sem statt
var á Messinasundi. Vélbátur
var þegar sendur út að skip
inu til þess að ná í manninn.
Var það 51 árs Rússi, Alex-
ander Kusmin og átti hann
orðið allerfitt um andardrátt
Kusmin hafði setið að
kvöldverði ásamt öðrum skip
verjum, er annar faiski góm-
urinn hans losnaði og rann
niður í hann. Þar sat hann
fastur og varð hvorki bifað
upp né niður komið.
Læknir í Messina náði
gómnum upp og setti hann á
sinn stað — og ’Kusmin hélt
glaður ti/1 skips sins.
— írak
Framhald af bls. 1.
Aflak, sem er framkvæmdastjóri
Baathflokksins í Sýrlandi og
einn af stofnendum hans. Eru
menn þessir í þrettán manna
stjórn sambands Baath-sósíal-
ista, er kjörin var á leynileg-
um fundi í Damaskus í fyrrvet-
ur.
í gær var tveim ráðherrum
íraksstjórnar, þeim Taleb Huss-
ein Shabib, utanríkisráðherra,
og Hazen Kawad, innanríkisráð-
herra — svo og Mohammed Huss
ein, ofursta sendifulltrúa íraks
í Damaskus — vísað úr landi.
Fóru þeir flugleiðis til Líbanon
ásamt fjórum mönnum úr stjórn
Baathflokksins í írak, — og er
nú talið, að E1 Bakr, forsætis-
ráðherra og Ammash, landvama-
ráðherra, séu nú einráðir innan
flokksins.
Kvennoneínd
Dómkirkjunnnr
snfnor fé
KVENNANEFND Dómkirkjunn-
ar vinnur sem kunnugt er að því
að prýða kirkjuna og halda henni
sem snyrtilegastri og fallegastri.
Til þess safnar hún fé og mun
m.a. hafa kaffisölu í Sigtúni næst
komandi sunnudag kl. 3, þar sem
einnig verða seldir handunnir
munir, sem konurnar hafa gert.
Vilja konurnar nú skora á Reyk-
víkinga að styðja þær í því að
prýða Dómkirkjuna með því að
drekka hjá þeim síðdegiskaffið
á sunnudag.*
Kirkjunefnd kvenna hefur m.a.
gefið nýjan og dýrmætan altaris-
búnað í Dómkirkjuna. Nú stend-
ur fyrir dyrum að innrétta sal á
kirkjuloftinu og vantar til þess
mikið fé, sem konurnar vilja að
sínu leyti reyna að afla. Undan-
farið hafa þær verið að vinna
muni sem t.d. eru hentugir til
jólagjafa og hafa þá á boðstólum
í Sigtúni við Austurvöll.
HELGARRAÐSTEFNÁ
Helgarráðstefna um stefnu-
skrá Heimdallar hefst í Val-
höll í dag kl. 14.00 og lýkur á
morgun (sunnudag).
Sjá nánari auglýsingu annars
staðar í blaðinu.
Ekkert flogið
til ísafjorðor
í viku
ísafirði, 15. nóvember.
EKKERT hefur verið flogið alla
vikuna. í dag stóð til að flug-
vél kæmi og höfðu farþegar ver-
ið boðaðir á afgreiðslu Flugfé-
lagsins, en þegar þangað kom
var tilkynnt að hætt hefði verið
við flug, þar sem tvær flugvél-
ar hefðu orðið veðurtepptar,
önnur á Akureyri en hin í Vest-
mannaeyjum.
Mikil óánægja er hér með þjón
ustu Flugfélagsins og þykir
mönnum ótækt að ekki skuli vera
flogið fremur til ísafjarðar eftir
að samgöngur hafi legið svo
lengi niðri, en til staða sem búa
að miklu betri samgöngum á
sjó og landi, svo að ekki sé
minnzt á „gosflug“, sem Flugfé-
lagið auglýsir dag eftir dag í
útvarpinu.
Ekkert dagblað hefur sézt hér
síðan verkfallinu lauk, sáralítill
póstur og mikill fjöldi fólks bíð-
ur eftir flugfari. — H.T.